Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 48
,48 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
SKÁK
Internet Chess Cluh,
27.-28. nóveniber
24. SKÁKA HRAÐSKÁKEINVÍGI
* Tveir stigahæstu skákmenn heims,
Rússarnir Gary Kasparov og
Vladímir Kramnik, mætast
á Netinu í dag og á morgun.
GARRY Kasparov og Vladimir
Kramnik ætla að tefla 24 skáka
hraðskákeinvígi i Moskvu dagana 27.
og 28. nóvember. Tefldar verða 12
skákir hvom dag. Notað verður tölvu-
tengt skákborð og skákirnar verða
sýndar á Netinu jafnóðum og þær eru
tefldar. Hægt verður að fylgjast með
skákunum í beinni útsendingu á ICC-
skákþjóninum, en keppnin hefst
■'klukkan 17 báða dagana.
Verðlaunasjóðurinn er 24.000 doll-
arar og fá keppendur 500 dollara fyr-
ir jafntefli, en 1.000 dollara íyrir sig-
ur í hverri skák.
Styrktaraðili keppninnar er Hótel
Kosmos í Moskvu og einungis verður
hægt að fylgjast með henni á ICC.
Það þýðir að einungis skráðir not-
endur á ICC geta séð skákirnar. Auk
þess þurfa þeir sem ætla að íylgjast
með að kaupa sér „miða“ á keppnina.
Bæði er hægt að skrá sig á ICC og
kaupa miðana í gegnum Netið. Miði
til að fylgjast með öllum skákunum
kostar 16 doliara, en einnig er hægt
að kaupa miða á annan daginn fyrir
10 dollara.
Nánari upplýsingar má fínna á
heimasíðu ICC:
http://www.chessclub.com
Róbert Harðarson
netskákmeistari
Róbert Harðarson sigraði örugg-
lega á íslandsmótinu í netskák sem
haldið var í þriðja skipti sl. sunnu-
dag. Þátttakendur voru 31 og hafa
aldrei verið fleiri. Sigur Róberts þarf
ekki að koma á óvart, en hann tefldi
nýlega í landsliðsflokki á Skákþingi
íslands og stóð sig vel, lenti í 5._6.
Kasparov og Kramnik
á Netinu í dag
sæti. Hlíðar Þór Hreinsson og Davíð
Kjartansson lentu í 2. 3. sæti með sjö
vinninga af níu, einum vinningi á eftir
Róbert. Hlíðar er einn af okkar
reyndustu netskákmönnum og hefur
oft náð mjög góðum árangri á því
sviði. Davíð Kjartansson er ungur
skákmaður, sem tefldi í fyrsta skipti í
landsliðsflokki í haust og árangur
hans þar sýndi að hann er að komast
í hóp okkar sterkustu skákmanna.
Skákmót sem haldin eru á Netinu
hafa þá sérstöðu að staðsetning skák-
manna skiptir sáralitlu máli. Þannig
voru þátttakendur bæði af Reykja-
víkursvæðinu og utan af landi og
meira að segja var einn þátttakenda í
Mexíkó! Þetta var Hrannar Baldurs-
son, sem nú býr í Mexíkó og hefur
náð frábærum árangri þar á skák-
mótum. Hrannar lenti í 4._6. sæti á
mótinu ásamt Vestfirðingunum Hall-
dóri Grétari Einarssyni og Sigurði
Ólafssyni.
Eins og áður segir var þetta í
þriðja skiptið sem Islandsmótið í net-
skák er haldið. Eftirtaldir skákmenn
hafa orðið Islandsmeistarar:
1996: Þráinn Vigfússon.
1997: Benedikt Jónasson.
1998: Róbert Harðarson.
Auk keppninnar um Islandsmeist-
aratitilinn fór samkvæmt venju
einnig fram keppni um besta árangur
áhugamanna (1.800 stig eða minna)
og byrjenda (stigalausir skákmenn).
Hjörtur Þór Daðason sigraði í flokki
áhugamanna, en þar varð röð efstu
manna (raðað eftir stigum):
1. Hjörtur Þór Daðason 5 v.
2. Kjartan Guðmundsson 5 v.
3. Birgir Ævarsson 5 v.
Birgir Ævarsson sigraði í flokki
byrjenda:
1. Birgir Ævarsson 5 v.
2. Jóhann Skúlason 3!4 v.
3. Gunnar Th. Gunnarsson 3 v.
Vladimir Gary
Kramnik Kasparov
Á Islandsmótinu í netskák hefur
skapast sú skemmtilega venja að
keppendur tefla undir dulnefnum.
Keppendur vita því ekki fyrr en að
mótinu loknu hverjir andstæðingar
þeirra voru. Röð efstu keppenda á
mótinu varð þessi (dulefni innan
sviga):
1 Róbert Harðarson (Rose) 8 v.
2 Hlíðar Þór Hreinsson (SMU) 7 v.
3 Davíð Kjartansson (BoYzOnE) 7 v.
4 Hrannar Baldursson (Krimm) 6 v.
5 Halldór G. Einarsson (Stórm.) 6 v.
6 Sigurður Ólafsson (Klofningur) 6 v.
7 Gunnar Björnsson (Lukku-Láki) 5'Æ v.
8 Einar K. Einarss. (Hmmhahmmm) 5'Æ v.
9 Sigurbjöm Björnsson (Nói) 5 v.
10 Gunnar F. Rúnarsson (Khomeini) 5 v.
11 Davíð Ólafsson (Lilli aumingi) 5 v.
12 Hjörtur Þór Daðason (AndyCole) 5 v.
13 Kjartan Guðmundsson (Kent) 5 v.
14 Ögmundur Kristinsson (ZomoII) 5 v.
16 Birgir Ævarsson (Gambri) 5 v.
o.s.frv.
Ingibjörg Edda Birgisdóttir var
eina stúlkan sem tók þátt í mótinu.
Hún hefur verið dugleg að taka þátt í
skákmótum að undanförnu og náði
m.a. bestum árangri íslensku kepp-
endanna á Disney-mótinu, sem ný-
lega fór fram í París. Með þessu
áframhaldi á henni eftir að fara mikið
fram á næstu mánuðum.
Islandsmótið í netskák hefur óneit-
anlega léttara yfirbragð en hefðbund-
in skákmót. Þannig er það alvanalegt
að keppendur „ræðist við“ bæði á
milli skáka og eins meðan skákir
standa yfir. Einna skemmtilegast er
þó þegar nokkrir keppendur hafa
aðstöðu á sama stað, eins og t.d. var
boðíð upp á hjá Tölvuleigunni.
Tefldar voru 9 umferðir eftir Mon-
rad-kerfi. Umhugsunartíminn var
fjórar mínútur með tveggja
sekúndna viðbót við hvern leik.
Teflt var á evrópska skákþjóninum
í Arósum, en Danir hafa verið mjög
áhugasamir um samstarf við Islend-
inga á þessu sviði. Kristján Eðvarðs-
son og Halldór Grétar Einarsson
áttu veg og vanda af undirbúningi
mótsins.
Skákstjórar voru þeir Kristján
Eðvarðsson og Tommy Salois. Upp-
haflegu hugmyndina að Islandsmót-
inu í netskák átti Taflfélagið Hellir,
sem jafnframt sér um framkvæmd
mótsins. Aðalstuðningsaðili mótsins
var EJS hf.
Þröstur í öðru
sæti í Wrexham
Þröstur Þórhallsson er í öðru sæti
á alþjóðlega skákmótinu í Wrexham í
Wales þegar ein umferð er til loka
mótsins. I sjöundu umferð tapaði
hann íyrir Andrew Webster (2.420)
og missti þar með forystuna á mót-
inu. Þröstur hafði hvítt. I áttundu
umferð gerði hann síðan stutt jafn-
tefli við Tékkann gamalreynda,
Vlastimil Jansa (2.490), sem er jafn
Þresti að vinningum. Staðan fyrir
síðustu umferðina er þessi:
1. Stellan Brynell 6 v.
2. Þröstur Þórhallsson 5!4 v.
3. Vlastimil Jansa 6V4 v.
4. Steffen Pedersen 414 v.
6. Andrew Webster 4!4 v.
6. Chris Ward 4 v.
7. Tim Wall 3 v.
8. Andrew Kinsman 3 v.
9. Eugene Martinovsky 2!4 v.
10. Richard Dineley 1!4 v.
Meðalstigin á mótinu eru 2.420,
sem þýðir að 7 vinninga þarf til að ná
stórmeistaraáfanga. Stellan Brynell
vantar því einn vinning upp á áfanga
og þarf því að sigra Chris Ward í síð-
ustu umferðinni.
Unglingameistaramót
Hellis 1998
Unglingameistaramót Hellis 1998
hefst mánudaginn 30. nóvember kl.
16:30, þ.e. nokkru fyrr en venjulegar
mánudagsæfingar Hellis. Mótinu
verður svo fram haldið mánudaginn
7. desember kl. 16:30.
Tefldar verða 7 umferðir eftir
Monrad-kerfi. Fyrri keppnisdaginn
verða tefldar þrjár skákir og fjórar
þann seinni. Umhugsunartími á
hverja skák er 20 mínútur. Mótið er
opið öllum 15 ára og yngri.
Meðan á mótinu stendur falla
venjulegar unglingaæfingar Hellis
niður. Teflt verður sem hér segir:
1.-3. umf.: Mánudag 30. nóv. kl. 16:30
4.-7. umf.: Mánudag 7. des. kl. 16:30
Verðlaun:
1. Unglingameistari Hellis fær farand-
bikar til varðveislu í eitt ár.
2. Þrír efstu fá verðlaunagripi til eignar.
3. Fimm efstu fá bókaverðlaun.
4. Dregin út þrenn bókaverðlaun.
Þetta er í fjórða sinn sem Ung-
lingameistaramót Hellis er haldið.
Eftirtaldir skákmenn hafa orðið ung-
lingameistarar Hellis (fjöldi þátttak-
enda innan sviga):
1995: Egill Guðmundsson (22).
1996: Bragi Þorfinnsson (30).
1997: Davíð Kjartansson (32).
Skákklúbbakeppni
TR 1998
verður hatdin í félagsheimili TR,
Faxafeni 12, fóstudaginn 27. nóvem-
ber kl. 20. Keppt er í fjögurra manna
sveitum og er tefld hraðskák. Öllum
er frjálst að mynda sveitir og hafa
slík mót notið vinsælda upp á síðkast-
ið. Þátttökugjald er 1.000 kr. á sveit-
ina.
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson
stoO‘*I>
Jólamatur, gjafir og föndur,
64 síðna blaðauki fylgir blaðinu um helgina.