Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Falskur ’
krókódíll
í ferð Kristínar Gestsdóttur til
Kenýa borðaði hún gasellukjöt,
strútskjöt og krókódílakjöt.
PESSAR kjöttegundir voru
hvorki á matseðlinum á Whites-
ands-hótelinu sem ég bjó á né á
hótelinu í „safari“-ferðinni til
Masai Mara en boðið var upp á
þær á matsölustað við ströndina,
þegar komið var úr siglingu um
Indlandshaf. Þetta var allt grillað
á spjóti (kebab) og fannst mér
krókódílakjötið bera af hinum
tegundunum. Það var ljóst og
stutt í því og minnti örlítið á
kalkúnakjöt, en krókódflaspjótin
voru borin fram á útholuðu
krókódflslaga tréfati sem var
skemmtilegt á að líta. Þegar ég
fer til útlanda reyni ég að borða
þann mat sem er einkennandi
fyrir viðkomandi land. Erfítt get-
ur verið að sjá einhvern ákveðinn
stíl í mat Kenýa, en þar þer mat-
urinn að sjálfsögðu keim af mis-
munandi lífsstíl hinna ýmsu ætt-
flokka og Breta sem réðu yfír ný-
lendunni hátt í öld. Þegar ég fór
að kynna mér þá þjóðflokka sem
landið byggja vakti Maasai-þjóð-
flokkurinn mestan áhuga minn,
en þetta fólk er mjög hávaxið,
grannt og beinvaxið, en fæða
hirðingjanna í þeim þjóðflokki
er mjög einhæf og algjörlega C-
vítamínsnauð. Þeir lifa af afurð-
um geita og nautgripa og bera á
sér gourda, sem er þurrkað hýði
ýmissa graskerstegunda, í go-
urda setja þeir eins konar
gerjað jukk úr kúablóði, mjólk
og þvagi gi-ipanna og þrífast vel
af. Þeir opna gripunum æð til að
ná út blóði. Víða má sjá Maasai-
fólk selja þessi flát sem þeir hafa
fest á skrautlega tappa og leð-
urólar, sem eru skreyttar marg-
litum smáperlum. A ferð um
Maasai-þorp leit ég inn í einn
kofanna sem búnir eru til úr
pressaðri mykju sem er sett á
grind. Allt var gljándi og „stíf-
pólerað" - veggir, loft og hús-
gögn úr því sama. Ekki var vond
lykt þarna inni, en kveljandi hiti.
Kona sat þar á hækjum sínum
og gætti að graut sem vall í potti
á opnu eldstæði. Ég spurði hana
hvað hún væri að sjóða og hún
svaraði: „porridge,“ sem þýðir
hafragrautur í hinum vestræna
heimi. Þetta var maísgrautur
sem búinn er til á sama hátt og
hafragrautur og mikið er borðað
af á þessum slóðum og nefnist
ugali eða posho. Ekki smakkaði
ég slíkan gi-aut, en aðalfæða mín
var ferskt og soðið grænmeti,
ávextir og brauð og lamba-,
kjúklinga- og kalkúnakjöt. Af
þessum mat fékk ég ekki svo
mikið sem sting í magann þó
tekinn sé vari við að borða
ferskt grænmeti á þessum slóð-
um. I drykki var klakinn á hótel-
inu úr soðnu vatni og vafalaust
það vatn sem grænmeti var
þvegið úr, en þarna er manni
ráðið frá að bursta tennur úr
kranavatni. Því miður get ég
ekki boðið lesendum mínum
ekta krókódílakjöt eins og mér
var boðið, en í staðinn grillaði ég
kalkúnabita bæði á gasgrilli og í
bakaraofni og kalla falskan
krókódfl.
Falskur krókódíll
á spjóti (kebab)
V2 meðalstór kalkúnabringa
2 meðalstórir rauðlaukar
nokkrir litlir sveppir eða stærri hálfir
1 dl þurrt sjerrí eða epla-
safi + 1 tsk. sítrónusafi
_________2 msk, olífuolía_____
_______V2 tsk, salvía (sage)
2 msk. mangósulta (mango chutney)
2 msk. rifsberjahlaup
nýmalaður pipar
2 msk. smjör + i msk. matar-
olía brætt saman
1 tsk. salt
1. Fjarlægið húðina, skerið
kjötið í litla bita.
2. Setjið sjerrí eða eplasafa +
sítrónusafa í skál ásamt olífuolíu,
salvíu, mangósultu og rifshlaupi
og pískið saman. Setjið kjötbit-
ana í löginn og látið standa í
kæliskáp í 2 klst. eða lengur en
mun skemur á eldhúsborðinu.
Gætið þess að lögurinn umlyki
alla bitana.
3. Skerið laukinn í fernt og
takið sundur í rif. Setjið kjötbit-
ana á sigti. Þræðið kjötbita, lauk-
blöð og sveppi á víxl upp á
grillpinna eða -spjót. Malið pipar
yfir.
4. Hitið grillið, penslið grill-
grindina með smjörlíki (það gef-
ur besta raun) leggið spjótin á
hana, penslið það sem er á spjót-
inu með smjör/olíublöndunni og
snúið öðru hverju meðan grillað
er í 10-12 mínútur. Þetta má
grilla í bakaraofni, en aðeins
lengur.
5. Berið fram með góðu brauði
og smjöri, salatblöðum, mangó,
melónu, ferskjum, ferskum an-
anas, eða öðrum þeim ávöxtum
sem ykkur hentar
BON APPETIT!
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 49
HAFÐU ÞAÐ FRA ISLENSKT-FRANSKT
þtif) wolíiiö ÚtUti
Borgames kjötvörur ehf.
Sferar 437-1190 - 587-6077 - Fax 437-1093
» fllltaf betra!
eru komin á alla
útsölustaði
Öll Lionsdagatöl eru merkt:
Þeim fylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa.
Allur hagnaður rennur til líknarmála.
KRAKKAR!
MUNIÐ EFTIR OKKUR
TANNIOG TÚPA