Morgunblaðið - 13.11.1998, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 13.11.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 49 + Júlíus Smári Baldursson fæddist. á Akureyri 8. september 1970. Hann lést 7. nóvem- ber síðastliðinn. Foreldrar hans eru Baldur Ragnarsson rafverktaki frá Hólmavík og Þor- gerður Fossdal frá Akureyri. Júlíus Smári á tvær systur. 1) Thelmu Baldurs- dóttir, f. 2.5. 1973. Sambýlismaður hennar er Friðbjörn Benediktsson, f. 21.10. 1968. Þau eiga þau soninn Baldur Nú ert þú farinn elsku bróðir. Skarð hefur myndast í eininguna sem staðið hefur að þér. Þú hefur verið til staðar alla mína ævi. Þú hefur verið til staðar frá því ég fór fyrst að muna eftir mér og hefur fylgt mér og mínum minningum alla tíð. Það er ekki fyrr en nú á síðustu árum sem leiðir okkar hafa skilið. Eg fór í skólann og þú tókst það skref að fara að heiman. Fram að því vorum við saman. Ó þetta er svo sárt. Þau orð sem upp koma í huga okkar allra sem þekktum þig, sorg, söknuður, missir, óréttlæti, eru þó kannski þau orð sem hafa fylgt þér alla ævi. Þú varst kannski sorg- mæddur yfir því að vera ekki eins og við hin, fannst það missir eða horfðir upp á óréttlætið að geta ekki gert eins og við hin. En nú ert þú frjáls, elsku vinur, og gengur um á öðrum stað. Ég gleymi því aldrei, hversu ánægður þú varst þegar þú eignað- ist litla frænda þinn og nafna sem á erfitt með að skilja að þú sért ekki enn á meðal okkar. Hann spurði: „Af hverju tók Brói ekki hjólastólinn sinn með sér til Guðs?“ „Mamma þetta er allt í lagi, þegar Brói kemur sem engill til okkar í nótt, þá keyr- um við hann bara aftur til ömmu Lillu og afa Balla.“ Það er ekki von að nafni þinn skilji ekki það sem ég skil varla sjálf. Þú vildir alltaf fylgjast með öllu sem við vorum að gera og varst alltaf í hringiðu eldhúsborðsum- ræðna. Þú varst svo ánægður að geta verið með okkur. Þú vildir fá að vita hvernig gengi í nýja húsinu og fylgjast með hvað við værum að gera þar, en hafðir þó ekki tækifæri til þess að koma suður elskan og sjá. Nú fylgist þú bara með úr fjarlægð. Þó að myrkur sé yfir okkur, þá veit ég að vilji þinn er að við séum sterk og reynum að horfa fram á við. Það var það sem þú gerðir, þú vissir alltaf að það kæmu betri tímar. Það getur bara tekið smátíma. Það stytt- ir upp hjá okkur eins og það hefur alltaf gert hjá þér. Nú ert þú kom- inn í faðm góðra manna sem ég veit að hafa tekið á móti þér. Og þú tek- ur síðan á móti okkur þegar þar að kemur. Elskan mín, nú verður þú að hjálpa mér að styrkja mömmu, pabba og Beggu í þessari miklu sorg sem við göngum í gegnum. Elsku Brói minn, með þessum fátæklegu orðum langar mig að kveðja þig, en minningin um yndislegan bróður verður með mér um alla tíð. Bróðir minn sæll ég kveð þig nú, söknuður, ást og trú. Þitt frelsi, feg- urð og framtíð björt, er það sem vð viljum þér öll. (TB ‘98.) Þín systir, Thelma. Elsku Brói. Ég minnist þín með sáran söknuð í hjarta. Maður trúir því varla að þú sért farinn. Eða kannski vill maður ekki trúa því, svona er maður eigin- gjarn. Þegar ég hugsa til baka til allra góðu minningana þá tárast ég svo mikið og sakna þín svo sárt. Þegar Thelma systir hringdi og sagði að þú værir farinn til Guðs varð ég fyrst svo reið og um leið svo sorgmædd, ég vildi óska þess að ég gæti fengið þig aftur. Þú varst best- Smára, f. 5.7. 1995. 2) Berglind Baldurs- dóttir, f. 16.10. 1980. Sambýlismað- ur hennar er Tómas Arason, f. 13. 10. 1975. Júlíus Smári gekk í Hvammshlíðar- skóla og síðustu tvö árin hefur hann átt sitt annað heimili á sambýli við Hafnar- stræti 16 á Akrur- eyri. Útför Júlíusar Smára fer fram frá Glerárkirkju á Akureyri og hefst athöfnin klukkan 15. ur. Yið áttum okkar góðu stundir saman en samt voru þær alltof fáar, þú áttir eftir að koma og sjá húsið mitt og sjá börnin mín þegar þau koma. Ég vildi óska þess að ég eigi eftir að eignast einhvern sem var mér eins nákominn og þú varst og einhvern með hjarta úr gulli eins og þú. Ég vona að þér líði vel núna og getir lifað lífinu á þann hátt sem þú gast ekki í lífanda lífi. En ég veit að þú unnir þínu lífi hér á þinn hátt. Það er svo erfitt að hugsa til þess að koma heim og sjá þig ekki á gólfinu eða í stólnum þínum og eiga aldrei eftir að heyra hláturinn þinn aftur. Ég á eftir að sakna þín svo mikið, stóri bróðir, og vonast svo sárt eftir því að sjá þig aftur hinum megin. Villtu svo hjálpa mömmu og pabba í framtíðinni og vaka yfir okkur öll- um. Ég elska þig. Þín litla systir, Berglind. Elsku drengurinn minn, nú þegar þú ert farinn sitjum við sem eftir er- um og minnumst þín og þökkum fyr- ir árin sem við fengum að hafa þig hér hjá okkur. Ég mun alltaf minnast þess þegar þú fæddist, svo lítill og veikburða en samt svo fallegur. Þú varst frum- burður foreldra þinna sem umvöfðu þig ást og umhyggju og létu þig aldrei skorta neitt. Systur þínar voru þér mikils virði og litli systur- sonur þinn sem ber nafn þitt og pabba þíns; hvað þú varst stoltur þegar hann var skírður. Alltaf áttu amma Sigga og afi Júlli stórt rúm í þínu hjarta og af öllum þeirra mörgu barnabörnum varstu næstelstur og að ég held augasteinn þeirra. Þín mun ég minnast brosandi og kátur með hlýju í augum, þér fannst alltaf svo gaman að hafa marga í kringum þig. Oft var hlegið og ýms- ar sögur sagðar við eldhúsborðið í Tungusíðu og þá líkaði þér lífið og á fjölskyldumótum þar sem Fossar- arnir komu saman vildir þú ekki láta þig vanta. Brói minn, oft hafa þessi ár verið þér erfið, svo oft veikur og hætt kominn, en þá hefur vakað yfir þér yndisleg móðir, sú sem kom þér í þennan heim, og sá leyndi strengur sem tengdi ykkur svo sterkt saman er nú rofinn, en minning þín er ljós í lífi hennar. Far í friði, elsku drengurinn minn, megi Guð geyma þig. Þín frænka, Sigríður (Sirrý). Þegar þú ert sorgmæddui-, skoð- aðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. Sum ykkar segja: I heimi hér er meira af gleði en sorg og aðrir segja: „Nei, sorgirnar eru fleiri." En ég segi þér, sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þínu og þegar önnur situr við borð þitt, sef- ur hin í rúmi þínu. Þú vegur salt milli gleði og sorgar, jafnvægi nærð þú aðeins á þínum dauðu stundum. (Kahlil Gibran.) Þessi orð úr Spámanninum voru það fyrsta sem kom upp í hugann, þegar okkur barst sú harmafregn að Smári vinur okkar væri látinn. Við vorum að koma heim frá skírn fyrsta barnabarns okkar, en þann 8. september sl. á afmælisdegi Smára kom lítill drengur í heiminn, með allri þeirri gleði, sem því fylgir. I líf- inu skiptast á gleði og sorg, líf kviknar og líf slokknar. Frá því Smári var lítill drengur höfum við íylgst með honum vaxa og þroskast. Líf hans var ekki eins og okkar flestra, því líkamleg fótlun hans kom í veg fyrir það. Mjög snemma kom þessi mikla fótlun í ljós, en með ótrúlegum dugnaði tókst Smára og fjölskyldu hans að gera lífið bærilegt. Foreldrarnir gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að Smári mætti lifa sem eðlilegustu lífi og ekki var hægt að gera meira. Hvergi höfum við kynnst meiri móð- urást en þeirri sem Lilla, móðir Smára, bar til hans og stundum fannst manni að þau hefðu sömu sál. Alltaf þótti okkur jafn vænt um þegar við hittumst, því okkur þótti svo óskaplega vænt um þennan dreng. Hann tjáði sig með svip- brigðum og nokkrum orðum, þannig að alltaf skildum við hvert annað. Hann hafði ótrúlegt minni og gat minnt mann á löngu liðna atburði, sem voru fallnir í gleymsku. Hann var mjög kómískur og einnig átti hann það til að vera svolítið stríðinn. Það gaf okkur og börnunum okk- ar mikið, að kynnast Smára, það sýndi okkur að ekkert er sjálfgefið að geta hlaupið um og notið lífsins. Maður öðlast annan skilning á lífinu við slík kynni. Við gætum rifjað upp mörg skemmtileg atvik frá iiðnum árum en förum ekki út í það hér, en af nógu væri að taka. Elsku Lilla, Balli, Thelma og Begga. Nú trúum við því að Smári sé kominn á annan og göfugi’i stað, þar sem hann hleypur um og nýtur lífs- ins. Því slíkur kross, sem hann bar, verður ekki lagður á sömu herðar aftur. Blessuð sé minning þín, elsku vin- ur. Guð blessi alla þá, sem eiga um sárt að binda. Tryggvi og Herdís. Elsku besti frændi og vinur. Við urðum harmi slegin þegar við feng- um þá sorgarfrétt að Guð hafði tekið þig svo skyndilega til sín, elsku besta frændann okkar. Ég gleymi aldrei þeim degi þegar ég sá þig fyrst, þá varstu eins og lítill brot- hættur böggull í faðmi stoltrar móð- ur og pabbi þinn stóð þar hreykinn hjá ykkur. Þú varst oft mikið veikur sem barn og alltaf voru mamma þín og pabbi við hlið þér. Manstu þegar við tvö fórum stundum á rúntinn niður í Þórunnarstræti og fegnum okkur ís? Þær stundir voru mér dýr- mætar. Ég man líka hvað þú varst montinn þegar þú eignaðist systur þínar. Eftir að frænka flutti hingað í sveitina sáumst við ekki eins oft, en það voru yndislegar stundir þegar þú komst í sveitina til mín. Arin liðu, við urðum eldri og þá komu útilegurnar og ættarmótin og góðar móttökur sem við fengum alltaf þegar við komum í heimsókn í Tungusíðu. Þú varst alltaf svo glað- ur og kátur. Ég gleymi aldrei hvað þú og fjölskylda þín glöddust með mér þegar ég varð fyrst amma, aðal- lega þú sem hlóst svo dátt að ömmu gömlu. Alltaf var glatt á hjalla í kringum þig. Ógleymanlegustu stundirnar eru þau gamlárskvöld þegar þið komuð hingað í Brodda- nes til okkar og við fórum öll á brennu og skemmtum okkur kon- unglega. Nú kveðjum við þig elsku frændi með þessum fátæklegu orðum. Elsku Lilla, Balli, Thelma og Begga. Guð gefi ykkur styrk og dug í söknuði ykkar. Erna, Jón og fjölskylda. Nú legg ég augun aftur, 6, Guð, þinn náðarkraflur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinnengiþsvoégsofirótt. (S. Egilsson) „Hinn sanna gjöf er að gefa af sjálfum sér.“ Þessi orð úr Spámann- inum komu upp í huga minn er ég fékk upphringingu sl. laugardag um að einn af mínum kærustu vinum, hann Smári minn, hefði verið kallað- ur burt úr þessum heimi aðeins 28 ára gamall. Þetta var sárari frétt en orð fá lýst, en minningarnar eru margar og ljúft þætti mér að fá að rifja upp nokkrar þeirra hér. Mér er ofarlega í huga er við dvöldum á Reykjalundi haustið ‘97. Þá spauguðum við með það að við værum áreiðanlega kölluð „þessi skiýtnu að norðan“ vegna ýmissa uppátækja okkar. Eitt skipti ösluð- um við t.d. úti í grenjandi rigningu þegar ekki átti að vera hundi út sig- andi. Þegar við komum heim aftur rennandi blaut og illa til reika varð Smári að lána mér algalla, þó svo að númerin pössuðu kannski ekki al- veg. En svona mættum við til kvöld- verðar í matsalnum, fólki til mikillar furðu en okkur til mikillar ánægju. Við sögðum Sunnlendingunum að okkur bæri skylda til að hlusta á út- vai’psþátt Gests Einars eftir hádegi en sunnanmenn fullyi-tu að ef þeir litu inn til okkar á þessum tíma þá værum við alltaf hrjótandi. Oft ræddi ég um það við Smára sem hvíldi á mér í dagsins önn og fékk ég ávallt styrk í umburðarlyndi hans, hlýju og kærleik sem var svo einkennandi fyrir þennan einstaka pilt. Þrátt fyrir að lífið væri honum ekki alltaf auðvelt þá átti hann alltaf bros, hlýju og uppörvun til handa öðrum. Elsku Smári, mér þótti svo undur vænt um þig og er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast þér en þau kynni hafa auðgað líf mitt og gert mig ríkari. Minningarnar um þig munu geymast í hjarta mínu og ylja mér um ókomna tíð. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Innilegar samúðarkveðjur til ykk- ar elsku Lilla, Balli, Thelma, Begga og fjölskyldur. Megi Guð styrkja ykkur og blessa í sorginni. Guð blessi þig Smári minn og minningu þína. Hvíl þú í friði. Þín vinkona, Inga Jónsdóttir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri fiegatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Smári okkar, við þökkum þér allar samverustundirnar, hlýju þína og ástúð. Við söknum þín sárt en minningin um yndislegan og sterkan pilt mun verða okkur styrk- ur í sorginni. Guð blessi þig og geymi í faðmi sínum. Við vottum foreldrum þínum, systrum og öðrum ættingjum inni- legustu samúð og biðjum Guð að gefa þeim styrk í sorginni. íbúar og starfsfólk, Hafnarstræti 16. Margar yndislegar minningar rifjast upp í huganum þegar við minnumst ljúfs drengs sem fallinn er frá alltof fljótt. Minningar um drengs em alltaf var kátur og hress þegar við komum í heimsókn á Tungusíðuna og þegar öll fjölskyld- an kom saman, nú síðast á ættar- móti síðastliðið sumar. JÚLÍUS SMÁRI BALDURSSON Þegar litið er til baka voru sam- verustundirnar alltof fáar og kallið kom snöggt og það er sárt til þess að hugsa að á nsæta ættarmóti verður þú ekki þar með þitt bjarta bros. Elsku Brói, við vitum að afi Ragjg tekur vel á móti þér hinum megin og hugsar vel um þig. Elsku Balli, Lilla, Thelma Dögg og Begga, góður guð styrki ykkur í sorginni. Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson: 16,36 ljóð.) Valdís, Karl, Bára, Ragna og Elín. '■ Elsku Smári minn. Ég settist nið- ur kvöldið eftir að ég fékk þessa sorglegu frétt og skrifaði þessi fá- tæklegu orð á blað. Þetta kom sem reiðarslag því þótt við höfum oft heyrt þegar þú varst lítill að börn með svona sjúkdóm næðu ekki há- um aldri var sú skoðun löngu breytt. Þú varst ekki veikur, bara hress og kátur, kominn heim í helgarleyfi þegar þú sofnaðir um kvöldið svefn- inum langa þannig að þú fékst að kveðja þennan heim, sem var þér stundum erfiður, í faðmi foreldra þinna. Ó, Brói minn, þú gafst okkur öll-s» um mikið sem vorum þér skyld, tengd eða þekktum þig. Þú vildir alltaf fylgjast vel með því sem var að gerast í okkar stóru fjölskyldu, hvort sem um sorg eða gleði var að ræða. Ég mun alltaf minnast þess hvað lít- ið þurfti til að gleðja þig eða kæta. Elsku Lilla og Balli, þið hafið misst svo mikið, auðvitað barnið ykkar en meira því þú, Lilla, kveiðst oft fyrir ef þú mundir kveðja þennan heim á undan honum. Þið voruð svo einstök saman, þið þurftuð ekkj nema svipbrigði eða augnagotur til þess að skilja hvort annað eða vita hvernig ykkur leið. Ég held að við foreldrar sem eig- um heilbrigð börn ættum að þakka Guði oftar fyrir og vera ánægð með þau. Brói átti tvær góðar systur sem eiga eftir að minnast hans alla ævi. Lítinn nafna átti hann sem hann var mjög ánægður með. Amma og afi á Blönudósi eiga eft- ir að sakna þín mikið, elsku kallinn minn, einnig Ari frændi þinn sem átti svo mikið í þér, ég veit að þetta á eftir að verða honum erfitt eins og okkur öllum. En ég veit að þú ert nú hjá Guði með Jóa frænda þínum, labbar um eins og þig langaði að sjálfsögðu alltaf til að gera. Báðir< hressir og kátir. Elsku Lilla, Balli, Thelma, Begga og við öll sem þennan góða dreng þekktum. Guð veri með okkur. Saknaðarkveðjur, þín frænka, Arnína (Nini). Elsku Smári minn, það er svo ótrúlegt að þú skulir vera farinn frá okkur. Það var svo margt sem við áttum ógert. En í minningunni eru margar góðar stundir sem við áttum saman, þú varst alltaf til í eitthvert sprell og það þurfti ekki mikið til að fá þig til að brosa. Allt það sem við gerðum, sundlaugarævintýri, bóka- búðarferðir og svo margt fleira er geymt í minningunni. Þig ber við himin stendur þar hlæjandi augun fúll af gleði. Og þú segir mér allt það sem þér býr í brjósti. (SDH.) Ég votta öllum aðstandendum samúð mína, þið hafið misst yndis- legan dreng. Smári minn, ég trúi því að þú sért á stað þar sem þú getur sungið, dansað, kafað og gert allt það sem þig langar til að gera. Við sjáumsf seinna og gerum þá allt það sem við áttum ógert. Með kveðju, þín vinkona, Sonja Dröfn Helgadóttir. • Fleirí minningargreinar um Július Smára Baldursson bíða birtingar og munu birtast ( bladinu næstu daga. j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.