Morgunblaðið - 06.03.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998 59 4
FÓLK I' FRÉTTUM
FÖSTUDAGSMYNDIR SJÓNVAPSSTÖÐVANNA
Stöð 2 ► 20.55 Töfrar vatnsins
(Magic in the Waters, (‘95)), nefnist
bandarísk/kanadísk mynd sem kol-
féll í kvikmyndahúsum vestan hafs
fyrir þrem árum og birtist nú á
skjánum. Þetta er ævintýramynd um
fjölskyldu sem fær að kenna á
nykrinum í stöðuvatninu við sumar-
bústaðinn. Ebert gefur ★)4 í
Chicago Sun-Times. Með Mark Har-
mon og Zane Ziminski. Leikstjóri
Skotinn Rick Stevenson (Iiestless
Natives).
Sýn ► 21.00 Billi barnungi (Billy the
Kid (‘41)). Sjá umsögn í ramma.
Sjónvarpið ► 22.15 Valmyndir
mánaðarins:
1.: Gagnvegir (Safe Passage, (‘94)),
mynd sem naut ekki brautargengis á
hvíta tjaldinu, segir af hádramatísk-
um atburðum. Heimilisfaðiiinn er
skilinn við konu og sex börn en kem-
ur í heimsókn þegar fréttist að elsti
sonurinn, í landgönguliði flotans, sé
látinn. Hafí farist í stríðsátökum.
Ebert gefur ★ 'Æog segir myndina
voða flotta og farsæla og dramatíkin
virki engan veginn. Undir það tekur
Halliwell. Leikararnir eru altént
góðir; Susan Sarandon og Sam
Shepard leika foreldrana. Leikstjóri
Todd Haynes.
2. : Annarra fé (Other People’s Mon-
ey, (‘91)), hressilegt gamandrama
byggt á samnefndu Broadway verki,
er að líkindum skásti kostur þrennu
kvöldsins. Danny De Vito er fjár-
málabraskari sem kaupir fyritæki,
bútar niður og selur. Hefur fengið
augastað á raflagnagerð Gregory
Pecks á Nýja Englandi - og lögfræð-
ingnum (Penelope Ann Miller), dótt-
ur hans. Hún tekur að sér að verja
pabba gamla. Græðgi nútímaborgar-
búans gagnvart íhaldssemi og mýkri
gildum sveitamanns af gamla skólan-
um og snúin ástamál í kaupbæti
skapa ágæta skemmtun. Fátt eftir-
minnilegt utan fínn leikur hjá De
Vito. Leikstjóri Norman Jewison.
★★Vi2
3. : Gamanmyndin Lífið á lands-
Byssubófinn Billy
Sýn ► 21.00 Billi barnungi
(Billy the Kid, (1941)) er ein af
fáum myndum frá þess tíma-
skeiði - öðrum en sögufrægum
stórmyndum - sem gefst kost-
ur á að skoða á skjánum. Fróð-
legt að bera hana saman við
hinn nýlega stórvestra Wyatt
Earp, sem einnig er á boðstól-
unum í kvöld. Þessi hartnær
sextugi vestri telst ekki í
þeirra hópi, en var þó engu að
síður ein stærsta mynd MGM
þetta árið. Á þessum tímum
var MGM stórveldið í
Hollywood og stærði sig af því
að vera með fleiri stjörnur á
sínum snærum en fyndust á
festingunni. Það sýnir sig í
þessari endurgerð um útlagann
fræga, sem ungur að árum var
orðinn rómaður í villta vestrinu
fyrir gikkgleði sína, fólshátt og
drápslund. Vitaskuld er hann
fegraður hér í dramatísku
handriti fagmannsins Gene
Fowlers. Hér fer ein skærasta
stjarna MGM-smiðjunnar með
aðalhlutverkið, sjálfur Robert
Taylor, mikill og vörpulegur
náungi, sem tók sig huggulega
út á tjaldinu með sitt vel snyrta
yfirskegg. Hinsvegar voru leik-
hæfileikarnir umdeildir. Hvað
viðvék hæfni meðleikara hans,
Brian Donlevy, efaðist á hinn
bóginn enginn. Stærsti kostur
myndarinnar, og sá sem heldur
nafni hennar fyrst og fremst á
lofti, er mikilfenglegt útlitið.
Hún er fjarskalega vel tekin af
Leonard Smith og William V.
Skall, á stórfenglegum sögu-
slóðum í Monument Valley og
víðar. En sagnfræðin er samin
í Hollywood. ★★★
ANTIKHORNIÐ
FJARÐARGÖTU 17, HAFNARFIRÐI
Útsala þessa viku
Verslunin hættir
byggðinni (Funny Farm, (‘88)), seg-
ir af íþróttafréttamanni (Chevy
Chase) sem leitar að friði og ró úti á
landsbyggðinni, til að skrifa. Finnur
flest annað, og hæfiieikarnir reynast
lúra í frúnni (Madelyn Smith). Gall-
inn við flestar myndir Chase hin síð-
ari ár, er fyrst og fremst skortur á
ærlegri fyndni. Þessi er dæmigerð,
þrátt fyrir stöku brandara. ★
Stöð 2 ► 23.10 Innrásin (The Arri-
val, (‘96)) er vísindaskáldsöguleg
spennumynd í B-dúr, og kemur
gleðilega á óvai-t. Snýst um samsæri
og óæskilega gesti utanúr geimnum.
Tæpast hægt að hugsa sér jafnóað-
laðandi leikarapar í aðalhlutverkun-
um og Charlie Sheen og Ron Silver,
þeh- standa sig engu að síður með
ágætum. Leikstjórinn/handritshöf-
undurinn David Twohy, á örugglega
eftir að láta meira að sér
kveða.***
Sýn ► 23.35 Ógæfa og dauði eru
fylgifiskar persónanna í Litlu
Ódessu (Little Odessa, (‘95)), þung-
búinni jaðarmynd um leigumorð-
ingja (Tim Roth), sem snýr aftur
heim í hverfíð sitt í Brooldyn og
myndin dregur nafn sitt af. Ástæðan
er verk sem hann þarf þar að vinna.
Maximillian Schell er óvenju aðsóps-
mikill sem ómennið, faðir Roths og
yngri bróðir hans (Edward Furlong),
sem stefnir á villigötur. Vanessa
Redgrave leikui’ dauðvona móður
þeirra. Ekki er það upph'fgandi,
myndin er hinsvegar nokkuð for-
vitnileg og óvenjuleg og leikararnir
standa allir fyrir sínu. ★★‘/2.
Sjónvarpið ► 24.00 Blóraböggull
(Face Down, (‘94)), er ráðgáta
kvöldsins, notendur IMDb gefa þó
6,6, og efnið er býsna áhugavert. Áf-
dankaður spæjari á samskipti við
geðklofa sem liggur undir grun sem
manndrápari. Lofar góðu, og reynd-
ar aðalleikararnir líka, sem eru Joe
Mantegna og Peter Riegert.
Stöð 2 ► 0.10 Wyatt Earp, (‘94) er
stórvestri gerður af Lawrence Kasd-
an, um lífshlaup sýslumannsins í
Tombstone. Langdregin, enda mikið
lagt uppúr vel gerðum smáatriðum
og mai-gtuggin sagan kemur iðulega
á óvai’t. Kevin Kostner er heldur yf-
irborðskenndur í titilhlutverkinu, en
Dennis Quaid (sem vinur hans Doc
Holliday) fer fyrii- afbragðshópi
aukaleikara, og taka Owens
Roizmans og tónlist James Newtons
Howard er mikilfengleg. ★★★
Sæbjörn Valdimarsson
Armbi
UR & GULL
GRÉTAR HELGASON ÚRSMIÐUR
Firðinum 2.hœð, Hafnarfirði, Sími: 565-4666
Skartgripir
■ \ Shírnargjafir
ir armbandsúr
Skeiðklukkur
Fljót og góð þjónusta
miðbfe H af n a rfj a r ð a r
og klukkum