Morgunblaðið - 13.11.1998, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Þorsteinn Pálsson á aðalfundi LS
Verðið á bátum
er fáránleg-a hátt
**■
Morgunblaðið/Kristinn
ÞORSTEINN Pálsson ávarpaði aðalfundarfulltrúa Landssambands
smábátaeigenda í gær. Þar sagði hann að þrátt fyrir mikla vinnu við
að finna lausn á deilunni um fjölda sóknardaga smábáta, hefði nánast
ekkert áunnist.
ÞORSTEINN Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagðist á aðalfundi
LS í gær reiðubúinn til þess að
skoða íramlengingu laga um úthlut-
un úr jöfnunarpotti til aflamarks-
báta í eitt ár. A undanfórnum árum
hefur verið beint til þeirra veruleg-
um hluta af 5.000 lesta jöfnunar-
potti, sem úthlutað hefur verið úr að
hámarki 10 lestum á hvern bát, en
samkvæmt gildandi lögum er yfir-
standandi fiskveiðiár síðasta úthlut-
unarárið. Sagði Þorsteinn að á mál-
inu þyrfti að finna tæknilega lausn,
því í raun væri jöfnunartilefnið að
hverfa að því er þorskinn varðar, því
aflamarkið stefni í að ná fljótlega
sömu tölu og á því ári sem notað
hefur verið til viðmiðunar, sem er
fiskveiðiárið 1991/1992.
Þorsteinn sagði að í óbirtum
skýrsludrögum sem varða meðal
annars þróun í mismunandi útgerð-
arhópum, sem verið sé að vinna fyrir
sjávarútvegsráðuneytið af utanað-
komandi aðila, sé rakin þróun í
veiðistjórnun smábáta á undanfórn-
Sóknardögum bát-
anna verður ekki
fjölgað nema annað
komi á móti
um árum. „Trillurnar eru horfnar að
mestu úr smábátaflotanum. Smábát-
arnir eru smíðaðir úr trefjaplasti,
opnir eða þiljaðir, hraðskreiðir og
eru 10 til 20 sinnum aflmeiri en trill-
urnar áður fyrr. En það er ekki ein-
asta að bátar hafi orðið öflugri á
undanfórnum árum. Ailt frá árinu
1995 hefur verið mikill áhugi á að
kaupa sig inn í þetta kerfi, dýrum
dómum, þótt allar staðreyndir séu
ljósar um stöðu veiðiheimildanna í
kerfinu og fyrirsjáanlega þróun. Frá
þessum tíma hefur um helmingur
allra báta í báðum sóknardagakerf-
unum skipt um eigendur og á sjö-
unda tug báta bara á þessu ári, sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem við
höfum frá Fiskistofu. Þessar tölur
þarf kannski að taka með ákveðnum
fyrirvara vegna formbreytinga hjá
útgerðum og slíkra þátta, en eigi að
síður er ljóst að mikil hreyfing er á
eignarhaldi þessara báta og það
verð sem greitt er fyrir þá sam-
kvæmt blaðafregnum er fáránlega
hátt og alveg augljóst að engar ráð-
stafanir stjórnvalda geta dregið slík-
ar fjárfestingar að landi. A þeim
hljóta menn að bera ábyrgð sjálfir."
Tilslakanir
hugsanlegar
Þorsteinn sagði sjávarútvegsráðu-
neytið hafa lýst því að ókleift sé að
ganga lengra en í samkomulaginu
frá 1996, varðandi hlutdeild króka-
báta í heildaraflanum, og væri það í
fullu samræmi við þær yfirlýsingar
sem gefnar voru þegar samkomulag-
ið var gert. Varanlegar breytingar á
stöðu einstakra báta eða hópa verði
því að leysa innan krókakerfisins.
„Tímabundið geta hins vegar verið
rök fyrir því að fallast á ákveðnar til-
slakanir í því skyni að auðvelda að-
lögun að títtnefndu samkomulagi.
En slík markmið um aðlögun þurfa
að vera nægjanlega skýr.“
Viðræður milli ráðuneytisins og
Landsambandsins um það hvort ein-
hverjar ráðstafanir sé hægt að gera
til að auðvelda dagabátum að laga
sig að hlutdeild krókabáta í heildar-
þorskaflanum standa enn yfir að
sögn Þorsteins. „Eg vonast enn til
þess að slíka fleti megi finna, þótt
það verði að segjast eins og er að
enn hefur mikil vinna að því marki
ekki náð niðurstöðu. Meðan svo er
erum við sjálfsagt jafn langt frá
markinu og í upphafi, þótt ýmislegt
hafi skýrst. Ég get ekki skýrt hér
frá stöðu þessara mála í neinum
smáatriðum, en ég vil segja það al-
mennt, að ég tel í fyrsta lagi óraun-
hæft að sóknardögum geti fjölgað
án þess að eitthvað annað komi þar
á móti, sem dregið geti úr umframa-
fla, og í öðru lagi tel ég að menn
ættu ekki að útiloka einhverja sann-
gjarna þátttöku þorskaflahámarks-
ins í lausn þess vanda sem við stönd-
um frammi fyrir.“
27.-30. NÓVEMBER
Misstu ekki af þessu tækifæri til þess að spila golf við
toppaðstæður í fallegu umhverfi því verðið er hreint frábært.
Dvalið er á Citywest-hótelinu rétt utan við borgina við glæsilegan
golfvöfl sem hannaður er af Christy O'Connor Jr.
imtifafitl: Flug, gisting með morgunverði,
3 hringir á Citywest-golfvellinum,
flugvallarskattar, innritunargjald.
á mann f +\/íh\/li bókunargjald í alferð, ferðir til og frá
a mann l ivioyil. fiugve|iierlendisogfararstióm.
Bókun
Iminn
569
1000
írar eru enn að | ^
leika á sumarflötum!
á mann í tvíbýli.
________ð: Flug, gisting með morgunverði, miði á einn leik, flugvallarskattar, innritunar-
gjald, bókunargjald í alferð og fararstjórn miðað við 20 manna lágmarksþátttöku.
Ðtiisliíi
Anfi eld Road
Samvinnuferðir-Landsýn
býðurfrábæra ferð til Dublin,
þaðan sem siglt ertil
Liverpool og farið á toppleik
í ensku úrvalsdeildinni.
Láttu drauminn rætast
og upplifðu einstaka
stemningu á leik
Liverpool - Blackþurn
eða Man. United - Leeds.
„Islenska kerfið er
ekki góð fyrirmynd“
ARTHÚR Bogason, formaður
Landssambands smábátaeigenda,
varar við því að gengið verði of
langt í að kynna ágæti íslensks fisk-
veiðistjórnunarkerfis erlendis.
Fiskveiðistjórnunarkerfið varð
Arthúri helst að umtalsefni í setn-
ingarræðu sinni á aðalfundi sam-
bandsins sem hófst í gær.
„Rétt eins og íslensk náttúra er
einnig söluvara innanlands, er í
gangi markaðssetning stjómkerfis
fiskveiða á þeim vettvangi, undir yf-
irskyni fræðsluátaks. Því geri ég
þetta að umtalsefni að ábyrgð
þeirra sem að þessu standa er gríð-
arleg. Og mér býður svo í grun að
afleiðingar þessarar markaðssetn-
ingar séu lítt ígrundaðar. íslenska
kvótakerfið er kerfi einkavæðingar.
Það afmarkar ákveðnum hópi í
þjóðfélaginu réttindi til nýtingar á
auðlindum sem áður voru almenn-
ingseign. Þótt lífskjör á íslandi
spanni alla flóruna er þjóðin engu
að síður það vel stödd að deilumar
sem rísa við framkvæmd slíkrar
einkavæðingar hérlendis em öðm
fremur á siðferðilegum og lagaleg-
um grandvelli.
„íslenska leiðin“
varhugaverð
Við íslendingar verðum að gæta
okkar vel þegar við viljum halda því
fram að lausnir mikilla viðfangs-
efna hafi fundist og bjóðumst til að
vera heiminum fyrirmynd. Stjórn-
völd fjölmargra ríkja taka þessari
lausn vitaskuld fegins hendi. Gjör-
spilltir stjómarherrar geta notað
íslensku leiðina til að fjármagna
spillinguna heima fyrir og fóðra
sína erlendu bankareikninga. En
það er ekki eins víst að íbúar
strandveiðisamfélaganna séu jafn
þakklátir okkur Islendingum. Það
er ekki eins víst að íbúar strand-
veiðisamfélaganna hafi jafn djúp-
stæðan skilning á nauðsyn þess að
gróði stórfyrirtækjanna gangi fyrir
öllu og hrífist mjög innilega af út-
rás íslensks sjávarútvegs þegar
þeir vakna upp við það einn morg-
unin að verksmiðjuskip undir
furðufánum era skarkandi á slóð-
inni þeirra. Það þarf ekki mikið
hugmyndaflug til að sjá fyrir sér
Arthúr Bogason, for-
maður LS, varar við
því að ganga of langt
í kynningu íslenzkrar
fiskveiðistjórnunar
erlendis
hvernig þessu fólki muni ganga að
fá leiðréttingu sinna mála þegar
það vefst svo árum skiptir fyrir
stjórnvöldum í okkar litla samfélagi
að rétta hlut þeirra sem verst hafa
farið út úr fiskveiðikerfinu hérlend-
is.“
Byggir ekki upp
fiskistofna
Arthúr sagði að á Ári hafsins hafi
öflugustu umhverfissamtök verald-
ar sett málefni hafsins efst á verk-
efnalista sína og þau öfgafyllstu
leyni því ekki að þau vinni að því að
stöðva allar fiskveiðar. Staðreyndin
væri sú að hér við iand hefði stofn-
stærð fjögurra helstu botnfiskteg-
undanna farið minnkandi á síðustu
árum þrátt fyrir að stjórnvöld og
fræðimenn haldi því fram að ís-
lenska fiskveiðikerfið hafi sannað
getu sína til þess að byggja upp
fiskistofna. Hann sagði menn því
þurfa að flýta sér hægt í markaðs-
setningu kerfisins. „Erum við ís-
lendingar tilbúnir að standa við
framkvæmd kvótakerfis gagnvart
öðrum þjóðum? Erum við tilbúnir
að axla þá ábyrgð ef sannast á síðari
stigum að kerfíð feli í sér innri
virkni sem leiði til líf'fræðilegs af-
hroðs? Höfum við sannanir þess í
höndum að engin betri leið sé til nú
þegar?“ spurði Arthúr.
Arthúr sagðist þannig sannfærð-
ur um að til að nálgast hugmyndina
um sjálfbærar veiðar þurfi að huga
að fleiri þáttum. LS hafi árum sam-
an gert þá kröfu á hendur stjórn-
völdum að umhverfisárif veiðarfæra
verði rannsökuð. „Þessum kröfum
hefur enn sem komið er ekki verið
sinnt. Nýlegar neðansjávarmyndir
frá Noregi sýna að nú verður ekki
lengur undan þessu vikist. Verði
hins vegar haldið áfram að
þverskallast við þessum sjálfsögðu
kröfum hljóta það að vera skilaboð
um það að aðrir hagsmunir vegi
þyngra en búsvæði fiskanna í haf-
inu.“
Umhverfísumræða hvetur
til smábátaútgerðar
Arthúr sagði smábátaeigendur og i
samtök þeirra standa vel að vígi W
þegar kæmi að umræðu um um-
hverfismál og því meira sem reikn-
að verði af nefndum og sérfræðing-
um muni aukast þrýstingur á
stjórnvöld að efla veiðar smábáta-
flotans og notkun kyrrstæðra veið-
arfæra. „Allur samanburður í þess-
um efnum er okkur hagstæður,"
sagði Arthúr. „Veiðarfæra- og orku- |
notkun em þættir sem hið alþjóð-
lega samfélag mun gera skýlausa 1
kröfu um að verði hluti þeimar P
myndar sem fellur að sjálfbærum
veiðum og umhverfisstefnu. Þessu
fá engar opnuauglýsingar breytt.
Þessu fá engin gífuryrði í garð smá-
bátaeigenda breytt."
Réttlætið verður
aldrei þreytt
Smábátaflotinn sló öll sín fyrri k
veiðimet á síðasta ári, þegar hann |
dró að landi um 80 þúsund tonn úr ||
sjó. Arthúr sagði stöðu fjölmargra "
félagsmanna nú betri en um langan
tíma og því bæri að fagna. „Það
breytir þó ekki þeirri staðreynd að
enn eigum við óleyst vandamál sem
við verðum að fá úrlausnir á. Þó
sum þessara mála séu komin til ára
sinna verður réttlætið aldrei þreytt.
Okkar meginstyrkur hefur verið
góður málstaður og samstaða. Hið k
fyi-rtalda breytist ekki en hið síðara
er undir okkur sjálfum komið.
Fyrir stuttu tilkynnti hæstvirtur "
sjávarútvegsráðherra að hann
hygðist hætta þátttöku sinni í
stjórnmálum. Starfi hans er þó eng-
an veginn lokið sem sjávarútvegs-
ráðherra og því vil ég nota tækifær-
ið til að skora á hann að skilja við
þetta mikilvæga embætti með það í
farteskinu að hann hafi rétt hlut
þeirra trillukarla sem lengst hafa |
beðið leiðréttingar og þeirra sem nú |
em nánast bannaðir róðrar. Slíkt |s
væri honum til mikils sóma,“ sagði "
Arthúr Bogason.