Morgunblaðið - 13.01.1998, Qupperneq 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
vinkona,
HELGA SOFFÍA EINARSDÓTTIR
fyrrverandi yfirkennari,
Kirkjulundi 6,
Garðabæ,
andaðist á Landspítalanum föstudaginn
9. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. janúar kl. 10.30.
Kristín Bjðrg Jónsdóttir, Jóhann Magnússon,
Helga Kristín Jóhannsdóttir,
Harpa Hrund Jóhannsdóttir,
Jón Atli Jóhannsson,
Sigurður Pálsson.
+
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTÓFER HELGI JÓNSSON,
Hólabrekku,
Miðneshreppi,
lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja föstudaginn 9. janúar sl.
Útförin ferfram frá Útskálakirkju laugardaginn 17. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Páll Kristófersson, Ingibjörg Gestsdóttir,
Kristófer Helgi Pálsson,
Elsa Pálsdóttir, Sigurþór Stefánsson,
Páll Ingi Pálsson,
Auðunn Pálsson, Gróa Axelsdóttir
og barnabarnabörn.
+
Maðurinn minn,
ÞORVALDUR GUÐMUNDSSON
forstjóri,
lést að kvöldi laugardagsins 10. janúar.
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
HALLA EINARSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
áður Leifsgötu 14,
lést á heimili sínu sunnudaginn 11. janúar.
Svava og Ólafur Methúsalemsson,
Bryndís og Jón Þór Jóhannsson.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HALLUR S. GUNNLAUGSSON
íþróttakennarí,
Hjarðarholti 15,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju mið-
vikudaginn 14. janúar kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á
Minningarsjóð Guðmundar Sveinbjörnssonar.
Krístin Hallsdóttir, Gísli Bjömsson,
Hrönn Hallsdóttir, Hjörtur K. Einarsson,
Katla Hallsdóttir, Flosi Einarsson,
Heimir Hallsson, Sigþóra Ævarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
GUÐJON
SIGFÚSSON
+ Guðjón Sigfússon
var fæddur í
Egilsstaðakoti í Flóa
14. febrúar 1912.
Hann lést í Sjúkra-
húsi Suðurlands 25.
desember síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Eyrar-
bakkakirkju 3. janú-
Þegar Guðjón Sig-
fússon er nú horfinn
sjónum okkar sam-
ferðamanna hans lang-
ar mig til að kveðja hann fáeinum
orðum og þakka nær aldarfjórð-
ungs kynni. Þau hófust er hann
kom eitt haustið til að hjálpa mér
við gulrófuupptöku ásamt vini sín-
um Sigurði Grímssyni. Þeir tóku
upp rófumar upp á hlut og enn eru
mér minnisstæð fyrstu handtökin
hjá Guðjóni. Þar var kominn sá
hraðvirkasti maður sem ég hefi
unnið með. Og þó talaði hann með
vinnu sinni, sagði sögur, greindi
mér frá lífsstarfi sínu, lýsti sam-
starfsmönnum sínum. En ekkert
slíkt verður rakið hér, aðeins vísað
til eftiirninnilegrar minningar-
greinar Ama Valdimarssonar sem
birst hefur hér fyrr í blaðinu.
Lífsgleði Guðjóns er mér efst í
huga þegar hans er minnst. I
meira en tvo áratugi stóðum við
saman í garðinum á haustdögum,
stundum aðeins tveir, og þá fór
hann á bestum kostum og sagði
mér margt sem öðmm kom ekki
við. Hann var lítt fyrir að frægja
sig, en þó fór svo að hann varð
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Einarsson, útfararstjóri
Sverrir Olsen, útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Suðurhlíó 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn.
frægur í útlandinu því
einnig erlendum mönn-
um var lífsgleði hans
ljós. I októberbyrjun
1983 kom sænskt sjón-
varpsfólk frá Gauta-
borg til landsins að
mynda og fjalla um ís-
lenskan landbúnað.
Urðum við hjón m.a.
fyrir valinu að lýsa bú-
skap okkar og var upp-
tökudagur valinn 5.
október. Varð mér það
áhyggjuefni því tölu-
verð pöntun lá fyrir á
rófum þessa daga.
Ekki lét Guðjón þetta á sig fá, en
sagðist fara í garðinn án mín en
með honum unnu þann daginn fað-
ir minn og Sigurður Grímsson. Það
teygðist úr þessari sjónvarpstöku
og um margt var spurt, m.a. hve
lengi ævinnar bændur héldu út. Eg
kvað íslenska bændur öllum lang-
lífari og þeir létu ekki af störfum
fýrr en við andlátið. Nefndi ég það
til sönnunar að þessa stundina
væm þrír heiðursmenn við rófu-
upptöku fyrir mig: Vinir mínir frá
Selfossi 71 árs og 82 ára og faðir
minn 85 ára. En sem ég hafði það
mælt óskaði sjónvarpsfólkið eftir
að mynda þremenningana til
styrktar sögu minni. Vélum var
stillt upp og þeir myndaðir er þeir
komu akandi heim og sá elsti
keyrði traktorinn. Vel tók Guðjón
þessu „floppi". Hann hirti hlut sinn
og setti í poka og undir vökulum
augum myndavélarinnar henti
hann pokunum í hjólvagn sinn og
hló við dátt.
Mér væri þessi svipmynd af
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfidrykkjur
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
^ Sími 562 0200 ^
rxxxxxxxxxxrl
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
RAGNAR HJÁLMARSSON,
f. 3. mars 1931,
lést á Landspítalanum laugardaginn 10. janúar.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju mánudaginn
19. janúar kl. 13.30.
Pranom Mankamnert,
Sigurður Hjálmar Ragnarsson,
Haraldur Ragnarsson, Kristín Þóra Sigurðardóttir,
Höskuldur Ragnarsson, Marta Gígja Ómarsdóttir,
Hörður Ragnarsson, Guðfinna Hulda Hjálmarsdóttir,
Ragnar Reyr Ragnarsson, Jantra Phosrí
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
JÓHANNS FRÍMANNS HANNESSONAR.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunar-
fólks.
Guð blessi ykkur öll.
Freyja Kristófersdóttir,
Anna Jóhannsdóttir, Ragnar Þór Baldvinsson,
Rúnar Þorkell Jóhannsson,
Hlynur Jóhannsson, Karen Ingimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnaböm.
+
Sendum innilegustu kveðjur og þakkir öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
GUÐBJARGAR SIGURJÓNSDÓTTUR
frá Sléttu,
Reyðarfirði.
Sólveig Baldursdóttir, Atli Björnsson,
Þórey Baldursdóttir, Haukur Þorleifsson,
Sigurður Baldursson, Dagbjört Gísladóttir,
Einar Baldursson, Anna Ingvarsdóttir,
Sigurjón Baldursson, Anna Jenný Wilhelmsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Guðjóni næstum gleymd ef sænsk
blöð hefðu ekki farið að berast mér
næstu vikur. Þá hafði þátturinn
verið kynntur í blöðum og fylgdi
með ein mynd sem alls staðar birt-
ist. Guðjón Sigfússon „landbruk-
ari“ pa Island“„ einhendir rófupok-
um á vagn. Guðjóni fannst undir
niðri heiður að þessari myndbirt-
ingu en ég fullyrti við hann að hann
væri fulltrúi lífsgleðinnar á Islandi
hjá þessari „hamingjusömu þjóð“.
Arin okkar Guðjóns í rófugörðun-
um urðu rúmlega 20. Hann sótti
verk sitt fast og bauð haustveðrinu
birginn. Vel gallaður stóð hann að
verki, og ekki sakar að geta farar-
tækja hans. Fyrst var það lítið vél-
hjól og vagn undir rófumar aftan í
því. Guðjón var fjaska vígalegur er
hann var kominn á hjóhð algallaður
með hjálm á höfði og beitti sér upp
í vindinn. Einstök mynd er til af
honum þannig útbúnum, en svo
þróaðist véltækni Guðjóns upp í
fjórhjól. Þá var hann orðinn Eyr-
bekkingur og illa haldinn í fótun-
um, en lét sig ekki muna um það,
kominn undir áttrætt, að taka rétt-
indapróf á fjórhjólið. Eg hygg að
hann hafi verið vel að því kominn
enda aldrei slysavaldur í lífinu.
Fyrir tveimur haustum kom hann
síðast í rófumar og þótti vont að
biðja um aðstoð við að komast upp
í hjólið - en lét sig hafa það og
mér er sagt að kartöflurækt hafi
hann stundað út lífið og tekið sitj-
andi upp kartöflur sína síðustu
haustdaga.
Guðjón Sigfússon sameinaði í lífi
sínu bæði gleði og sorg. Fyrr er
hér sagt að hann stráði í kringum
sig lífgleðinni, þurfti engin örvun-
arlyf á mannamótum því bindindis-
maður var hann bæði á vín og tó-
bak. Hann var sögumaður með
ágætum og á ég nokkrar af sögum
hans frá Eyrarbakkaárunum. En
hann var einnig alvörumaður í trú
sinni, sótti kirkjur vel og heiðraði
samferðamenn sína við jarðarfarir
þeirra. Bæði var stutt hjá honum
til Guðs síns og einnig stutt í kirkj-
una. Á Selfossárunum bjó hann á
Kirkjuvegi 4 og þaðan var beinn
vegur til Selfosskirkju. Og þar á
Kirkjuveginum átti Guðjón fallegt
grenitré sem blasti við kirkjugest-
um af tröppum kirkjunnar. Einnig
þannig vildi hann heiðra Guð sinn
því það var þáttur íf guðrækni
Guðjóns Sigfússonar að „maður
verður að rækta garðinn sinn“.
Fleiri orð verða ekki sögð um
þennan eftirminnilega mann sem
alltaf var reiðubúinn til starfa í
þjónustu lífsins. Við hjónin sendum
Guðbjörgu dóttur hans og öðrum
aðstandendum innilegustu samúð-
arkveðjur okkar.
Páll Lýðsson.
- kjarni málsins!