Morgunblaðið - 27.11.1998, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Dauðadrukkin hjólandi
börn í verslunum
NU NYLEGA féll
dómur í Héraðsdómi
Reykjavíkur á þann
veg að bjórsala væri
heimilt að auglýsa
vöru sína í íslenskum
fjölmiðlum. Nú má
víst ekki lengur
„skerða frelsi manna“
til þess að auglýsa
bjór og annað áfengi.
Það sem hefur verið
bannað í áratugi er nú
leyft.
Eitthvað er þetta
nú málum blandið, þvi
eins og alþjóð hefur
tekið eftir hafa áfeng-
isauglýsingar birst í fjölmiðlum og
víðar í allmörg ár. I fyrstu tróðu
menn orðinu „léttöl“ með smáu
letri undir heiti bjórtegundarinn-
ar, en með aðstoð litafræðinga og
auglýsingafræðinga var orðinu
„léttöl" komið þannig fyrir að það
sæist illa. I seinni tíð hafa menn
einfaldlega sleppt þessu óþurftar-
orði. A meðan embættismenn sem
gæta áttu laga og réttar sátu með
hendur í skauti, var ástæðulaust
að klína orðinu „léttöl" á auglýs-
ingarnar.
Aðstoð
íþróttafélaganna
I nokkur ár hafa bjórsalar reynt
að koma sér á framfæri sem víð-
ast, nú í seinni tíð með aðstoð fjöl-
margra íþróttafélaga sem á dag-
inn, sem lið í einhverju fínu átaki
hjá ISI, dreifa glansbæklingum til
unglinga þar sem hamrað er á því
að íþróttir og áfengi fari ekki sam-
an. Síðdegis og á kvöldin er börn-
um og unglingum gert að æfa
íþróttir sínar innan um bjór- og
áfengisskilti sem víða má finna á
knattspyrnuvöllum og í íþrótta-
húsum landsins. „Þetta gefur tekj-
ur“ segja menn. í íslandssögunni
hafa menn eflaust einhvern tíma
selt sig fyrir minna.
Aðstoð
fjölmiðla
Bjórsalar hafa einnig beint
sjónum sínum til útvarpsstöðva,
sérstaklega þeirra sem höfða til
yngri áheyrenda. Það er þekkt í
markaðsfræðinni að því fyrr sem
fyrirtæki „eignast" viðskiptavin-
inn, því meiri líkur eru á að
viðkomandi haldi tryggð við vöru-
merkið. Æskan er jú framtíð
þessarar þjóðar og jú líka fram-
tíðarbjórkaupendur. Það er því al-
gjört „möst“ að fermingarbörnin
viti nú hvaða bjórtegund er best.
Líklega þekkir margur unglingur-
inn nöfn fleiri bjórtegunda en
ráðherra.
Besti bjór í heimi
Ég var t.d. að hlusta
á útvarpið einn dag
sem oftar sl. sumar, á
vinsæla unglingastöð.
Heyri ég þá ekki betur
en að í útvarpinu
hljómar bjórauglýsing
þar sem sagði að
ákveðin bjórtegund
væri líklega sú besta í
heimi. Næsta auglýs-
ing á eftir var um ís-
landsmót í
Magnús reiðhjólaþrautakóngi
Ingvason þar sem sagt var að
m.a. væri keppt í
... meira „fjör“ yrði á
bekkjarkvöldum í
grunnskólunum, segir
Magnús Ingvason, ef
þau yrðu í boði ein-
hvers bjórsala.
flokki 8 til 11 ára barna og einnig í
flokki 12 til 14 ára unglinga.
Auglýsingarnar hljómuðu hvor á
eftir annairi þannig að eitt augna-
blik fannst mér um samfellda
auglýsingu að ræða.
Tvær flugur
Gat verið að bjórsalinn væri
aðalstyrktaraðili keppninnar sem
halda átti við matvöruverslun í
miðbænum? Eins og fyrr segir
reyna bjórsalarnir að koma sér
inn í íþróttirnar með einum eða
öðrum hætti. Og auglýsingin var
leikin margoft á unglingaútvarps-
stöðinni. Þetta var alveg frábært
markaðsátak. Tvær flugur í einu
höggi. Nú getur vel verið að bjór-
salinn hafi verið aðalstyrktaraðili
áðurnefnds þrautakóngsmóts. Ég
var ekki frá því og fór að írnynda
mér ýmis afbrigði mótsins. Eg sá
t.d. fyrir mér að innkaupakörfum
væri raðað upp í búðinni og síðan
væri t.d. hægt að keppa í þremur
flokkum í innkaupakerrusvigi:
Keppni edrú 8-11 ára barna,
keppni drukkinna barna og í lokin
væri síðan hægt að keppa í flokki
dauðadrukkinna barna (sem eðli
málsins fengju að nota hjálpar-
dekk).
Bjórkynningar
í skóla
Forstjóri bjórumboðsins myndi
síðan veita glæsileg verðlaun; þjór-
kassa til allra sem myndu lenda í
fyrsta sæti. Síðan myndi hann af-
henda hinum viðurkenningar fyrir
þátttöku, þ.e.a.s. til þeirra barna
sem ennþá yrðu uppistandandi.
Allar þakkarræður yrðu leyfðar,
sérstaklega þar sem börnin myndu
eflaust fara að röfla eitthvað um
ágæti þessarar keppni og í fram-
haldi að heimta bjórkynningar í
skólana; svona rétt áður en þau
lognuðust útaf.
Haldið upp
á dóminn
Og bjórsalinn sem vann málið
fyidr Héraðsdómi hélt að
sjálfsögðu upp á dóminn og birti
heilsíðuauglýsingu í DV nokkrum
dögum síðar þar sem bjór fyrir-
tækisins var dásamaður. Það voru
að vísu tvær blaðsíður á milli þeirr-
ar auglýsingasíðu og vikulegrar
barnaíþróttasíðu DV þar sem
íþróttum baraa og unglinga eru
gerð skil. Líklega hefur blaðsíðan á
móti barnaíþróttasíðunni verið frá-
tekin, en þá er um að gera að panta
næst með betri fyrirvara. Kvik-
myndahúsin hafa heldur ekki látið
eftir sitt liggja. Nú geta öll börn og
unglingar sem yfirleitt fylla þau
hús fengið fyi-sta flokks „fræðslu“
um bjór á undan bíómyndunum og
í hléi.
Næsta vígi bjórsalanna eru lík-
lega skólarnir og þess kannski
ekki langt að bíða að „framsýnir"
skólastjórar selji bjórsölunum
auglýsingapláss á göngum skól-
anna. Og víst er það að meira
„fjör“ yrði á bekkjarkvöldum í
grunnskólunum ef þau yrðu í boði
einhvers bjórsala.
Askorun
til fyrirtækja
Ég skora á fyrirtæki sem ekki
hafa áhuga á að auglýsa sína vöru
innan um bjór- og vínauglýsingar
sem beint er sérstaklega að börn-
um og unglingum, að taka það
fram við auglýsingadeildir
fjölmiðla og aðra auglýsingasala að
þeir hafi ekki áhuga á slíku.
Af kverúlöntum
og öðru fólki
Mig langar að geta þess í lokin
að ég hafði samband við eina út-
varpsstöð (af nokkrum sem birtu
fyrrnefnda bjórauglýsingu í sum-
ar) og spurði hvort menn þar á bæ
teldu þetta siðferðislega rétt;
þ.e.a.s. að vera með bjórauglýs-
ingar innan um efni ætlað börnum
og unglingum. Ég fékk ekki mikil
svör en var í framhjáhlaupi bent á
að alls konar „kverúlantar“ væru
sífellt að kvarta yfir hinu og
þessu! Ég tók þetta að sjálfsögðu
til mín.
Höfundur er framhaldsskóla-
kennarí.
Borg'arbókasafn og
aðgangur að Netinu
Kristín
Viðarsdóttir
Borgarbókasafn
Reykjavíkur hefur
boðið almenningi að-
gang að Netinu frá
árinu 1995. I upphafi
var mikið rætt um
hversu auðvelt væri
að nálgast klám á
Netinu og héldu sum-
ir að þangað væri lítið
annað að sækja. A
þeim þremur árum
sem liðin era hefur
þekking manna á því
sem Netið hefur upp
á að bjóða aukist og
viðhorf margra breyst
í kjölfarið. Hvað sem
líður mismunandi skoðunum manna á
þessari nýju tækni er varla hægt að
líta framhjá því að hún verður sífellt
stærri hluti af veruleika okkar. Jafn-
vel þeir sem spyrna við fótum geta
þurft að kynna sér hvað Netið býður
upp á og hvernig á að nota það, sumir
vegna atvinnu, aðrir vegna náms og
enn aðrir einfaldlega til að geta fylgst
með notkun apnarra, ekki síst barna
og unglinga. A Borgarbókasafni, eins
og öðnim bókasöfnum, beinist athygl-
in fyrst og fremst að Netinu sem upp-
lýsingamiðli sem styður við þá
Safnið vill leggja sitt af
mörkum, segja Ingi-
björg Rögnvaldsdóttir
og Kristín Viðarsdótt-
ir, til að auðvelda kon-
um að nýta sér þessa
upplýsingalind.
hefðbundnu upplýsingaþjónustu sem
safnið hefur lengþveitt og er auðvitað
enn í fullu gildi. Ohætt er að fuiiyrða
að tilkoma Netsins hefur auðveldað
almenningi að nálgast upplýsingar af
ýmsu tagi. Hvort sem leitað er fróð-
leiks um tiltekna sjúkdóma, bækur og
rithöfunda, lönd og ferðir, nám, skóla,
atvinnu, mataruppskriftir eða annað,
er öruggt að eitthvað má finna um
efnið á Netinu. Úrvalið af íslenskum
vefsíðum eykst sífellt og er Netið því
ekki lengur aðgengilegt þeim einum
sem hafa ensku á valdi sínu. Nýjungar
eru daglegt brauð og er bein netút-
sending Hafnarfjarðarleikhússins á
leikritinu Vírus nú í nóvember
skemmtilegt dæmi um það. Netið býð-
ur þannig upp á fróðleik, menningar-
efni og skemmtun af ýmsu tagi og
ætti að geta höfðað til flestra, óháð
áhugasviði, aldri og kyni.
A Borgarbókasafni Reykjavíkur
hefur reynst talsverður munur á hve
mikið karlar og konur nota Netið þótt
sá munur fari minnkandi. Fyrsta árið
voiu konur innan við 20% notenda en
síðan hafa ungar konur verið að sækja
í sig veðrið. Stúlkur yngri en sextán
ára og konur yfir þrítugt sitja þó enn
eftir. Sé litið á heildarfjölda notenda,
16 ára og eldri, kemur í ljós að munur
Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar bs.
Á FUNDI í stjóm Iðnþróun-
arfélags Eyjafjarðar hf. (IFE), sem
haldinn var á 15 ára afmælisdegi
félagsins í apríl í fyrra, var
samþykkt tillaga undirritaðs þess
efnis að hafin skyldi vinna við gagn-
gert endurmat á starfsemi IFE.
Mér þótti tímabært að endurskoða
og endurmeta störf félagsins, þar
sem nokkrar breytingar höfðu orðið
á hlutverki þess og starfsumhverfi.
Þessi tillaga hratt raunar af stað
víðtækri úttekt á þeim stuðningi við
atvinnulífið, sem veittur er af hálfu
sveitarfélaganna hér við Eyjafjörð.
Rekstrarfélag
og íjárfestingarsjóöui'
Starfshópur sem vann að málinu í
umboði stjórnar Iðnþróunarfélags-
ins skilaði tveimur megintillögum:
1. Stofnað skyldi nýtt rekstrar-
félag, Atvinnuþróunarfélag Eyja-
Eitt af mikilvægustu
verkfærum hvers
byggðarlags er vel
skipulögð starfsemi
sem hefur þann tilgang
einan, segir Daníel
Árnason, að stuðla að
nýsköpun og eflingu
atvinnulífs.
fjarðar, sem tæki yfir starfsemi
Iðnþróunarfélagsins, Ferðamála-
miðstöðvar Eyjafjarðar og atvinn-
umálanefnda sveitarfélaganna.
2. Stofnaður skyldi sérstakur
fjárfestingasjóður, Átvinnuþróunar-
sjóður Eyjafjarðar, sem ætlað væri
að leggja áhættufé í at-
vinnurekstur á svæð-
inu. Til sjóðsins rynnu í
upphafi hlutabréf í eigu
sveitarfélaganna (sbr.
bréf Akureyrarbæjar í
ÚA).
Vaxtarbroddur
Þessar tillögur voru
lagðar fyrir sveitar-
stjórnir í fyrravetur og
eftir nokkra meðgöngu
stofnuðu sveitarfélögin
við Eyjafjörð Atvinn-
uþróunarfélag Eyja-
fjarðar bs. nú í október.
Hefur félaginu jafnframt verið
skipuð stjórn og auglýst hefur verið
eftir nýjum framkvæmdastjóra.
Þetta er mikilvægur áfangi. Það er
mikilvægt að vel takist til með
fyrstu skref hins nýja félags, því
þarna leynist sá vaxtarbroddur sem
íbúar við Eyjafjörð geta bundið
miklar vonir við í framtíðinni.
Ég tel að síðari hluti tillögunnar
sem að framan greinir geti einnig
orðið mikið framfaraspor fyrir
Daníel
Árnason
byggðarlagið. Fullyrt
er að nóg framboð sé á
bæði lánsfé og áhættu-
fé og ekki sé því þörf á
fleiri sjóðum. Þessu er
ég ósammála. Til að
sporna við þeirri
deyfð, sem ríkir í
nýsköpun í atvinnulífi
hér á svæðinu, þarf að
færa ákveðnar fómir
og taka aukna áhættu.
Það þarf að hvetja og
styðja alla, ekki aðeins
nýherjana heldur ekki
síður þá sem fyrir eru í
rekstri, til að skoða
alla hugsanlega vaxtarbrodda inni í
fyrirtækjunum. Þetta er eitt af
þeim hlutverkum sem ég sé öflugan
atvinnuþróunarsjóð geta uppfyllt.
Þess vegna hvet ég sveitarstjórn-
armenn til að vinna áfram úr þeim
tillögum sem fyrir liggja en láta
ekki staðar numið.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Kexsmiðjunnar og Ako-plasts
á Akureyri.
Ingibjörg
Rögnvaldsddttir
á milli kynja er ekki ýkja mikili. Kon-
ur eru 45% notenda en karlar 55%. Ef
einungis er litið á notendur eldri en
33ja ára er hlutfallið hins vegar annað
því þar eru konur aðeins 35% notenda
en karlar 65%. Tölurnar eiga við notk-
un Netsins í aðalsafni og í Borgar-
bókasafninu í Gerðubergi frá ágúst til
október 1998.
Þessar tölur segja auðvitað ekki
alla söguna um almenna notkun
manna á Netinu en þær sýna að stúlk-
ur og konur á ákveðnum aldri nýta
sér, af einhverjum ástæðum, iítið
þennan þátt þjónustu Borgarbóka-
safns. Stúlkur yngri en 16 ára eru til
dæmis innan við 10% notenda. Benda
má á að samkvæmt notendakönnun
safnsins frá árinu 1996 nota konur
safnið heldur meira en karlar og er
munurinn á netnotkun kynjanna því
meira sláandi en tölurnar gefa til
kynna.
Almenningsbókasöfn hafa að leiðar-
ljósi að jafna aðgang almennings að
upplýsingum. í samræmi við það vill
Borgai-bókasafn leggja sitt af mörk-
um til að auðvelda konum að nýta sér
þá upplýsingalind sem Netið getur
verið. Er þetta gert í tilefni af 75 ára
afmæli saíhsins fyrr á þessu ári en
þegar hefur reykvískum körlum á
aldrinum 35-45 ára verið boðið frítt
bókasafnsskírteini. I fyrrnefndri not-
endakönnun kom fram að þeir nota
safnið síður en aðrir hópar. Að þessu
sinni var ákveðið að bjóða konum sem
fæddar eru 1965 eða fyrr upp á
ókeypis kynningu á Netinu. Kynning-
in er hugsuð sem aðstoð við þær kon-
ur sem vilja koma sér af stað og er
sérstaklega ætluð þeim sem hafa litla
eða enga þekkingu á Netinu. Þátttak-
endur fá stutta lýsingu á uppbyggingu
þess og er síðan veitt aðstoð við að
leita efnis að eigin vali. Meðal annars
er stuðst við nýtt Vefbókasafn al-
menningsbókasafna sem var sett á
laggirnar til að auðvelda almenningi
upplýsingaleit á Netinu. Þegar leitað
er þar er vandinn oft sá að allt of mik-
ið af upplýsingum bh’tist á skjánum
og getur verið tímafrekt að velja úr
þær síður sem að gagni koma. I Vef-
bókasafninu er safnað saman völdum
vefsíðum og er aðaláherslan lögð á ís-
lenskar síður, þeim gefin efnisorð og
umsagnir skrifaðar um hverja þeiiTa.
Enn sem komið er er þetta tilraunaút-
gáfa en vonandi verður Vefbókasafnið
öflug viðbót við þá leitarmöguleika
sem við höfum í dag.
Kynningarnar fara fram á lestrar-
sal safnsins í Þingholtsstræti 27 og í
Foldasafni í Grafarvogskirkju. Um
næstu mánaðamót verða tvö ár liðin
frá opnun þessa nýjasta útibús Borg-
arbókasafns og því ekki úr vegi fyrir
konur (og karla!) að skoða fallegt safn
um leið og þær fá leiðbeiningar um
hvernig þær geti leitað upplýsinga um
hugðarefni sín. Þegar hafa nokkrar
kynningar verið haldnar og hafa kon-
ur sýnt mikinn áhuga á þeim. Það er
því augljóst að þörfin er þrýn.
í upphafi var vikið að ótta manna
við vafasamt efni á Netinu. Ekki skal
gert lítið úr þeim áhyggjum fólks að
börn og unglingar komist þar í efni
sem þeim er ekki hollt að skoða. f fyr-
irlesti-i á vegum Bai-naheilla nú í mán-
uðinum benti Bretinn John Carr á að
besta ráðið til að koma i veg fyrir það
sé að fylgjast með því sem börnin eru
að fást við á Netinu. Við, sem eldri er-
um, þurfum þá líka að kunna að nota
það og geta aðstoðað þau við að finna
þar upplýsingar sér til fróðleiks og
skemmtunar.
Höfundar cru starfsmenn Borgar-
bókasafns.