Morgunblaðið - 13.11.1998, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Þingsályktunartillaga Jóhönnu Sigurðardóttur, þingflokki jafnaðarmaiina
Uttekt fari fram
á útlánatöpum
tveggja banka
Sjö vara-
þing-
menn á
Alþingi
SJO varaþingmenn eiga nú
sæti á Alþingi og hafa átt
síðustu viku.
Þeir ei*u Þórunn H.
Sveinbjörnsdóttir sem sit-
ur fyrir Magnús Árna
Magnússon þingmann Al-
þýðuflokks í Reykjavík,
Olafur Hannibalsson sem
situr fyrir Einar Odd Kri-
sljánsson þingmann Sjálf-
stæðisflokks í Vestfjarða-
kjördæmi, Þuríður Back-
man sem situr fyrir Hjör-
leif Guttormsson þing-
mann Austurlandskjör-
dæmis í þingflokki óháðra,
Jörundur Guðmundsson
sem situr fyrir Ágúst Ein-
arsson þingmann jafnaðar-
manna úr Reykjaneskjör-
dæmi, Bryndís Guðmunds-
dóttir sem situr fyrir
Kristínu Halldórsdóttur
þingmann Samtaka um
kvennalista í Reykjanes-
kjördæmi, Drífa Hjartar-
dóttir sem situr fyrir Þor-
stein Pálsson þingmann
Sjálfstæðisflokks úr Suður-
landskjördæmi og að lok-
um Lilja Rafney Magnús-
dóttir sem situr fyrir
Kristin H. Gunnarsson
þingmann utan flokka úr
Vestfjarðakjördæmi.
MIKIL óánægja með framkvæmd
kjaramála og starfsmannastefnu
Ríkisspítala kom fram á fundi sem
stjórn Bandalags háskólamanna
efndi til með háskólamenntuðum
starfsstéttum á Ríkisspítölum á
Landspítalanum í gær. Á fundin-
um gerðu fulltráar aðildarfélaga
BHM grein fyrir stöðu kjaramála í
sinum félögum og í máli þeirra
kom fram að í fæstum tilfellum
væru kjarasamningar sem gerðir
voru fyrir einu og hálfu ári komnir
á lokastig.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
BHM, sagði á fundinum að flestir
gætu verið sammála um að eitt-
hvað mikið væri að á stofnun sem
lítið heyrðist frá nema óánægju-
raddir, og á tímum spamaðar
hefðu stjómendur Ríkisspítala lit-
ið á starfsmenn sína sem einhverja
afgangsstærð. Stjómendur spítal-
ans yi-ðu að horfast í augu við þá
staðreynd að þeir fengju ekki
meira út úr starfsfólkinu en þeir
greiddu fyrir.
„Rikisspítalar þurfa að endur-
skoða starfsmannastefnu sína.
Þeir eru í samkeppni við einka-
reknar rannsóknarstöðvar, einka-
rekna heilbrigðisþjónustu og ekki
síst erlendan vinnumarkað,“ sagði
Björk.
Algjör sérstaða Ríkisspítala
Hún sagði að ekki yrði framhjá
því litið að það ætti sér stað at-
gervisflótti frá Ríkisspítölum, en
slíkt gerðist þegar fjárhagsvandi
stofnunarinnar væri leystur ár eft-
ir ár með því að beina honum gegn
JÓHANNA Sigurðardóttir, þing-
flokki jafnaðarmanna, mælti fyrir
tillögu til þingsályktunar á Alþingi í
gær um að viðskiptaráðherra láti
fara fram úttekt á útlánatöpum
Landsbanka íslands og Búnaðar-
banka Islands á árunum 1993 til
1997. Skal úttektin framkvæmd af
hlutlausum fagaðilum og beinast
sérstaklega að því að fínna skýra
ástæðu fyrir útlánatöpum bankanna
á þessum áium sem námu, að sögn
Jóhönnu, tæpum 14 milljörðum kr.
Vitnaði hún þar í ski-iflegt svar við-
skiptaráðherra fyrir tveimur áram.
„Jafnframt skal [með úttektinni]
kanna hvort um óeðlilega fyrir-
greiðslu eða hagsmunaárekstra hafi
verið að ræða við veitingu þessara
lána eða ófullnægjandi tryggingar,"
sagði Jóhanna, en meðflutnings-
starfsmönnum.
„En það era ekki bara kjörin
sem starfsfólk Ríkisspítala er að
horfa til. Fólk getur ekki sætt sig
við að gerðir voru kjarasamningar
fyrir bráðum einu og hálfu ári síð-
an sem enn eru ekki komnir til
framkvæmda. Það eru tæpir átta
mánuðir frá úrskurði og enn á fólk
að bíða eftir kjarabótum. Sums
staðar er staðan jafnvel enn á
byrjunarreit, en sem betur fer víða
á lokareit. Það hefur ekki verið
staðið við tímaákvæði samningsins
og ekki heldur röðun í launaflokka
samkvæmt úrskurði. Ríkisspítalar
hafa þama algjöra sérstöðu hvað
þetta varðar. Hjá öðrum ríkis-
stofnunum hefur nýja launakerfið
verið tekið inn án töluverðra vand-
ræða og hefur skilað starfsmönn-
maður hennar er Ásta R. Jóhannes-
dóttir, Þingflokki jafnaðarmanna.
I máli Jóhönnu kom fram að beð-
ið væri um þessa úttekt vegna eftir-
litsskyldu þingsins með fram-
kvæmdavaldinu. „Þingið er að sinna
sínu eftirlitshlutverki með því að
biðja um skýringar og ástæður fyrir
14 milljarða kr. útlánatapi sem er
um sínum umtalsverðum kjarabót-
um. Hér á fólk að bíða, en starfs-
fólk getur ekki endalaust beðið eft-
ir kjarabótum. Sérstaklega ekki á
meðan aðrar ríkisstofnanir og al-
mennur markaður hafa hækkað
laun háskólamenntaðra til muna,“
sagði Björk.
Einhenda sér í að flýta
samningnm
Eftir að hafa hlýtt á málflutning
fulltrúa aðildarfélaga BHM á
fundinum sagði Guðmundur G.
Þórarinsson, formaður stjórnar
Ríkisspítala, að haíl honum ekki
verið það ljóst að óánægja væri á
Ríkisspítölum þá væri honum það
ljóst nú og að samningar hefðu
dregist allt of lengi.
Hann sagði að ráðgjafarfyrir-
sama og allur nettó tekjuskattur
einstaklinga á einu ári,“ sagði hún
og tók jafnframt fram að skatt-
greiðendur í landinu sem borguðu
fyrir þessi útlánatöp ættu rétt á því
að fá „skýringu á svona miklum út-
lánatöpum".
I umræðum um tillöguna kom
m.a. fram að Finnur Ingólfsson við-
tæki hefði verið fengið til að hanna
kerfi sem m.a. ætti að framkvæma
starfsmat og frammistöðumat,
þannig að eðlilega geti gengið yfii-
allt starfslið og hlutlægir þættir
verði sem réttast metnir. Sagði
hann kerfi þetta verða reynt á
nokkram deildum Ríkisspítala á
næstunni, og stjórnendur stofnun-
arinnar myndi einhenda sér í að
flýta samningum við starfsfólk.
„En menn mega ekki grípa til
aðgerða sem mölva niður þann
grunn sem þjóðfélag okkar stend-
ur á, jafnvel þó þeir verði óþolin-
móðir. Við verðum að sameinast í
að reyna að leysa vandamálin, og
ef menn virða ekki reglur, samn-
inga eða lög, þá er allt um þrotið
sem við stöndum á,“ sagði Guð-
mundur.
Stjórnendur endurskoði
starfsmannastefnu
Á fundinum var samþykkt álykt-
un þar sem segir m.a. að vaxandi
óánægja með launakjör og aukið
vinnuálag hafi þegar valdið því að
margir starfsmenn Ríkisspítala
hafi hrakist frá störfum. Flótti sér-
menntaðs starfsfólks af sjúkra-
stofnunum bitni að ósekju á þeim
sem þurfi á þjónustu þeirra að
halda og geti að óbreyttu leitt til
hruns heilbrigðisþjónustunnar í
landinu. „Fundurinn skorar á
stjórnendur Ríkisspítala að sjá til
þess að kjarasamningar komist að
fullu til framkvæmda og endur-
skoða jafnframt starfsmanna-
stefnu sína hið fyrsta,“ segir í
ályktuninni.
skiptaráðherra teldi að Jóhanna
væri að skaða bankana með þessum
málflutningi. „Ég hef ekkert á móti
því að þessi tillaga fari til skoðunar í
nefnd og að þar verði metið hvort
rétt sé að ráðast í umræddar rann-
sóknir. Ég bendi hins vegar á að nú
er gjörbreytt landslag frá því sem
var þegar bankamir vora reknir í
öðra formi og þegar aðrir stjórn-
endur voru. [Áhugi almennings á
hlutabréfum] í Landsbankanum og
nú í Fjárfestingarbanka atvinnulífs-
ins staðfestir að þjóðin hefur trú á
þessum stofnunum. Rannsókn sú
sem hér er lögð til er því ekki til
þess að styrkja þær stoðir sem
þurfa að vera undir þessum fyrir-
tækjum þannig að þjóðin fái sem
mesta fjármuni fyrir sínar eignir,“
sagði ráðherra.
Athugun á
málfari í út-
varpi kynnt
á Málrækt-
arþingi
Á MÁLRÆKTARÞINGI, sem ís-
lensk málnefnd og Utvarpsréttar-
nefnd standa fyrir á laugardag,
verða meðal annai-s kynntar niður-
stöður athugunar á notkun íslensks
máls í 11 útvarpsstöðvum.
Athugunin var unnin af 11 nem-
endum Ara Páls Ki-istinssonar, for-
stöðumanns Islenskrar málstöðvar,
í námskeiði í íslensku á námsbraut í
hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla Is-
lands.
Á sama tíma fóstudaginn 23.
október hlustaði hver nemendanna
á eina útvai-psstöð í samtals 45 mín-
útur, 15 mínútur í senn, og skráði
hvernig tíminn skiptist milli talmáls
og tónlistar. Ekki var hlustað á
fréttir, þar sem þær voru fluttar.
Málnotkun útvarpsfólks og viðmæl-
enda þess var athuguð, m.t.t. fram-
burðar, orðanotkunar, málvillna,
slettna úr erlendum málum o.fl.
Á blaðamannafundi sem aðstand-
endur Málræktai'þings héldu í gær
fengust ekki upplýsingar um niður-
stöðurnar, sem kynntar verða á
laugardag, að öðru leyti en því að á
einni ótiltekinni útvarpsstöð hefði
tal verið flutt í 6,01 mínútu á þeim
tíma, sem athugunin náði til; þar af
voru 25% óþýtt viðtal á ensku en
75% á íslensku. Tvo þriðju hluta
þess tíma, sem talað var á íslensku,
var amerískur menningarheimur til
umræðu, en íslenskur veruleiki
þriðjung tímans. Þær fjórar og
hálfu mínútu sem íslenska var töluð
heyrðust 5 slettur og 3 málvillur.
Efla ljósvakamiðlar
íslenska tungu?
Tónlist var flutt í 33,24 mínútur,
þar af íslensk tónlist í 4,14 mínútur.
Ai4 Páll Kristinsson sagðist telja
að þessi ótiltekna útvarpsstöð hefði
ekki skorið sig úr heildinni. Nánar
verður gerð grein fyrir athuguninni
á Málræktarþingi á laugardag.
Athugunin náði til útvarpsstöðv-
anna Rásar 1, Rásar 2, Bylgjunnar,
Stjörnunnar, FM 95,7, Lindarinn-
ar, Mono 87,7, Matthildar 88,5,
Gulls 90,9, Klassíkur 100,7 og X-ins
97,7.
Málræktarþing ber að þessu
sinni yfirskriftina: Efla ljósvaka-
miðlar íslenska tungu. Auk marg-
nefndrar athugunar ávarpar
menntamálaráðherra þingið. Þá
flytur Ai'i Páll Kristinsson erindi
um mál í útvarpi og sjónvarpi þar
sem hann fjallar um málið sem
tjáningartæki og fyrirmynd.
Haldnar verða pallborðsumræður
og sigurvegarar í upplestrarkeppni
barna síðastliðið skólaár lesa ljóð.
Þingið verður haidið í Borgartúni
6 á laugardag frá klukkan 11-14.30.
Ráðstefnugjald er 500 krónur.
FJÖLDI háskólamenntaðra starfsmanna Ríkisspítala kynnti sér stöðuna í samningamálunum á fundi BHM.
Fundur stjórnar BHM með háskólamenntuðum starfsstéttum Ríkisspítala
Mikil óánægja með fram-
kvæmd kjarasamninga
Morgunblaðið/Kristinn
GUÐMUNDUR G. Þórarinsson, sljórnarformaður Ríkisspítala, hlýðir
á málflutning á fundi BIiM um kjaramál á Rikisspítölum.