Morgunblaðið - 09.01.1999, Blaðsíða 62
1
£,62 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
_ fHVNELSkJteM/sT) -t&hún elskar/h/g \ BEKU / ? [ Þettx &érii? upp t/læ&ypT \JN6/ieiF/S/E>V/E>BEITlN4 }
. (( 1 , i’ /1-2.1 tlmM' í 4«i
Grettir
HVEZN/G G'ÁTU JÖLIN LIÐID SVONA FLJcrrr? Nt> VE&B ÚGÆ> PVRJA A£>Bie>AALVBS UPP> MytT 1 w I -
www.garfleld.com tffXvH/le, /226
Smáfólk
Og keypt-
irðu
hanskana
handa
henni?
Auðvitað... ég
seldi allt teikni-
myndabókasafnið
mitt til að fá pen-
ingana...
THEN I MET HER
IN THE 5TORE, ANP
5HE 5H0UJEP ME THE
NEU) PAlR OF 6L0VE5
SHE'D JU5T B0U6HT!
Síðan hitti ég hana í
búðinni og hún sýndi
mér hanskana sem hún
var nýbúin að kaupa!
WELl.
THEY
60 TO
AT LEA5T
PIPN'T
UUA5TE..
12-13-17
Svo að þú ætl- Hvers vegna
ar ekki að að gefa henni
gefa henni eitthvað sem
hanskana sem hún á nú þeg-
þú keyptir? ar?!
Jæja, þeir voru þó
ekki til ónýtis...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Eru 99 krónur í þínum
hundraðkalli?
Frá Karli H. Jósafatssyni:
MARGIR hugsa með tilhlökkun til
þess að aldamót nálgast og eru þeg-
ar farnir að skipuleggja hvernig
þeir ætla að fagna nýrri öld. Ein-
hverjir ætla þó greinilega að taka
forskot á sæluna og halda upp á
aldamótin strax um næstu áramót,
einu ári of snemma. Vandamálið er
að 20. öldin er aðeins 99 ára þegar
árinu 1999 lýkur. Nú hugsa eflaust
margir sem lesa þetta að ég hljóti
að vera eitthvað ruglaður, er ekki
komin ný öld þegar árið 2000 renn-
ur upp, eða hvað? Ein leið til að út-
skýra að árið 1999 er ekki síðasta ár
20. aldar er að líkja öldinni við
hundraðkall. Hugsaðu þér að þú
sért að greiða fýrir vörur í búð með
hundraðköllum þegar afgreiðslu-
maðurinn segir við þig: „Því miður,
það eru bara 99 krónur í þessum
hundraðköllum, þú verður að borga
meira.“ Þú myndir eflaust horfa for-
viða á manninn og flýta þér út úr
búðinni.
Nú um áramótin tók ég eftir að
margir vilja fara eins að með 20.
öldina og snuða hana um eitt ár, þar
á meðal ritstjóri DV sem hélt því
fram í leiðara 2. janúar að nú væri
síðasta ár aldarinnar hafíð. Einnig
kemur sama fullyrðing fram á for-
síðu vikublaðsins Séð og heyrt.
Þetta er svo sem eðlilegt vegna þess
að fólki finnst ártalið 2000 vera svo
merkileg tala að ný öld hljóti að
vera hafin þegar öll þessi núll birt-
ast á dagatalinu. En því miður þá er
þetta alger misskilningur. Aldamót-
in sem margir bíða svo spenntir eft-
ir eru ekki fyrr en í lok ársins 2000.
Þetta er ekki spuming um skoðun
heldur bláköld staðreynd. í árslok
1999 era aðeins liðin 99 ár af öld-
inni. Er nokkur sem les þessa grein
tilbúinn að halda því fram að 99 ár
séu í einni öld? Hingað til hefur
hver öld fengið að hafa sín 100 ár í
friði. Fyrsta öldin byrjaði á ári
númer 1 og endaði þegar árið 100
var búið, næsta öld hófst í byrjun
ársins 101 og henni lauk í árslok ár-
ið 200. Við getum borið síðustu 20
aldir saman við 20 hundraðkalla. Ef
þú leggur þessa hundraðkalla á
borð fyrir framan þig og telur svo
krónurnai', þá er augljóst mál að
það eru 2000 krónur í þessum 20
hundraðköllum, ekki 1999 krónur.
Hið sama gildir um aldimar, 20.
öldin hófst í byrjun ársins 1901 og
hún endar í lok ársins 2000. Hugs-
anlega er best að útskýra þetta með
því að vísa í töfluna hér að neðan.
Hver dálkur inniheldur 100 tölur,
þannig að fyrsti dálkurinn getur
hvort sem er átt við fyrsta hundrað-
kallinn eða fyrstu öldina. Dálkurinn
sem hefst á tölunni 1901 er 20. dálk-
urinn, vegna þess að dálkarnir 19
sem á undan eru komnir innihalda
alls 1900 tölur. Dálkurinn sem hefst
á tölunni 2001 er 21. dálkurinn og
við getum þá hugsað okkur að hann
samsvari 21. öldinni. Eg vona að
þeir sem hafa staðið í þeirri trú að
aldamót renni upp um næstu ára-
mót taki því ekki illa þó að þeim sé
bent á að þeir hafa haft rangt fyrir
sér. Það er eðlilegt að tala um árið
2000 sem aldamótaár, svo framar-
lega sem fólk gerir sér grein fyrir
að aldamótin koma í lok ársins 2000
en ekld í byrjun þess. Hér skipta
hártoganir eða skoðanir engu máli,
það er sama hve margir vilja trúa
því að minna en ár sé í næstu alda-
mót, ekkert getur breytt þeirri
staðreynd að 21. öldin hefst ekki
fyrr en 1. janúar árið 2001.
1 101 1901 2001
2 102 - 1902 2002
3 103 1903 2003
98 198 1998 2098
99 199 1999 2099
100 200 2000 2100
KARL H. JÓSAFATSSON,
eðlisfræðingur, Hverafold 28.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.
Póstsendum samdægurs
T
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SlMI 552 1212
Loðfóðraðir gönguskór m/Skandia-Tex
Litir: Svartur m/grænu
Stærðir: 41 -46
Teg.: 3107