Morgunblaðið - 13.11.1998, Síða 37

Morgunblaðið - 13.11.1998, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 37 LISTIR SADISK KATINA BÆKUR Skáldsögur PADDY CLARKE HA, HA, HA eftir Roddy Doyle, Sverrir Hólmars- son þýddi, Vaka-Helgafell, Reykjavík, 1998,102 bls. Roddy Doyle VIÐHORF barna til náungans einkennist af gleðiríkum sadisma, stríðni, nautninni að kvelja. Ef sú fullyrðing á ekki við um börn í nánasta um- hverfi passar hún að minnsta kosti við stráka í verki Roddys Doyles, Paddy Clarke ha, ha, ha. Roddy Doyle er írskur höf- undur sem á að baki skáldsöguna The Commit- ments sem vinsæl kvikmynd var gerð eftir, leikrit og skáldsagnaþrí- leik með sama borgarhverfi að sögusviði og þetta verðlaunaverk hér sem sló síðan í gegn. Doyle hefur þegar fylgt Paddy Clarke ha, ha, ha eftir með Konunni sem gekk á hurðir. Fólk hefur kvartað yfir að ekk- ert plott sé í Paddy Clarke ha, ha, ha og það má til sanns vegar færa að hún er ekki klassísk að bygg- ingu og framvindu þótt frásagnar- gleðih~séTiiiKií heldur fetáFsig 1 sína einsog - ævintýrasafn, dálítið einsog 1001 nótt; ein saga vex útúr annam og sú þriðja tekur við og þar fram eftir götunum með miklu rennsli því verkið er ekki kafla- skipt, það er einn samfelldur texti; en textinn nær andanum af og til með tvöföldum greinaskilum. Paddy Clarke, sem er tíu ára strákur á sjöunda áratugnum, seg- ir frá, hann er „ég“. Veröldin sem hann lýsir er strákaheimur og sam- anstendur af vinahópnum og Sind- bað bróður hans; sagan á sér stað á götunum, í skólanum og á heimil- inu og einsog til að undirstrika drengjaheiminn spila tvær systur þein-a bræðra ekkert hlutverk. Foreldrarnir og samskipti þeirra koma talsvert við sögu en umfram allt er það strákaheimurinn: það er slegist og kveikt í, spilaður fótbolti og indiána- og kúrekaleikir og yfir öllu hvílir einhver glettinn kvala- losti einsog þegar Paddy Clarke hellir bensíni uppí bróður sinn til að fá hann til að spúa eldi einsog dreki. Þeir njóta þess að níðast hver á öðrum, þessir drengir, og eiga sínar sadísku helgiathafnh- við varðelda. Samt ríkja strangar regl- ur, einskonar miðaldaleg riddara- hugsjón þar sem karlmannlegur heiður er í forgrunni. Það má ekki beita hvaða fantabrögðum sem er og sá sem brýtur reglurnar er ekki lengur gjaldgengur í samfélagi drengjanna. Sjónarhól barnsins hefur verkið fengið í arf frá sagna- heimi Gúnter Grass en þó er létt- ara yfir verki Doyles. Nærtækara er að benda á drengjaveröld Ein- ars Más Guðmundssonar. Paddy Clarke býr yfir þekkingu á öllu frá fótbolta (man einhver eft- íx ucuigc iJcöL.y lii cniaruragUciý alfræðiþekkingu, fánýtum fróðleik sem finna má í alfræðiorðabókum og enginn býr yfir nema börn. I fari hans er kerfishugsun af sömu tegund og „bannað að stíga á strik“-leikurinn, einskonar helgi- siðalegt söngl sem lætur veröldina ganga upp. Hann á til sterka hefndarfýsn sem kemur fram í draumórum þar sem strákar deyja eða er bjargað af honum eða þar sem allir iðrast þess að hafa verið vondir við hann. Hann klagar í sí- fellu, er „með koppinn á hausnum", en ekki af sjálfsmeðaumkun heldur af sadískri nautn yfir að koma öðr- um í klípu. Roddy Doyle tekst iðu- lega í lýsingum Clarke að ná því einhvemveginn í hnotskurn hvað það er að vera barn. Og ekki síður í samtölum sem flæða vel áfram en renna þó kannski betur á ensku - því þýðing er aldrei frumtexti. En það er alveg óhætt að treysta vön- um þýðendum einsog Sverri Hólmarssyni til að ferja á milli tungumála með sem minnstum missi, það þarf varla að nefna að þýðingin er með ágætum. Yfir- borðsleg skoðun frumtextans sýnir slatta af skrýtnum orðum sem gætu verið mállýska en þetta er líka skrýtinn heimur sem verið er að lýsa. Það eru leifar af írskri tungu, gelísku, í texta Doyles, eða öllu heldur í írskri menningu, og koma forvitnilega og annarlega fyrir sjónir. Þýðingar eru neðan- máls. Lesandinn er látinn skynja hreyfinguna á tilveru Paddys, skól- anum, vinahópnum, heimilinu, áður en hann og betur en hann. Það er eitthvað að gerast og leiksvæði drengjanna hefur þrengst. Undir ur til þessarar fjörugu sögu. Hvað verður um alla þessa drengi ef eitt- hvað sem kallað er veruleiki þreng- ir að og sviptir þá sadískri gleði? Hvað verður um þá? Hermann Stefánsson Tímaleysið í Hrísey ÞAR sem tíminn hverfur heitir nýút- komin bók Ingólfs Margeirssonar rithöf- undar en undirtitillinn er Minnisblöð um _ mannlíf í Hrísey. f bókinni lýsir höfund- urinn í máli og penna- teikningum upplifun sinni af Hrísey og kynnum sinum af for- vitnilegu fólki. Hann rifjar upp atburði frá gamalli tíð en spjallar líka við samferða- menn sem oft hafa aðra sýn á lífið en annað fólk, eins og segir í kynningu á bókarkápu. A síðustu árum hefur Ingólfur dvalist langdvölum í Hrísey. Hann segist strax hafa fengið mikinn áhuga á sögu eyjunnar, svo í raun hafi bókin verið í geijun í mörg ár. Hann hafi fljótt komist að því að undir fremur hógværu yfir- borði byggi mikil saga. „Eg fór að safna ýmsum heimildum um Hrís- ey úr annálum og munnmælasög- um og fór að skrifa hjá mér það sem ég heyrði. Mig langaði til að gera eitthvað við þetta, sem leiddi in.a. til þess að ég gerði sjón- varpsþátt, en í honum kom bara fram brotabrot af því sem ég var búinn að heyra og sjá,“ segir Ingólfur. A liðnu sumri fór hann svo að skrifa - og teikna - og af- raksturinn gefur að líta í bókinni nýútkomnu. Þetta er i fyrsta sinn sem--— Ingólfur myndskreytir bók eftir sjálfan sig en á árum áður mynd- skreytti liann gjarnan blaðagrein- ar sínar og viðtöl. Segist raunar hafa byijað blaðamennskuferil sinn á því að teikna myndir fyrir norsk blöð rúmlega tvítugur. Ingólfur Margeirsson hann. Hi „Mér finnst teikning- in að vissu leyti geta bundið saman texta og bundið saman tímabil, þannig að látnir og lifandi verða í þessu tímaleysi sem mér finnst einkenna Hrísey. Maður veit ekki alveg á hvaða öld maður er staddur eftir að hafa verið í Hrísey í dálítinn tíma, maður missir alveg tímaskynið,“ segir hann. ún er búin að verpa, koma ung- unum úr hreiðri, kenna þeim að fljúga og veiða og er flogin til Suðurpólsins. Það hefur verið unun að fylgjast með flugkennslu kríunnar. Fleygir kríuungar hafa þanið vængina á nóttu sem degi; foreldrarnir hafa engin grið gefið, heldur steypt sér í sífellu að afkvæmunum, barið þau áfram með vængjunum, goggað í haus þeirra og jafnskjótt og kubbs- legir ungarnir hafa tyllt sér lúnir á næstu þúfu er kríumamma búin að renna sér niður að þeim og spretta á flug aftur. Yfir eyjunni hefur boð- orð kríunnar verið eitt og aðeins eitt: Fljúga, fljúga, fljúga! Hrísey er hljóðnuð af látlausu gargi þessa listfleyga fugls sem gætir varplanda sinna uppi á eyj- unni af látlausri elju og vöku. Krí- an gætir ekki aðeins eigin varp- rjúpur inn á umráðasvæði kríunnar til að leita þar skjóls fyrir vargin- um og valnum sem stelst öðru hverju úr háum fjöllum Eyjafjarð- ar til að ná sér í fæði. Ur Þar sem tíminn hverfur. Við styðjum Helgu til allra góðra verka Ásdís Halla Bragadóttir, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna Bjarni Snæbjörnsson, arkitekt, Hafnarfirði Ellen Ingvadóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna Guðlaug Konráðsdóttir, formaður Vorboðans, félags sjálfstæðiskvenna Guðmundur Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisfélags Garðabæjar Guðmundur Jónsson, bóndi, Reykjum, Mosfellsbæ Guðrún Kaldal, forstöðumaður, Seltjarnarnesi Guðrún B. Vilhjálmsdóttir, varaformaður félagsmálaráðs Seltjarnarness Gunnsteinn Sigurðsson, skólastjóri, Kópavogi Jóhann G. Jóhannsson, leikari, Seltjarnarnesi Halla Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs Magnús H. Guðjónsson, dýralæknir, Reykjanesbæ Magnús B. Jóhannesson, rekstrar- og stjórnunarfræðingur, Reykjanesbæ Magnús Sigsteinsson, forstöðumaður, Mosfellsbæ María Valdimarsdóttir, formaður Sóknar, félag sjálfstæðiskvenna, Keflavík Ólafur Höskuldsson, tannlæknir, Seltjarnesi Pétur Birgisson, formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs Salóme Þorkelsdóttir, fyrrv. alþingismaður og forseti Alþingis Steinþór Jónsson, hótelstjóri, Keflavík Svanlaug Jónsdóttir, formaður fjölskyldu- og félagsmálaráðs Reykjanesbæjar Valgerður Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar Þóra Einarsdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Seltjarnarness Þórey Halldórsdóttir, starfsmaður Kynnisferða, Reykjanesbæ Þorgerður Aðalsteinsdóttir, formaður Eddu, félags sjálfstæðiskvenna, Kópavogi Þorsteinn Einarsson, starfsmannastjóri Kópavogsbæjar Helga Guðrún Jónasdóttir býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- manna í Reykjaneskjördæmi, laugardaginn 14. nóvember nk. Hún starfar sem stjórnmálafræðingur hjá Skrifstofu jafnréttismála en var áður m.a. upplýsingafulltrúi Verslunarráðs íslands og upplýsingafulltrúi bænda- samtakanna. Helga er jafnframt formaður umhverfisnefndar Sjálfstæðis- flokksins, ritari Landssambands sjálfstæðiskvenna og á sæti í jafnréttis- nefnd Kópavogsbæjar. HELGU I FIMMT KRAFTUR - ÞEKKING - ÞOR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.