Morgunblaðið - 13.11.1998, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 39
40 sveitir í deilda-
keppni SI um helgina
SKAK
Félagsheimili Hellis,
Fönglabakka 1.
ÍSLANDSFLUGSDEILDIN:
Fyrri hluti, 13.-15. ndvember.
Búast má við harðri keppni Islands-
meistaranna í Taflfélagi Reykjavíkur
og Hellis
DEILDAKEPPNI Skáksam-
bands íslands hefst í kvöld. Deilda-
keppnin er eitt fjölmennasta skák-
mót, sem fram fer hér á landi og að
þessu sinni verða þátttakendur
fleiri en nokkru sinni fyrr. Keppt
verður á 128 borðum í fjórum
deildum, þannig að keppendur í
hverri umferð verða 256. Þetta
þýðir að þátttakendur verða á
fjórða hundrað, því flest lið þurfa
að skipta varamönnum inn á. Fyr-
irkomulag Deildakeppninnar er
nokkuð sérstakt að því leyti, að á
haustin eru tefldar 4 umferðir, en 3
síðustu umferðirnar verða ekki
tefldar fyrr en eftir áramót. Fyrir
utan að vera eitt fjölmennasta
skákmótið eru flestir sammála um
að Deildakeppnin er jafnframt eitt
hið skemmtilegasta. I því taka þátt
skákmenn af öllu landinu og styrk-
leikinn er allt frá byrjendum upp í
stórmeistara á heimsmælikvarða.
Jafnframt sýnir Deildakeppnin vel
þá sérstöðu skákarinnar, að hana
geta stundað allir aldursflokkar.
Þátttakendur eru allt frá 10 ára
aldri og upp úr.
Að þessu sinni verður teflt í Hell-
isheimilinu, Þönglabakka 1, og
áhorfendur eru að sjálfsögðu vel-
komnir. Eins og venjulega mun at-
hyglin ekki síst beinast að fyrstu
deild, íslandsflugsdeildinni. Þar
tefla átta lið og hvert lið er skipað
átta skákmönnum. Líkt og síðustu
ár virðast Taflfélagið Hellir og Tafl-
félag Reykjavíkur vera líklegust til
sigurs í deildinni.
Hér að neðan fylgir yfirlit yfir
liðsskipan sveitanna í fyrstu deild.
A eftir upptalningu á liðsmönnum
hverrar sveitar fylgja meðalstig
sveitarinnar. Þar á eftir (innan
sviga) er mismunur á stigum efsta
og neðsta borðs sveitarinnar. Ut-
reikningarnir byggjast á íslenskum
skákstigum. Hugsanlegt er að end-
anleg borðaröð verði önnur en sú
sem hér er sýnd. Einnig þarf að
hafa í huga að flest lið þurfa að nota
varamenn.
Taflfélagið Hellir, A-sveit:
Hannes Hlífar Stefánsson.........2555
Jón L. Árnason...................2515
Helgi Ólafsson...................2530
Helgi Ass Grétarsson.............2495
Karl Þorsteins...................2505
Ingvar Ásmundsson................2320
Bragi Halldórsson................2255
Bragi Þorfinnsson................2250
Meðalstig:..................2428(305)
Kvikmynda-
sýningar
fyrir börn
KVIKMYNDASÝNINGAR
fyrir börn eru í Norræna hús-
inu alla sunnudaga kl. 14. Hinn
15. nóvember kl. 14 verður
finnska kvikmyndin Hundaþjóf-
ar sýnd.
Þetta er leikin mynd um þrjá
tólf ára drengi sem finna hund
lokaðan inni í yfirgefnum bíl.
Lögreglan neitai' að opna bílinn
þar sem eigandinn finnst ekki.
Drengirnir taka þá til sinna
ráða og stela hundinum að næt-
urlagi til að bjarga lífí hans.
Marjut Komulainen sér um
handrit og leikstjórn. Myndin
er ætluð börnum og unglingum
eldri en 10 ára. Talið er finnskt
og enskur texti. Sýningartími
er 52 mín.
Taflfélag Reykjavíkur, A-sveit:
Margeir Pétursson................2610
Þröstur Þórhallsson..............2500
Jón Viktor Gunnarsson............2475
Björgvin Jónsson.................2385
Magnús Örn Úlfarsson.............2335
Þorsteinn Þorsteinsson...........2280
Benedikt Jónasson................2270
Sigurður Daði Sigfússon..........2250
Meðalstig:..................2388(360)
Skákfélag Hafnarfjarðar:
Bosboom (Hollandi)
Ágúst Sindri Karlsson............2335
Guðmundur Halldórsson............2275
Björn Freyr Björnsson............2245
Páll Agnar Þórai-insson..........2240
Sigurbjörn Björnsson.............2170
Þorvarður F. Ólafsson............2075
Björgvin Guðmundsson.............2060
Meðalstig (áætluð):..........2236 (430)
Skákfélag Akureyrar:
Jón Garðar Viðarsson.............2375
Áskell Öm Kárason................2265
Ólafur Kristjánsson..........;. 2240
Amar Þorsteinsson................2225
Rúnar Sigurpálsson...............2190
Gylfi Þór Þórhallsson............2145
Þórleifur Karlsson...............2125
Jón Ámi Jónsson..................2005
Meðalstig:..................2196(370)
Taflfélag Reykjavíkur B-sveit:
Arnar Gunnarsson2190
Bjöm Þorsteinsson................2280
Jóhannes Ágústsson...............2210
Júlíus Friðjónsson2200
Björgvin Víglundsson.............2155
Stefán Ki’istjánsson.............2145
Jón Ami Halldórsson..............2140
Ámi Ármann Árnason...............2135
Meðalstig:..................2182(145)
Taflfélagið Hellir, B-sveit:
Andri Áss Grétarsson.............2280
Þráinn Vigfússon2185
Ólafur B. Þórsson2205
Gunnar Kr. Gunnarsson............2110
Bjöm Þorfinnsson2075
Amaldur Loftsson2075
Ögmundur Kristinsson.............2070
Þorvaldur Logason................2055
Meðalstig:..................2132(225)
Taflfélag Hólmavíkur:
Jóhann Hjartarson................2640
Jón Kristinsson..................2300
Helgi Ólafsson . e...............2095
Jónas Þorvaldsson................2170
Magnús Sólmundarson..............2190
Stefán Þormar Guðmundsson.......1805
Guðjón Jóhannsson................1850
Ari Stefánsson...................1825
Meðalstig:..................2109(815)
Taflfélag Kópavogs:
Einar Hjalti Jensson.............2215
Hlíðar Þór Hreinsson.............1960
Haraldur Baldursson..............1945
Adolf Petersen...................1900
Matthías Kormáksson..............1885
Hjalti Rúnar Ómarsson............1865
Sigurður Kristjánsson............1905
Jónas Jónasson...................1860
Meðalstig:..................1942(355)
Sigurbjörn Björnsson sigrar á
Meistaramóti Hellis
Sigurbjörn Björnsson úr Hafnar-
firði sigraði af öryggi á Meistara-
móti Hellis, sem lauk á miðviku-
dagskvöld. Sigurbjörn hlaut 614
vinning af 7 mögulegum. Þeir Björn
Þorfinnsson og Sigurður Daði Sig-
fússon urðu jafnir í 2.-3. sæti með
5!4 vinning. Björn Þorfinnsson er sá
Guðmundur Raín
Geírdal
skólastjórí og félagsfrxðingur
Stóríðjustefna ríkísstjórnarinnar
stefnír í voða samþykkt hennar
um að ísland vcrðí hreínasta
land í heímí áríð 2000.
Veljum hrcínleíka umfram
mengun - eínníg rafmengun.
eini þessara þriggja sem er félags-
maður í Helli og varð því skák-
meistari Hellis annað árið í röð. Ur-
slit í síðustu umferð:
Ólafur Kjartanss. - Sigurbjöm Bjömss. 0-1
Sigurður D. Sigfúss. - Jóhann Ragnarss. 1-0
Eiríkur Einarss. - Bjöm Þorfinnss. 0-1
Einar K. Einarss. - Guðni Péturss. 1-0
Kjartan Guðmundss. - Vigfús Vigfúss. 1-0
Hafliði Hafliðas. - Ólafur I. Hanness. 0-1
Hjörtur I. Jóhannss. - Ragnar M. Stefánss. 1-0*
Sigurjón Kjæmestedt - Gústaf Bjömss. 0-1
Benedikt Bjamas. - Valdimar Leifss. 1-0
Birkir Öm Hreinss. - Atli F. Kristjánss. 1-0
Lokastaðan á mótinu varð þessi:
1. Sigurbjörn Bjömsson 614 v.
2. -3. Bjöm Þorfinnsson 514 v.
2.-3. Sigurður Daði Sigfússon 514 v.
4. Einar Kr. Einarsson 5 v.
5. Jóhann H. Ragnarsson 414 v.
6. -8. Ólafur Kjartansson, Kjartan Guð-
mundsson, Ólafur ísberg Hannesson 4 v.
9.-10. Eiríkur Garðar Einarsson, Guðni
Stefán Pétursson 314 v.
o.s.frv.
Frammistaða Eiríks Garðars
Einarssonar, sem er 15 ára, vakti
athygli, en hann fékk gjörunnið tafl
gegn bæði Birni Þorfinnssyni og
Sigurði Daða Sigfússyni, þótt í báð-
um tilfellum næðu þeir að sleppa úr
greipum hans. Þess er varla langt
að bíða að Eiríkur taki stórt stökk
upp á við á stigalistanum.
Við skulum líta á laglega drottn-
ingarfórn sigurvegarans í mikil-
vægri skák:
Hvítt: Sigurður Daði Sigfússon
Svart: Sigurbjörn Björnsson
Drottningarpeðsbyijun
1. d4 - Rf6 2. e3 - b6 3. f4 - Bb7 4.
Rf3 - e6 5. Bd3 - c5 6. c3 - Be7 7.
0-0 - Rc6 8. Del - Hc8 9. Dg3 - g6
10. Dh3 - Dc7 11. Rg5 - Rh5 12.
Be2 - h6 13. Rf3 - cxd4 14. exd4 -
Rxf4 15. Bxf4 - Dxf4 16. Re5
16. - Rxd4! 17. Hxf4 - Rxe2+ 18.
Kf2 - Rxf4 19. Dg4 - Rxg2 20. Da4
- 0-0 21. Rf3 - b5 22. Dxb5 - Bxf3
23. Kxf3 - Rel+ 24. Ke2 - Rc2 25.
Rd2 - Rxal 26. Dd3 - d5 27. Dbl -
d4 28. Dxal - dxc3 29. bxc3 -
Hfd8 30. c4 - Bg5 og hvítur gafst
upp.
Námskeið
um barna-
slys og
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD
Rauða kross Islands heldur
námskeið um algeng slys á
bömum og hvað hægt sé að
gera til að koma í veg fyrir
þau og vera viðbúnir þegar
þau gerast.
Námskeiðið sem er 6
stundir er haldið hjá Reykja-
víkurdeild Rauða krossins,
Fákafeni 11, mánudaginn 16.
nóvember og miðvikudaginn
18. nóvember frá kl. 20-23.
A námskeiðinu er m.a. rætt
um forvarnir gegn barnaslys-
um, þroska bama og getu og
ítarlega farið í skyndihjálp
tengda barnaslysum, hvernig
fjarlægja á aðskotahlut úr
hálsi og endurlífgun bama.
Leiðbeinandi á námskeiðinu
er Svanhildur Þengilsdóttir,
hjúkmnarfræðingur.
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson
Jf Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi
laugardaginn 14. nóvember kl. 10-21
Kosið verður á eftirtöldum stöðum:
♦ Mosfellsbær/Kjalarnes/Kjós: Hlégarður.
♦ Seltjarnarnes: Sjálfstæðishúsið, Austurströnd 3, 3. hæð.
♦ Kópavogur: Sjálfstæðishúsið, Hamraborg 1, 3. hæð.
♦ Garðabær: Garðatorg 7.
♦ Bessastaðahreppur: íþróttamiðstöðin.
♦ Hafnarfjörður: Víðistaðaskóli.
♦ Grindavík: Verkalýðshúsið v/Víkurbraut.
♦ Vogar: Glaðheimar.
♦ Reykjanesbær: Sjálfstæðishúsið, Hólagötu 15, Njarðvík
og Vesturbraut 17, Keflavík.
♦ Sandgerði: Miðhúsum, Suðurgötu 19.
♦ Garður: Samkomuhúsið.
ATKVÆÐASEÐILL
i prólkjöri Sjállstæóismanna í Reykjnncskjördæim
14. nóvcmber 1 VVö
KJÓSA SKAL 6 (SEXJ HVORKI FLEIRI NF. FÆRRI
.vrmifilÐ: Kjá« skal 6 frambjóðcndur. Skal |»að gcrt mcó þy(að sctja
• Alustal lyrir Iraman frambjóðcndur í þcirri röð sem ósknð er að þcb
«kini cndanlccan frambuðslista. bannig nð tnlnn I skal sctt fyrir framan
ndh þcss frambjóðanda scm óskað cr að skipi fyrsta sa*t» framUo*.
listans, lalnn 2 lyrir Iraman natn þcss trambiórtanrta scm nsiran cr »t\
.kipi annað sceii framboðsUstaiu, talan 3 fyrir framan nafn þcss $cm
Mksú crað skipi þriðja sæti framboðslistans o.s.frv.
iMUNIÐ AÐTÖLUSCTJA 1-6
Atkvæðisrétt eiga:
1. Stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins sem eiga munu kosninga-
rétt í kjördæminu við næstu
alþingiskosningar og undirrita
stuðningsyfirlýsingu samhliða
þátttöku í prófkjörinu.
2. Félagsbundnir sjálfstæðismenn
16-18 ára sem eiga lögheimili í
Reykjaneskjördæmi á prófkjörsdag-
inn.
Athugið:
Kjósa skal 6 frambjóðendur,
hvorki fleiri né færri.
Kosið skal með því að setja tölustaf, frá
einum upp í sex, fyrir framan nöfn fram-
bjóðenda í þeirri röð sem óskað er að
þeir skipi endanlega framboðslista.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi. Vefsíða al.is/xD