Morgunblaðið - 13.01.1998, Qupperneq 41
I
BALENO
BALENO
„Hvers vegna keppast menn við
að sópa ljóðhefðinni undir teppið?“
AÐ FERÐAST
gegnum dimman
kynjaskóg af sjálfs-
blekkingum, grunn-
hyggni, og jafnvel
svartnætti í hugsun-
um, kemur alltaf út
þannig á endanum að
maðurinn þarf að
svara fyrir, og í raun
getur þar verið að fall
hans sé falið.
Veruleikinn, þ.e.a.s.
nútíminn, getur einnig
birst þannig að menn
eins og Guðmundur
Guðmundarson, er
skrifar grein í Mbl. 8.
janúar sl., sjái ekki
skóginn fyrir trjám. Guðmundur
virðist í skrifum sínum vera ótta-
sleginn og vansvefta yfir innreið
prósaljóða, sem hann í angist sinni
(og ótta um gamla góða rímform-
ið) kallar “óljóð, - niðurlægir ung
Már
Elíson
ljóðskáld á bæði borð
og segir jafnvel Há-
skólann styðja ósóm-
ann(!)
Finnst mér einnig
að ekki sé vert að taka
mikið mark á hans
fanatísku skrifum,
sem eru illa ígrunduð
og árásargjörn frekar
en fræðandi og hvetj-
andi.
Það er líka verulega
veruleikafirrt hugsun
að halda því fram að
bragreglur séu vísvit-
andi virtar að vettugi
eins og hann heldur
fram, - þetta er ein-
ungis annað bragform í nútíma-
ljóðagerð og virðist Guðmundur
ekki átta sig á því (enda skv. grein
sinni afskaplega afturhalds- og
íhaldssamur um eldri hefðir) að
„prósaruglukollaljóðskáldin" (eins
og hann kýs að kalla þau) geta
einmitt samið snilldarljóð í gamla
góða forminu, þ.e. með stuðla,
höfuðstafi, endarím og innrím, svo
eitthvað sé nefnt.
Ekki er vert að taka
mikið mark á fanatísk-
um skrifum Guðmundar
Guðmundarsonar, segir
Már Elíson, og telur
þau illa ígrunduð og
arasargjorn.
En því ekki að breyta til og
bæta inn í ljóðaflóruna? - Það væri
sjón að sjá ef hús væru enn byggð
í torfbæjarstíl með risi og kvistum
og allir bílar yrðu að vera ríkisrauð-
ir, og ekki þótti nú kúbisminn í
málaralistinni merkilegur fyrst í
stað, svo tekin séu dæmi.
Nei, ungu ljóðskáldin í dag (sem
hafa Stein, Tómas, Matthías o.fl.
að fyrirmynd) verða sífellt fyrir því
hjá miðaldahugsjónamönnum eins
og Guðmundi að vera stöðugt borin
saman við eldri, þekktari og virtari
ljóðskáld, og það ekki alltaf á já-
kvæðan hátt. Þau hafa þess vegna
farið einnig út á þá braut að semja
um lífið og tilveruna í anda stór-
skáldanna gömlu á skiljanlegu máli,
í skiljanlegu formi nútímans og
ekki síður komið ljóðrænum skila-
boðum sínum fram á styttri og
hnitmiðaðri hátt en áður. Ekki það
að gamla formið sé virt að vettugi,
ónei, snilli og andagift liggur ein-
mitt í því að þurfa ekki alltaf að
bögglast með eldgamlar hefðir og
form þótt góð séu og gild, heldur
kunna að lesa sig í gegnum þau
og útúr þeim.
Ungu prósaljóðskáldin passa sig
einmitt á því að detta ekki ofan
gamla rímna-, stuðla- og höfuð
stafahlóðapottinn, sem er löngi
fullur af gömlum graut sem þai
ekki endilega að eta á hveijum de:
Prósaljóðin eiga einmitt svona auð
velt uppdráttar vegna þess hv<
skýrt, skilmerkilega, snjallt og skor
inort hugðarefnum er þar komi<
fram. Að tala um „farsóttir óljóða'
ber vott um þvílíka fordóma, fyrr
aldafíkn og framtíðaróttasýn í hugí
skrifara, að það er nú vart svara
vert.
En Guðmundur stendur auðvita<
og fellur með þessari útskrift á sín
um andlega auði. Ég persónuleg;
hefði viljað sjá þessa afturhalds
sömu grein setta upp í því gaml**
formi sem Guðmundur færir fran
í bölsýnisskrifum sínum, þ.e.a.s.
fullu íslensku rímformi, þá kannsk
hefði verið hægt að lesa hana ;
annan hátt og jafnvel finna í henn
einhveija jákvæða punkta.
Ekki veit ég um aldur ofannefnd;
Guðmundar, en fínnst samt að ekk
taki því fyrir hann að koma sér im
í hið snjalla prósaljóðaform á já
kvæðan hátt, fyrst það liggur ekk
dagljóst fyrir honum.
Höfundur er tónlistarmaður.
1 1
s u BALENO !ZU • SWIFT - !K1 • VITARA [ L
BALENO
: / J
SUZUKI
AFL OG
ÖRYGGl
8UZUKI
Aflmiklir, rúmgóðir, öruggir og einstaklega
hagkvœmir í rekstri
BALENO
TEGUND:
l,3GL3d
1,3GL 4d
l,6GLX4d
1,6 GLX 4x4 4d
VERÐ:
1.140.000 KR.
1.265.000 KR.
1.340.000 KR.
1.495.000 KR.
l,6GLXWAGON 1.445.000 KR.
WAGON 4x4 1.595.000 KR.
SWIFT
TEGUND:
GLS 3d
GLX 5d
VERÐ:
980.000 KR.
1.020.000 KR.
VTTARA
Komdu
og sestu innl
Sjáou rýmið og alúðina
við smáatriði.
TEGUND:
JLX3d
JLX 5d
DIESEL 5d
V6 5d
VERÐ:
1.675.000 KR.
1.940.000 KR.
2.180.000 KR.
2.390.000 KR.
Skoðaðu verð o^
gerðu samanbun
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00.
Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50.
Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, simi 482 37 00.
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998 4 í
AÐSENDAR GREINAR