Morgunblaðið - 13.11.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 29
LISTIR
Álfkona græöir landið
MYNDLIST
Mukka
LJÓSMYNDIR
HARPA BJÖRNSDÓTTIR
Opið á verslunartíraa.
Til 19. nóvember.
HARPA Björnsdóttir hefur kom-
ið víða við og er einkum kunn fyrir
málverk og grafíkmyndir. En nú
bregður svo við að hún sýnir
myndröð af tólf ljósmyndum. Það
má kalla þetta sviðsettar ljósmynd-
ir, en í því felst að Ijósmyndin skrá-
setur gjörning listamannsins.
Myndröðina kallar hún „Folda-
skart“ og sýnir hvar hvítklædd
kona dreifír vöfflum með rjóma,
kexkökum og sælgæti um holt og
hæðir, lengst uppi á hrjóstrugum
öræfum. Sumar myndirnar eru
nærmyndir af vöfflum með rjóma
og sultu, sem líta út eins og blóm á
grýttri jörðinni.
Mín fyrstu viðbrögð voru að leita
að íróníunni í gjörningnum, því
manni fínnst eins og það hljóti að
vera einhver léttúð eða kímni á bak
við hugmyndina um vöfflubakstur á
hálendinu. En svo virðist sem ein-
læg alvara sé á ferðinni, a.m.k. ef
marka má sýningarskrána, þar sem
talað er um samspilið milli fegurðar
hins náttúrulega og fegurðar hins
manngerða. Er verið að draga fram
samlíkingu milli þess að neyta sæt-
inda og njóta náttúrunnar? Kannski
er okkur ætlað að setja myndirnar í
samhengi við staðinn, þar sem vöffl-
ur með rjóma og sultu eru einn af
sérréttum hússins, svo kaffíhúsa-
gestir geti gætt sér á kræsingunum
í sátt og samlyndi við myndefnið?
Um leið og gómsætir bitarnir
hverfa niður um kok getum við hug-
leitt hvernig landeyðingin étur upp
jarðargróðann á öræfum og skilur
landið eftir nakið, rétt eins og disk-
arnir sem skildir eru eftir auðir á
borðum kaffihúsagesta.
En svo er það kvenpersónan í
myndunum, álfkonan sem græðir
landið, hið kvenlega frjómagn nátt-
úrunnar. Ekki er annað að sjá en að
verið sé að Iíkja henni við ímyndina
af alþýðukonunni sem bakar og
framreiðir. Pað er eitthvað rammís-
lenskt við vöfflur, sem vekur minn-
ingar um eldhúsið hennar ömmu.
Og það þarf ekki að taka fram að
allt sem er ömmulegt er okkur Is-
lendingum sérlega hjartfólgið -
ekki síst þegar náttúrurómantík
svífur yfir vötnum. Amma og nátt-
úra: við erum komin ískyggilega
langt inn á gráa svæðið þar sem
klisjan ræður ríkjum.
Það væri kannski hægt að kalla þá
myndlist, sem Harpa Bjömsdóttir
býður okkur upp á, því þversagna-
kennda nafni „konsept-rómantík",
því hún færir okkur gamlar lummur
(eða vöfflur) í nýtískulegum búningi
konseptlistar. En búningurinn einn
og sér gæðir innihaldið ekki nýju lífi.
Gunnar J. Árnason
E-PLUS
SATTl KlIFGI
F-VÍTAMIN
200 «e
m
E-vítamín eflir
varnir iíkamans
Úheilsuhúsið
Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu 6, Akureyri
Marktís Möller
frambjóðandi í2. sœti í
prójkjöri Sjdlfstæöisjhkksins d Reykjanesi
Kosningaskrifstofa Kirkjulundi 8. Garðahœ.
Símar565 9370 &56593~ 1 * iL iuw.centriim.is/markusm