Morgunblaðið - 27.11.1998, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 61
FRETTIR
Almennur fundur
um verndun mið-
hálendisins
AÐ tilhlutan náttúruverndarsam-
taka, útivistarfélaga og fjölmargra
einstaklinga er boðað til almenns
fundar um verndun náttúru miðhá-
lendisins í Háskólabíói laugardaginn
28. nóvember frá kl. 14 til 15.30.
Dagskrá fundarins verður eftirfar-
andi: Þeir sem fram koma eru
Kvennakór Reykjavíkur undir stjórn
Sigrúnar Þorgeirsdóttur, Voces
Thules, dansarar úr Islenska dans-
flokknum undir stjórn Láru Stefáns-
dóttur, Súkkat, Anna Kristín Arn-
gi'ímsdóttir ieikkona, Trúðarnir Bar-
bara og úlfar, Dansstúdíóið Lipur-
tré, Rússíbanar og bamakór undir
stjórn Sigurðar Rúnars Jónssonar.
Auk þess verður flutt af myndbandi
lag Bjarkar Guðmundsdóttur, Jóga
og brot úr heimildamynd Páls Stein-
grímssonar, Oddafiug.
Þeir sem munu flytja ávörp eru:
Guðmundur Páll Ólafsson, rithöfund-
ur og náttúrufræðingur, Bjarnheiður
Hallsdóttir ferðamálafræðingur, dr.
Guðmundur Sigvaldason, fyrrv. for-
stöðumaður Norrænu eldfjallamið-
stöðvarinnar, Hallmar Sigurðsson
leikstjóri, dr. Ámý Erla Sveinbjörns-
dóttir jarðeðhsfræðingur og Birgir
Sigurðsson láthöfundur. Fundarstjóri
er Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld.
Allir flytjendur leggja fram vinnu
sína án endurgjalds og aðgangur er
ókeypis að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Veggspjald til
styrktar málefninu verður til sölu á
staðnum og kostar 500 krónur.
Fyrirlestrar
um stærð-
fræðimenntun
TVEIR erlendir fyrirlesarar á sviði
stærðfræðikennslu eru staddir hér á
landi og munu þeir halda fyrirlestra
og fræðslufundi á sínu sviði
Föstudaginn 27. nóvember kl.
14.15 mun dr. Frank Lester halda
fyrirlestur í Kennai’aháskóla íslands
sem er öllum opinn.
Laugardaginn 28. nóvember kl.
9-12 mun dr. Frank Lester halda
fyrh-lestur fyrir stærðfræðikennara
7.-10. bekkjar og stærðfræðikenn-
ara framhaldsskóla sem fylgt verður
síðan eftir með verkefnavinnu.
Mánudaginn 30. nóvember kl.
15:15 mun dr. Diana Lambdin halda
fyrirlestur í Kennaraháskóla Islands
sem er öllum opinn.
Frank Lester prófessor á sviði
stærðfræðimenntunar við University
of Indiana og dr. Diana Lambdin
sem er dósent á sviði stærðfræði-
menntunar við sama háskóla. Þau
eru hér í boði Kennaraháskóla Is-
lands og stærðfræðiskorar Háskóla
Islands. Frank Lester hefur m.a. rit-
stýrt Journal for Research in
Mathematics Education og er kunn-
ur alþjóðlega fyrir umfjöllun sína um
þrautalausnir í stærðfræðinámi. Dr.
Diana Lambdin hefur tekið þátt í
stefnumótun samtaka stærðfræði-
kennara í Bandaríkjunum varðandi
námsmat í stærðfræði og á nú sæti í
ritstjórn við gerð námsviðmiðana
fyrir stærðfræðinám í grunnskólum
og framhaldsskólum.
Fundur um
fiskistofna,
umhverfi og
stjórn veiða
ANNAR fræðslufyrh’lestur Hins ís-
lenska náttúrufræðifélags á þessum
vetri verður haldinn mánudaginn 30.
nóvember kl. 20.30. Fundurinn verð-
ur að venju haldinn í stofu 101 í
Odda, Hugvísindahúsi Háskólans. A
fundinum flytur Hjálmar Vilhjálms-
son, fiskifræðingur á Hafrannsókna-
stofnun, erindi sem hann nefnir:
Umhverfisbreytingar, fiskistofnar
og stjórn fiskveiða. Erindi þetta flyt-
ur Hjálmar fyrir hönd Hafrann-
sóknastofnunar í tilefni af Ari hafs-
ins;
í erindinu verður fjallað um
nokkra nytjastofna á svæðinu Græn-
land-Island-Noregur þ.e. þorsk við
Grænland og ísland, norsk-íslenska
síldarstofninn og íslenska sfld. Allir
eiga þessir stofnar það sameiginlegt
að þeir blómstruðu á hlýviðrisskeið-
inu og minnkuðu síðan mikið eða
hrundu nánast með öllu. Eftir mikl-
ar veiðitakmarkanir hafa sumir
þessara stofna náð sér á strik en
aðrir ekki. Leitast verður við að
skýra viðbrögð fiskistofnanna við
breytingum á umhverfisaðstæðum
og veiðiálagi.
Fræðslufundir félagsins eru öllum
opnir og aðgangur ókeypis.
Samkeppni
um jólasveina-
búninga
FRESTUR til að skila inn tillögum í
hugmyndasamkeppni Þjóðminja-
safns Islands og Reykjavíkur, menn-
ingarborgar árið 2000, um búninga á
íslensku jólasveinana þrettán rennur
út 1. desember nk.
Óskað er eftir skissum eða teikn-
ingum af búningum og hugmyndum
að efni og útfærslu. Jólasveinarnir
sem undanfarin 10 ár hafa heimsótt
safnið munu í ár koma í heimsókn í
ráðhús Reykjavíkur í þrettán daga
fyrir jól þar eð hús Þjóðminjasafns-
ins við Suðurgötu er lokað vegna við-
gerða.
Jafnframt verður sýning í ráðhús-
inu á þeim tillögum sem borist hafa
og gefst gestum kostur á að greiða
atkvæði um þær. Dómnefnd Þjóð-
minjasafnsins mun kunngera úrslit
samkeppninnar á þrettándanum, 6.
janúar.
Harmonikan
á netinu
ALMENNA umboðsski’ifstofan tók
nýverið við umboði fyrir Accordians
Worldwide á íslandi en það fyrirtæki
rekur m.a. vef á netinu sem fallar um
allt sem viðkemur harmonikum og
harmonikuleik.
Á vefnum eru m.a. birtar fi’éttir af
harmonikuviðburðum, endursöluaðil-
um, harmonikuleikurum og harmon;
ikufélögum frá öllum heimshornum. I
viku hverri heimsækja að meðaltali
um 85.000 manns vefinn, sem er á
slóðinni www.accordions.com og
sömuleiðis hefur vefsíða umboðs-
skrifstofunnar flust á slóðina
www.acordions.com/genage.
Tónlistararmur A.U. hefur undan-
farin ár sérhæft sig í öllu er varðar
harmonikuna, þ.m.t. sölu á harmon-
ikum, hljómleikahaldi og útgáfu á
geislaplötum og harmoniku-útsetn-
ingum.
Almenna umboðsskrifstofan býður
íslenskum harmonikuleikurum og fé-
lögum sem hafa áhuga á að kynna sig
erlendis upp á vefsíðugerð og vistun
hjá Accordions Worldwide. Upplýs-
ingar um verð fyrii- vefsíðugerð má
finna á vef Iceland Online Internet
Solution, sem annast vefsmíðar fyrir
A.U. á slóðinni www.iceland-on-
line.com.
Leiðsögumenn
gegn virkjunum
FÉLAGSFUNDUR Félags leiðsögu-
manna, haldinn í Reykjavík 18. nóv-
ember 1998, leggst eindregið gegn
fyiii’huguðum virkjunum, miðlunar-
lónum og öðrum mannvirjun sem
þeim fylgja á hálendi íslands; í Eyja-
bökkum, Hafrahvammagljúfrum,
Þjórsárverum og öðrum hálendisperl-
um, eins og segir í fréttatilkynningu.
Jafnframt skorar fundurinn á rík-
isstjórn og Alþingi íslendinga að
beita sér fyrir því að Fljótsdalsvirkj-
un sæti lögformlegu mati á umhverf-
isáhrifum.
LIONSMENN pakka jólapappír.
Lionsmenn í Hafnar-
firði ganga í hús
ÁRLEG fjáröflun Lionsklúbbs
Hafnarfjarðar er að hefjast og
verður gengið í hús og fólki boð-
in að þessu sinni kerti og jóla-
pappír. Allur ágóði af söfunni
rennur til líknarmála.
Á síðasta ári var Hæfingarstöð
fatlaðra í Bæjarhrauni færð tölva
með forriti til lestrarkennslu
þroskaheftra, einnig var gefin
tölva til Leikskólans Víðivalla við
Miðvang. Klúbburinn styrkti
iðjuþjálfa til náms í Danmörku
og fiðluleikara til þátttöku í Or-
kester Norden. Iþróttasamband
íslands, Hljóðfærasjóður Hafnar,
Lions Quest vímuvarnarverkefni
Lions og LCIF, alþjóðahjálpar-
sjóður Lions fengu einnig styrki.
„Lionsmenn vonast eftir góð-
um viðtökum bæjarbúa eins og
undanfarin ár og nú er lag að
birgja sig upp af jólapappír og
útikertum fyrir jólahátíðina og
styrkja gott málefni í leiðinni,"
segir í frétt frá klúbbnum.
Jólabasar KFUK
HINN árlegi jólabasar KFUK Seldir verða fallegir munir,
verður haldinn í félagshúsi handavinna og kökur. Á basarn-
KFUK og KFUM við Holtaveg 28 um verður jafnframt selt kaffi og
laugardaginn 28. nóvember og vöfflur.
hefst kl. 14.
Jólakort
Barnahjálpar
SÞ komin út
JÓLAKORT Barnahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna, UNICEF, eru
komin í verslanir. UNICEF hefur
selt jólakort til Ijáröflunar fyrir
starfsemi sína allar götur síðan
1949. Barnahjálpin leggur áherslu
á að nota endurunnin efni í fram-
leiðslu sína án þess þó að minnka
gæði hennar. Oll umslögin og flest
kortin eru úr endurunnum pappír.
Listaverk prýða UNICEF-kort-
in, bæði verk stóru meistaranna,
nútímalist, höggmyndalist og
klippimyndir. Þessi listaverk eru
frá yfir 200 þjóðlöndum, en ágóð-
inn af sölunni fer allur til starf-
semi Barnahjálparinnar meðal
barna víða um hcim.
Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna var formlega stofnuð árið
1946. Til að byijað með var aðal-
verkefnið að hjálpa börnum sem
þjáðust eftir heimsstyijöldina síð-
ari. Árið 1953 fékk Barnahjálpin
það hlutverk að vinna að langtíma
þróunarstarfí meðal þurfandi
barna um allan heim. Starf sjóðs-
ins hefur breyst gegnum árin, en
þörfin fyrir neyðarhjálp sem og
varanlega hjálp er jafn brýn nú
sem áður .
Hér á ísland eru það Kvenstúd-
entafélag íslands og Félag ís-
lenskra háskólakvenna sem sjá um
sölu jólakorta Barnahjálparinnar.
Skrifstofa þeirra er á Hallveigar-
stöðum, Túngötumegin, og er hún
opin fram að jólum milli kl. 16 og
18. Þar er hægt að nálgast jóla-
kortin og aðra hluti sem Barna-
hjálpin selur, auk þess sem kort,-
unum hefur verið dreift í allar
heistu bókabúðir landsins.
Léttir harmon-
ikutónleikar
í Ráðhúsinu
FÉLAGAR í Harmonikufélagi
Reykjavíkur leika létta tónlist úr
ýmsum áttum í Ráðhúsi Reykja-
víkur við Vonarstræti sunnudaginn
29. nóvember kl. 15.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
LEIÐRÉTT
RANGT var farið með tölur í fyrir-
sögn fréttar um biðlista hjá barna-
og unglingageðdeild Landspítal-
ans. Hægt er að taka við tíu börn-
um, sem grunur er um að séu of-
virk, til greiningar á deildinni á
mánuði, en ekki tveimur eins og
sagði í fyrirsögninni. Það þýðir að
lengst þurfi börn að bíða í sex mán-
uði, en staðan er nú þannig að um
60 börn eru á biðlista. Beðist er
velvirðingar á þessu.
Nafn féll niður
Nafn féll niður í formála minning-
argreinar um Ásdísi Pálsdóttur á
blaðsíðu 54 í Morgunblaðinu í gær,
fimmtudag. Yngsta dóttir Ásdísar
heitir Eva Björk Kristjánsdóttir,
fædd 14.2. 1981. Hlutaðeigendur
eru beðnir afsökunar á þessum
mistökum.
IYNDAVELAR
Öryggismyndavélakerfi sem Securitas býöur er mjög fjölbreytt
og uppfyllir þarfir allra þeirra sem hafa þörf fyrir sívökult auga.
Hvort sem er í heila borgarhluta, banka eða bílageymslur.
Hafið samband við tæknideild
og fáið frekari upplýsingar.
SECURITAS
Síðumúla 23 • 108 Reykjavík
Sími: 533 5000