Morgunblaðið - 13.11.1998, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 13.11.1998, Blaðsíða 80
+ r M KOSTAB | með vaxtaþrepum @ BÚNADARRWKINN | www.bi.is | MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 6691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Banaslys á Suðurlandsvegi TÆPLEGA fertugur karlmaður beið bana í umferðarslysi í gær- morgun, þegar bifreið hans lenti á flutningabfl með tengivagn á Suður- landsvegi við brúna yfir Gljúfurá við Kotströnd, um miðja vegu milli Hveragerðis og Selfoss. Karlmaður í annarri bifreið slasaðist í sama árekstri og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykja- víkur þar sem hann gekkst undir aðgerð á Landsspítalanum. Hann hlaut mikla áverka og lá á gjör- gæsludeild í nótt. Slysið vildi til með þeim hætti að flutningabflnum var ekið í austurátt þegar hann rann til í hálku og \ . Aierist á veginum þvert í veg fyrir bifreiðarnar tvær, sem komu úr gagnstæðri átt. Lenti bifreið hins látna á hlið flutningabflsins, en hin bifreiðin skall á tengivagninum. Ökumaður flutningabflsins slasaðist ekki, en hann var einn í bifreiðinni sem og hinir ökumennirnir tveir. Suðurlandsvegur lokaður á fjórðu klukkustund Slysið var tilkynnt kl. 9.15 og var kallað til björgunarlið frá Hvera- gerði og Selfossi. Erfiðlega gekk að ná bílflökunum af veginum og þurfti að loka honum í hálfa fjórðu klukku- stund meðan lögregla og björgunar- lið athöfnuðu sig á vettvangi. Suður- landsvegur var opnaður aftur um kl. 13, en talsverðar skemmdir urðu á brúarriðum á brúnni yfir Gljúfurá. Fólksbifreiðarnar eru gjörónýtar eftir áreksturinn. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Seðlabankinn varar við vexti útlána og miklum viðskiptahalla Brýnt að koma böndum á vaxandi eftirspurn MIKILL viðskiptahalli er talinn al- varlegasti veikleikinn í stöðu þjóð- arbúsins um þessar mundir að því er fram kemur í haustskýrslu Seðla- bankans um þróun, horfur og stefnu í efnahags- og peningamálum, sem kemur út í dag. Aætlað er að við- skiptahallinn verði um 40.000 millj- ónir í ár. í skýrslunni segir að brýnasta verkefnið við hagstjórn um þessar mundir sé að koma böndum á mik- inn vöxt innlendrar eftirspurnar með auknu aðhaldi í ríkisfjármálum og í fjármálum sveitarfélaga, og með aðgerðum sem örvi sparnað og draga úr miklum útlánavexti. í inngangi skýrslunnar segir að það valdi vonbrigðum að afkomu- bati ríkissjóðs á þessu og næsta ári virðist minni en hagsveiflan gefi til- efni til og afkoma sveitarfélaga sé mun verri en æskilegt geti talist. Mjög mikilvægt sé að framlag opin- berra aðila til þjóðhagslegs sparn- aðar verði aukið. Þá er mikill vöxtur útlána að und- anförnu talinn verulegt áhyggju- efni. Er m.a. bent á að reynsla ann- arra þjóða sé sú að mikilli útlána- þenslu í framhaldi af auknu frelsi og samfara vaxandi samkeppni á lána- markaði geti fylgt mikil áhætta. „Lánastofnanir kunna að leiðast út í áhættusamari lánveitingar sem skila ekki tilætlaðri ávöxtun þegar í bakseglin slær í þjóðarbúskapnum. Frá þjóðhagslegu sjónarmiði verður áhætta tengd útlánaþenslu meiri en ella ef hún er í umtalsverðum mæli fjármögnuð með erlendu lánsfé til skamms tíma og ef halli er á við- skiptum við útlönd. Seðlabankinn mun á næstunni kanna leiðir til að draga úr útlánaþenslunni samfara því sem hann mun brýna árvekni fýrir innlendum lánastofnunum bæði varðandi útlán og fjármögnun þeirra,“ segir í skýrslunni. ■ Viðskiptahalli /38 m J J Morgunblaðið/Sigurður Fannar FLUTNINGABÍLLINN hékk útaf brúnni yfir Gljúfurá eftir að hafa runnið til í hálku. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um deiluna um auðlindag;jald Vonast eftir viðunandi lausn innan skaplegra tímamarka ÞORSTEINN Pálsson, sjávarút- vegsráðherra, segir að hann vonist til þess að viðunandi lausn finnist á deilunni um auðlindagjald innan skaplegra tímamarka. Hann segir að á sama hátt og og útgerðir eigi heimtingu á að jafnræðissjónarmiða sé gætt um gjaldtöku af rétti til nýt- ingar fiskistofna annars vegar og nýtingar orkulinda og annarra auð- linda hins vegar, þá ættu útgerðar- menn erfitt með að mótmæla sér- staklega niðurstöðu sem fullt tillit tæki til slíkra jafnræðissjónarmiða. Þessi orð lét sjávarútvegsráðherra falla á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda í gær. Þorsteinn Pálsson ræddi þar yeiðistjórnun smábáta og þær við- ^flfæður, sem nú standa yfir um lausn Erfítt fyrir útgerðina að mótmæla niðurstöðu sem tæki fullt tillit til jafnræðissjónarmiða á vanda báta sem stunda róðra í svokölluðu dagakerfi. Hann fjallaði einnig um hugmyndir um auðlinda- gjald í sjávarútvegi og öðrum grein- um og sagði: „Það er að mínu viti afar jákvætt skref að Alþingi skyldi síðastliðið vor samþykkja að skipa 9 manna nefnd til þess að fara vandlega ofan í það hvemig farið skuli með nýt- ingu auðlinda í eigu þjóðarinnar. Er alveg ljóst að allar vel unnar upp- lýsingar, gögn og tillögur, sem nefndin getur sett fram, eiga að geta lagt grunn að viðunandi niður- stöðu í þessu máli ef allra réttlætis- og jafnræðissjónarmiða er gætt, til dæmis varðandi áunnin réttindi og sambærilega meðhöndlun mismun- andi náttúruauðlinda í eigu þjóðar- innar. Ennfremur varðandi áhrif mismunandi aðferða við gjaldtöku og upphæðir." Skattlagning dragi ekki úr íjárfestingu „Fáir munu vilja haga skattlagn- ingu á þann veg að beinlínis dragi úr fjárfestingu, hagvexti og lífskjör- um þjóðarinnar. Og á sama hátt og útgerðir eiga heimtingu á að jafn- ræðissjónarmiða sé gætt um gjald- töku af rétti til nýtingar fiskistofna annars vegar og nýtingar orkulinda og annarra auðlinda hins vegar, þá ættu útgerðarmenn erfitt með að mótmæla sérstaklega niðurstöðu sem fullt tillit tæki til slíkra jafn- ræðissjónarmiða. Eg vil því segja við ykkur, eins og ég hef áður sagt á öðrum fundum innan sjávarútvegs- ins nú í haust, að ég leyfi mér að vona að það hilli undir að viðunandi lausn geti fundist á þessu máli inn- an skaplegra tímamarka," sagði ráðherrann. ■ Verðið á bátum/20 Ferðagleði landans set- ur strik í reikninginn Mótefni við lifrarbólgu á þrotum MÓTEFNIÐ gammaglóbúlín, sem notað er við lifrarbólgu, er á þrotum hjá héraðslækninum í Reykjavík. Að sögn Lúðvíks Ólafssonar, héraðs- læknis í Reykjavík, kemur þetta eklti að sök þar sem bóluefnið við lifrar- bólgu er til og gefur bestu vömina. Að sögn Lúðvíks hefur það gerst áður að bólu- eða mótefni hafi vant- að. Helsta ástæðan sé fjölmennar ferðir til þessara svæða, sem skipu- lagðar séu með stuttum fyrirvara. Nú hefðu til dæmis verið ferðir bæði til Kenýa og Kúbu. Lúðvík sagði að gammaglóbúlín væri í pöntun, en ekki væri víst hvenær það bærist til landsins því birgðir skorti hjá framleiðanda. Odd Reitan forstjóri Reitangruppen Vill Baug í alþjóðlegt innkaupa- fyrirtæki ODD Reitan, forstjóri norska fyrirtækisins Reitangruppen, sem keypti á dögunum 20% hlut í Baugi, eignarhaldsfélagi Hagkaups, Nýkaups og Bón- uss, segir í viðtali við Morgun- blaðið í dag að nauðsynlegt sé fyrir litlar matvælaverslana- keðjur í Evrópu að taka hönd- um saman um að stofna alþjóð- legt innkaupafyrirtæki. Mikil barátta verði á þessum markaði í álfunni innan fárra ára og hann tekur svo djúpt í árinni að verði ekki af stofnun slíks fyrirtækds - sem sæi um innkaup matvæla fyrir um- ræddar verslanir í hinum ýmsu löndum - muni stóru verslanakeðjurnar einfaldlega gleypa þær litlu. ■ Alþjóðlegt/40 4-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.