Morgunblaðið - 09.01.1999, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Evrópuþingmenn krefjast afsagnar tveggja meðlima framkvæmdastjórnar ESB
Misferlisásakanir þrengja
að framkvæmdastjórninni
TILLAGA um vantraust á fram-
kvæmdastjóm Evrópusambandsins
(ESB) verður borin upp á Evrópu-
þinginu (EÞ) á mánudag. Hvatinn að
tillögunni eru ásakanir um að með-
limir framkvæmdastjómarinnar
hefðu gerzt sekir um fjármálamis-
ferli og spillingu. Eftir að formenn
stærstu þingflokkanna mæltust á
fímmtudag báðir til þess að þing-
menn greiddu tillög-
unni ekki atkvæði þyk-
ir ljóst að hún muni
falla um sjálfa sig.
Flokksagi er þó mun
minni í þingflokkum
Evrópuþingsins en
tíðkast á þjóðþingum
og í gær lýstu þing-
menn úr næststærsta
þingflokknum því yfír,
að segi þeir tveir með-
hmir framkvæmda-
stjómarinnar sem mis-
ferlisásakanimar hafa
einkum beinzt gegn
ekki af sér, muni þing-
mennimir styðja van-
traust á framkvæmda-
stjómina í heild.
Að til svo alvarlegs
ágreinings milli þings
kvæmdastjórnar skuli koma í upp-
hafi síðasta skipunarárs hinnar 20
manna framkvæmdastjómar helgast
líklega að hluta til af því, að í júní
næstkomandi fara fram kosningar til
Evrópuþingsins, sem veldur því að
hinar mismunandi flokkafylkingar
sjá sér hag í því að láta að sér kveða
með þessum hætti.
Vantrauststillagan sem þingmenn
úr röðum stærsta þingflokksins, jafn-
aðarmanna, bera upp, á formlega
upptök sín í ásökunum um að nokkrir
meðlimir framkvæmdastjórnarinnar
og embættismenn hennar séu ábyrg-
ir fyrir sóun á fé sambandsins, að
hygla vinum og vandamönnum með
stöðuveitingum og vel borguðum
verkefnum og fleiru í þeim dúr.
Til að gera framkvæmdastjóminni
skylt að víkja þarf vantrauststillaga
að hljóta samþykki að minnsta kosti
tveggja af hverjum þremur fulltrúum
á þinginu. Afstaða stærstu þingfiokk-
anna, jafnaðarmanna (214 fulltrúar)
og kristilegra demókrata (202 fulltr.)
hefur því úrslitaáhrif á útkomuna.
Pauline Green, þingflokksformað-
ur jafnaðarmanna, lagði vantrausts-
tillöguna fram í síðasta mánuði, en
sagðist sjálf myndu styðja fram-
kvæmdastjórnina. Atkvæðagreiðsla
Ljóst þykir, að vantrauststillaga á fram-
kvæmdastjórn ESB, sem borin verður upp
á mánudag, verði felld. En pólitískar af-
leiðingar umræðunnar um hana, skrifar
Auðunn Arnórsson, gætu orðið erfiðar.
Jacques
Santer
Manuel
Marin
Edith
Cresson
Paul van
Buitenen
og fram-
um slíka tillögu væri hins vegar
nauðsynleg til að endurreisa traust á
stjómina, sem stendui' frammi fyrir
mörgum krefjandi verkefnum.
En jafnvel þótt tilskilinn meiri-
hluti styddi tillöguna hefði það í raun
ekki aðrar afleiðingar en þær að
veikja framkvæmdastjórnina póli-
tískt. Hún yrði að vísu að segja af
sér en myndi sitja áfram sem starf-
stjóm unz eftirmenn núverandi með-
lima yrðu skipaðir. Þar sem skipun-
arferlið er þungt í vöfum má reikna
með því að starfstjórnin yrði hvort
eð er að sitja út árið. Og að veikja
framkvæmdastjórnina núna, þegar
mjög mikilvæg verkefni eru
framundan við uppstokkun á innvið-
um sambandsins og samningavið-
ræður við væntanleg ný aðildarríki í
austri, væri um það bil það versta
sem hent gæti ESB.
Cresson og Marin
aðalskotmörkin
Spillingarásakanimar beinast aðal-
lega að tveimur meðlimum þess teym-
is sem Santer fer fyrir; hinni frönsku
Edith Cresson og Spánverjanum
Manuel Marin. Cresson er fyrrver-
andi forsætisráðherra Frakklands og
fer með málefni rannsóknasamstarfs
og er sökuð um að hafa útvegað vinum
og vandamönnum vel borgaðar stöður
og verkefni á vegum ESB, en Marin
fór með þróunaraðstoðarmál á því
tímabili sem ásakanir eru uppi um að
stundað hafi verið misferli með fé sem
átti að fara í þróunaraðstoð.
„Ef Marin og Cresson segja ekki af
sér munum við greiða atkvæði gegn
framkvæmdastjórninni," hótaði Ingo
Friedrich, þýzkur meðlimur Evrópu-
þingflokks kristOegra demókrata.
Cresson sagði í viðtali við Reuters
í gær að hún hefði ekkert gert af sér
og ekki kæmi til greina að hún segði
af sér. Hún sagði ásakanirnar ekki
vera annað en viðurstyggilega áróð-
ursherferð gegn sér.
í stofnsáttmála ESB er ekki gert
ráð fyrir að EÞ geti lýst vantrausti á
einstaka meðlimi framkvæmda-
stjóiTiarinnar. „Framkvæmdastjóm-
in vinnur sem eining . . . Sjálf hug-
myndin um vantraust á einstaka
meðlimi er óraunhæf. Annað hvort er
öll framkvæmdastjómin fjarlægð eða
ekkert er gert,“ sagði talsmaður
framkvæmdastjómarinnar. Hún tók
fram að til væm aðrar þar til ætlaðar
leiðir til að svipta einstaka meðlimi
framkvæmdastjórnarinnar embætti,
ef þeir hefðu raunverulega gerzt sek-
ir um vítaverð embættisafglöp.
En það era ekki aðeins gamlar
syndir Cresson og Marins sem fara
fyrir brjóstið á þingmönnum á Evr-
ópuþinginu; viðbrögð Santers og
framkvæmdastjómarinnar við at-
hugasemdum þingsins hafa einnig
reitt menn til reiði.
Nýjasta dæmið um þetta er tíma-
bundinn brottrekstur embættis-
manns, í innra eftirliti framkvæmda-
stjórnarinnai'. Maðurinn, Hollend-
ingurinn Paul van Buit-
enen, hafði komið skjöl-
um í hendur þingmanna
græningja þar sem fram
koma dæmi um hvernig
framkvæmdastjómin
hafi reynt að breiða yfir
misferli.
Santer lýsti því yfír á
blaðamannafundi á mið-
vikudag að brottrekstur
van Buitenens væri rétt-
mætur þar sem hann
hefði brotið starfsreglur
og breitt út „stoðlausar
sögusagnir“. En Santer
viðurkenndi að fram-
kvæmdastjórnin hefði
átt við afmörkuð
„vandamál" að stríða í
fjármálastjórnun. Nú
horfði allt til betri vegar og til stæði
að að setja strangar hegðunarreglur
fyrir framkvæmdastjómina.
Sumum þingmönnum þótti Sant-
er sýna takmarkaða virðingu fyrir
lýðræðislegum leikreglum, þegar
hann tilkynnti að framkvæmda-
stjórnin myndi ekki segja af sér ef
tilskilinn tveggja þriðju hluta
meirihluti næst ekki fyrir van-
trausti. Með þessu hafi hann gefið
til kynna, að „þingið geti gelt eins
og því sýnist,“ það myndi ekki hafa
nein áhrif á starf framkvæmda-
stjórnarinnar.
Liður í endurkjörsbaráttu?
Margir þingmenn era ósáttir við
viðbrögð Santers eftir að þingið
hafði neitað að leggja blessun sína
yfir reikninga ESB fyrir árið 1996
18. desember síðastliðinn, en það er
upphafið af þeim hnút sem samskipti
ESB-stofnananna tveggja eru nú
komin í. Sagði Santer að gæfi þingiði
ekki samþykki sitt ætti það að vera
samkvæmt sjálfu sér og bera bara
strax upp vantrauststillögu. Segja
gagnrýnendur að hann hafi gefið til
kynna að sér væri ekki umhugað um
að finna lausn á hinu tiltekna vanda-
máli, heldur aðeins um að liðsheildin
héldi velli.
Danir og Svíar
ræða evruna
Stokkhólmi, Kaupmannahöfn. Reuters.
GILDISTAKA evrannar hefur vakið
upp mikla umræðu í Danmörku og
Svíþjóð um það, hvort Danir og Sví-
ar eigi að gerast aðilar að hinni nýju
mynt.
Göran Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, hefur
ákveðið að afstaða
verði tekin tii máls-
ins á flokksþingi
jafnaðarmanna,
sem fara með
stjóm landsins, í
upphafi næsta árs.
Er það níu mánuð-
um fyrr en áætlað hafði verið. Persson
vildi í viðtali við sænsku fréttastofuna
TT ekki tjá sig um það hvenær kynni
að verða efnt tii þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið. „Eg vil ekki ákveða
neina dagsetningu varðandi þjóðarat-
kvæðagreiðslu. I mínum huga skiptir
mastu máli þessa stundina að rétt sé
farið með málið innan Jafnaðarmanna-
flokksins,“ sagði Persson.
Að mati flestra er sú ákvörðun að
færa flokkþingið frá september fram
í janúar tekin til að hægt verði að
halda hugsanlega þjóðaratkvæða-
greiðslu fyiT. Erik Asbrink fjármála-
ráðherra og Anna Lind utanríkisráð-
herra hafa bæði
lýst því yfir að
æskilegt væri að
afstaða Svía lægi
fyrir áður en þeir
taka við for-
mennsku í ráð-
herraráði ESB í
byrjun næsta árs.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun,
sem B0rsen birti í gær, myndu 50%
Dana greiða atkvæði með aðild að
evrunni ef þjóðaratkvæðagi'eiðsla
yrði haldin nú. 32% kjósenda voru
hins vegar á móti því að taka upp
evru sem gjaldmiðil. Þetta er átt-
unda könnunin af níu sem sýnir að
meirihluti kjósenda vill taka upp
hinn samevrópska gjaldmiðil.
Sögulegur fundur
JÓHANNES Páll páfi tók í gær á
móti forsætisráðherra Ítalíu,
Massimo D’Alema. D’Alema er
fyrrverandi meðlimur kommún-
istaflokksins en kaþólska kirkjan
útskúfaði kommúnistum úr
kirkjulegu samfélagi árið 1948.
D’Alema varð forsætisráð-
herra í október sl. en ríkisstjórn
hans er sú fyrsta í hálfa öld sem í
sitja fyrrverandi marxistar.
Kommúnistar á Ítalíu hafa löng-
um hæðst að kaþólsku kirkjunni
og gagnrýnt Páfagarð fyrir að
vera hluti hins spillta flokks
kristilegra demókrata. Þykir
fundurinn marka tímamót og
sýna vilja Páfagarðs til sátta.
Stúdentar
skotnir í
óeirðum
TVEIR stúdentar voru skotn-
ir til bana af lögreglu þegar
átök bratust út eftir mót-
mælagöngu
háskóla-
fólks í Jak-
arta í Ind-
ónesíu.
Fregnir
herma að
lögregla
hafi hafið
skothríð að
fólkinu eftir
að nokkrii'
stúdentar
höfðu ráðist
inn á nær-
hggjandi
lögreglu-
stöð og búðir og framið þar
skemmdai'verk. Ofriður hefur
ríkt í Indónesíu síðastliðna
mánuði vegna efnahagslegra
erfiðleika og pólitískrar spill-
ingar. Milljónir manna lifa
undir fátæktarmörkum og
undanfarið hefur mikið borið
á kynþátta- og trúarbragða-
deilum.
Anwar kærir
Mahathir
FYRRVERANDI fjármála-
ráðherra Malasíu, Anwar
Ibrahim, kærði í gær forsæt-
isráherra landsins, Mahathir
Mohamad, vegna áverka er
hann hlaut eftir barsmíðar
lögreglumanna 20. september
síðastliðinn. Hann sagði for-
sætisráðherrann ábyrgan fyr-
ir ósæmandi hegðun lögregl-
unnar.
Pillan án
aukaverkana
MILLJÓNIR kvenna sem
tekið hafa getnaðarvarnarpill-
una síðastliðna fjóra áratugi
geta nú andað léttar. Niður-
stöður 25 ára langtímarann-
sóknar sem gerð var í
Englandi sýna að pillan hefur
engar langvarandi aukaverk-
anir. Er þetta stærsta rann-
sókn sinnar tegundar er
framkvæmd hefur verið. En
alls var fylgst með 46.000
konum frá því um miðjan sjö-
unda áratuginn. Meginniður-
staðan er sú að 10 árum eftir
að konur hætta að nota pill-
una, era líkumar á því að fá
banvænan sjúkdóm þær sömu
og hjá þeim er aldrei tóku
hana að staðaldri.
Rithöfundur
leitar hælis
í Noregi
NORSK frelsissamtök til-
kynntu í gær að íranskur rit-
höfundur, Mansoui' Koushan,
hefði sótt um pólitískt hæli í
Noregi. Tveir félagar Kous-
hans vora meðal pólitísku and-
ófsmannanna er fyrir stuttu
vora skotnir í Iran. Hann er
sagður í hættu muni hann
snúa aftur til írans. Koushan
er einn af sex mönnum sem
reyndu í fyira að endurvekja
bönnuð samtök óháðra skálda
sem hafa verið athvarf vinstri-
sinnaðra og ffjálslyndra rit-
höfunda í áraraðir.