Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 37

Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 37 Agatha Christie Nýjar bækur • SMALI sonur Pílu er eftir Kim Lewis í þýðingu Atla Magndssonar. Þegar fjárhundurinn Píla eignast hvolpa segir bóndinn börnunum að þau megi halda einum þeirra því hann vanti hund í viðbót til þess að hálpa til við féð. En hvem þeirra eiga börnin að velja? Þeir eru allir svo fallegir. En bara einn þeirra er eins og Píla! Bókina prýða fjölmargar stórar litmyndir og textinn er einfaldur á stóru letri. Utgefandi er Skjaldborg. Bókin er 28 bls. Umbrot og frágangur: Skjaldborg. Bókin er prentuð í Singapúr. Verð: 1.550 kr. FEIGÐARFÖR er eftir Agöthu Christie í þýðingu Ragnars Jónas- sonar. I kynningu segir: „Ferðalangur finnst látinn í hinni fornu borg Petra í Landinu helga og margt bendir til þess að um morð hafi verið að ræða. Sem betur fer er leynilögreglu- maðurinn Hercule Poirot á ferð á sömu slóð- um og lofar að leysa málið innan sólarhrings!" Utgefandi er Skjaldborg. Umbrot og frágangur: Skjaldborg. Bókin er prentuð í Singapúr. Verð: 2.990 kr. • ÞEGAR dýrin lifðu frjáls er eftir Stefan Casta og Staffan Ullström í þýðingu Atla Magnússonar. Þegar dýián lifðu frjáls rekur hina ótrúlegu en sönnu sögu dýranna sem við þekkjum best. Hér segir frá því hvers konar dýr þau voru og hverjir lifnaðarhættir þeirra voru, áður en þau urðu bestu vinir manns- ins. Bókin er prýdd fjölda litmynda af dýrum og sýnir bæði hvemig þau litu upphaflega út og hvernig þau hafa þróast. Utgefandi er Skjaldborg. Bókin er 72 bls. í stóru broti. Bókin erprent- uð í Singapúr. Verð: 1.480 kr. • SVIPIR fortíðar er eftir Danielle Steel í þýðingu Skdla Jenssonar. I kynningu segir: Karl Waterston býr með eiginkonu sinni í London. Leiðir þeiira skilja og heimur Karls hrynur til grunna. Fyrir tilviljun leigir hann gamla smáhöll og kynn- ist þar sögu ungrar konu sem þar bjó fyrir tveimur öldum. Hann kemst í dagbækur hennar. Utgefandi er Setberg. Bókin er 208 bls. Verð 2.480 kr. • SÍGILDU ævintýrabækurnar em í þýðingu Stefáns Jdhussonar. Þetta eru sjö litprentaðar ævin- týrabækur, eitt ævintýri í hverri bók, sígild ævintýri og sögur. Ævin- týrin eru: Galdrakarlinn í Oz, Gúlli- ver í Putalandi, Mjallhvít og dverg- arnir sjö, Pétur Pan, Rauðhetta, Yndisfríð og ófreskjan og Þyi-nirós. Útgefandi er Setberg. Verð 350 kr. hver bók. • ÆVINTÝRI barnanna er eftir ýmsa höfunda íþýðingu Þóris S. Guðbergssonar. Þetta er ný útgáfa bókarinnar. í henni era sígild ævintýri, s.s. Litla gula hænan, Ungi litli, Töfrasprot- inn og Óskimar þrjár og tuttugu aðrai’ sögur og ævintýri. Bókin er litprentuð og ríkulega myndskreytt. Útgefandi er Setberg. Bókin er 120 bls. Verð: 1.368 kr. • FLASSI gæsasteggur - Bangsi litli leitar að vinnu eru tvær bækur íþekktum bókaflokki. Þýðandi er Stefán Júlíusson. Útgefandi er Setberg. Bókin er 32 bls. Verð: 550 kr. hvor bók. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson ATRIÐI dr leikritinu Flugur hjá LA-GÓ í Grindavík. Enn er leikið í hraðfrystihúsinu Grindavík. Morgunblaðið. LEIKFÉLAGIÐ LA-GÓ sýnir þessa dagana Flugur eftir Berg Þór Ingólfsson og er hér um frumraun höfundar sem leikskáld að ræða. Sýningin fer fram í húsnæði félags- skaparins Laufanna og spaðanna, sem er heitið á félagsmiðstöðinni fyrir 16 ára og eldri í Grindavík. Þetta er nánast sami hópurinn sem stóð svo eftirminnilega að leiksýn- ingunni Allt í plasti síðastliðið vor. Ljóst er að Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri, hefur á ný náð að virkja hér mikinn og góðan hóp leikara og aðstoðarmanna. Um kveikjuna að leikritinu sagði Bergur: „Þetta er eiginlega söngleikur án söngva, ég byrjaði að semja fyrir rúmum þremur áram, samdi þá dægurlög, fléttaði atburði við og þannig varð söguþráðurinn til. Að þessu sinni era lögin ekki með, en annars er söguþráðurinn eitthvað á þessa leið: Oddur Ófeigs fer til geðlæknis til að fá lyf fyrir vin sinn sem er geðklofa, en afleysingageðlæknir neitar eðli- lega að láta annan en viðkomandi fá lyfin. Þetta verður til þess að geð- lækninum er rænt og farið með hann í partí. I þeirri samkomu kem- ur ýmislegt í ljós og jafnvel fortíðar- draugar birtast.“ I leikskrá sýningarinnar stendur: „Að mörgu er að huga; búningar, lýsing, hljóð, leikmunir, áhorfenda- bekkir, leikstjórn, o.fl. o.fl. Til að allt gangi upp þarf samheldinn hóp. MARAÞON fjölvítamín maraþon- m v^*mín og stc«ncf°' ■'NDOXUNAREFNI «4 Vítamín og steinefni fyrir íþrótta- og athafnafólk Við slíkt samstarf myndast vinskap- ur, gleði og ánægja einstaklinga sem að því standa - því tel ég að hér séu margar Flugur slegnar í einu höggi.“ Það er ljóst að þessi orð lýsa þessum stað og þessum hópi betur en önnur orð, en sjón er sögu ríkari og nú er að skella sér á sýninguna. Tónlistarhátíð Musica Antiqua Cornett og sembal í aðalhlutverki ÞRIÐJU og síðustu tónleikar Norð- urljósa, Tónlistarhátíðar Musica Ant- iqua, verða í Langholtskirkju á morgun, laugardag kl. 17. Flytjendur era franski cornetto- leikarinn William Dongois ásamt þýska semballeikaranum Carsten Lohff. A efnisskránni er aðallega ítölsk endurreisnar- og snemm- barokktónlist, m.a. eftir Bassano, Dalla Casa, Rognoni og Bovicelli, sem samin er við stef eftir Lasso, Willaert, da Rore og Palestrina, en einnig verk eftir Attaignant, Fontana og Frescobaldi. William Dongois, fyrrverandi trompetleikari, sneri sér alfarið að því að leika á cornetto og tónlist tengda því og lauk námi við Scola Cantoram í Basel á þetta hljóðfæri árið 1992. Hann leikur reglulega með þekktum hópum og hljómsveitum á sviði eldri tónlistar, m.a. Hesperion XX, undir stjórn Jordi Savall og The Amsterdam Baroque Orchestra, und- ir stjóm Ton Koopman. Carsten Lohff er frá Hamborg, en þar hóf hann upphaflega nám á sembal. Síðan lá leiðin til frekara náms hjá þekktum semballeikuram eins og Johann Sonnleitner í Zúrich, Bob van Asperen í den Haag og Gustav Lwonhardt í Amsterdam. Hann kennir semballeik í Hamborg og Niirnberg og leikur reglulega á tónleikum og inn á geislaplötur með þekktum tónlistarmönnum á sviði eldri tónlistar og með hópum eins og Récréation Musicales og Cantus Cölln. Þrír listamenn með vinnu- stofusýningu í Hafnarfirði GESTUR Þorgrímsson, Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna) og Guðný Magnúsdóttir stilla saman verkum sínum í vinnustofunni á Austurgötu 17, Hafnarfirði, á morgun laugar- dag, kl. 15. A sýningunni verða nýleg verk listamannanna sem unnin era á þessu ári. Verk Gests eru unnin í stein, stál, kopar og tré. Rúna málar myndir sínar á steinleirflísar og jap- anskan pappír og Guðný vinnur myndverk sín í brenndan leir. Sýningin er opin daglega írá kl. 14-17 til 13. desember. NOKKUR leirkera Magndsar Þorgrímssonar sem sýnd verða í Stöðlakoti. Leikur við eld“ í Stöðlakoti MAGNUS Þorgrímsson, leirlistar- maður, opnar sýningu á eld- og reykbrenndum leirkerum í Stöðla- koti við Bókhlöðustíg, á morgun, laugardag kl. 15. Yfirskrift sýningarinnar er Leik- ur við eld og vísar í samspil lista- mannsins við eldinn við vinnslu verkanna. Magnds lauk námi frá Myndlista- og handiðaskólanum 1992 og er þetta fimmta einkasýn- ing hans. Sýningunni lýkur sunnu- daginn 13. desember og er opin daglega frá kl. 14-18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.