Morgunblaðið - 06.03.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
PÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998 51
•i
cíhiHÓ
oefhomúi!
í hádeginu virka daga:
Tiiboösréttir:
HLAÐBORÐ
SÆLKERANS
Frjálst val:
Súpa, salatbar
og heitur matur,
margar tegundir.
kr.790.-
GRISAHDRILDI
Duxel, meö Dijon-sósu
og gljáðu grænmeti
apbnskr.1490,-
Grillaður
LAMBAVÖÐVI
meö bakaðri kartöflu
og Bemaisesosu.
APBNSMt 1490.
PASTA
aö hætti kokksins, borið
fram meö hvídauksbrauði.
AÐQHSKR. 1.280-
. Marineruð
KJUKUNGABRINGA
meö rjómalagaöri
paprikusósu.
AÐHHSKR.1.490,-
Ristaðar
GELLUR
meö Julian-grænmeti
og hvítlauksrióma
aðbnskpl 1490.
Grillaðar
Laxakótilettur
í Basilsósu.
AÐOHSKR. 1.490.-
Fyrirlestur
um hjörtu og
vistfræði
fiska
DR. HELGI Thorarensen, deildar-
stjóri fiskrannsókna að Hólum,
heldur fyrirlestur fóstudaginn 6.
mars á vegum Líffræðistofnunar
sem nefnist „Hjörtu og vistfræði
fiska“.
í fréttatilkynningu segir:
„Hjörtu í laxfiskum eru mjög
breytileg að stærð og er hlutfalls-
leg þyngd hjartans miðað við lík-
amsþunga háð ytri og innri aðstæð-
um fiskanna. Þannig verða árstíða-
breytingar á stærð hjartans og eru
hjörtu fiska stærri að vetri en að
sumri. Einnig er vitað að hjörtu í
laxfiskum stækka ef þeir eru mikið
á hreyfingu t.d. eru hjörtu í villtum
fiskum stærri en í fiskum sem aldir
eru í kerum, og komið hefur í ljós
að hjörtu laxfiska, eins og hjörtu
íþróttamanna, stækka við þjálfun.
Hjörtu í kynþroska hængum geta
tvöfaldast að stærð yfir hrygning-
artímann. í fyrirlestrinum verður
fjallað um lífeðlisfræðilegar rann-
sóknir höfundar á þessu sviði og
þær settar í samhengi við vistfræði
fiskanna.“
Fyrirlesturinn er haldin í húsa-
kynnum Líffræðistofnunar, Grens-
ásvegi 12, stofu G-6 kl. 12:20. Öllum
er heimill aðgangur.
----------------
Slökunarnám-
skeið Gigtarfé-
lagsins
GIGTAitFÉLAG íslands heldur
slökunarnámskeið sem byrjar mið-
vikudagskvöldið 18. mars. Ragn-
heiður Ýr Grétarsdóttir sjúkra-
þjálfari fjallar um orsakir streitu
og hvað sé til ráða.
Áhersla verður lögð á að finna
muninn á spennu og slökun og fer
Ragnheiður í gegnum mismunandi
slökunaraðferðir. Námskeiðið
verður þrjú miðvikudagskvöld kl.
20-22.
Skráning og nánari upplýsingar
eru á skrifstofu GÍ, Armúla 5.
Tilboð öll kvöld
og um helgar.
Bamamatseðill
fyrir smáfólkið!
JÍÍeá ötlum /xuisiimjfóm&œtii- réttum
jfylijb' siífiu, ()iHiuát>\(i\ suIuIIhu' 0(j íkIhw.
POTTURINN
OG
c/ \’ih\ f ^ ifiihm'
aó aóóu !
Sveitakennar-
inn“ í MÍR
SIGURLIÐ 12-15 ára í dansi frá síðasta ári.
Nemenda-
sýning og
liðakeppni
í dansi
NEMENDASÝNING Dansskóla
Jóns Péturs og Köru verður haldin
á Broadway sunnudaginn 8. mars
nk. Þar munu allir nemendur í
barna- og unglingahópum skólans
ásamt nokkrum fullorðinshópum
koma fram með sýninshorn af því
sem þeir hafa lært í vetur. Húsið
verður opnað kl. 13 og hefst sýn-
ingin kl. 14.
Strax að lokinni sýningu kl. 15
hefst liðakeppni á milli dansskóla
og hefur nokkrum dansskólum
verið boðið til leiks. Þar munu
flest af sterkustu dauspörum ís-
lands, sem mörg hver hafa staðið
sig vel á erlendri grundu, eigast
við á dansgólfínu, segir í fréttatil-
kynningu.
Keppt verður í tveimur aldurs-
flokkum, 11 ára og yngri og 12-15
ára. Hvert lið samanstendur af
fjórum danspörum, tveimur sem
dansa suður-ameríska dansa og
tveimur sem dansa standard
dansa. Pimm dómarar dæma í
keppninni.
Miðar á sýninguna og keppnina
verða seldir á Broadway 8. wmars
og hefst miðasala kl. 13. Frítt er
fyrir 11 ára og yngri en aðgangs-
eyrir fyrir 12 ára og eldri er 500
kr.
>KKAR
SUR MATUR1
Kvikmynda-
sýningar í
Norræna
húsinu
KVIKMYNDASÝNINGAR eru
fyrir börn í Norræna húsinu alla
sunnudaga kl. 14. Sunnudaginn 8.
mars verður sýnd kvikmyndin Nils
Holgersson og ferðir hans.
Strákpjakkurinn Nilli Holm-
gersson er bóndasonur sem leikur
sér að því að hrekkja dýrin á bæn-
um. Hann reynir að hindra aligæs-
ina Márten í að slást í för með villi-
gæsum sem eiga leið hjá. Við það
minnkar Nils og lendir á baki Már-
tens og slæst í för með gæsunum á
flugi þeirra um Svíþjóð þvert og
endilangt.
Sígild sænsk kvikmynd frá árinu
1962, gerð eftir sögu Selmu La-
gerlöf. Sænskt tal, 90 mín.
GÖMUL rússnesk kvikmynd,
Sveitakennarinn (Sélskaja út-
sítelnitsa), verður sýnd í bíósal MIR,
Vatnsstíg 10, sunnudaginn 8. mars
kl. 15. I myndinni segir frá kennslu-
konu einni sem ræðst að loknu kenn-
aranámi í Sankti Pétursborg á keis-
aratímanum til stai-fa í afskekktu
þorpi í Síberíu og vinnur þar fram
yfir síðari heimsstyrjöldina.
Sænskur fyrir-
lesari um með-
ferð ungra
vímuefnaneyt-
enda
HINGAÐ til lands er væntanlegur
Svíinn Torgny Peterson, fram-
kvæmdastjóri ECAD (European
Cities Against Drugs), og jafnframt
framkvæmdastjóri Hassela Nordic
Network.
í sameiningu munu ísland án eit-
urlyfja 2002 og Barnavemdarstofa
standa fyrir málstofu með Torgny
Peterson hinn 6. mars 1998 á Hótel
Sögu í Ársal. Málstofan er opin öll-
um þeim sem áhuga hafa á málinu.
Þar mun Torgny kynna Hassela
hugmyndafræðina og ræða almennt
um vímuefnameðferð fyrir ungt fólk
í Svíþjóð. Tekið skal fram að hánn
hefur nokkrum sinnum áður komið
til Islands og þekkir því nokkuð vel
ástandið hér á landi og hefur m.a.
heimsótt SAÁ og Tinda hér á árum
áður. Málstofan verður á Hótel
Sögu í Arsal í dag, fóstudaginn 6.
mars, kl. 14-16.
Hassela hreyfingin á upptök sín í
Svíþjóð árið 1969 og er helsti frum-
kvöðull hennar K.A. Westerberg.
Upphaflega fólst starfsemi Hassela
fyrst og fremst í uppeldis- og með-
ferðarstarfi fyrir unga fíkniefnaneyt-
endur en hefur síðan þróast í víð-
tækt forvarnastarf og baráttu gegn
eiturlyfjum.
Litskyggnur
frá Kína
UNNUR Guðjónsdóttfr sýnir lit-
skyggnur að Reykjahlíð 12 úr fyrri
ferðum Kínaklúbbs Unnar laugar-
daginn 7. mars kl. 15. Jafnframt
kynnir Unnur næstu ferð klúbbsins
þangað en hún verður farin í maí nk.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
LEIÐRÉTT
Nýlistasafnið
í MYNDLISTARGAGNRÝNI, und-
ir yfirskriftinni Efnið talar, sem birt-
ist miðvikudaginn 4. mars, er safnið
sagt vera opið alla daga frá kl. 14-18.
Rétt er að safnið er opið alla daga
nema mánudaga. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Ekki formaður hverfafélags
sjálfstæðismanna
í MORGUNBLAÐINU í gær er
birt bréf til blaðsins eftir Unnar Har-
aldsson. Þar segir Unnar að Friðrik
Hansen Guðmundsson formaður
íbúasamtaka Grafarvogs sé formaður
hverfafélags sjálfstæðismanna í
Grafarvogi. Þetta er rangt. Formað-
ur þess félags er Anna S. Gunnars-
dóttir og hefur hún verið formaður
undanfarin 2 ár. Að hennar sögn er
Friðrik Hansen Guðmundsson ekki
einu sinni í stjóm sjálfstæðisfélags-
ins, hvað þá formaður.
Kanebo
GULLIN GEISLADÝRÐ
Uöl'.l
zur
GULLNIR KANEBO DAGAR
í snyrtivörudeild Hagkaups Kringlunni föstudag og laugardag
kl. 12—18. Frú Kiuchi kemur fró Japan til að kynna hina
nýju förðunarlínu sem ber í sér geisladýrð sólarinnar.
Sölustaðir: Snyrtivörudeild Hagkoups, Kringlunni • Evita Kringlunni • Snyrtistofnn Paradis, Rvík. Snyrtivöruverslun Laugnrvegsapóteks
Snyrlivörudeild Verslunarinnar 17, Laugavegi • Snyrti- og nuddstofan Skólavörðustíg • Snyrtistofan Jóna, Kópavogi • Andorra, Hafnarfirói
Gallerý Förðun, Keflavik • Snyrlislofa Ólafar, Selfossi • Apótek Veslmannaeyja • Snyrtivöruverslunin Tara, Akureyri • Húsavikurapótek
e
0