Morgunblaðið - 13.11.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 25
ERLENT
Varað við
aðskilnaði
TONY Blaii', forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær, að nýja
þingið í Skotlandi gæti orðið
stökkpallur
fyrir aðskiln-
aðarsinna ef
skoskum
þjóðem-
issinnum
vegnaði vel
þegar kosið
verður til
þess í maí
nk. Sam-
kvæmt skoð-
anakönnun-
um hefur Verkamannaflokkur-
inn aðeins tvö prósentustig um-
fram skoska þjóðemissinna og
hann varð fyrir áfalli á miðviku-
dag þegar einn þingmanna hans
ákvað að bjóða sig fram til
skoska þingsins sem óháður.
Hafði hann ekki verið sam-
þykktur sem frambjóðandi til
þess þings og verður vafalaust
rekinn úr flokknum.
Hungur í
Hondúras
ÓTTAST er, að hungursneyð
komi upp meðal fólks á einangr-
uðum stöðum í Hondúras en
ekki hefur enn tekist að koma
matvælum og annarri aðstoð til
allra hluta landsins. Vatn er líka
svo mengað víða, að fólk þorir
ekki að drekka það. Austurríki
bættist í gær í hóp þeirra ríkja,
sem hafa afskrifað skuldir Mið-
Ameríkuríkjanna, sem urðu
mest fyrir barðinu á fellibylnum
Mitch, og Aiþjóðabankinn og
mörg ríki hafa heitið þeim tug-
um milljarða kr. í aðstoð.
17 myrtir
í Alsír
ÍSLAMSKIR uppreisnarmenn í
Alsír skáru 17 manns á háls og
særðu aðra þrjá í árás á þorp í
Ain Defla-héraði í fyrrinótt. Er
þetta mesta hryðjuverk þeirra í
tvo mánuði en snemma í sept-
ember skáru þeir á háls og
brenndu til bana 30 manns í
sama héraði.
Tony Blair
GERIAÐRIR BiTUR!
Tilboð baðherbergissett!
Kr. 25.000,- stgr.
Baðkar.
170 x 70 cm.
Handlaug á vegg.
Stærð 55 x 43 cm
Ath. Öll hreinlætis-
tæki hjá okkur eru
framleidd hjá
sama aðila sem
tryggir sama
litatón á salerni,
salernissetu,
handlaug og
baðkari.
Salerni með stút í vegg
eða gólf. Hörð seta og
festingar fylgja
VERSLUN FYRIR ALLA
Vió Fellsmúla
Simi 588 7332
Kristján Pálsson, alþingis
maður, í 2. sætið í prófkjörinu í
Reykjaneskjördæmi á morgun
Hækkum frítekjumark
námslána
Hálendisperlurnar
ber að vernda
Jöfnum skattalega
aðstöðu öryrkja og
aldraðra