Morgunblaðið - 07.07.1998, Síða 54

Morgunblaðið - 07.07.1998, Síða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ www.mbl.is föstudag 10. júlt kl. 20.00 nokkur sæti laus föstudag 10. júlí kl. 23.00 laugardag 11. júlí kl. 20.00 nokkur sæti laus Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega. Miðasala sfmi 551 1475. Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar. Vesturgötu 3 SUMARTÓNLEIKARÖÐ KAFFILEIKHÚSSINS „Bossa-nouveau“ Kanadíska djasssöngkonan Tena Palmer flytur brasilíska samba og bossa nova tónlist, ásamt hljómsveit sinni JoSo. fim. 9/7 kl. 21.00 laus sæti FÓLK í FRÉTTUM ÞÆTTIRNIR „Party of Five“ hófu göngu sína á Stöð 2 fyrir skömmu en þeir voru frumsýnd- ir í Bandaríkjunum um haustið árið 1994. Þrátt fyrir góða dóma hafa þættirnir þau þrjú ár sem þeir hafa verið sýndir ávallt ver- ið í hættu um að sýningum á þeim yrði hætt vegna takmark- aðs áhorfendafjölda, en aðdáend- ur þáttanna eru gífurlega kraft- mikill hópur og hafa séð til þess að „Party of Five“ eru enn í gangi. Kjarninn af aðdáendum þátt- anna samanstendur af konum 18-34 ára en hann er í 10. sæti yfír vinsælustu þættina hjá þeim hópi. Það sem dregur fólk að þáttunum eru persónurnar sem þurfa dag frá degi að kljást við hina ýmsu hversdagslegu hluti. Þetta eru 5 munaðarlaus systkini sem búa í San Francisco: Charlie (Matthew Fox) sem er að reyna að sjá um veitingastað, vera faðir og njóta þess að vera á þrítugsaldri; Bailey (Scott Wolf), sem er að hefja nám í háskóla; Julia (Neve Campell), tilfinninga- næmur bókaormur sem dreym- ir um rómantískt lífemi; Claudia (Lacey Chabert), gáfnaljósið í fjölskyldunni, sem lærir á fiðlu og er í áttunda bekk í grunnskóla; og Owen (leikinn af Andrew Cavarno og tvíburabróður hans Steven), sem lítið sést af. Persónumar hafa allar sína kosti og galla og þykja gefa ágætis mynd af „X“-kynslóðinni og aðdáendur þáttanna skiptast mikið á skoðunum um eftirlætis persónur sínar á alnetinu. Gagnrýnendur hafa hrósað þessum þáttum mikið og árið 1996 unnu þeir Golden Globe verðlaunin sem besta dramat- íska sjónvarpsþáttaröðin og var bent á það að þættirnir væru allt það sem „Beverly Hills 90210“ þættimir reyndu að vera en gætu aldrei vegna yfirborðs- mennsku. Ungu leikararnir í þáttunum hafa einnig getið sér gott orð í kvikmyndaheiminum, Scott Wolf hefur leikið í kvik- myndum eins og „The Evening Star“ og „White Squall" og Neve Campell er hryllings- myndaaðdáendum kunnug fyrir „Scream“-myndimar og „The Craft“. Önnur leikkona í þáttun- um er Jennifer Lowe Hevitt en hún sló nýlega í gegn í mynd- inni „I Know What You Did Last Summer" sem er aftur- hvarf til gömlu „Friday the 13th“ myndanna og skrifuð af Kevin Williamson sem skrifaði einnig „Scream" myndimar. Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig ævintýrum Salin- ger barnanna vegnar hér á landi. Ottó Geir Borg frábær í aðalhlutverkinu. KRINGLUBÍÓ Switchback ★ Afleitlega illa skrifuð og leikin frumraun vaxandi þandritshöfund- ar sem leikstjóri. Ahorfandinn veit leyndarmálið að bragði; hver er fjöldamorðinginn. Vel tekin. Sex dagar, sjö nætur ★★'A Ford og Heche mynda prýðilegt par í gamanhasarmynd a la Rom- ancing the Stone. Full tuggið en ekki leiðinlegt. Ur öskunni í eldinn ★‘/2 Slöpp gamanmynd um ríkisbubba sem taka að búa með Amish fólki. LAUGARÁSBÍÓ Mr. Nice Guy ★★ Aulabrandarar og -söguþráður en Chan er kattliðugur og lokaatriðið er þess virði að sjá myndina. Brúðkaupssöngvarinn ★★‘/2 Þægileg, rómantísk gamanmynd með Adam Sandler í hlutverki söngvara sem er óheppinn í ástum. REGNBOGINN Þá sjaldan það rignir ★★'/2 Agætlega gerður, rennblautur smábæjarti-yllir með fínum leikur- um en formúlukenndu plotti. Titanic ★★★% Mynd sem á eftir að verða sígild sökum mikilfengleika, vandaðra vinnubragða í stóru sem smáu, virðingar fyrir umfjöllunarefninu. Falleg ástarsaga og ótrúlega vel unnin endurgerð eins hrikalegasta sjóslyss veraldarsögunnar. Anastasia ★★★ Disney er ekki lengur eitt um hit- una í gerð úrvalsteiknimynda. Anastasia jafnast á við það besta sem gert hefur verið. Frábærar teikningar, persónur og saga, sem fer frjálslega með sögnina af keis- aradótturinni og byltingu öreig- anna. STJÖRNUBÍÓ Wild Things ★★ Leyndardómsfull sakamálamynd sem týnir sér í alltof flókinni at- burðarás. 50 ara Paula Yates nær sér ekki Munaðarlaus systkini í dag- legu amstri BÍÓIN í BORGINNI Israel í ÁR eru 50 ár liðin frá stofnun Israels- ríkis, og eru Isra- elsmenn sífellt að fagna því, og er þegnum gert margt til skemmt- unar. Nýlega fengu þeir að njóta flug- sýningar sem vakti mikla athygli. Á meðfylgjandi mynd er flugmaður að senda reykör í gegnum hjartað sem tveir félagar hans hafa þegar myndað. Það er vonandi að ást ríki í Israel því ekki hafa þeir friðinn. BRESKA sjónvarpsstjarnan Paula Yates sem var unnusta ástralska söngvarans í INXS, Michael Hutchence sem hengdi sig í nóv- ember sl., er mjög þungt haldin andlega. Nýlega fann vinur hennar hana illa þjakaða í íbúð hennar í London, og lét flytja hana á sömu sjúkrastofu og hún jafnaði sig á eftir að hafa fengið taugaáfall í apríl sl. Segja blöð ýmist að hún hafi reynt að fremja sjálfsmorð með því að hengja sig eða með of stórum lyfjaskammti. Yates er fyrrverandi eiginkona söngvarans Bob Geldofs sem stóð fyrir Live Aid tónleikunum á sínum tíma. Hún hefur átt mjög erfitt með að jafna sig á sorginni eftir sjálfsmorð ástmanns síns og hefur lítið sést á opinberum vettvangi undanfarið ár. Hutchence fannst hengdur í belti á hóteli í Sydney í Ástralíu, stuttu eftir að hafa rifist við Geldof í símann. Þrátt fyrir að rannsóknir sýni að hinn 37 ára söngvari hafi framið sjálfsmorð, neitar Yates að trúa því að Hutchence, sem hún ætlaði að gift- ast í janúar á þessu ári, hafi kosið að yfirgefa sig og unga dóttur þeirra, Heavenly Hiraani Tiger Lily. Hún styður frekar tillögu breskra kjaftablaða um að hann hafi kafnað þegar sjálfsfróunar- leikur fór úr böndunum. tíSLENSKA ÓPERAN d"" Miðasala 55/ 1475 Sæbjörn Valdimarsson / Arnaldur Indriðason Hildur Loftsdóttir BÍÓBORGIN Sex dagar, sjö nætur ★★ Ford og Heche mynda prýðilegt par í gamanhasarmynd a la Rom- ancing the Stone. Full tuggið en ekki leiðinlegt. U beygja ★★% Oliver Stone er í stuði í ofbeldis- fullri nútíma kúrekamynd. Skemmtileg og léttgeggjuð en svo- lítið langdregin. Brjáluð borg ★★ Fréttamaður (Dustin Hoffman) notfæir sér lykilstöðu í gíslatöku- máli til að komast aftur í fremstu röð en fær skömm á öllu saman. Travolta fínn í illa skrifuðu hlut- verki meðaljóns sem grípur til ör- þrifaráða. Vel gerð að mörgu leyti en skortir sannfæringarkraft eftir því sem á líður. SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA Switchback ★ Afleitlega illa skrifuð og leikin frumraun vaxandi þandritshöfund- ar sem leikstjóri. Áhorfandinn veit leyndarmálið að bragði; hver er fjöldamorðinginn. Vel tekin. Sex dagar, sjö nætur ★★V4 Ford og Heche mynda prýðilegt par í gamanhasarmynd a la Rom- ancing the Stone. Full tuggið en ekki leiðinlegt. Till There Was You ★★1/2 Fínasta konumynd; rómantísk og gamansöm um ólíkar manneskjur sem rata saman. The Man Who Knew Too Little ★ Bill Murray er sá eini með viti í meðvitaðri klisjusúpu sem gengur ekki upp. US Marshalls ★★★ Tommy Lee Jones er í toppformi á eftir flóttamanni sem leikinn er af Wesley Snipes. Fínasta afþreying. Anastasia ★★★ Disneyveldið er ekki lengur eitt um hituna í gerð úrvalsteikni- mynda. Anastasia jafnast á við það besta sem gert hefur verið. Frá- bærar teikningar, persónur og saga, sem fer frjálslega með sögn- ina af keisaradótturinni og bylt- ingu öreiganna. Mr. Magoo ★ Ofyndin mynd, 20 árum of seint á ferðinni. Leslie Nielsen lyftir henni ekki upp, er leiðinlegur Mr. Magoo. Litla hafmeyjan ★★★ Falleg og fyndin kvikmynd þar sem töfrar ævintýrsins blómstra að fullu. HÁSKÓLABÍÓ Kvikt hold ★★★ Almodóvar heimfærir góða, breska sakamálasögu uppá blóð- hita landa sinna, gráglettinn og bersögull að vanda. Skortir meira taumleysi til að jafna sín bestu verk. Magnaður leikur. Grease ★★★ Það er engin spurning, myndin er algjört „ring a ding a ding“. Þúsund ekrur ★1/2 Alls ekki nógu vel gerð mynd eftir góðri bók. Skrykkjótt og lélegur leikur hjá annars góðum leikurum. The Big Lebowski ★★★ Coenbræður eru engum líkir. Nýja myndin er á köflum meinfyndin og kolgeggjuð en nær ekki að fylgja eftir meistaraverkinu Fargo. Leik- ararnir hver öðrum betri í sundur- lausri frásögn af lúðum í Los Ang- eles. Búálfarnir ★★★ Virkilega skemmtileg bama- og fjölskyldumynd, sem hægt er að mæla með fyrir alla aldursflokka. Piparkökukariinn ★★★ Dökk og fráhrindandi mynd sem vinnur á. Frumleg útgáfa á bók eftir John Grisham. Branagh er TÓNLEIKARÖÐ Þri.7/7 kl. 20.30 Steinunn Bima og Martynas von Bekker ÞJÓNN í SÚPUNNI Mið. 15/7 fors.örfá sæti laus Rm. 16/7 frum. UPPSELT Lau. 157 UPPSELT Sun. 19/7 UPPSELT Rm. 23/7 UPPSELT Fös. 24/7 UPPSELT Lau. 25/7 ötfá sæti laus Sun. 26/7 örfá sæti laus Kl. 20.00. Miðasalan opin 12—18. KmW«71f.mtHIMcI«IiK.l Matseðill sumartónieika N Indverskur grænmetisréttur að hætti Lindu, borínn fram með ristuðum furu- inetum og fersku grænmeti og í eftirrétt: \__________„Óvænt endalok''_________ Miðasalan opin alla virka daga kl. 15-18. Miðap. allan sólarhringinn I s. 551 9055. Netfang: kaffileikigisholf.is Sjónvarpsþátturinn,, Party of Five“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.