Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 76
J0 [Kftrjir (tfSkr
KOSTABOK m eð vaxta þrepum gnwtmmmmmv -setur brag á ‘ sérhvern dag!
(f) íii VUURKANKINN
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Bókin er
þarfur
félagi
BÓKIN er þarfur félagi og gott
er að geta gripið til hennar á
ólíklegustu stöðum og stundum,
til dæmis þegar hlé verður á
annríki dagsins enda er bókin
meðfærileg á alla lund. Ekki er
verra að njóta hennar í bland
við aðra fæðu, þessa sem er svo
nauðsynleg fyrir líkamann,
hvort sem hún er fengin á kaffi-
húsi eða úr eldhúsinu heima.
Lesandinn var svo niðursokkinn
í bóklesturinn að hann tók ekki
eftir ljósmyndaranum, sem festi
kyrrðina á filmu.
Viljayfírlýsing um kaup Coca-Cola Nordic Beverages á Vífílfelli ehf.
Eignast alla framleiðslu-
starfsemi Vífílfells
EIGENDUR Vifilfells ehf. hafa undirritað viljayf-
h-lýsingu um sölu á öllum hlutabréfum í félaginu
til Coca-Cola Nordic Beverages A/S (CCNB) í
Danmörku. Með væntanlegum kaupum mun
CCNB eignast alla framleiðslustarfsemi Vífílfells
og þar með talda verksmiðju þess í Reykjavík. Að
sögn Þorsteins M. Jónssonar, framkvæmdastjóra
Vífílfells, er kaupverðið ekki gefið upp. Sam-
kvæmt lista Frjálsrar verslunar yfir 100 stærstu
fyrirtækin var velta Vífilfells á síðasta ári 2.314
milljónir króna.
Coca-Cola Nordic Beverages A/S, sem var
stofnað 1. október 1997, er í eigu Coca-Cola
Company í Bandaríkjunum, sem á 49%, og Carls-
berg A/S í Danmörku, sem á 51%. CCNB á nú
Coca-Cola verksmiðjur í Danmörku, Svíþjóð, Nor-
egi og Finnlandi.
Pétur Bjömsson, sem ásamt fjölskyldu sinni á
meirihlutann í Vífilfelli, mun áfram eiga sæti í
stjórn Vífilfells eftir fyrirhuguð eigendaskipti.
Þorsteinn M. Jónsson, sem hefur verið fram-
kvæmdastjóri Vífilfells frá ársbyrjun 1996, mun
halda áfram að stýra Coca-Cola starfseminni á ís-
landi.
Þorsteinn segir að helsta ástæðan fyrir því að
ákveðið var að selja Vífilfell til CCNB sé stefna
Coca-Cola fyrirtækisins, að eiga fyrirtækin sem
hafa séð um átöppun fyrir fyrirtækið. „Þetta hef-
ur komið til tals í nokkur ár en það varð af því
núna þar sem góður samningur náðist og því var
ákveðið að láta slag standa á þessum tíma-
punkti," segir Þorsteinn en viðræður við Coea-
Cola Nordic Beverages hafa staðið yfir með hlé-
um síðan í febrúar.
■ CCNB eignast/20
Sameining orkufyrirtækja borgarinnar
Rætt um lækkun
eiginfj árhlutfalls
BORGARYFIRVOLD í Reykjavík
eru nú að láta kanna að færa eigið fé
nýs orkufyrirtækis borgarinnar nið-
ur, en það yrði gert með því móti að
fyrirtækið gæfi út skuldabréf sem
yrði í eigu borgarsjóðs. Fjárhagsleg
staða borgarsjóðs myndi batna um-
talsvert við þetta. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins hefur verið til
skoðunar að færa með þessum hætti
allt að 10 milljarða króna frá orku-
fyrh-tækjunum til borgarsjóðs.
Samkvæmt bókfærðu mati á eign-
um Rafmagnsveitu Reykjavíkur og
Hitaveitu Reykjavíkur yrði eigið fé
nýja orkufyrirtækisins, sem fyrir-
hugað er að stofna um næstu ára-
mót, 32 milljarðar. Nú er verið að
endurmeta eignimar og liggur þegar
fyrir að eigið féð mun við það hækka
umtalsvert. Nefnt hefur verið að út-
koman úr endurmatinu geti orðið
fast að 70 milljörðum, en inni í þeirri
tölu er einnig hlutur Reykjavíkur-
borgar í Landsvirkjun, sem metinn
er á 13 milljarða. Þegar liggur fyrir
að borgarsjóður mun fara með hlut
borgarinnar í Landsvirkjun eins og
hann hefur raunverulega gert allt
frá stofnun fyrirtækisins.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar veitustofnana Reykjavíkm--
borgar, sagði að eiginfjárhlutfall
hins sameinaða orkufyrirtækis yrði
að öllum líkindum yfir 90%, sem
væri nánast einsdæmi hér á landi.
„Þess vegna hefur verið rætt pm
að færa þetta eitthvað niður. Menn
hafa nefnt að færa þetta niðuf í 70-
80%. Þetta er meðal þess sem hefur
verið rætt, en ég er ekki þar með að
segja að það verði gert. Þetta er allt
til skoðunar núna,“ sagði Alfreð.
Alfreð sagði að endanleg ákvörðun
um þetta yrði tekin innan fárra daga.
Verði eiginfjárhlutfall nýja orku-
fyrirtækisins lækkað með útgáfu
skuldabréfs getur borgarsjóður selt
það og bætt verulega peningalega
stöðu sína. Verði þessi leið farin mun
hún væntanlega hafa áhrif á greiðslu
afgjalds orkufyrirtækjanna í borgar-
sjóð, en þau hafa árlega greitt nokk-
ur hundruð milljónir í borgarsjóð.
Fjármálaráðherra á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga
Tekið verði upp formlegt
samstarf um efnahagsmál
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra sagði á ráðstefnu Sambands íslenskra
sveitarfélaga í gær að tímabært væri að ríki og sveitarfélög tækju upp samstarf
um efnahagsmál og öxluðu þannig sameiginlega ábyrgð á einu mikilvægasta
hagstjómartækinu, sem væri rekstrar-
Afhendingu á
dtryggðu raf-
magni hætt
LANDSVTRKJUN mun hætta af-
hendingu á ótryggðu rafmagni til al-
menningsveitna 3. desember. Skerð-
ing á afhendingu á afgangsorku til
stóriðju verður áfram í gildi eftir ára-
mótin eins og verið hefur í haust.
Þetta kemur fram í frétt Lands-
virkjunar í gær. Skerðingunni verður
aflétt eftir því sem vatnsbúskapur
Landsvirkjunar gefur tilefni til.
og fjárhagsafkoma hins opinbera.
Fjármálaráðherra og Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra gagnrýndu
báðir í ávörpum sínum á ráðstefn-
unni mikinn hallarekstur og skulda-
söfnun sveitarfélaga.
Geir sagði að ein nærtæk leið til
að koma á fót formlegu samstarfi
um efnahagsmál væri sameiginleg
markmiðssetning af hálfu ríkis og
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
þar sem annars vegar væri stefnt að
tilteknum afkomubata og hins vegar
að endurskoðun laga og reglna
varðandi málefni þar sem um gagn-
kvæma hagsmuni væri að ræða.
Geir tók fram að þetta væru enn að-
eins hugmyndir sem ekki hefðu ver-
ið til umfjöllunar í ríkisstjórninni.
Meðal dæma sem Geir tiltók um
sameiginleg hagsmunamál ríkis og
sveitarfélaga sem hefðu jákvæð
efnahagsleg áhrif var að fresta
greiðslum úr Jöfnunarsjóði sveitar-
félaga á góðæristímum og safna
fyrningum til þess tíma þegar
harðnar í ári.
Félagsmálaráðherra sagðist í
ræðu sinni telja vel koma til greina,
með tilliti til þenslu á sumum lands-
svæðum og mikillar skuldasöfnunar
sumra sveitarfélaga, að breyta
ákvæði grunnskólalaga sem kveður
á um að lokið verði einsetningu
grunnskólans árið 2002 og fresta
því um tvö eða þrjú ár.
Verkefnin færð til
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands íslenskra sveitar-
félaga, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sér litist ágætlega á hug-
mynd fjármálaráðherra. „Við höfum
verið að auka samstarf ríkis og
sveitarfélaga á mörgum sviðum á
undanförnum árum í þeim tilgangi
að takast sameiginlega á við þá
þætti sem snúa að ríki og sveitarfé-
lögum. Eg tel það góða hugmynd
hjá fjármálaráðherra að tekið verði
upp samstarf á þessum vettvangi og
mun að sjálfsögðu mæla með að svo
verði gert,“ sagði hann.
Vilhjálmur sagði að taka þyrfti
rekstrarumfang og tekjustofna
sveitarfélaganna til gagngerrar
endurskoðunar. Mikilvægt væri að
sveitarfélög tækju m.a. til skoðunar
hvaða verkefni þau gætu fært yfir
til einstaklinga, félagasamtaka og
stofnana.
■ Sívaxandi/10
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
H æfileikakeppni
grunnskóla
HÆFILEIKAKEPPNI grunn-
skóla var haldin í gærkvöldi í
Laugardalshöll og var það í ní-
unda sinn sem keppnin er haldin.
Innan skólanna hefur verið hald-
in forkeppni og voru bestu atriði
frá hverjum skóla sýnd í úrslitun-
um í gær, þar sem myndin er
tekin. Hvassaleitisskóli bar sigur
úr býtum.