Morgunblaðið - 27.11.1998, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Svanurinn Dolli heilsar og kveður Sigur-
jón trésmið þegar hann fer í mat og kaffí
Heildarfasteignamat
hækkar um 8,3%
HEILDARFASTEIGNAMAT í
landinu samkvæmt nýiTÍ fasteigna-
skrá Fasteignamats ríkisins
(FMR) er 1.046,4 milljarðar króna.
I fyrra var heildarmatið 966,3
milljarðar króna og hefur það því
hækkað um 8,3%. Alagningarstofn
fasteignaskatts er 1.170,2 milljarð-
ar króna. I fyrra var hann 1.092,3
milljarðar og hefur hann því hækk-
að um 7,1%.
Matseiningum í landinu fjölgaði
um 1,4% milli ára. Matsvirði íbúð-
arhúsnæðis í landinu er 685,5 millj-
arðar ki\, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Fasteigna-
mati ríkisins.
Nýtt fasteignamat tekur gildi 1.
desember næstkomandi. Almenn
hækkun fasteignamats íbúðarhús-
næðis og íbúðarlóða, sumarhúsa og
sumarhúsalóða er 5,0%.
Almenn hækkun fasteignamats
atvinnuhúsnæðis og atvinnulóða á
höfuðborgarsvæðinu er 7,5% en
5,0% utan höfuðborgarsvæðisins.
15% hækkun á Grundarfirði
og Hvolsvelli
Fasteignamat bújarða ásamt úti-
húsum hækkar um 2,5%. Hlunn-
indi hækka um 5%. Ibúðarhúsnæði
hækkar á nokkrum stöðum á land-
inu umfram hin almennu 5%.
Þannig hækkar mat íbúðarhúsa og
-lóða á Grundarfírði og Hvolsvelli
um 15%.
íbúðarhús í sérbýli í Grindavík,
Akranesi, Stykkishólmi, Vopnafírði
og Þorlákshöfn hækka um 10%.
Fjölbýli á ísafirði og Selfossi
hækkai- einnig um 10%.
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis á
Bolungarvík og í Búðahreppi tekur
hins vegar engum breytingum. í
frétt FMR segir að almennt hækki
íbúðarhúsnæði um 4-5% vegna
reglna um íyrningar.
Fram kemur að á viðmiðunar-
tíma matsins, frá nóvember 1997 til
nóvember 1998 hafí byggingarvísi-
tala hækkað um 2,4%, vísitala
neysluverðs um 0,9% og launavísi-
tala um 8% frá október 1997 til
október í ár.
Þá kemur fram að matsverð at-
vinnuhúsnæðis á höfuðborgar-
svæðinu hafí hækkað um 20,6% frá
1990, á sama tíma og byggingar-
vísitala hafi hækkað um 33,4% og
vísitala verðtryggingar um 23,4%.
„Markaðsverð atvinnuhúsnæðis
hefur því enn ekki náð því raun-
gildi, sem á því var á árinu 1990,“
segir í frétt Fasteignamats ríkis-
ins.
Flýgur í burt en
labbar heim
ÍS selur Camp Hill
A að lækka
skuldir
ICELAND Seafood Corporation,
dóttui-fyrirtæki Islenskra sjávaraf-
ui-ða hf. í Bandaríkjunum, hefur und-
irritað samning um sölu gömlu físk-
réttaverksmiðju fyrirtækisins í Camp
Hill í Pennsylvaníu. Áætlað er að með
sölunni lækki skuldir fyiirtækisins
um allt að 250 milljónir króna.
Fyrirtækið var rekið með 137 millj-
óna króna tapi á fyrri hluta árs og
sýnt þykir að ekki hafí tekist að snúa
taprekstrinum við á seinni hlutanum.
■ Söluandvirðið/18
„ÉG ER búinn að vera með hann
síðan 20. júní í sumar. Þá var
þetta bara smáungi að villuráfast
hérna við Knarrarósvita og eng-
inn fugl sjáanlegur þar nærri af
sama kyni,“ sagði Sigurjón Jóns-
son, trésmiður á Stokkseyri, í
samtali við Morgunblaðið um
svaninn sem gert hefur sig heima-
kominn hjá honum í sumar og vill
ekki fara.
Sigurjón sagði að hann hefði
sagt við konuna að ef þau skildu
ungann eftir yrði hann veiðibjöll-
unni eða hrafninum auðveld bráð.
Þau hefðu tekið ungann með sér
og farið að ala önn fyrir honum
og nú væri hann farinn að fljúga.
Hann mætti koma þegar hann
vildi og fara þegar hann vildi og
það gerði hann.
Sigurjón sagðist ekki hafa gert
mikið til þess að hæna svaninn að
sér, en hann vildi vera í kringum
þau og elti þau ef þau færu eitt-
hvað. „Maður vill Iáta hann vera
sem frjálsastan og helst að hann
fari. Ég hef fjói uni sinnum farið
með hann til þess að reyna að
sleppa honum og koma honum til
álfta, en hann hefur alltaf elt mig
til baka. Ég losna ekkert við hann.
Ég færði þetta í tal við Ævar Pet-
ersen um daginn og hann hló að
mér og sagði að ég sæti uppi með
hann í vetur,“ sagði Sigurjón.
Hann sagði að svanurinn héldi
til í kringum verkstæðið hans. Þar
væri nóg pláss. Vatn væri látið
renna handa honum því hann
þyrfti að baða sig og sulla svolítið.
Hann kæmi inn á verkstæðið á
morgnana þegar hann opnaði og
væri í kringum húsið. Hann flygi
síðan eitthvað í kring en væri dá-
lítið einkennilegur hvað það varð-
aði, að hann flygi burt, en labbaði
siðan til baka heim.
Afskaplega geðgóður
Sigurjón sagði að vissulega
myndi fylgja því einhver tóm-
leikakennd fyrstu dagana ef svan-
urinn færi. Hann væri afskaplega
geðgóður, en væri hins vegar
ekkert fyrir það að láta taka sig
upp og mótmælti því dálítið þó
hann biti ekki eða neitt slíkt.
„Þetta er mesti sómafugl,“ sagði
Sigurjón. Hann sagði aðspurður
að fuglinn væri kallaður DoIIi.
„Það var nú dálítið vandamál með
þetta nafn. Krakkarnir vildu nú
hafa sínar skoðanir á því, en ég
varð nú að ráða fyrir rest og ég
nefndi hann bara Dolla. En svo
var nú sagt við mig: ef þetta er
dama? Ja, þá er það bara Dollý,
það er svo gott að breyta því,“
sagði Sigurjón ennfremur.
Hann sagði að þegar hann færi í
mat eða kaffi stæði Dolli upp,
teygði sig og blakaði vængjunum
eins og hann væri að kveðja.
„Þetta sér maður álftir gera en
hugsar ekkert út í það neitt frek-
ar. Svo þegar ég kem aftur úr mat
eða kaffi þá heilsar hann mér á
sama hátt,“ sagði Siguijón.
SVANURINN Dolli gerir sig
heimakominn á verkstæði Sigur-
jóns og spígsporar þar um á milli
þess sem hann flýgur um fyrir
utan. Hann er hins vegar ekkert
fyrir það að láta taka sig upp,
eins og sést á innfelldu mynd-
inni, en er þó afar geðgóður.
Garðar
Cortes
hættir sem
óperustjóri
GARÐAR Coites hefur ákveðið að
hætta sem óperustjóri eftir næsta að-
alfund Islensku Ópeiunnai', sem
haldinn verður á mánudaginn kemur.
Hann mun þó gegna starfínu áfram
uns nýr maður hefur verið ráðinn.
Garðar stóð fyrir stofnun íslensku
óperunnar fyrir nítján árum og
kveðst hafa heitið þvi þá að sýna
fram á að óperustarfsemi ætti að
vera varanleg grein á meiði listar-
innai' á Islandi. „Nú tel ég að ætlun-
arverk mitt hafi sannað sig svo um
munar og vil því að leitað verði að
nýju og fersku blóði til að taka við.“
Garðai' hefur löngum haft mörg
járn í eldinum og hyggst nú freista
þess að láta fleiri drauma rætast, auk
þess sem hann ætlar að standa vörð
um og efla Söngskólann í Reykjavík
sem hann stofnaði árið 1973. Átti
hann raunar frumkvæðið að stofnun
Islensku óperunnar. „Söngskólinn
hefur útski'ifað mai'ga af okkar bestu
söngvurum, söngkennurum og kór-
stjórum og er eini skólinn sinnar teg-
undar í heiminum, það er að segja
tónlistarskóli sem hefur söng sem að-
algrein. Mér finnst því tími til kom-
inn að færa út kvíarnar og styrkja
ímynd skólans enn frekar."
■ Oður til óperunnar/28
Plötuvefur á mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LESENDUM mbl.is gefst nú kostur
á að skoða þær plötur sem gefnar
verða út íyrir þessi jól. Á vefnum má
finna 137 plötutitla frá 57 útgefendum
og hægt er að leita að plötum eftir titli
eða útgefanda. Þá er hægt að skoða
plötur eftir flokkum sem finna má til
vinstri á upphafssíðu Plötuvefjarins.
Vefinn má nálgast með því að
smella á hnappinn Plötuvefur innan
flokksins Sérvefii' á vinstri hluta síð-
unnar. Þá má einnig smella á hnapp
með sama nafni sem er til hægri á
forsíðunni. Einnig má slá inn slóðina
wvyw.mbl.is/plotur
Á vefnum er einnig hægt að tengj-
ast stærstu plötu- og bókaverslun
heimsins á Netinu, Amazon.com,
sem býður mikið úrval geisladiska.
Morgunblaðið er í samstarfi við fyr-
irtækið um sölu á erlendum plötum
og bókum á mbl.is.
D A G L
Wi
llf
■t;G T;
....
Hlemmur -v ««v Meistaramúkur,
Auga v ;* y skuðmúkur og
samfélags móðurlaus besefi
Lilleström vill fá sextíu
milljónir fyrir Rúnar / B4
Ungverjar mæta íslendingum á
„happastaðnum“ í HM / B3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is