Morgunblaðið - 09.01.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999 37
MARGMIÐLUN
Nýttur dauður tími
Fyrir þá sem eru á ferð og flugi skiptir æ
meira máli að geta nýtt dauðan tíma í flug-
stöðvum og -vélum. Arni Matthíasson tók
nýja fartölvu frá AST með sér í skottuferð
til Bretlands og líkaði vel.
9. Knockout Kings
10. Test Drive 3
PC-tölvur
1. Need for Speed III
2. FIFA 99
3. Tímaflakkarin
4. Half Life
5. Championship Manager
Iceland
6. Need for Speed II
7. Commandos
8. Mulan Mahjong
9. Dune 2000
10. Carmageddon
Nintendo 64
1. Zelda 64
2. Mission Impossible
3. Goldeneye
4. Banjo Kazooie
5. Turok 2
6. V-Rally
7. F1 World Grand Prix
8. Fzero X
9. Silicon Valley
10. Holy Magic Century
FARTÖLVUR verða sífellt algeng-
ari hjálpartæki og gott er að grípa til
slíkra tóla á ferð og flugi, á dauðum
tíma í flugstöðvum og -vélum. Til
þess að það sé unnt þarf viðkomandi
tölva að hafa kosti sem fljótt á litið
eru ósamstæðir; hún
þarf að vera lítil og nett
með góðri endingu á
rafhlöðum og á hinn
bóginn verður hún að
vera með stórum og
björtum litaskjá, góðu
lyklaborði og
öflugum ör-
gjörva. Und-
anfarna
mánuði hefur
verið mikil og ör þróun í fartölvum
og óhætt að spá því að sú þróun eigi
eftir að verða mun örari á næstu
misserum, því það eru margir um
hituna.
Mikið er að gerast hjá AST-tölvu-
framleiðandanum, sem er hluti af
Samsung-samsteypunni, og nokla-ar
nýjar fartölvur komu á markað fyrir
stuttu. Þar var á meðal meðfærileg
fartölva, AST Ascentia SN6000. Sú
er þynnri en gengur og gerist með
slíkar tölvur, innan við þrír senti-
metrai- að þykkt, en traustbyggð,
með ágætis skjá og lyklaborð og
góða endingu á rafhlöðum. Hún er
tæp 2 kg að þyngd. Ekki er inn-
byggt disklinga- eða geisladrif í tölv-
una.
Vélin sem reynd var er 266 MHz
Pentium II en hægt er að fá 300
MHz. Skjárinn er 12,1“ SVGA TFT
Active-Matrix og skjákortið ATI Ra-
ge LT Pro með 4 MB minni. Harður
diskur í tölvunni er 4 GB. Lykla-
borðið er þægilegt í notkun, þó sinn
tíma hafi tekið að venjast uppsetn-
ingunni. Svörun i lyklunum er piýði-
leg og hægt að ná talsverðum hraða.
A vélinni er snertiflötur fyrir bend-
ilsstýringu og tveir hnappar ofan við
flötinn. Hann er þægilegur í notkun,
þó tíma taki að verða eins nákvæmur
með hann og músina.
Tölvunni íylgja 32 MB af innra
minni, sem virtist kappnóg; að minsta
kosti var engin sérstök umferð á
harða disknum þegar verið var að
nota forrit úr Office-vöndlin-
um. (Það er reyndar nokkuð
sem fartölvunotendur ættu
að hafa í huga; séu þeir með
Windows 95 á tölvum sínum
(eða 98) borgar sig að vera
með ríflegt minni til að
minnka umferð á
harða disknum, því
það eyðir miklu af
rafhlöðunum.)
Tölvur álíka gerðar endast yfirleitt
frá tveimur upp í þrjá tíma á hleðslu
og AST-vélin var á því svæði þó ekki
væri það mælt vísindalega. I henni er
liþíumrafhlaða og entist að minnsta
kosti í nokkuð samfelldri vinnu í
flugi frá Keflavík til Lundúna.
AST Ascentia SN6000 er prýðileg
fartölva, meðfærileg og traust. Tölv-
unni fylgdi utanáliggjandi disklinga-
drif og hægt er að fá utanáliggjandi
geisla- eða DVD-drif fyrir hana.
Hver verður síðan að meta fyrir sig
hvort hann telji þörf á þessu tvennu
innbyggðu, en fyrir þá sem vilja bara
vinna er AST Ascentia SN6000 góð-
ur kostur á prýðilegu verði. EJS hef-
ur umboð fyrir AST-tölvur.
1 LACOSTE BOLIR
1 fienu
GARÐURiNN
-klæðirþigvel
KRINGLUNNI
í GÓDU EGLU
BOKHALDI...
STEMMI
STÆRÐIN LIKA!
R
Lll
Egla bréfabindin fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins
ROÐ 06 REGLA
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Sími: 562 8500
Símbréf: 552 8819
INTEL PENTIUM II
56 BAS
FAX MÓTALD
4.3 GB
HARÐUR DISKUR
3D SKJAKORT
64« IVIB
INNRA MINNI
UMHVERFISHLJOMUR
4.HÁTALARAR & BASSABOX,
BT • Skeifunni 11
Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarfirði • Sími 550 4020