Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 50

Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Karólína Stef- ánsdóttir fædd- ist í Reykjavík 31. ágnst 1917. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 17. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Ólína Hróbjartsdóttir, f. 29.8. 1884 á Raufar- felli, d. 31.3. 1949 í Reykjavík, og Stef- án Einarsson, f. > 17.9. 1879 á Arnar- st.öðum í Hraun- gerðishreppi, d. 27.2. 1928, fórst af Jóni forseta. Foreldrar hans voru Einar Sig- urðsson og Guðlaug Magnús- dóttir. Systkini Karóh'nu eru: Guðmundína Sigurveig Stefáns- dóttir; Guðlaugur Magnús Stef- ánsson; Árni Kristján Stefáns- son; Sólveig Jósefína Stefáns- dóttir; Stefanía Stefánsdóttir; Guðmundur Stefánsson; Jó- hanna Stefánsdóttir; Margrét Stefánsdóttir; Svava Guð- mundsdóttir; og Hulda Guð- mundsdóttir. Eftirlifandi eru Jóhanna, Margrét, Svava og ' Hulda. _ Eiginmaður Karólinu var Arni Guðmundsson, bakara- meistari, f. 2. nóvember 1916 á Seyðisfírði, d. f Reykjavík 3. Og tíminn stendur kyrr meðan vegurinn rennui' út úr höndum hans í tvær gagnstæðar áttir (Steinn Steinarr.) Elsku Lína. Pað er komið að ** ’ skilnaðarstund. Þótt við sem um- gengumst þig hefðum tekið eftir að þú værir ekki eins frísk og vökul sem áður, fannst mér stundin ekki vera eins nálæg og raun bar vitni. Gátan um líf og dauða er torráðin. Ég á aðeins góðar minningar eftir tæplega 30 ára kynni. Góðvild, skarpskyggni, jákvæðni, nægjusemi og umhyggja standa upp úr þegar ég minnist þín. A Bergþórugötunni bjó Lína frá unga aidri, fyrst í foreldrahúsum en síðar með fjölskyldu sinni og vildi ekki þaðan hvika. Fyrir 22 árum um svipað leyti árs lést eiginmaður Línu, Arni Guðmundsson, fyrir ald- ur fram. Bergþórugatan hefur verið miðstöð stórfjölskyldunnar alla tíð. Þar var stöðugur straumur af fólki, vinum og vandamönnum til að hitt- ast, skrafa og leita frétta. Gestrisni var við brugðið, alltaf eitthvað til með kaffmu og lagaðar tertur til að gleðja sérþarfir gestkomandi. Stór hluti fjölskyldunnar hefur tekið sér búsetu um lengri eða skemmri tíma undir þessu þaki 1 gegnum árin. Þegar við Bogga eignuðumst okkar fyrsta bam var það ekki tiltökumál að fá inni í nokkra mánuði hjá þeim Arna, meðan við biðum eftir okkar eigin íbúð. Það var góður tími. Gift- ingar- og skímarveislan var haldin þarna og fleiri viðburðir. Síðar átti þessi piltur eftir að búa hjá ömmu sinni í tvo vetur meðan hann var við háskólanám. Þeir eru óteljandi sem hafa átt á vísan að róa á ferð um Reykjavík úr öllum áttum. Húsa- skjólið var auðfengið og dvölin alltaf ánægjuleg. Það verður ekki lengur litið við á Bergþórugötunni eða tek- ið á Línu hús til næturdvalar. Lína var sérlega barngóð og gætti barnabarnanna til lengri og skemmri tíma meðan foreldrar brugðu sér af bæ og síðan barna þeirra er fram liðu stundir. Eftir- sóknarvert var að dvelja hjá ömmu > Línu. Hún gat alltaf gefið sér tíma til að sinna okkar þörfum. Lína hafði ánægju af fjölmörgum hlutum. Hún ferðaðist mikið meðan heilsan leyfði og var virkur félagi í Ferðafélagi Islands. Á hverju sumri um árabil heimsótti hún vinafólk á Sléttu þar sem hún undi hag sínum vel í sveitasælu. Lína var vel lesin, 'l,átti mikið af bókum og naut þess að nóvember 1976. Foreldrar hans voru Guðmundur Benediktsson og Guðbjörg Sæunn Árnadóttir. Börn Karólínu og Árna eru: 1) Stefán Óli, bakari í Reykjavík, f. 8.5. 1941, maki Rannveig Gísladótt- ir, f. 26.1. 1943. 2) Guðmundur, raf- virkjameistari, f. 24.5. 1942, býr á Kópaskeri, maki Sigrún Magnúsdótt- ir, f. 8.8. 1952. 3) Guðbjörg Sæ- unn, kennari á Akranesi, f. 7.8. 1945, maki Reynir Þorsteins- son, læknir, f. 13.9. 1946. 4) Þór, bakari, f. 31.1. 1947, d. 23.6. 1993, bjó síðast í Omaha í Bandaríkjunum. Hann var kvæntur Ingveldi Rósinkranz, f. 29.5. 1945. Þau skildu. Seinni kona hans var Patricia Arna- son, f. 24.9. 1955. 5) Steinunn, f. 14.1. 1951, maki Jóhann Ás- geirsson, netagerðarmaður, f. 24.5. 1957. Barnabörn Karólínu eru átján og langömmubörnin eru tíu. Utför Karóbnu verður gerð frá Grensáskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. fara í leikhús. Hún hafði alla tíð áhuga á íþróttum, var Valsari innst inni, og hafði sérlega gaman af að fylgjast með öllum íþróttum í sjón- varpi, en þó einkum fótbolta. Þrátt fyrir margar gleðistundirn- ar hafa áföll í fjölskyldunni orðið henni þung byrði, sérstaklega þegar Þór sonur hennar varð bráðkvaddur á erlendri grundu. Lína stóð það af sér með góðum stuðningi fjölskyld- unnar og systra sinna sem alltaf hafa haldið vel saman í blíðu og stríðu. Fjölskyldutengslin hafa ver- ið ákaflega sterk milli þeirra systra, mikill vinskapur og glatt á hjalla þegar komið var saman. Haft hefur verið í flimtingum í mörg ár að sá sem er giftur einni þeirra sé sama sem giftur þeim öllum. Það var notalegt að eiga með þér stund og heyra þína skoðun á mál- um. Jafnvel þótt ekkert væri sagt leið manni vel í návist þinni. Ég á eftir að sakna þín mikið, kæra tengdamamma, en minningin um góða manneskju lifir. Ég votta ætt- ingjum mína dýpstu samúð. Reynir Þorsteinsson. Okkur systurnar langar að kveðja ömmu Línu með nokkrum orðum. Fráfall ömmu Línu bar brátt að. Þrátt fyrir að amma væri orðin 81 árs að aldri, áttu fæstir von á að hún myndi kveðja þennan heim svo fljótt. Við systurnar munum ekki eftir ömmu öðruvísi en við góða heilsu, ef frá er talin heymardeyfa sem hefur hrjáð hana frá því við munum eftir okkur. Amma var alin upp á Skólavörðu- holtinu. Fyrstu 12 árin bjó hún á Kárastíg en síðan í sama húsinu við Bergþórugötuna. Langamma okk- ar, Olína, keypti húsið við Berg- þórugötu ásamt börnunum. Þar hófu einnig amma og afi sambúð sína og bjuggu alla tíð síðan. Á fyrstu sambúðarárum ömmu og afa bjuggu undir sama þaki langamma okkar, nokkrar ömmusystur og einn bróðir þeirra með sína fjölskyldu. Síðar fluttust systkinin hvert í sína áttina en amma og afi og börnin þeirra bjuggu áfram á Bergþóru- götunni. Amma og systkini hennar hafa alla tíð síðan haldið vel saman rétt eins og þau gerðu heima á Bergþórugötunni. Kom það þannig af sjálfu sér að heimili ömmu varð griðastaður fjölskyldunnar, en fjöl- skyldan hennar ömmu var stór. Hún var ekki aðeins svo rík að hafa átt fimm börn, eiga átján barnabörn og tíu langömmubörn, heldur átti hún ellefu systkini. Á Bergþórugöt- unni var gjarnan gestkvæmt enda amma mjög gestrisin og var ekki lengi að slá upp veislu ef einhverja okkar bar að garði. Jólaboðin henn- ar ömmu Línu skipuðu einnig stór- an sess í jólahaldi fjölskyldunnar í áratugi. Amma Lína var engin venjuleg amma. Þegar fór að hægjast um hjá henni um miðjan aldur, lagðist hún í ferðalög. Hún gekk ekki aðeins létt- stíg á íslensk fjöll, heldur lagði hún einnig land undir fót og sótti fjar- læg lönd heim. Við systumar vorum Iánsamar að eiga ömmu sem var ekki eins og allar ömmur. Amma var nefnilega líka kattliðug og stát- uðum við stelpurnar okkur gjarnan af því að eiga ömmu sem gat farið í splitt og staðið á höndum og þótti vinum okkar mikið til koma. Ömmu Línu var margt til lista lagt, en hún hafði ekki hátt um eigið ágæti. Hún var ekki langskólageng- in, þrátt fyrir að henni hefði staðið til boða stuðningur til frekara náms. Hún hélt ekki aðeins uppi samræð- um á dönsku og ensku, heldur kom hún okkur eitt sinn á óvart er hún skipti leikandi yfir á þýska tungu er Þjóðverja bar að garði. Þegar við spurðum ömmu hvenær hún hefði lært eitthvað í þýsku gerði hún bara lítið úr þessu og vildi sem minnst um það tala. Amma Lína var ávallt áhugasöm um það sem afkomendur hennar voru að gera hverju sinni, virtist þá einu gilda hvort það voru hennar eigin börn, við barnabörnin eða langömmubörnin. Þegar ein okkar eignaðist sitt fyrsta barn fyrir rúmu ári fylgdist amma Lína með með- göngunni og fyrsta ári langömmu- barnsins af svo miklum áhuga að mann kann að undra að hún hafi fylgst með fæðingu og fyrstu árum hjá hátt á þriðja tug ömmu- og langömmubarna. Nú þegar amma er fallin frá er erfitt að gera sér í hugalund að ekki sé lengur hægt að koma við á Berg- þórugötunni og heilsa upp á hana. Þannig kveðjum við ömmu Línu með söknuði og berum kveðju frá Láru og Steve sem þykir leitt að geta ekki verið við útförina. Stella, Lára og Karólína. Ástkær amma okkar fór mjög skyndilega. Og fyrír okkur sem hitt- um hana ekki upp á hvern dag er tilfinningin enn óraunveruleg þegar það kemur upp í hugann að hún sé farin. Um leið brjótast fram minn- ingar sem við eigum kærar bæði sameiginlega og hvert fyrir sig af ömmu, af Bergþórugötunni, ofan af Skaga og víðar. Svo lengi sem við systkin bjugg- um öll uppi á Skaga var Berg- þórugatan ávallt fastur punktur í fjölskylduferðum til Reykjavíkur og okkar gistipláss í bænum, hvert svo sem tilefnið var. Seinna meir höfum við komið sitt í hverju lagi bæði til að gista í rauða sófanum til lengri eða skemmri tíma eða þá styttri heimsóknir í kaffi og döðlutertu. Það var alltaf pláss á Bergþórugöt- unni og lyklarnir að því húsi ömmu orðnir æði margir. Seinni ár eyddi amma oftar en ekki aðfangadagskvöldi með okkur á Aki-anesi og verða jólin þetta árið skrýtin þegar ömmu vantar. Við erum þakklát fyrir að hafa Kynnst þessari góðu konu og notið með henni kærleika og hlýju sem hún bar ávallt með sér. Um leið verður til söknuður yfir að ná ekki að deila með henni frekar því nýja lífi sem í kringum okkur er á þess- ari stundu, hún hefði tekið því eins og öllum öðrum af innilegri ást og einlægum áhuga. Við kveðjum því Línu ömmu með söknuði en munum minnast hennar um alla framtíð í því sem við eigum eftir að taka okkur fyrir hendur. Amma tengist því öllu. Árni Pétur, Kári Steinn og Ella Dóra. Nú er Karólína systir okkar farin í sína hinstu för. Hún fékk hægt andlát, fékk að kveðja með sömu rósemi sem hefur einkennt hana alla tíð. Við þökkum fyrir að hafa átt svo langa samleið. Aldrei hefur borið skugga á það kærleiksríka samband sem ríkt hefur á milli okk- ar systkina frá æskuárunum. Við ól- umst upp á Bergþórugötu 6 hjá ást- kærri móður okkar, Ólínu Hró- bjartsdóttur. Lína var aðeins ellefu ára gömul er hún kom í þetta hús og hefur hún átt þar heima æ síðan. Þegar hún giftist manni sínum, Árna, byrjuðu þau að búa á neðstu hæðinni og þar eignuðust þau fimm börnin sín. Þetta var sannarlega fjölskylduhús, þar sem móðir okkar bjó og fjórar yngstu dætur hennar sem enn voru heima bjuggu á efri hæðinni, en Guðlaugur bróðir okkar og kona hans Þórdís með dóttur sína á þriðju hæðinni. Aldrei minn- umst við þess að misklíð eða sund- urlyndi hafi þekkst þar. Heimili móður okkar stóð öllum opið, ættingjum og vinum okkar. Breyttist þar ekkert um, þótt hún hyrfi. Lína og Árni fluttu síðar upp á efri hæðina og eftir sem áður gát- um við ætíð komið „heim“ á Berg- þórugötuna. Ekki amaðist mágur okkar við því þótt við kæmum með krakkaskarann á öllum tímum. Á stórhátíðum kom öll fjölskyldan saman og þá var allt húsið lagt und- ir. Oft var þröngt á þingi og mikill fyrirgangur. En allir eiga ljúfar minningar frá þessum tíma. Líf Línu var ekki alltaf dans á rósum. Hún kynntist manni sínum er þau störfuðu saman í Alþýðu- brauðgerðinni. Hann þá að ljúka námi í iðngrein sinni. Stuttu seinna veiktist Árni og þurfti að dvelja á Vlfilsstöðum. Hann var hraust- menni fyrir í góðri þjálfun sem leik- fimismaður. Eftir að Árni náði heilsu, gerðust þau ein af stofnend- um SIBS og störfuðu og studdu þann félagsskap alla tíð. Árni var greindur og hörkuduglegur og fór oft út á land á sumrin í stærstu síld- arplássin til að bæta efnahag heim- ilisins. Lína annaðist börnin og heimilið. Seinna stofnaði Árni sitt eigið bakarí. Þá starfar Lína með honum sem mest hún mátti með sitt stóra heimili og börnin öll í skóla. Lína var vel greind og átti gott með nám, en vegna erfiðleika heima fyr- ir í æsku varð hún að hætta námi, árið sem hún átti að ljúka gagn- fræðaprófi. Hún vann langan vinnu- dag allan veturinn en lauk prófi um vorið með hæstu einkunn. Ekki fékk hún tækifæri til framhalds- náms. Lína var mikil félagsvera og hafði ákveðnar skoðanir á pólitík og hafði sterka réttlætiskennd og lá ekki á því sem henni fannst rétt. Hún var ein af stofnendum Félags eigin- kvenna bakarameistara og var fyrsti formaður þess félags og starf- aði þar af lífi og sál. Árni og Lína áttu margt sameig- inlegt. Þau dönsuðu og spiluðu brids og nutu þess að ferðast um landið og þá í félagsskap Guðlaugs og Þórdísar mágkonu okkar. Áimi missti heilsuna á miðjum aldri og varð að hætta atvinnurekstri. Alltaf stóð Lína sem klettur við hlið hans. Þá dreif Lína sig til starfa á Landspítalanum og vann þar fram yfir sjötugsaldur. Á þeim tíma fór hún að ferðast með Ferðafélagi ís- lands og fór þá í erfiðar gönguferðir og átti hún margar góðar minningar frá þeim tíma. Lína var falleg kona og allir sem kynntust henni minnast hennar fyr- ir einstaka útgeislun, fallega brosið hennar og hlýja framkomu. Hún unni góðum bókmenntum, bæði í bundnu og óbundnu máli. Síðustu árin leið hún fyrir slæma heyrn, en hélt fullri sjón og naut þess að lesa góðar bækur, jafnt íslenskar sem erlendar. Hún hafði yndi af að fara í leikhús og naut þess til þess síðasta, þrátt fyrir heyrnarleysið, að sjá góða leiktjáningu og fylgdist ótrú- lega vel með, en það var sárt fyrir okkur að sjá hvemig hún dró sig til baka, þessi skemmtilega kona, sök- um heyi-narleysis. Mörg áföll hafa mætt Línu á langri ævi hennar en þyngst var þegar yngsti sonur hennar, Þór, féll snögglega frá. Frá ungum börnum sínum svo fjarri henni. Hann var búsettur í Banda- ríkjunum. En Lína bar sorgir sínar KARÓLÍNA STEFÁNSDÓTTIR í hljóði með þeirri sérstöku stillingu sem hún ávallt sýndi. Við vitum að nú er hún í faðmi þeirra ástvina sem á undan eru famir. Megi Guð launa henni allt sem hún hefur verið okkur systrum hennar sem eftir lifa. Hjartkær systir, hniginn er hinsti ævidagur hugljúf minning lifir og skín sem geisli fagur um yndislegu og góðu æskuárin heima og öll þín mörgu gæði, er liðnar stundir geyma. í ástarþökk og trega ég kveð þig heilu hjarta hjá mér vakir minningin, hlýja fagra og bjarta, um elskulega systur og yljar gegnum tárin við okkar hinstu kveðju og blessa liðnu árin. (Höf.ók.) Hinsta kveðja frá systrunum. Margrét, Jóhanna, Hulda og Svava. Þegar mín kæra mágkona er fall- in frá á áttugasta og öðru aldursári get ég ekki látið hjá líða að minnast hennar með nokkrum orðum. Þegar ég kvæntist Huldu systur hennar árið 1948 hófum við hjónin búskap í hluta íbúðar tengdamóður minnar á miðhæðinni að Bergþórugötu 6b. Á efri hæðinni bjó Guðlaugur bróðir Huldu ásamt fjölskyldu sinni, en á jarðhæðinni bjó Karólína ásamt eiginmanni og börnum. Tengda- móður minnar naut því miður ekki lengi við því hún andaðist árið eftir að við hófum búskap og var því mikill missir fyrir Huldu því ég var flestum stundum fjarverandi vegna starfs míns til sjós. Þarna á mið- hæðinni bjuggum við um það bil í sex ár og áður en við fluttum þaðan voru börnin okkar orðin tvö. Eins og gefur að skilja hefur Hulda ung að árum oft þurft að leita liðsinnis hjá sér eldra fólki, og ef svo bar undir var Lína - eins og Karólína var ávallt kölluð - ævinlega tilbúin til liðsinnis og að veita alla þá hjálp sem henni var unnt, þrátt fyrir þungt heimili sem hún stjórnaði af mikilli vizku og með slíku jafnaðar- geði að fátítt má teljast, en hún var ein af þeim manneskjum sem aldrei brá skapi og mætti öllum erfiðleik- um jafnt sem ánægjustundum með bros á vörum, en brosið hennar Línu var svo einlægt og fagurt að þeim sem henni kynntust fer það seint úr minni. Lína var ákaflega greind kona og víðlesin og þar af leiðandi margfróð um lönd og lýði, en þó sérstaklega fósturlandið sem hún hafði mikið dálæti á og dáði fegurð þess og heilnæmt loftslag, og þegar hún var orðin ekkja og börnin farin að heiman fór hún margar ferðir vítt og breitt um landið með ferðahóp- um og virtist oft óþreytandi á gönguferðum, og allt fram á síðasta dag fór hún flestra sinna erinda gangandi um götur bæjarins. Lína virtist mjög heilsugóð fram til hinztu stundar nema hvað heyrn- inni fór ört hrakandi og olli henni oft erfiðleikum, en þrátt fyrir það þráði hún að sækja leikhús, og þá virtist henni nóg að sjá leikarana vel til þess að fylgjast með gangi leiksins. Lína kom til okkar Huldu laugar- daginn 14. nóvember hress og brosmild að vanda, en á leiðinni heim kvaðst hún aðeins finna fyrir svima og fór því heim til að hvílast. Að morgni þriðjudags veiktist Lína snögglega á heimili sínu og var flutt á sjúkrahús þar sem hún hlaut hægt og kvalalaust andlát innan tveggja tíma. Það er öllum eftirsjá þegar góðir vinir og ættingjar hverfa, hvort sem þeir eru ungir eða aldnir, en við lifum í þeirri vissu að nú líður Línu vel þegar hún er komin í hóp nánustu ættingja sem á undan eru gengnir. Megi Guðs blessun varð- veita hana og minningu hennar um alla framtíð. Haraldur Jensson. Mig langar með örfáum orðum að minnast móðursystur minnar Karólínu Stefánsdóttur, sem er lát- in. Lína systir eins og hún var alltaf kölluð var ein af þeim konum sem

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.