Morgunblaðið - 09.01.1999, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.01.1999, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR IE og Landssíminn kaupa 40% hlut í Gagnalind FYRIRTÆKIN íslensk erfðagreining hf. og Landssími Islands hf. hafa keypt 20% hlut hvort um sig í Gagnalind hf. sem þróað hefur sjúkra- skrárkerfí fyrir heilsugæslustöðvar, sér- fræðinga, sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofn- anir. Hlutafé félagsins var aukið úr 36 milljónum króna í 56 milljónir króna. Að sögn Þorsteins I. Víglundssonar, framkvæmdastjóra Gagnalind- ar, var hlutur Landssímans allur fenginn úr hlutafjáraukningunni. Islensk erfðagreining fékk um helming síns hlutar með sama hætti og helming með kaupum frá Þróunarfélaginu sem minnkaði eignarhlut sinn í fyrirtækinu úr 38% í 15%. Kaupgengið hefur ekki verið gefið upp. Aðrir helstu hluthafar í fyrirtækinu eru Skýrr hf. með 15% og hópur starfsmanna, lækna og einstaklinga með tæp 30%. Þar af á Þorsteinn stærstan hlut. Þorsteinn segir að Landssímanum hafí verið boðin þátttaka í hlutafjáraukningunni en að ís- lensk erfðagreining hafí haft samband að eigin frumkvæði. „Þessi fyrirtæki koma með mikla fagþekk- ingu og sambönd,“ segir Þorsteinn. Tilboði ÍE hafnað 1997 I nóvember 1997 gerði Islensk erfðagreining kauptilboð í allt hlutafé Gagnalindar hf. Til- boðinu var þá hafnað í samráði við embætti landlæknis, heilbrigðisráðuneyti og sjúkrastofn- anir sem fyrirtækið átti í viðskiptum við. „Eg sel ekki Islenskri erfðagreiningu því það býður hættunni heim ef fyrirtæki, sem lifír á að selja upplýsingar, kaupir fyrirtæki sem hannar og þjónustar upplýsingakerfi,“ var haft eftir Þor- steini á þeim tíma í Morgunblaðinu. Þorsteinn segir að margt hafi breyst síðan. „Það var einnig rætt um það þá að þeir kæmu inn með 20% hlut, en þeir vildu eignast allt fyr- irtækið. Það er talsverður munur á því að eiga 20% og vera með einn stjórnarmann af fimm eða að eiga heilt fyrirtæki." Þorsteinn bendir einnig á að Alþingi hafi nú samþykkt að miðlægur gagngrunnur verði til. „Það verður engin breyting á daglegum rekstri félagsins bara vegna tilkomu Islenskrai- erfða- greiningar." Þorsteinn segir að fyrirtækið meðhöndli ekki heilbrigðisupplýsingar, heldur búi aðeins til kerfi og þjónusti þau. Starfsemi fyrirtækisins séu einnig settar skorður af Tölvunefnd. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, segir að með kaupunum sé fyrst og fremst hugsunin sú að styrkja stöðu Gagnalindar. „Við setjum upp miðlægan gagnagrunn sem er að nokkru leyti háð- ur þvi að góð sjúkraskrárforrit séu í gangi. Við eigum nú möguleika á að sjá til þess að hlúð sé vel að því fyriitæki sem býr til þann hugbúnað." Kári segir að engar sérstakar áætlanir séu um að auka hlut IE í Gagnalind. Aukin velta og starfsmönnum fjölgað Starfsmenn Gagnalindar eru níu talsins, en stefnt er að því að fjölga þeim á þessu ári og gert erm ráð fyrir aukinni veltu, en hún var um 35 milljónir króna á síðasta ári. „Verkefnin hlað- ast upp hjá okkur og við höfum ekki haft undan og ætlum því að stækka eins og við getum,“ seg- ir Þorsteinn. Gagnalind gerði nýlega samning við norska fyrirtækið Telenor Informedica, dótturfyrir- tæki norska landssímans, um sölu á hugbúnaði Gagnalindar til norskra og sænskra sjúkra- húsa. Þorsteinn segir að ekki hafi verið gengið frá neinum kaupsamningum enn, en áhugi sé mikill í Noregi. Kennarasamband Islands Andmæla- réttur gildi ekki brjóti nemendur af sér STJÓRN Kennarasambands fslands hefur sent frá sér ályktun þar sem fram kemur að sambandið telji algerlega óviðunandi að öryggi kennai-a og nemenda sé stefnt í hættu. Skólayfirvöldum á hverjum stað beri skylda til að tryggja öryggi starfsmanna sinna og nemenda og allt refsivert at- hæfi nemenda beri að tilkynna lögreglu og skólayfirvöldum. í ályktuninni segh” „Stjórn Kennarasambands Islands tel- úr að ef um refsivert athæfi sé að ræða eigi það sjálfkrafa að leiða til brottvikningar nem- enda úr skóla og í slíkum tilfell- um gildi ekki ákvæði stjórnsýslulaga um andmæla- rétt.“ ■ Athugunarefni/6 ■ Tíðindalaust/16 Utgáfa húsbréfa þrjá milljarða umfram áætlanir ÚTGÁFA húsbréfa á síðasta ári varð á bilinu 19-20 milljarðar króna, sem er um þremur milljörðum króna umfram það sem áætlað hafði verið, en upphaflegar áætlanir hljóðuðu upp á að húsbréfaútgáfan yrði um 16,5 milljarðar króna á árinu 1998. Útgáfa húsbréfa hefur vaxið hröðum skrefum á síðustu misserum eða um nálægt fimm milljörðum króna á síð- ustu tveimur árum. 24 milljarðar í ár Á árinu 1997 voru gefin út ný hús- bréf fyrir tæpa 16,5 milljarða króna og árið þar áður nam upphæð útgef- inna húsbréfa 14,4 milljörðum króna. Þá var einnig um aukningu að ræða því húsbréfaútgáfan nam 12,8 millj- örðum króna á árinu 1995. Áætluð útgáfa húsbréfa í ár nem- ur tæpum 24 milljörðum króna, sem er 4-5 milljörðum króna meiri útgáfa en var á síðasta ári. Reiknað er með að aukning húsbréfalána í almenna kerfinu nemi 1-2 milljörðum króna, en um þrjá milljarða má rekja til þess að þeir sem hingað til hafa fengið úthlutað íbúðum í félagslega íbúðarkerfinu geta nú tekið hús- bréfalán og fengið að auki viðbótar- lán. Samkvæmt upplýsingum Sig- urðar Geirssonar, forstöðumanns fjárstýringar hjá Ibúðalánasjóði, er áætlað að upphæð viðbótarlána nemi í ár um 200 milljónum króna. Góðar horfur með loðnu Utför Andrésar Björns- sonar fór fram í gær LOÐNUVEIÐAR gengu bærilega í gær en þá voru 10 skip að veiðum á Rauða torginu svokallaða, um 107 mílur norðaustur af Seley. Veiðin er nú aðallega á nóttunni, ná skipin þá að kasta 3-4 sinnum og fá 150-300 tonn á sólarhring. Loðnan er nokkuð dreifð og stend- ur djúpt en skipstjórnarmenn segja talsvert mikið magn að sjá. Þeir segja það koma á óvart hve loðnan er komin sunnarlega miðað við árstíma en vanalega sé hún ekki á þessum slóðum fyrr en um mánaðamót janúar-febrúar. Þeir segja að þetta mikla magn gefi góð fyrirheit og eru bjartsýnir á að veiðin verði góð þegar vertíðin nær hámarki í febrúar. Ágæt sfldveiði Þá hefur síldveiði verið með ágæt- um síðustu daga en skipin hafa verið að veiðum um 10 mílur suður af Mal- arrifi á Snæfellsnesi. Grímur Jón Grímsson, skipstjóri á Antares VE, sagði þó þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær að heldur lítið sæist til síldar. „Við komum hingað snemma í morgun [gærmorgun] og fundum fallega torfu. Við hins vegar rifum nótina og náðum aðeins um 50 tonnum. Síðan hefur lítið sést eftir að birti,“ sagði Grímur Jón. Grímur sagði síldina stóra og fallega og mun betri en síldin sem fékkst í upphafi vikunnar en því veiðisvæði var lokað vegna smásíldar. ÚTFÖR Andrésar Björnssonar, fyrrverandi útvarpsstjóra, fór fram frá Dómkirkjunni í gær. Séra Gunnar Kristjánsson jarðsöng. Guðmundur Jónsson söng Lofsöng Beethovens og Gunnar Kvaran lék einleik á selló, Kom dauðans blær eftir Bach. Organisti var Marteinn H. Friðriksson. Þeir sem báru kistu hins látna úr kirkjunni voru Markús Örn Antonsson, Hörður Vilhjálmsson, Matthías Johannessen, Jón Þórarinsson, Hannes Pétursson, Einar Lax- ness, Hjörtur Pálsson og Gunn- ar Stefánsson. Jarðsett var í Gufuneskirkjugarði. I Sérblöð í dag gjlffjpittMttMtt ÁLAUGARDÖGUM T T]1 QTT1&1£ Með Morg- unblaðinu í dag fylgir auglýsinga- blað frá ELKO „Nýárs- sprengja“ ELKO Kristinn Björnsson um árang- urinn í heimsbikarnum/B2 Gianluca Vialli heimsækir Ruud Gullit og félaga/B4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.