Morgunblaðið - 07.07.1998, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
EzTGyiuhJD-
NEI, nei, hrísgrjónin, þú átt bara að borða hrísgijónin, drekinn þinn.
VEIÐIMENN á göngu með vænan lax við Laxá í Kjós.
Veiði víða
að glæðast
MIKIL veiði hefur verið síðustu
daga í „bæjarlækjunum" Korpu og
Leirvogsá, sérstaklega var sunnu-
dagurinn gjöfull, en þá veiddust 20
laxar í Leirvogsá og 16 í Korpu. í
báðum ánum er aðeins veitt með
tveimur stöngum. Þá hafa Elliðaárn-
ar tekið vel við sér og gáfu 100. lax-
inn um helgina. Þá voru komnir 435
laxar um teljarann, en á sama tíma í
fyrra voru komnir 79 laxar á land og
348 laxar um teljarann.
A hádegi í gær voru komnir 59
laxar á land úr Leirvogsá. Þar byrj-
aði veiðiskapur 25. júní og fór vel af
stað. Að sögn Guðmundar Magnús-
sonar í Leirvogstungu virðist vera
talsverður lax um alla á og menn séu
mjög sáttir með gang mála það sem
af er. „Vonandi að veiðin haldi þess-
um dampi,“ sagði Guðmundur.
Nokkrir laxar hafa verið um 12
pund, en hinir eru dæmigerðir eins
árs fiskar úr sjó, 4 til 7 punda. Á
sunnudaginn veiddust 20 laxar í ánni
en skilyrði voru afar góð, áin að síga
eftir nokkra vatnavexti.
í Korpu segja fróðir menn að
sjaldan hafí verið jafn líflegt svo
snemma sumars. Lax sé um allt,
ekki síst í „uppánni", sem er neðan
stíflu og niður undir Korpúlfsstaði.
Eflaust er lax farinn að ganga upp
fyrir stíflu og fram í dahnn.
Síðasta holl í Norðurá veiddi 133
laxa og voru miklar smálaxagöngur á
ferð í ánni. Rigningin setti allt í gang
og eru nú um 500 laxar komnir á land.
Róleg opnun í Vesturdalsá
„Það eru komnir sex laxar á land,
sem er svo sem ágætt miðað við að
aðeins ellefu laxar hafa farið um telj-
arann. En þetta er þó rólegt, sér-
staklega miðað við góðar opnanir
síðustu sumur,“ sagði Lárus Gunn-
steinsson sem var í hópi þeirra sem
opnuðu Vesturdalsá í Vopnafírði um
helgina. Lítið vatn setti svip sinn á
veiðina, en laxarnir voru allir stórir,
18 punda stærst, 8 punda minnst.
Lárus sagðist hafa talað við menn
sem voru að enda í Selá á laugar-
dagsmorgun. Veiði var róleg, en síð-
asta morguninn komu 9 laxar á land,
þar af fimm 15 punda!
Á sunnudag kláraði holl í Laxá í
Dölum með 12 laxa og voru þá komn-
ir 60 laxar á land. Vatnsleysi hrjáir
veiðimenn og laxa.
í gær voru komnir um 100 laxar
samtals úr Rangánum, um 75 úr Ytri
Rangá og 25 úr Eystri Rangá. 17
pundari úr Ytri Rangá er sá stærsti
til þessa. Tveir 16 punda veiddust á
urriðasvæðinu á sunnudaginn, þeir
fyrstu fyrir Árbæjarfoss á þessu
sumri.
Rigningin á dögunum setti aUt í
gang í Laxá í Leirársveit. Hollið sem
lauk veiðum um helgina veiddi rúm-
lega 60 laxa og voru þá komin alls
rúmlega 90 stykki á land.
Fyrir leikskóla
og oarnaherbergi
Litríkt úrval gluggatjaldaefna og stanga
fyrir leikskóla og barnaherbergi.
Leikskólarnir Hlíðarendi í Hafnarfirði og Arnarsmári
og Dalur í Kópavogi hafa notfært sér gluggatjaldaþjón-
ustu sérfræðings okkar við efnaval og uppsetningu.
gue’-búðirnar
Orkester Norden - Norræna hljómsveitin
Yfír hundrað
hljóðfæraleikar-
ar á sviðinu
Katrín Árnadóttir
ORKESTER Norden
eða Norræna
hljómsveitin, sem
er sinfóníuhljómsveit ungs
fólks, verður með tónleika
í Háskólabíói 10. júlí næst-
komandi. Þar leikur á ann-
að hundrað hljóðfæraleik-
ara frá öllum Norðurlönd-
unum. Katrín Árnadóttir
er verkefnisstjóri hljóm-
sveitarinnar á Islandi.
„Þetta er í fyrsta skipti
sem hljómsveitin kemur
hingað til lands en hún hóf
störf árið 1993 með nám-
skeiðahaldi og tónleika-
ferð. Þá hafði undirbún-
ingur staðið yfir í um sex
ár. Hugmyndin varð til í
Lionshreyfingunni á árun-
um 1986-87 þegar Svíinn
Sten Ákerstam var al-
þjóðaforseti Lions. Hann fól vini
sínum Lennart Fridén að koma
fram með hugmynd að samstarfi
ungs fólks á Norðurlöndunum til
að efla skilning þeirra á milli.
Lennart var þá skólastjóri við
tónlistarskóla í Suður-Svíþjóð og
kom með þessa frábæru hug-
mynd að stofna sinfóníuhljóm-
sveit fyrir ungt fólk sem í yrðu
valdir duglegustu og hæfustu
tónlistamemar á Norðurlöndum.
Fyrsti listræni stjómandi hljóm-
sveitarinnar var Esa-Pekka Sa-
lonen.“
Katrín segir að smám saman
hafi hugmyndin þróast og Lenn-
art virkjaði norræn félög á Norð-
urlöndum til samstarfs, síðan
Norræna menningarsjóðinn og
fleiri þangað til draumurinn varð
að veruleika árið 1993.“
- Hvemig starfar hljómsveit-
in?
„Hljómsveitin starfar árlega á
tíu daga námskeiði og viku tón-
leikaferð um Norðuriöndin. Þátt-
takendur em valdir að undan-
gengnu hæfnisprófi. Þau leika
fyrirfram ákveðin verk á kassett-
ur, sem eru sendar til Svíþjóðar,
númeraðar og fengnar sænskum
atvinnuhljóðfæraleikumm til að
dæma.“
- Hafa Islendingar verið í
hljómsveitinni frá upphaíi?
„Heldur betur og fjölda margir
og öll árin hafa einhverjir verið í
leiðandi stöðum.“
Katrín segir að flestir islenskir
hljóðfæraleikarar hafi verið í
hljómsveitinni árið 1995 en þá
vom þeir átján talsins. „Það hef-
ur vakið mikla undrun hversu
marga þátttakendur Island hefur
átt hverju sinni og hversu vel er
staðið að tónlistarmenntun á Is-
landi því samkvæmt höfðatölu
hefðum við ekki átt að eiga nema
kannski einn þátttak-
anda hverju sinni.“
Katrin segir að í ár
hafi níu Islendingar
verið valdir í hljóm-
sveitina en átta gátu
þegið boðið.
- Hvers vegna hafa tónleikarn-
ir ekki verið haldnir áður á ís-
landi?
„Einfaldlega vegna þess að það
er mjög dýrt að koma með 114
manns til Islands, hljómsveit og
aðstoðarfólk. Það var svo sannar-
lega kominn tími til að íslending-
ar fengju að heyra í þessari
hljómsveit. Ég barðist fyrir því í
þau fimm ár sem ég sat í stjórn
hljómsveitarinnar að hún kæmi
hingað til lands. Það má fyrst og
fremst þakka skilningi Norrænu
ráðherranefndarinnar og Nor-
ræna fjárfestingabankans svo og
mikilli velvild og skilningi fjölda
►Katrín Ámadóttir er fædd í
Reykjavlk árið 1942. Hún lauk
BA-prófi í ensku og sagnfræði
frá Háskóla Islands og hefur
leikið á fiðlu frá fimm ára aldri.
Hún var fiðluleikari í Sinfón-
íuhljómsveit íslands á ámnum
1961-1994 og kenndi fiðluleik
samhliða því.
Katrin starfar nú sem fiðlu-
kennari við Tónlistarskóla Hain-
aríjarðar og er virkur félagi í
Lionshreyfingunni. Hún er verk-
efnisstjóri Orkester Norden á fs-
landi.
Sambýlismaður Katrínar er
Reynald Jónsson, eigandi Alno-
eldhúss, og á hún einn son.
fyrirtækja og einstaklinga hér á
landi að það tókst.
- Hvernig er verkefnavalið hjá
hljómsveitinni?
„Yfirleitt eru valin mjög krefj-
andi verkefni og það hefur alltaf
verið að minnsta kosti eitt nor-
rænt verkefni á efnisskránni,
bæði ný verk sem hafa verið sam-
in fyrir hljómsveitina og gömlu
norrænu meistararnir. Þá hefur
hún einnig spilað stærri hljóm-
sveitarverk þar sem m.a. má
nefna Sinfóníu nr. 1 eftir Mahler
og Konsert fyrir hljómsveit eftir
Béla Bartok.“ Katrin segir að í ár
hafi ekki verið ráðist á garðinn
þar sem hann er lægstur.
„Hljómsveitin hefur aldrei verið
fjölmennari en í ár og nú leikur
hún Sinfóníu nr. 1 eftir Carl Niel-
sen og Vorblót eftir Igor Stra-
vinski en það gerir gífurlegar
kröfur til hvers einasta hljóð-
færaleikara sem tekst á við það.“
- Hver er hljómsveitarstjóri
sveitarinnar?
„Hann heitir Paavo Járvi frá
Eistlandi og er jafnframt núver-
andi listrænn ráðu-
nautur hljómsveitar-
innar. Hann hefur
stjórnað mörgum
frægustu sinfóníu-
hljómsveitum heims
og er fyrsti gestastjómandi hjá
Konunglegu Fílharmóníuhljóm-
sveitinni í Stokkhólmi og Sinfón-
íuhljómsveitinni í Birmingham."
Katrín hvetur tónlistarunnend-
ur til að láta þessa spennandi tón-
leika ekki framhjá sér fara því
þarna á sviðinu verður ein
stærsta sinfóníuhljómsveit sem
hefur komið til landsins. „Þetta
er einstaklega hæfilegaríkt ungt
fólk sem geislar af spilagleði og
er með frábæran hljómsveitar-
stjóra."
Miðasala fer fram í Háskóla-
bíói og tónleikarnir hefjast klukk-
an 19 næstkomandi föstudags-
kvöld.
Vorblót á
spennandi
tónleikum
.