Morgunblaðið - 13.01.1998, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1998 59
MYNDBÖND
Vitni að
morði
Æðsta vald
(Absolute Power)
S p e n n u m y n d
★★
Framleiðandi: Clint Eastwood.
Leikstjóri: Clint Eastwood. Hand-
ritshöfundar: William Goldman.
Kvikmyndataka: Jack N. Green.
Tónlist: Lennie Niehaus. Aðalhlut-
verk: Clint Eastwood, Ed Harris,
Laura Linney, E.G. Marshall, Gene
Hackman, Scott Glenn, Judy Davis.
116 mín. Bandaríkin. Skífan 1997.
Utgáfudagur: 29. desember. Myndin
er bönnuð börnum innan 16 ára.
LUTHER Withney er einn slungn:
asti þjófur sem uppi hefur verið. I
hvert skipti sem rán er framið er
hann kallaður til yfirheyrslu en
aldrei er hægt að bendla hann við
neitt. Nótt eina er hann að stunda
iðju sína í húsi eins af ríkustu mönn-
"•mmmmmmmmmmm^ um Bandaríkj-
anna og býst við
því að allir íbúar
hússins séu
staddir á sólar-
strönd. En ung
eiginkona auð-
kýfingsins kem-
ur allt í einu
heim með karl-
mann með sér
og þarf Whitney að vera skjótur að
fela sig. Whitney verður vitni að því
að ástarleikurinn verður ofbeldis-
fullur og brátt fljúgast konan og
maðurinn á. Konan nær yfirhönd-
inni en þá koma lífverðir mannsins
og skjóta hana. Hafist er handa við
að hreinsa upp öll ummerki um að
þessi merki maður hafi verið inni
með konunni en þeir glejmia einu og
það er Luther Withney. Brátt er
Withney eltur af öllum hugsanleg-
um mönnum sem vilja koma honum
fyrir kattamef, en hann ætlar að
láta manninn borga fyrir athæfi sitt
þótt hann sé forseti Bandaríkjanna.
Clint Eastwood og Gene Hack-
man hafa áður tekist á í kvikmynd
en það var meistaraverkið „Unfor-
given“ sem lét þessa kappa leiða
saman hesta sína. Þessi mynd er
mun átakaminni og varla meira en
upphafning á hinni hrukkóttu per-
sónu Eastwoods. Það eina sem hann
hefur óhreint í pokahorninu er
starfsferillinn en annars er hann
betri maður en allar hinar persón-
umar í myndinni. William Goldman,
sem skrifar handritið, getur gert
miklu betur en þetta og einnig hef-
ur Eastwood sýnt að hann er betri
leikstjóri. Sá eini sem gerir eitthvað
af viti í þessari mynd er E,G. Mars-
hall í hlutverki auðkýfingsins en
hann er hreint út sagt stórkostleg-
ur.
Ottó Geir Borg
Við veitum faglega
ráðgjöf til smærri og
stærri mötuneyta.
Hringdu og við veitum
þér allar frekari
upplýsingar.
NÆRÍNGARSETRIÐ
Anua Elisabet Ólafsdóttir
Sími 551 4742
FÓLK í FRÉTTUM
Cantona
eftirsótt-
ur sem
leikari
► FÓTBOLTAHETJAN Eric Cant-
ona er líklega með þeim yngri sem
farið hafa á eftirlaun í Frakklandi.
En hann hefur ekki í hyggju að
setjast í helgan stein heldur stefnir
á að leika í auglýsingu, bíómynd
og stuttmynd á næstunni.
Kvikmyndaferill Cantona er
þannig hafinn og ekki annað að sjá
en kappinn hafi gaman af enda
hefur hann úr nógum tilboðum að
velja. Hann segist þó vita að hann
eigi eftir að læra lieilmargt í þessu
nýja starfi sínu. Til að byrja með
hefur hann Barcelona.
Sumir segja að Cantona sé að
fara úr öskunni í eldinn, því þótt
fótboltinu sé slæmur, hvað varðar
samstöðu og heiðarleika þá sé
kvikmyndaiðnaðurinn verri. „Ef
ég ætla að setja það fyrir mig, þá
mun ég aldrei gera neitt,“ lætur
kappinn hafa eftir sér og er hvergi
banginn.
Hann er heldur ekki einn síns
liðs á þessum nýju slóðum. Eldri
og yngri bræður hans, Jean-Marie
og Joel eru með í för. Þeir sjá um
öll samskipti út á við fyrir hann og
hlífa honum fyrir áreitni, hvers
kyns sem hún er. Og ekki nóg með
það, heldur hafa þeir fengið hlut-
verk í myndum sem Cantona leik-
ur í!
Með þeim bræðrum ríkir mikill
kærleikur og eru þeir einstaklega
stoltir af því að heita Cantona og
vera til yfir höfuð. „Bræður mínir
I STUTTMYND leikur Cantona boxara. Hér er
hann ásamt meðleikurum sínum; Lydia Andréi, Ja-
ke LaMotta (sem kvikmyndin „Raging Bull“ eftir
Martin Scorsese fjallar um) og bræðrum sínum Joel og
Jean-Marie.
munu ekki leika í öllum kvikmynd-
um með mér, en mér finnst þeir
mjög myndrænir á að líta; þeir
hafa sérstaka útgeislun skjánum,"
segir kvikmyndastjarnan nýbak-
aða.
Margir hafa furðað sig á þessu
uppátæki fótboltasnillingsins að
snúa sér að leiklist. Hann segist
hins vegar hafa reynt allt í fótbolt-
anum, og nú sé kominn tími til að
reyna eitthvað nýtt - gefa bæði
andanum og lfkamanum
lausan tauminn. Það eru að
minnsta kosti ekki frægð
og peningar sem hann sæk-
ist eftir þegar að kvik-
myndum kemur, - af því á
hann víst nóg.
CANTONA ræðst
ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur, og er
tilbúinn til að beijast.
ÞARFTU HJALP A NYJU ARI?
CANDIDA
SVEPPASÝKING
GÆTI HÚN VERIÐ AÐ HRJÁ PIG?
Lyfjalaus nieðferð gegu Candida sveppasýkiiigu
- sitíkjusveppum sem lifa innan í okkur öllum.
Hallgrímur P. Magnússon læknir
og Guðrún G. Bergmann
Candida sveppasvking eftir Hallgrím Þ. Magnússon og Guðrúnu
Bergmann er eina bókin á íslensku sem veitir tæmandi upplýsingar
um þennan skaðræðissvepp sem herjar á stóran hóp íslendinga,
sérstaklega eftir ofneyslu matar og drykkjar um jól og áramót.
í bókinni er að finna náttúrulegar leiðir til að halda þessari
sveppasýkingu niðri og lækna hana.
Mataræðið sem lagt er til í bókinni er einnig það besta sem völ er á
til þess að grenna sig til langframa og breyta um lífstíl.
Aðrar bækur sem geta hiálpað þér!
Hámarks árangur eftir Brian Tracy er bók sem
breytir lífi þínu. í henni lærir þú að: Auka
tekjumöguleika þína, nýta hæfileika þína til fulls,
læra að setja þér markmið og ná þeim, fá frábærar
hugmyndir, bæta samskipti þín á vinnustað, bæta
samskipti þín við fjölskylduna og margt fleira sem
stuðlar að hamingjusamara og árangursríkara lífi.
*
Astarfíkn — flótti frá nánd eftir Anne Wilson
Schaefer bók sem flettir ofan af og leysir úr þeim
fíknum sem tengjast kynlífi, samböndum og
rómantíík. Þörf bók fyrir samfélag sem okkar, þar
sem helmingur allra hjónabanda endar með
skilnaði.
Engladagar er ódagsett dagbók eftir Guðrúnu G. Bergmann fyrir
drauma, bænir og markmið sem hjálpar þér að halda stefnunni og
veitir þér innblástur með englaorku vikunnar að leiðarljósi. Dæmi
um englaorku vikunnar: Markmið, þolinmæði, traust, ábyrgð,
alsnægtir, hamingja, æðruleysi o.fl.
astar
fíkn
Annc VVilson
Schaef
LEIÐARLJOS
Skerjabraut 1, 170 Seltjarnarnesi
S. 561 3240, fax 561 3241.
Tölvupóstur: leidar@centrum.is
Þroskandi bækur sem fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar: www.centrum.is/leidarljos
Ö I