Morgunblaðið - 09.01.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.01.1999, Qupperneq 1
6. TBL. 87. ÁRG. LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Aætlun um tilhögun réttarhalda í máli Clintons samþykkt Lokaákvörðun um vitnaleiðslur frestað Meirihluti öldungadeildarinnar þarf að samþykkja vitnastefnurnar Washington. Reuters. Reuters TRENT Lott, leiðtogi repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, og Tom Ðaschle, leiðtogi demókrata, skýra frá samkomulagi flokkanna um tilhögun réttarhaldanna í máli Bills Clintous forseta. OLDUNGADEILD Bandaríkja- þings samþykkti einróma í gær- kvöldi áætlun um tilhögun réttar- haldanna yfir Bill Clinton Banda- ríkjaforseta vegna ákærunnar á hendur honum til embættismissis. Fyrr um daginn höfðu forystumenn repúblikana og demókrata í öldunga- deildinni náð samkomulagi um áætl- unina. Samkvæmt henni er hugsan- legt að vitnum verði stefnt fyrir rétt- inn en það verður ekki ákveðið end- anlega fyrr en undir lok mánaðarins og meirihluti öldungadeildarinnar þarf að samþykkja vitnastefnurnar. Gert er ráð fyrir því að málflutning- urinn hefjist á fimmtudaginn kemur. Allir öldungadeildarþingmennirn- ir 100 samþykktu áætlunina og þingverði deildarinnar var falið að afhenda Clinton stefnu þar sem ákærunum og tilhögun réttarhald- anna er lýst. Forsetinn fékk frest til klukkan 17 á mánudag til að svara stefnunni. Trent Lott, leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, og Tom Daschle, leiðtogi demókrata, kynntu sam- komulagið á blaðamannafundi i þing- húsinu síðdegis í gær. Daschle sagði að forystumenn flokkanna væru „miklu bjartsýnni“ en áður á að rétt- arhöldin gætu farið fram án þess að þau einkenndust um of af deilum milli flokkanna. Samkomulagið náðist á tveggja klukkustunda fundi fyrir luktum dyrum í þinghúsinu eftir að viku- langar óformlegar samningaumleit- anir höfðu ekki borið árangur. Ping- menn sögðu að forystumenn flokk- anna hefðu að lokum áttað sig á að það væri báðum flokkunum fyrir bestu að réttarhöldin hæfust með sáttatón. „Það var mikill vilji til þess af beggja hálfu að tryggja að fram- ganga okkar í málinu yrði ekki öld- ungadeildinni til skammar,“ sagði þingmaðurinn Robert Bennett, repúblikani frá Utah. Málflutningur saksóknara taki 24 klukkustundir Clinton hefur verið ákærður íyrir að fremja meinsæri og leggja stein í götu réttvísinnar til að leyna kyn- ferðislegu sambandi sínu við Monicu Lewinsky, fyrrverandi starfsstúlku í Hvita húsinu. Ólíklegt þykir að öld- ungadeildin sakfelli forsetann og svipti hann embættinu, en til þess þarf tvo þriðju atkvæðanna. Samkvæmt samkomulaginu fær fulltrúadeildin, sem hefur falið 13 repúblikönum að annast saksóknina, alls 24 klukkustundir til að færa rök fyrir því að svipta beri Clinton for- setaembættinu. Gert er ráð fyrir að málflutningur saksóknaranna taki þrjá daga og hefjist á fimmtudag. Lögmenn forsetans fá síðan jafn langan tíma til að verja hann. Þingmenn öldungadeildarinnar fá 16 klukkustundir til að bera fram spurningar. Málsaðilarnh- fá síðan átta klukkustundir hvor til að ijúka málflutningnum. Atkvæði greidd um hvcrja stefnu fyrir sig Viiji málsaðilai'nir stefna vitnum fyrir réttinn þurfa þeir að gera grein íyrir ástæðunni og öldungadeildin þarf síðan að greiða atkvæði um hverja beiðni fyrir sig. Gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðslurnar hefjist 25. þessa mánaðar. Fjögurra manna nefnd, skipuð þingmönnum úr báðum flokkunum, á að setja reglur um vitnaleiðslurnar til að tryggja að þær dragist ekki á langinn og koma í veg fyrir að réttar- höldin verði „klámfengin“. Þingmenn sögðu að samkomulagið ætti að koma í veg fyrir miklar deilur milli flokk- anna um vitnaleiðslurnar og tryggja að réttarhöldin yrðu eins sanngjörn og mögulegt væri. ■ Hvíta húsið/26 Árásirnar á frak Ráðgjafar Saddams sagðir hafa fallið Washington. Reuters. BANDARÍKJAMENN sögðu í gær að upplýsingar sem leyniþjónusta þeirra hefði undir höndum gæfu til kynna að „fjölmargir" af helstu ráð- gjöfum Saddams Husseins Iraksforseta hefðu fallið í flug- skeytaárásum Breta og Bandaríkjamanna á írak í síð- asta mánuði. Sagði Henry Shelton, yfir- maður bandaríska heraflans, að árásirnar hefðu skaðað hernaðarmátt Saddams mun meira en talið var í fyrstu. Augljóst væri að fráfall ým- issa mikilvægra ráðgjafa og liðsmanna Lýðveldisvarðarins ylli Saddam miklum vandræð- um. Allt að 1.600 hermenn féllu Gat Shelton sér þess til að 600-1.600 liðsmenn Lýðveldis- varðarins, úrvalssveita íraska hersins, hefðu fallið í árásun- um og þúsundir til viðbótar særst. Bandaríski hershöfðinginn Anthony Zinni sagði að ýmis- legt benti til þess að Saddam hefði miklai- áhyggjur af því að hann væri að missa tangar- haldið á hemum. Hann hefði t.a.m. látið taka nokkra her- foringja af lífí í suðurhluta landsins, m.a. yfírmann hers- ins á svæðinu. ■ Fimm ríki sögð/26 Atök blossa upp að nýju í Kosovo Serbneskir lög- reglumenn falla Pristina. Reuters. ÞRÍR serbneskir lögreglumenn féllu og þrír óbreyttir borgarar særðust í skotbardaga í suðurhluta Kosovo í gær og óttast er að átökin í héraðinu magnist og nýtt stríð blossi upp. Sandy Blyth, talsmaður Örygg- is- og samvinnustofnunar Evrópu, sagði að lögreglumennimir hefðu fallið í bænum Suva Reka, 40 km suðvestur af Pristina, höfuðstað Kosovo. Þrír vegfarendur hefðu einnig særst í átökunum. Júgóslavneska fréttastofan Tanjug hafði eftir heimildarmanni í serbnesku lögreglunni að „hermd- arverkamenn" hefðu ráðist með handsprengjum á brynvarða bif- reið lögreglumannanna. Serbar nota yfirleitt orðið „hermdarverka- menn“ yfir skæraliða í Frelsisher Kosovo (KLA), sem berst fyrir sjálfstæði héraðsins. Upplýsingamiðstöð Kosovo-AIb- ana (KIC) sagði að serbneska lög- reglan hefði átt upptökin að átök- unum. Foringi í Frelsisher Kosovo sagði að serbneskir her- og lög- reglumenn hefðu ráðist á þorp á svæðinu og sært tvo menn af al- bönskum uppruna. „Gerist slíkt aftur getur KLA ekki ábyrgst að við getum haldið aftur af okkur.“ Hennenn teknir til fanga Liðsmenn KLA tóku einnig átta serbneska hermenn til fanga ná- lægt bænum Kosovska Mitroviea, um 35 km norðvestur af Pristina. Serbar kröfðust þess að mennimir yrðu leystir úr haldi fyrir klukkan 16.30 að ísl. tíma í gær en ekki var vitað hvort uppreisnarherinn hefði orðið við þeirri kröfu. Tanjug skýrði ennfremur frá því að lík ungs manns af albönskum upprana hefði fundist í suðurhluta Kosovo í gær. Óþekktir menn rændu honum á miðvikudag og skutu hann í höfuðið, að sögn frétta- stofunnar. Heimsókn Blairs mótmælt LÖGREGLAN í Höfðaborg beitti í gær táragasi og skaut gúmmí- kúlum til að dreifa múslimum, sem mótmæltu fyrstu heimsókn Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, til Suður-Afríku. Lög- reglan sagði að þrír hefðu særst en múslimarnir hefðu ekki kom- ist að bíl forsætisráðherrans, sem var á leið í opinbera athöfn í borginni þegar mótmælin hófust. Blaðakona talar hér í farsíma eftir að hafa orðið fyrir gúmmí- kúlu frá lögreglunni. Stjórn Suður-Afríku bað Blair afsökunar á mótmælunum áður en hann ávarpaði suður-afríska þingið í Höfðaborg. Gesturinn fagnaði afnámi kynþáttaaðskiln- aðarins í ræðu sinni og lauk lofs- orði á Afríska þjóðarráðið (ANC) fyrir að koma á lýðræði í landinu með friðsamlegum hætti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.