Morgunblaðið - 13.01.1998, Blaðsíða 39
+
MORGUNBLAÐIÐ____________________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998 3,9
FRÉTTIR
16 í prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
OPIÐ prófkjör sjálfstæðismanna í
Kópavogi vegna væntanlegra bæj-
arstjórnarkosninga vorið 1998
verður haldið laugardaginn 7.
febrúar 1998 nk. og hefst kl. 10 ár-
degis í Hamraborg 1, 3. hæð, kjör-
fundi lýkur kl. 22 sama dag.
Þátttaka í prófkjörinu er heimil
öllum stuðningsmönnum Sjálf-
stæðisflokksins sem eiga kosn-
ingarétt í Kópavogi á prófkjörs-
degi svo og öllum fullgildum með-
limum sjálfstæðisfélaganna í
Kópavogi sem búsettir eru í
Kópavogi og náð hafa 16 ára aldri
á kjördegi eða undirrita stuðn-
ingsyfirlýsingu við Sjálfstæðis-
flokkinn í Kópavogi um leið og
kosið er. Kosning fer þannig fram
að kjósandi merkir við nöfn
hvorki fleiri né færri en 8 manna
með því að setja tölustafi fýrir
framan nöfn frambjóðenda á próf-
kjörsseðlinum í þeirri röð sem
óskað er að þeir skipi á framboðs-
listanum.
Þessir frambjóðendur eru í
kjöri: Sesselja Jónsdóttir, lögmað-
ur, dr. Sigfús A. Schopka, fiski-
fræðingur, Erla Björk Þorgeirs-
dóttir, verkfræðingur, dr. Gunnar
Ingi Birgisson, verkfræðingur,
Sigurður Konráðsson, kerfisfræð-
ingur, Margrét Bjömsdóttir, hús-
móðir, Lárus Pétur Ragnarsson,
lögregluvarðstjóri, Sigurrós Þor-
grímsdóttir, stjómmálafræðingur,
Halla Halldórsdóttir, hjúkranar-
fræðingur/ljósmóðir, Helgi Helga-
son, framkvæmdastjóri, Gunn-
steinn Sigurðsson, skólastjóri,
Halldór J. Jörgensson, tölvunar-
fræðingur, Bragi Michaelsson,
umsjónar- og eftirlitsmaður, Ar-
mann Kr. Ólafsson, aðstoðannaður
ráðherra, Pétur Magnús Birgisson
og Ásdís Ólafsdóttir, íþróttakenn-
ari.
Þeir kjósendur er verða fjarver-
andi á kjördegi geta kosið á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins, Hamra-
borg 1, 3. hæð, eftirtalda daga: 28.
janúar kl. 18-19, 31. janúar kl.
10-12, 4. febrúar kl. 17-19 og 6.
febrúar kl. 17-19.
í kjörstjóm Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Kópavogi era
Jón Atli Kristjánsson, Jónas
Frímannsson og Snorri G. Tómas-
son.
RAÐAUGLYSINGAR
HUSNÆÐI | BOOI
I Kvosinni
Menningarsjóður
útvarpsstöðva auglýsir
ATVINNUHUS NÆÐI
Atvinnuhúsnæði óskast
Til leigu í hjarta Reykjavíkur mjög gott 235 m2
húsnæði á einni hæð í góðu ástandi. Upplagt
fyrir skrifstofur, auglýsingastofur, teiknistofur
eða félagasamtök. Sanngjörn leiga.
Upplýsingar veittar á skrifstofutíma í síma
552 5530.
TILKYNNlMGAR
Auglýsing um svæðis-
skipulag Skagafjarðar
Samkvæmt 13. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 er hér með lýst eftir athugasemd-
um við tillögu að svæðisskipulagi Skagafjarð-
ar.
Skipulagstillaga þessi nær yfir núverandi og
fyrirhugaða byggð og aðra landnotkun næstu
tólf árin í þeim tólf sveitarfélögum, sem aðild
eiga að samvinnunefndinni.
Tillaga að svæðisskipulagi Skagafjarðar, skipu-
lagsuppdráttur og tillögugreinargerð, ásamt
forsenduhluta, liggurframmi almenningi til
sýnis frá 7. janúar 1998 til 5. febrúar 1998 og
er öllum heimilt að skoða hana á þeim sýning-
arstað sem þeir kjósa.
Tillagan liggur frammi á eftirtöldum stöðum:
1. Akrahreppi; Félagsheimilinu Héðinsminni
2. Fljótahreppi; Ketilási 3. Hofshreppi; Skrif-
stofu hreppsins, Hofsósi
4. Hólahreppi; Bændaskólanum Hólum
5. Lýtingsstaðahreppi; Skrifstofu hreppsins,
Lækjarbakka 5, Steinsstaðabyggð
6. Rípurhreppi; Félagsheimili Rípurhrepps
7. Sauðárkróki; Bæjarskrifstofunum í Búnað-
arbankahúsinu, Sauðárkróki
8. Seyluhreppi; Félagsheimilinu Miðgarði
9. Skarðshreppi; Félagsheimilinu Ljósheim-
um
10. Skefilsstaðahreppi; Félagsheimilinu Skagaseli
11. Staðarhreppi; Félagsheimilinu í Melsgili
12. Viðvíkurhreppi; Skrifstofu hreppsins, Enni
13. Skrifstofu Héraðsnefndar Skagfirðinga;
Stjórnsýsluhúsinu á Sauðárkróki
14. Skipulagsstofnun; Laugavegi 166 í Reykjavík.
Oddvitar veita nánari upplýsingar um opnunar-
tíma þar sem sýnt er í félagsheimi.lum.
Athugasemdum við skipulagstillöguna, ef ein-
hverjar eru, skal skila til Samvinnunefndar um
svæðisskipulag Skagafjarðar hjá Héraðsnefnd
Skagfirðinga í Stjórnsýsluhúsinu á Sauðárkróki
eigi síðar en 18. febrúar 1998 og skulu þær
vera skriflegar.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Samvinnunefnd
um svæðisskipulag Skagafjarðar.
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, bókasöfn, myndir,
málverk, silfur, silfurborðbúnað, jólaskeiðar,
Ijósakrónur, gömul póstkort, íslensk spil og hús-
gögn. Uppl. í símum 555 1925 og 898 9475.
Geymið auglýsinguna.
Samkvæmt útvarpslögum og reglugerð um
Menningarsjóð útvarpsstöðva er hlutverk
sjóðsins m.a. að veita styrki til eflingar innlend-
ri dagskrárgerð fyrir hljóðvarp og sjónvarp,
þeirri er verða má til menningarauka og
fræðslu.
Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir
umsóknum um styrki úr sjóðnum. Til úthlutun-
ar eru u.þ.b. kr. 50.000.000. í umsóknum skulu
eftirfarandi upplýsingar koma fram:
1. Nafn umsækjanda, kennitala og heimilis-
fang, ásamt upplýsingum um aðstandendur
verkefnis og samstarfsaðila og skriflegum
staðfestingum allra aðila um þátttöku í verk-
efninu.
2. Heiti verkefnis og megininntak.
3. ítarleg og sundurliðuð kostnaðaráætlun
ásamt greinargerð um fjármögnun, þ.m.t.
um framlög og styrki frá öðrum aðilum, sem
fengist hafa eða sótt hefur verið um, eða
fyrirhugað er að sækja um.
4. Fjárhæð styrks sem sótt er um.
5. Nákvæm áætlun um framvindu verkefnis
og greinargerð um það til hvaða verkþátta
sótt er um styrk til.
6. Handrit eða nákvæm lýsing verkefnis.
7. Yfirlýsing útvarpsstöðvar um að fyrirhugað
sé að taka dagskrárefni, sem sótt er um styrk
til, á dagskrá.
Umsóknum og öllum fylgigögnum ber að skila
í þríriti á skrifstofu framkvæmdastjóra sjóðs-
ins, Bjarna Þórs Óskarssonar hdl., Laugavegi
97, 101 Reykjavík, eigi síðar en 16. febrúar nk.
Með umsókn skal skila fylgiblaði með lykilupp-
lýsingum á eyðublaði sem fæst afhent á sama
stað. Úthlutunarreglur sjóðsins fást afhentar
á sama stað.
Ekki verður tekið tillit til umsókna sem ekki
uppfylla öll framangreind skilyrði, né eldri
umsókna.
TILBOÐ/ÚTBOÐ
Útboð
Fyrir hönd Vöruflutnignamiðstöðvarinnar hf.
er óskað eftir tilboðum í búnað í hleðsluop fyrir
vöruflutningabíla í nýbyggingu fyrirtækisins
í Reykjavík.
Um eftirtalinn búnað er að ræða:
— Vöruhurðir 33 stk.
— Veðurhlífar 28 stk.
— Lyftubrýr 29 stk.
Útboðsgögn verða afhent hjá VSÓ Ráðgjöf
ehf., Borgartúni 20, 105 Reykjavík, gegn 5.000
kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en
föstudaginn 30. janúar 1998 klukkan 11:00.
Lítil heildsala með smávægilega framleiðslu
óskar eftir 4—600 m2 atvinnuhúsnæði.
Húsnæðið þarf að nýtast sem lagerpláss,
framleiðsluaðstaða og skrifstofa.
Áhugasamir sendi tilboð til afgreiðslu Mbl.,
merkt: „Framtíð".
Til leigu skrifstofuhúsnæði r
Hef til leigu (sölu) skrifstofuhúsnæði við Grens-
ásveg 16 (4. hæð). Um er að ræða 2 samliggj-
andi herbergi, 36 og 40 m2, sem geta haft sér-
inngang. Gott útsýni til austurs.
Húsnæðið verður laust 5. febrúar.
Upplýsingar gefur Þórarinn í síma 568 5730.
KENNSLA
Leikjaskóli barnanna
Nýtt námskeið hefst nk. laugardag, 17. janúar.
Kennt verður í tveimur hópum, yngri og eldri.
3ja og 4ra ára börn mæti kl 09.00, en 5 og 6
ára kl. 10.00.
Kennt verður í Haukahúsinu við Flatahraun.
Menntaðir kennarar. 10 vikna námskeið
kostar aðeins kr. 2.800.
Skráning og uppl. í síma 555 3712 og 565 2424.
Ungur nemur — gamall temur!
Skólastjórn.
--------------------------------------t
Félag bókhaldsstofa
heldur námskeið í nýlegum skattabreytingum
næstkomandi laugardag 17. janúarkl. 10—18
í A-sal Hótel Sögu. Farið verður yfir rekstrar-
framtalið, nýlegar skattalagabreytingar og
kynnt ný útgáfa af TOK. Allir félagsmenn hafa
fengið sent fréttabréf með dagskrá. Verð fyrir
utanfélagsfólk er 3500 kr. Upplýsingar og
skráning er hjá Jóni G. Bergssyni í síma
482 3755 eða Sigríði Jónu Friðriksdóttur í síma
451 2222.
Þýskunámskeið Germaniu
Námskeiðin hefjast á ný 19. janúar.
Kennsla verður sem hér segir:
Byrjendur mánud. kl. 18.15 — 19.45.
Framhald 1 þriðjud. kl. 18.15 — 19.45.
Framhald 2 mánud. kl. 18.15 — 19.45.
Framhald 3 miðv.d. kl. 18.15 — 19.45.
Talþjáifun 1 þriðjud. kl. 18.15 — 19.45.
Talþjálfun 2 mánud. kl. 20.00 — 21.30.
Innritað verður á kynningarfundum sem
haldnir eru í Lögbergi, Háskóla íslands, stofu
102, miðvikudaginn 14. janúar og fimmtudag-
inn 15. janúar kl. 20.30.
Upplýsingar eru einnig veittar í síma 551 0705
kl. 17.00—19.30 á virkum dögum.
Nýir þátttakendur velkomnir í alla hópa.
Geymið auglýsinguna.
Stjórn Germaniu.
+