Morgunblaðið - 07.07.1998, Síða 64

Morgunblaðið - 07.07.1998, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Steingrímur J. Sigfússon segir sig úr Alþýðubandalaginu Stofnun nýs stjórnmála- fclags í undirbúningi STEINGRÍMUR J. Sigfússon alþingismaður og allir félagsmenn í Alþýðubandalagsfélagi Pórs- hafnar og nágrennis, 38 að tölu, sögðu sig úr Al- þýðubandalaginu á fundi sem haldinn var á Þórs- höfn í gærkvöldi. Að sögn Steingríms var eftir lok fundarins skipuð nefnd til að undirbúa stofnun nýs stjórnmálafélags vinstri manna. „Það er ljóst að þetta kraftmikla fólk hér er ekki hætt í póiitík. Það hefur áhuga á því að eiga sér vettvang til að ræða málin. Það verður að skýrast í framhaldinu hvernig því reiðir af.“ Steingrímur sagði að nauðsynlegt væri að hafa áfram einhvem .málsvara þeirra sjónarmiða sem Alþýðubandalag- ið hefði haft uppi í utanríkis-, jafnréttis-, umhverf- is-, atvinnu- og byggðamálurn og varðandi varð- veislu fullveldis og sjálfstæðis íslands. Steingrímur játaði því aðspurður að hann ætti nokkra samleið með þingmönnunum Hjörleifi Guttormssyni og Ögmundi Jónassyni og sagðist mundu ræða við þá - og marga fleiri - á næstunni um framhaldið í stjórnmálum. Hann sagðist einnig hafa rætt við marga for- ystumenn Alþýðubandalagsins í kjördæminu fyrir fundinn á Þórshöfn og flokksmenn af öllu landinu hefðu haft samband við sig í dag. Margir þeirra hefðu verið sér sammála og allir hefðu skilið og virt þá leið sem hann hefði valið. Fyrir fundinn ræddi Steingrímur við Margréti Frímannsdóttur, formann Alþýðubandalagsins. „Þetta var hvorugu okkar auðvelt, en það fóru eingöngu góð orð okkar á milli í þessu samtali. Eg er enn sami Alþýðubandalagsmaðurinn í hjarta mínu og ég hef verið í 20 ár. Eg er ekki að færa mig til í hinu pólitíska litrófi, heldur er landslagið þar að breytast." Veikir stöðuna „Það er auðvitað mjög bagalegt og ég harma það að Steingrímur skuli hafa valið þessa leið í stað þess að taka þátt í því að undirbúa málefna- samning. Það er slæmt að allt þetta fólk, sem er góðir félagar okkar, skuli ekki treysta sér til að bíða eftir niðurstöðu þessarar málefnavinnu," sagði Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðu- bandalagsins, aðspurð um úrsagnirnar. „Það var kominn tími til að láta á það reyna hvort menn vildu standa við þær ályktanir landsfundarins eða ekki og ég harma það þegar fólk tekur þá ákvörðun að fylgja þessu ekki eftir. En kannski er þama um að ræða fólk sem hefur verið tvístígandi og því betra að fá núna hreinar línur. Ég óska Steingrími alls hins besta og þakka honum fyrir gott samstarf en við munum ræða saman,“ sagði Margrét. Hún var að lokum spurð hvort úrsögn fé- lagsmanna á Þórshöfn myndi veikja flokkinn: „Auðvitað veikir allt svona stöðuna, þarna er um þingmenn Alþýðubandalagsins að ræða. En við urðum að fá hreinar línur í það hvernig menn vilja samfylkja vinstri mönnum um öflugt vinstra framboð. En við höldum að sjálfsögðu áfram.“ ■ Málefnagrundvöllurinn/12 ■ Alþýðubandalagið/32 Mikill - rekaviður í Norðfirði Neskaupstað - Óvenju mikið hef- ur verið um rekavið í Norðfirði og hafa trillusjómenn þurft að hafa varann á. Mjög óvenjulegt er að svona mikill reki berist hingað og gamlir menn sem nýtt hafa reka í tugi ára segjast aldrei muna eftir svona miklum reka áður. Engar öruggar skýringar hafa menn á þessu en geta sér þess til að rekaviðurinn hafi verið fastur .. J, ís og losnað úr honum þar sem straumar hafa náð að bera hann suður með Austfjörðum. Sveinn Þórðarson, sem komin er á níræðis aldur, er einn þeirra sem nýta sér rekaviðinn. Hér er hann að kljúfa viðinn í girðinga- staura og Sigurður Albertsson fylgist með. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Skeljungsmenn snúa sér til EFTA Segja olíu- félögunum mismunað FORSVARSMENN Skeljungs hafa leitað til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna laga nr. 103/1994 um flutn- ingskostnað olíuvara, sem þeir telja stangast á við samninginn um Evr- ópska efnahagssvæðið. Þar er kveð- ið á um að einstaklingar og fyrir- tæki í atvinnurekstri skuli heyja frjálsa samkeppni á eigin áhættu og án ríkisstuðnings. I álitsgerð þeirra Gests Jónsson- ar og Harðar F. Harðarsonar, lög- fræðinga Skeljungs, kemur fram að starfsemi Flutningsjöfnunarsjóðs falli ekki að samningnum um evr- ópska efnahagssvæðið. í skýrslunni er m.a. bent á að við samanburð á greiðslum olíufélaganna í og úr Flutningsjöfnunarsjóði kemur í ljós að á 10 ára tímabili (1988-1997) eru tekjur Olíufélagsins hf. rúmlega 416 m.kr. umfram greiðslur í sjóðinn en greiðslur Skeljungs hf. eru á sama tíma rúmlega 321 m.kr. umfram tekjur úr sjóðnum. Þetta telja Skeljungsmenn vera augljósa mis- munun á samkeppnisaðstöðu sem sé óviðunandi og því hafi félagið afráð- ið að leita réttar síns hjá EFTA. ■ Telja Flutningsjöfnunarsjóð/18 ---------------- Bilun í ljósleiðara BILUN varð í ljósleiðarastreng frá Múlastöð Landssímans til Reikni- stofu bankanna um fjögurleytið í gær. Bilunin olli truflunum á flutn- ingi gagna frá útibúum bankanna og fleiri viðskiptaaðilum til Reikni- stofu bankanna og sömuleiðis trufl- unum í hraðbönkum. Að sögn Helga H. Steingrímssonar, forstjóra Reiknistofu, hafði Landssíminn komið sambandi á klukkan 21 og voru flest öll gögn komin til Reikni- stofu fyrir klukkan 23 í gærkvöldi og hraðbankar að komast í lag. Sautján þot- ur og 7 00 starfsmenn , -ySAUTJÁN þotur eru nú í rekstri hjá flugfélaginu Atlanta, sjö B747- breiðþotur, sjö af gerðinni Lock- heed Tristar og þrjár B737-þotur. Um helgina var einni breiðþotunni gefið nafn Alfreðs heitins Elíasson- ar, stofnanda og fyrrum forstjóra Loftleiða og síðar Flugleiða. Hjá Atlanta starfa nú í kringum 700 manns og var velta fyrirtækisins á síðasta ári um 8 milljarðar króna. Við athöfn á Keflavíkurflugvelli á sunnudag kom fram í máli Hafþórs Hafsteinssonar flugrekstrarstjóra að félagið hefði í fyrstunni einkum sinnt ^rskammtímaverkefnum fyrir erlend flugfélög. Hann sagði að hin síðari ár hefðu náðst langtímasamningar í auknum mæli og sömuleiðis flygi Atl- anta sífellt meira fyrir innlenda aðila. Þotan með nafni Alfreðs Eh'asson- ar er sú sjötta sem gefið er nafn frumkvöðuls úr íslensku atvinnuflugi. 'B ■ Vilja heiðra/6 Morgunblaðið/RSJ Sjóbað á Snæfellsnesi VEÐURGUÐIRNIR héldu upp- teknum hætti nú um helgina og buðu landsmönnum upp á veður af bestu gerð, en sól og blíða gladdi landsmenn á þessari annarri mestu ferðahelgi ársins. Á Snæfellsnesi var veðrið gott sem annars staðar. Snæfellsjökull skartaði sínu fegursta, auk þess sem ströndin og sjórinn öðluðust nýtt aðdráttarafl, en sjóböð voru iðkuð þar um helgina í Mall- orcaveðri. Ef veðurguðirnir verða jafn gjafmildir það sem eft- ir er sumars geta menn farið að endurskoða ferðir á sólarströnd. Banaslys skammt frá Þor- lákshöfn BANASLYS varð á gatnamótum Þorlákshafnar- og Þrengslavegar klukkan 20 á sunnudagskvöld. Tveir fólksbílar skullu saman með þeim afleiðingum að 28 ára gamall bíl- stjóri annars bflsins lést. Tildrög slyssins voru þau að Sub- aru-bifreið var ekið suður Þorláks- hafnarveg og inn á Þrengslaveginn, þar sem hún fór í veg fyrir Nissan- bifreið sem ók vestur Þrengslaveg- inn. Bifreiðarnar skullu saman með fyrrgreindum afleiðingum. Fimm sjúkrabílar voru sendir á staðinn og voru hinir fimm slösuðu fluttir á slysadeild í Reykjavík. Okumaður Subaru-bifreiðarinnar er talinn hafa látist samstundis. Bíl- arnir köstuðust báðir út fyrir veg og eru gjörónýtir. Tækjabíll slökkvi- Bifreið ekið suðvestur frá Hveragerði, virðir ekki biðskyldu viðigatnamótin og ekur í veg fyrir óifreið sem kemur úr suðri liðsins kom á vettvang og klippa þurfti ökumann Nissan-bifreiðar- innar úr bílflakinu. Þrír hinna slösuðu fengu að fara heim að lokinni skoðun á Sjúkrahúsi Reykjavíkur en tveir voru lagðir inn. Að sögn læknis á slysadeild voru þeir ekki í lífshættu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.