Morgunblaðið - 09.01.1999, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 569 1181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 9. JANUAR 1999
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Vínar-
veisla Sin-
- fóníunnar
VÍNARTÓNLEIKAR Sinfóníu-
hljómsveitar Islands, sem jafnan
eru vinsælustu tónleikar hljóm-
sveitarinnar, voru haldnir í
Laugardalshöll í gærkvöldi.
Talar sumt tónelskt fólk um
þrefalda hátíð á þessum árs-
tíma, jól, áramót og Vínartón-
leika. Að þessu sinni höfðu fé-
lagar í hljómsveitinni annað til-
efni til að kætast og klæða sig
uppá því fyrr í vikunni fékk Sin-
fóm'an vilyrði fyrir nýjum heim-
kynnum í tónlistarhúsi í mið-
borginni.
, if, Vínartónleikarnir verða end-
urteknir í Laugardalshöll í dag
kl. 17 og í íþróttahúsinu á Egils-
stöðum á morgun kl. 16.
Flugleiðir selja Þyrpingu hótel sín í Reykjavík
Kaupverð nemur
tveimur milijörðum
FASTEIGNAFYRIRTÆKIÐ Pyrp-
ing, sem er í eigu fjölskyldu Pálma
Jónssonar, stofnanda Hagkaups,
hefur keypt Hótel Esju og Hótel
Loftleiðir af Flugleiðum hf. Kaup-
verð bygginganna nemur 2 milljörð-
um króna sem greiðist upp á næstu
vikum. Samhliða sölusamningi, und-
irrituðu forsvarsmenn félaganna
einnig langtíma leigusamning sem
felur í sér að Flugleiðir leigja bygg-
ingarnar af Þyrpingu næstu 15 árin
og sjá áfram um rekstur hótelanna.
Kaupþing hf. hafði milligöngu um
viðskiptin og hefur umsjón með
lánsfjármögnun fyrir hönd Þyrping-
ar.
Bókfært verð eignanna tveggja í
reikningum Flugleiða er nú rúmlega
700 milljónir króna, sem er 1.300
milljónum króna undir söluverði.
Eykur svigrúm í flugrekstrinum
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, segir sölu eignanna bæði
koma til með að styrkja Flugleiðir
fjárhagslega auk þess sem svigrúm
móðurfélagsins til áframhaldandi
uppbyggingar í flugrekstri og ferða-
þjónustu eykst. „Með sölu hótelanna
eykst bókfært fé Flugleiða um 20%.
Samhliða söluhagnaði vegna þessara
viðskipta þá gerum við einnig ráð
fyrir jákvæðri rekstrarstöðu á ár-
inu.“
Sigurður Gísli Pálmason, einn af
eigendum Þyrpingar, segir kaupin í
gær samræmast vel markmiðum
fyrirtækisins um að hasla sér völl á
fasteignamarkaði, jafnframt því sem
félagið hafí mikla trú á vexti og við-
gangi ferðamannaþjónustu á Is-
landi.
■ Greiða fyrir/22
Morgunblaðið/Ásdís
Samkomulag í sjávarútvegsnefnd um breytingar við kvótafrumarp
Trillukarlar geti valið
um mismunandi leiðir
FULLT samkomulag náðist í gær innan stjómar-
meirihlutans í sjávarútvegsnefnd Alþingis um
breytingartillögur við frumvarp sjávarútvegsráð-
herra um stjóm fískveiða varðandi fiskveiði-
stjómun smábáta.
Kynnt í dag
Varð niðurstaða meirihlutans í sjávarútvegs-
nefnd sú í gær, skv. heimildum Morgunblaðsins,
að í frumvarpinu verði smábátaeigendum gefinn
kostur á að velja á milli þeirrar leiðar sem fólst í
tillögu sjávarútvegsnefndar, sem kynnt var sl.
miðvikudag, og þess kerfis sem Landssamband
smábátaeigenda lagði til en talsmenn þess lögð-
ust harðlega gegn þeim breytingartillögum sem
samþykktar höfðu verið í sjávarútvegsnefnd og
♦íingflokkum ríkisstjómarinnar sl. miðvikudag.
Verður samkomulagið sem náðist í gær kynnt
fulltrúum minnihlutans á fundi sjávarútvegs-
nefndar sem hefst kl. 10 í dag.
Skv. upplýsingum blaðsins felst í meginatrið-
um í breytingartillögunum að smábátasjómenn í
sóknardagakerfinu geti valið á milli þess annars
vegar að framlengja veiðikerfi sóknardagabáta í
tvö fiskveiðiár til viðbótar, þar sem handfæra-
bátar fengju að róa 40 daga á ári en línu- og
handfærabátar í 32 daga. Jafnframt yrði sett 30
tonna þorskaflahámark á hvern bát en þeir sem
það vilja geti þó flust strax yfir í þorskaflahá-
markskerfi. Þetta er sú leið sem fulltrúar Lands-
sambands smábátaeigenda hafa lagt áherslu á.
Hins vegar geti smábátaeigendur valið þá leið að
framlengja sóknardagakerfið í tvö ár þar sem
bátunum yrði heimilt að halda áfram að veiða á
handfæri í 23 daga á ári, yfir sumartímann, á
tímabilinu frá 1. apríl til 30. september. Ekkert
Sund kaupa
Austur-
stræti 17
FYRIRTÆKIÐ Sund ehf. sem er í
meirihlutaeigu Gunnþórunnar Jóns-
dóttur, ekkju Óla Kr. Sigurðssonar
sem kenndur var við Olís, hefur
keypt húseignina Austurstræti 17.
Jón Kristjánsson, stjórnarformað-
ur Sunda, segir að kaupin hafi farið
fram í desember og hafi fyrirtækið
nálgast fasteignasala þann sem hafði
milligöngu um söluna að fyrra
bragði. Eignin var keypt af erfingj-
um Valdimars Þórðarsonar, sem er
betur þekktur sem Valdi í Silla og
Valda, þeim Sigurði og Þorkatli
Valdimarssonum.
„Kaupin fóru fram í fjárfestingar-
skyni og við hyggjum ekki á neinar
breytingar á húsnæðinu. Verslun
10-11 er á neðstu hæðinni og skrif-
stofur á efri hæðum og svo mun
verða áfram,“ segir Jón.
Húseignin Austurstræti 17 er um
2.300 fermetrar að stærð. Sund
keyptu eignina á viðunandi verði, að
sögn Jóns, en kaupverð er ekki gefið
upp.
----------------
Iceland Seafood
Von um betri
afkomu
FRAMLEIÐNI fiskréttaverksmiðju
Iceland Seafood Corporation, dótt-
urfyrirtækis íslenskra sjávarafurða
hf. í Newport News í Bandaríkjun-
um, hefur aukist um helming á
manntíma frá því verksmiðjan tók til
starfa fyrir um ári. Benedikt Sveins-
son, sem settist í forstjórastól fyrir-
tækisins undh’ lok síðasta árs, segir
að nú séu ýmis teikn á lofti um batn-
andi afkomu verksmiðjunnar og því
verði að nýta þau sóknarfæri sem
gefast.
A framleiðendafundi IS, sem hald-
inn var í gær og fyrradag, sagði
Benedikt að öllum væri Ijós hin erf-
iða staða ISC í Bandaríkjunum.
Hann sagði ljóst að auka þyrfti sölu
fyrirtækisins á næsta ári.
■ Teikn á lofti/23
aflahámark yrði sett á veiðarnar. Sóknardagar
verði bundnir kennitölu smábátaeigenda en ekki
útgerð eða bát og þeir yrðu þar með framseljan-
legir.
Vildu koma til móts við
álit smábátasjómanna
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra stað-
festi í gær að niðurstaða lægi fyrir en vildi ekki
tjá sig efnislega um breytingartillögurnar. „Það
hefur í sjálfu sér alltaf legið fyrir samkomulag
en þegar álit smábátasjómanna lá fyrir vildu
menn reyna að koma til móts við það og menn
telja sig hafa fundið leiðir til þess. Nú er verið að
vinna tæknivinnu í tengslum við það,“ sagði Þor-
steinn.
■ Geta valið/39
Enn er
sprengt í
Hagaskóla
TVÆR rúður voru sprengdar í
Hagaskóla um klukkan 21.30 í
gærkvöldi og er talið að notast
hafi verið við skotelda við þær
sprengingar samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu. Lögreglan
kannaði vettvang sprenging-
anna í gærkvöldi og voru
nokkrir unglingar færðir í ung-
lingaathvarf í miðbænum.
Öeinkennisklæddir lögreglu-
menn stóðu vörð í skólanum á
skólatíma í gær og bar þá ekk-
ert til tíðinda. Að sögn lögreglu
höfðu borist ábendingar í gær
um hverjir væru forsprakkar
þeirra sprenginga sem verið
hafa í skólanum undanfarna
daga og voru bundnar vonir við
að upplýst væri hverjir þar
væru að verki. Töldu menn góð-
ar líkur á að ófremdarástandi
því sem verið hefur í skólanum
að undanförnu væri lokið, allt
þar til fregnir bárust af spreng-
ingunum í gærkvöldi. Töluverð-
ur hópur unglinga mun þá hafa
verið við skólann.