Morgunblaðið - 09.01.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999 67
í DAG
íslendingar í fjölþjóðabekk í Svíþjóð
9 ára krakkar
gefa út geisladisk
► SINDRI Jóhannsson og
Sandra Guðnadóttir ganga í
Humlebo-skólann í borginni
Lundi í Suður-Svíþjóð. Fjöl-
margir íslenskir krakkar, sem
eiga foreldra við háskólanám
þar, hafa gengið í þennan
skóla.
Sindri og Sandra eru níu ára
og eru í bekk með krökkum
sem koma frá allt að fimmtán
ólíkum löndum. Nýlega gaf
bekkurinn út geisladisk þar
sem börnin syngja lög frá þess-
um löndum, og er lagið „Á
Sprengisandi“ þar á meðal,
sungið bæði á íslensku og
sænsku. Margir mættu í út-
gáfuteitið; kennarar, skyld-
menni og jafnvel stjórnmála-
menn, og eru krakkarnir mjög
ánægðir með viðtökurnar, en
diskurinn seldist strax í 1.500
eintökum. Sigurlaug Ragnars-
dóttir, mamma Sindra og
Söndru, segir pabba eins
stráksins í bekknum hafa feng-
ið þessa snjöllu hugmynd þar
sem hann á hljóðver. „Mér
finnst að kennarar og skólar
ættu að grípa þessa hugmynd á
lofti, því það er svo margt
hægt að gera skemmtilegt og
nytsamlegt með börnunum.
Þeim finnst þetta mjög gaman
og svo rennur ágóðinn allur til
styrktar góðgerðarstarfsemi,
þ. á m. til dýra í útrýmingar-
hættu.“
Diskurinn heitir „Söngvar-
arnir“ og fæst á íslandi í Japis
í Brautarholti.
A bak jólum
ÞÁ er hinum árlegu jóla-
sveina- og flugeldasýningum lok-
ið með slíkum tilþiifum að við
erum farin að selja túristum
flugeldaskotin, en nokkuð vantar
enn á að við séum farin að skjóta
jólasveinum eins og flugeldum,
en það kemur, það kemur. Við
þurfum aðeins að læra að klæða
þá betur, enda veit enginn hvað-
an þeir tötrar eru komnir, sem
þeir eru skrýddir með af þeim
sem halda að þeir séu þjóðlegir í
hverri grein; jafn-
vel þjóðbúningi
karla, sem hefur
enginn sérstakur
íslendinga og annarra norræna
manna við átta hundruð eftir
Rrist. Ásalandið var til a.m.k.
sextán þúsund árum fyrir Krist,
item múmíur hvítra manna í
Kína, sem hafa komið Silkiveg-
inn svonefnda til grafarróar
sinnar. Allur þessi þekkingar-
hernaður er fenginn frá mesta
landkönnuði samtímans og nú
verða lærðir menn á Islandi að
þegja fast og lengi.
Annar Norðmaður, Knut
Hamsun, var
sýndur í kvik-
LAUGARDEGI mynd á Stöð 2
SJONVARPA
verið fýrr en poppari fékk hug-
ljómun, ásamt nokkrum silfur-
hnöppum, sem í þjóðsögum voru
notaðir til að skjóta niður
drauga, og sneið mönnum þjóð-
búning. Síðan hafa íslenskir
kai-lmenn orðið að athlægi allt til
Washington í vestri fyrir að
ganga í færeyskri múnderingu.
Fleira hefur birst okkur um
þessi jól en nauðsyn þess að fara
að skjóta jólasveinum á loft eins
og flugeldum nema þessum
rauðklædda Nikulási, sem er
innfluttur ásamt hreindýrasúpu
frá Ameríku. Hingað kom sjálfur
Heyerdahl norski, síðasti stóri
landkönnuðurinn í heiminum, og
fræddi okkur á því, að við vær-
um runnin upp úr Azerbaydzh-
an, eða frá Ásalandi, eins og
þetta gamla ríki í Sovétríkjunum
hét í kórréttri þýðingu frá örófi
alda og heitir enn. Þessu skaut
sem sagt gesturinn inn í
Þymirósarsvefn Handritastofn-
unar, sem miðar tímatal tilvistar
íyrir jólahelgina.
Hann var mikill könnuður á sviði
andans, eins og landi hans,
Heyerdahl, á sviði þekkingar og
rannsókna. Hamsun lenti illilega
upp á kant við norsku þjóðina
með hjálp nokkurra haturs-
manna og öfgasinna, svo ekki
munu finnast önnur dæmi um
meira mannhatur nema hjá mú-
hameðstrúarmönnum, sem
dæmdu höfund réttdræpan seint
á tuttugustu öld. Grófar lygar,
mannorðsþjófnaður og hrein
manndráp á þessari öld af völd-
um pólitískra spekúlanta hafa
aftur á móti hvergi þótt ámælis-
verð í neinum sérstökum mæli.
Hamsum var talinn fylgjandi
nasistum, en um leið og þeir fóru
að drepa gísla snerist hann gegn
þeim. Fjölmargir leituðu til hans
að biðja um líf einhvers nákom-
ins, en Terboven og þeir karlar
neituðu bónum hans. Þá lagði
hann á sig ferð til Hitlers. Sá
fundur endaði með því að vinir
Hamsuns hröðuðu ferð hans úr
landi af ótta við að Hitler léti
drepa hann. Norska þjóðin lét
hann finna fyrir því seinna að
hann hefði stutt nasista og lætur
hann finna fyrir því enn. En
starfsbræður hans víða um heim,
sem studdu ofbeldspólitík tutt-
ugustu aldar sitja eftir með
pálmann í höndunum með þá
þægilegu tilfiningu að við þá
verður aldrei neitt sagt meðan
helsti höfundur germanskur
liggur óbættur hjá garði.
Hér heima voru sýnd tvö leik-
verk eftir íslenska menn og
vöktu bæði athygli og viðbrögð
nokkuð óvenjuleg í því hallelú-
jalandi, sem Island er orðið
hvenær sem talið berst að
menningu. Annað verkið var
eins konar stóðhestagloría eftir
Hrafn Gunnlaugsson; fallega
tekin mynd hvað alla tækni
snerti. Sú saga fylgdi að klippt
hefði verið úr nokkui’t atriði
með hestum, sem er ótrúverð-
ugt enda Hrafn kjarkmaður.
Hann hélt rúmsenunni inni.
Kannski hefði ráðið úrslitum
hefðu folinn og hryssan verið f
rúmi. Hin myndin var eftir Egil
Eðvarðsson um svonefnt Sól-
borgarmál. Mun þetta í þriðja
sinn sem Sólborgarmál er tekið
til kostanna af skáldum. I hin
tvö skiptin fór það með himin-
skautum, en í þetta sinn bar það
öll merki þess að það hefði verið
tekið til skáldskapar. Hafi raun-
verulegar persónur verið á bak
við önnur en sagan í heild, þá
passar ekkert við raunveruleik-
ann í leikritinu.
Indriði G. Þorsteinsson
AUKAKÍLÓIN BURT!
Skráning er hafin í átakshópinn
„Bætl heilsa - Betra líf“ sem fer af stað á mánudag.
Eina skílyrðið til þátttöku er að vilja
kveðja aukakílóin tyrir fullt og allt!
Skráning í síma 862 8416
D A G S K R A
My rk ir
m usíkdagar
- 2 5 , j a n lí a r 17??
Laugardagur 7. jarniar
Salmiim í Kópavogi kl 17:30
ÍMueyski karrwierhúpminn Aldubaran
Mánudagnr II. jaruíar
Salminn í Kópavogi kl 20:30
Sigrún l’övaldsdóltir og Sriorri Sigfús
Birgisson
Þriðjudagur 12. janúar
Salm inn í Kópavogi kl. 20:30
Arnaldur Arnarsson gítarleikar i
Miðvikudagur 13. janúar
Salurinn r Kópavogi kl. 20:30
Kinnm Bjarnason og Orn Magmíssori
Föstudagur 15. janúar
HAk<nabiö kí. 20:00
Sinióníuhljórnsveit Islands
Laugardagur 16. janúar
Gerðuberg kl. 16:00
Blásarakvintett Reykjavíkur
Laugardagur 16. janúar
Gerðuberg kl. 17:00
Málþing urn Jón Leifs
Sunnudagur 17. janúar
Salminri í Kópavogi kl. 20:30
Karnrnerhópurinn ( arnerau tita
Miðvikudagur 20. janúar
Salurinn í Ktípavogi kl. 20: 30
Guðriín Birgisdóttir, Martial Nardeau,
Kolbeinn Bjarnason og Asbildur
Haraldsdóttir,
Pöstudagur 22. jauúar
Ijarnarbíó kl. 20:30
Ævintýratónleikar
l augardagur 2 3. jatiúar
Seltjarnarneskirkja kl. 20:30
Blásarasveit Rey kjavíkur
Sunnudagur 24.janúar
Salminn i' Kópavogi kl. 20:30
Kamrnersveit Reykjavíkur
Ma'nudagur 25 janúar
.Salurimi í KópaVógi kl. 20:30
Harnrablíðarkórinn
Mibosala við uinganginn
TÓNSKÁl D A l- !• 1 AG
ÍSl ANDS