Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 14

Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ KAÐALLINN úr kirkjuklukk- unni er horfinn og rafaflið hef- ur tekið við. Akur ey r arkir kj a Kirkju- klukkurnar tengdar rafafli KLUKKAN sem hljómað hefur frá Akureyrarkirkju knúin handafli hef- ur nú verið tengd rafafli. Ákveðið var síðasta sumar að rafvæða klukk- una og tengja klukknaspil kirkjunn- ar tölvu sem sett var upp en verkinu lauk fyrr í haust. Akureyrarkirkja, sem vígð var 17. nóvember árið 1940, er táknræn fyr- ir Akureyri, en húsameistari var Guðjón Samúelsson. Frá upphafi átti kirkjan sér klukku, sennilega þá stærstu á þeim tíma hérlendis eða um 800 kíló. Hún var steypt hjá John Taylor, Bellfounders í Bretlandi, og þykir enn ráðgáta hvernig náðist að steypa slíka klukku á þeim tíma, en allur góðmálmur var þá notaður til hergagnaframleiðslu. Stef sem tákna mannsævina Stundaklukkan sem blash- við Akureyringum er sænsk, en hana gaf Kristján Halldórsson úrsmíðameist- ari árið 1948 í minningu konu sinnar, Friðbjargar Vigfúsdóttur. Gangverk- ið var barn þess tíma, drifið lóði sem seig ákveðna vegalengd og var þá dregið upp af rafmótor. Fjórar klukk- ur fylgdu klukkunni og léku fjögurra nótna stef sem Björgvin Guðmunds- son tónskáld samdi, en stefin tákna mannsævina. A fyrsta fjórðungi slær hún fjórai' nótur, sem tákna uppvöxt- inn, á hálfa tímanum slær hún átta nótur, sem tákna ungþroskaskeið, á þriðja stundarfjórðungi eru slegnar tólf nótur, sem tákna manndómsárin, og á heila tímanum kemui’ allt lagið, sextán nótur sem tákna hnignun eða elli. Við athugun á lóðaklukkunni kom í ljós að nákvæmni hennar var orðin léleg og því ákveðið að gefa henni hvíld, en láta tölvu sjá um fram- kvæmdir. Hamrar sem lágu utan á henni voru fjarlægðir og segulhamrar settir í klukkurnar innanverðar, í skjóli veðurs. Gamla lóðaklukkan stendur enn á sínum stað. Komi til rafmagnstruflunar og drif- ið falli út sér tölvan um að leiðrétta tímann um leið og rafmagn kemst á að nýju. Til stendur að setja upp mót- takara fyrir tímamerki frá Bretlandi sem leiðréttir klukkuna stöðugt. Nýju tækin, tölvan, veltimótorinn, hamrarnir í klukkuspilið og líkhring- ingarhamarinn, eru belgísk, en Ás- geir Long vélfræðingur og umboðs- maður hér á landi var ráðgefandi um búnaðinn. Kirkjustarf LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju- skóli verður í Grenivíkurkh’kju kl. 13.30 á morgun, laugardaginn 28. nóvember. Kirkjuskóli verður í Sval- barðskirkju kl. 11 á laugardag. Messa verður í Svalbarðskirkju kl. 14 á sunnudag, 1. sunnudag í aðventu. Fermingarfræðsla í kirkjunni kl. 11 á sunnudag. Kyrrðar- og bænastund í kirkjunni kl. 21 um kvöldið. Kaupfélag Eyfírðinga hættir aðild að rekstri Minjasafnsins á Akureyri Ráðist í breyt- ingar á tveimur sýningarsölum Morgunblaðið/Kristj án STARFSFÓLK á Minjasafninu hefur unnið við að endurskrá og ljós- mynda muni safnsins um leið og þeir hafa verið settir niður. Á mynd- inni er Katrín Ríkarðsddttir safnvörður við vinnu sína. RÁÐIST verður í umfangsmiklar breytingar á tveimur sýningarsöl- um í norðurálmu Minjasafnsins á Akureyri á næstu tveimur árum. Þá stefnir í að nokkur breyting verði á eignaraðild Minjasafnins um næstu áramót. Safnið er í eigu Akureyrar- bæjar, Héraðsnefndar Eyjafjarðar og Kaupfélags Eyfirðina en að sögn Guðrúnar Kristinsdóttur safnstjóra mun KEA draga sig út úr rekstrin- um. „I kjölfarið verður safnið rekið á héraðsgrunni og það lítur út fyiii’ að öll sveitarfélög í Eyjafirði verði aðil- ar að safninu frá næstu áramótum. Dalvík og Ólafsfjörður hafa ekki verið aðilar að safninu en það standa yfir viðræður um að sveitar- félögin tvö komi einnig að rekstrin- um,“ sagði Guðrún. Tvö tilboð bárust í breytingar á sýningarsölunum en tilboð voru opnuð í vikunni. MP-verktak ehf. í Kópavogi bauð um 5,8 milljónir króna í verkið en Tréborg hf. á Akureyri bauðst til að vinna verkið fyrir um 7,9 milljónir króna. Kostn- aðaráætlun verkkaupa hljóðaði upp á um 6,1 milljón króna. Sýningarsalirnir sem um ræðir eru samtals um 300 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. I verkinu felst m.a. smíði og uppsetning hand- riða, frágangm’ á loftum og gólfum, endurnýjun glers, málun og fleira. Þá verður að sögn Guðrúnar sett upp ný lýsing, bæði grunnlýsing og sýningalýsing. Framkvæmdum skipt á tvö ár „Hluti verksins lýtur jafnframt að því að ljúka við framkvæmdir sem ekki var hægt að ljúka þegar húsið var byggt fyrir 20 árum. Einnig erum við að gera þær örygg- isráðstafanir sem safngripir krefj- ast, t.d. með því að setja gler með sérstökum öryggisfilmum. Þá erum við að mæta öryggiskröfum með því að skipta um handrið milli hæða.“ Framkvæmdum er skipt á tvö ár og skal efri hæðin í húsinu verða til- búin 15. mars á næsta ári og neðri hæðin 1. mars árið 2000. Þá verða sýningar opnaðar um leið og salirn- ir verða tilbúnir, þ.e. í tveimur áföngum. Minjasafnið hefur verið lokað frá síðustu áramótum og er nánast búið að taka niður allar gömlu sýningam- ar. Guðrún sagði þetta hafa verið óhjákvæmilegt vegna þeirra fram- kvæmda sem framundan eru. Hún sagði að um leið og safngi-ipirnh’ voru teknir niðui’ og setth- í kassa, hafi jafnframt verið ráðist í að endurskrá og ljósmynda gripina og gera við þá gripi sem voru famir að láta á sjá. Bætt aðstaða fyrir skólabörn „Við opnum aftur næsta sumar og munum þá reyna að vekja góða athygli á safninum, m.a. með því að bjóða upp á ýmsa viðburði í tengsl- um við sýninguna. Við gerum ráð fyrir því að bæta aðstöðu til að taka á móti skólabörnum með nýju sýn- ingunum og ætlum um leið að reyna að fá fleiri skólabörn í heimsókn." Guðrún sagði að sýningarnar yrðu hugsaðar sem yfirlitssýningar um sögu héraðsins og eiga að standa í einhvern árafjölda. Inn í sýningarnar verða tekin kristni- tökuafmæli og aldamót. Þá stendur til að rekja sögu Akureyrar í gegn- um aldamót, þ.e. 1700,1800,1900 og 2000 og er sýning sem kemur til með að standa áfram. J ólasvein- um færðar gjafír HALLDÓRA Gunnarsdóttir, 8 ára nemandi í Lundarskóia á Akureyri, brá sér í heimsókn í jólaþorpið Norðurpólinn í gær- dag en þar hitti hún fyrir jóla- sveinana Gáttaþef og Giljagaur. Venjan er sú að jólasveinar gauka ýmsu smálegu að börnun- um en í þetta sinn snerist hlut- verkið við því Halldóra kom færandi hendi. Bræðurnir rauð- klæddu fengu fallega mynd sem Halldóra hafði litað handa þeim og einnig dót sem hún smíðaði í skólanum. Og ekki er það búið, því Haildóra kom einnig með sögu sem hún hafði samið og sett upp í tölvu. Sveinarnir voni að vonum himinlifandi yfír heimsókninni. Heilsug'æslunm verði lokið ÞRJÁR af fjórum hæðum Heilsu- gæslustöðvarinnar á Akureyri hafa ekki verið innréttaðar, en nú hillir loks undh’ að ráðist verði í verkefnið og stefnt að því að ljúka því árið 2000. Gert er ráð fyrir að kostnaður nemi um 80 milljónum króna. Farið hefur verið fram á af hálfu heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytisins að samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir heimili að gerður verði samningur við Akureyrai’bæ um að ljúka innréttingu Heilsu- gæslustöðvarinnar á Akureyri á næstu fjórum árum. Fjallað hefur verið um málið í samstarfsnefndinni og er að hennar mati skynsamlegt að ljúka þessu verki, en þó leggur nefndin til að því vei’ði lokið á árinu 2000 og farið verði fram á við Akureyrarbæ að bærinn a fjórum flýti fjármagni verkið til að það sé hægt. Bæjarráð Akureyrar fjallaði um þetta erindi á fundi í vikunni og fagnaði mjög áhuga ríkisins á því að flýta framkvæmdum við heilsu- gæslustöðina. Lagði bæjarráð til að verkið verði boðið út miðað við verk- lok ái’ið 2000 og greiðslur til fram- kvæmdaaðila fari fram samkvæmt fjárveitingum ríkis og bæjar. Biðin hefur kostað peninga Guðmundur Sigvaldason, fram- kvæmdastjóri Heilsugæslustöðvar- innar á Akureyri, sagði að þessa hefði lengi verið beðið og því væri hann afskaplega ánægður með að framkvæmdir við þetta verkefni væru í sjónmáli. Heilsugæslustöðin á Akureyi’i er til árum húsa á fjórum hæðum í svonefndu Amarohúsi við göngugötuna í Hafn- arstræti, en ríkið keypti hæðimar í árslok 1993, þ.e. þriðju til sjöttu hæð hússins. Fljótlega var hafist handa við innréttingu efstu hæðarinnar og verkinu lokið árið 1995, en síðan hef- ur ekkert verið gert. Sagði Guðmund- ur að fyrir hefðu legið áætlanh’ um að halda verkinu áfram, en þær ekki gengið efth’. „Þetta hefur valdið okk- ur verulegum erfiðleikum í rekstri og komið niðui’ á starfseminni. Við höf- um þurft að búa við bráðabirgðafyrir- komulag hér og þar í húsinu auk þess sem það er að hluta til óupphitað og ljóslítið. Það liggur nánast undir skemmdum af þeim sökum. Þessi bið hefur kostað peninga, það getur verið dýrt að búa við bráðbirgðalausnir,“ sagði Guðmundur. Útg'áfutón- leikar Tjarnar- kvartettsins Morgunblaðið/Kristj án TJARNARKVARTETTINN held- ur útgáfutónleika í Samkomuhúsinu á Akureyri föstudagskvöldið 27. nóvember og hefjast þeir kl. 21. Tjarnarkvartettinn sendi nýlega frá sér hljómdisk sem nefnist „I fíflúlpum" og hefur hann að geyma 20 íslensk sönglög og dægurlög, ýmist ný af nálinni eða þekkt lög í nýstárlegum útsetningum. Um síðustu helgi hélt kvartett- inni útgáfutónleika fyrir fullu húsi í Tjarnarbíói í Reykjavík við einróma lof gagnrýnenda en leikurinn verð- ur nú endurtekinn norðan heiða, fyi’st í Samkomuhúsinu á Akureyri sem fyrr segir og loks á heimaslóð í Dalvíkurkirkju á sunnudag, 29. nóv- ember, kl. 14. Forsala er í Samkomuhúsinu en aðgangseyrir er 1.000 krónur fyrir fullorðna og 500 ki’ónur fyrir náms- menn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.