Morgunblaðið - 09.01.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 09.01.1999, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skipulagsnefnd ASÍ tekur undir sjónarmið VR Kristín Halldórs- Símamenn geta ekki gengið óskiptir í ASI SKIPULAGSNEFND ASÍ telur að það samrýmist ekki lögum og skipu- lagi ASÍ að Félag íslenskra síma- manna gangi óskipt inn í Rafíðnað- arsambandið og gerist þar með aðili að ASI. Að mati nefndarinnar geta starfsmannafélög ekki gengið í landssambönd ASI nema að til komi sérstakt samkomulag félaga og landssambanda innan ASÍ um inn- göngu slíkra félaga. Um áramót gekk FÍS úr BSRB og sótti um leið um aðild að Rafíðn- aðarsambandinu. I haust sendi Verzlunarmannafélag Reykjavíkur bréf til miðstjórnar ASI þar sem óskað var álits á því hvort aðild símamanna að Rafiðnaðarsamband- inu samrýmdist lögum ASI. VR benti á að skipulag ASI byggðist á að starfsgreinar væru saman í fé- lögum og þess vegna ættu skrif- stofumenn, sem eru í FÍS, að til- heyra félögum verslunarmanna. Bréfi VR var vísað til skipulags- nefndar ASÍ, sem hefur nú tekið undir sjónarmið VR. í bréfi nefnd- arinnar til VR segir: „Skipulags- nefnd er sammála um að það sam- rýmist ekki lögum og skipulagi ASÍ að FÍS gangi óskipt inn í RSI. Skipulag ASÍ er „starfsgreina- skipulag" sem gerir ráð fyrir að skrifstofu- og verslunarfólk sé í fé- lögum skrifstofu- og verslunar- fólks, verkafólk í félögum verka- fólks, iðnaðarmenn í félögum iðn- aðarmanna, sjómenn í félögum sjó- manna o.s.frv. Skipulagsnefnd er sammála um að þetta skipulag kemur í veg fyrir að félög sem skipulögð eru sem „starfsmannafélög" geti gengið í landssambönd innan ASI nema til komi sérstakt samkomulag milli fé; laga og landssambanda innan ASÍ um inngöngu slíkra félaga." Einar Gústafsson, formaður FÍS, sagðist telja að félagsmenn ættu að fá að ráða hvaða félögum þeir ættu aðild að. í þessu máli lægi það fyrir að starfsmenn, sem um væri deilt, vildu ekki láta flytja sig yfir í VR. Snýst um hag félagsmanna Þetta mál snerist hins vegar ekki um að halda lífi í einhverjum stétt- arfélögum heldur um hag starfs- manna. Hann benti á að VR hefði ekki gert neinn kjarasamning við Landssímann og félagsmenn í FIS hefðu forgangsrétt að störfum hjá fyrirtækinu að þeim störfum sem þeir sinntu. Einar sagðist telja rangt af hálfu ASÍ að binda sig við áratuga gamalt skipulag. Miklar breytingar væru að verða á störfum í þjóðfélaginu og það væri sífellt að verða meira um að störf sköruðust og þar með fé- lagsaðild. ASI yrði að taka mið af þessu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Járnsmíði við Svartsengi FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við stækkun varmaaflsvirkunar í Svartsengi og er byrjað að byggja yfir vélar og annan búnað. Árni Guðbjörns- son járnsmiður var niðursokkinn í vinnu sína þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um Svartsengi í gær. dóttir til græns framboðs KRISTÍN Halldórsdóttir, þingkona Kvennalistans, hefur ákveðið að ganga til liðs við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð og segist vera til- búin að taka sæti á framboðslista flokksins í Reykjanesi fyrir alþing- iskosningarnar í vor fái hún til þess stuðning. Kristín segir að umhverf- ismál og náttúruvernd séu þau mál sem mestu varði í nútíð og framtíð og ekki síst þess vegna gangi hún til liðs við Vinstrihreyfinguna. Rristín sagði að það hefði verið Ijóst um nokkurt skeið að Kvenna- listinn byði ekki fram sérlista í næstu alþingiskosningum. Ági-ein- ingur um leiðir til að tryggja hug- myndum Kvennalistans áfram verð- ungan sess í íslenskum stjórnmái- um hefði sett mark á starf Kvenna- listans á þessu kjörtímabili. Hún sagðist ekki hafa tekið þátt í undir- búningi samfylkingar Kvennalist- ans og A-flokkanna og haldið sig til hlés í innra starfi Kvennalistans síð- an meirihluti landsfundar ákvað fyrir rúmu ári að vinna að þeirri til- raun. „Mig skorti trú á réttmæti þeirr- ar leiðar en vildi ekki trufla þann feril. Hins vegar leit ég svo á að kjósendur Kvennalistans hefðu ráð- ið mig til fjögurra ára setu á Alþingi til þess að vinna í anda þeirrar hug- myndafræði sem Kvennalistinn hef- ur staðið fyrir í öll þessi ár,“ sagði Kristín. Kristín sagði að í samræmi við þetta myndi hún ekki ganga úr þingflokki Kvennalistans. Ákvörðun um þetta væri tekin í samráði við Guðnýju Guðbjörnsdóttur þing- konu. Áhersla á umhverfismál „Umhverfismál og náttúnivernd eru þau málefni sem ég tel mestu varða í nútíð og framtíð. Einnig kvenfrelsi og mannréttindi í víðasta 1 skilningi þess hugtaks. Að þessum málefnum vil ég vinna á nýjum vett- vangi. Eg hef ástæðu til að ætla að þann vettvang sé að finna hjá þeirri stjórnmálahreyfingu sem verður stofnuð formlega á næstu vikum og gengur undir nafninu Vinstrihreyf- ingin - grænt fi’amboð," sagði Krist- ín. Ki’istín sagðist hafa borið þessa ákvörðun undir stuðningsfólk sitt á Reykjanesi og fengið góðar viðtök- ur. Hún sagðist því hafa ástæðu til að ætla að með henni gengi hópur kvenna til liðs við Vinstrihreyfing- una. Nefna má að á landsráðstefnu Vinsti'ihreyfmgarinnar í haust mættu m.a. Anna Olafsdóttir Björnsson og Kristín Einardóttir, fyrrverandi þingkonur Kvennalist- ans, og Guðrún Jónsdóttir, fyrrver- andi borgarfulltrúi Kvennafram- boðsins. Kristín var kosin á þing fyrir Kvennalistann á Reykjanesi árið 1983 og var á þingi til 1989. Hún var aftur kosin á þing í síðustu kosning- um vorið 1995. Kjaratilboð Lands- símans samþykkt TILBOÐ, sem Landssími íslands hf. gerði starfsmönnum sínum um áramótin, var samþykkt af miklum meirihluta starfsmanna þeirra þriggja stéttarfélaga, sem vinnur hjá fyrirtækinu. Talningu atkvæða lauk í gær hjá félögunum þrem, Rafiðnaðarsambandi íslands, Fé- lagi íslenskra símamanna og Verka- mannasambandi Islands. Tilboðið felur í sér breytingu á kjarasamn- ingum vaktavinnufólks í hlutastarfi, en um þann lið tilboðsins greiddu atkvæði einungis félagar í FÍS. Þá bauð Landssíminn 2% launahækk- un til allra félaganna og yfirvinnu- kaup er komi í stað kaffitíma. Einn liður tilboðsins varðaði lífeyrissjóðs- mál FÍS sem hljóðar upp á 75 þús- und króna eingreiðslu gegn því að starfsmenn fyrirgeri rétti sínum til lífeyrissjóðsgreiðslna í framtíðinni. Að sögn Einars Gústafssonar for- manns FÍS tók þó félagið ekki ákvörðun í nafni hvers og eins starfsmanns í lífeyrissjóðsmálum. 93% kjósenda í FIS samþykktu ; tilboðið, en þátttaka var 63%. Hjá Verkamannasambandinu var helm- ingsþátttaka og samþykktu 74% fé- ' lagsmanna tilboðið en 26% sögðu nei. 83% félagsmanna Rafiðnaðar- sambandsins samþykktu tilboðið og 15% sögðu nei, en þátttaka var 79%. Skýrsla Ríkisendurskoðunar vegna ríkisreiknings ársins 1997 Athugasemdir gerðar við endurskoðun hjá ráðuneytum RÍKISENDURSKOÐUN telur í nýútkominni skýrslu um endur- skoðun ríkisreiknings fyrir árið 1997 að nokkur ráðuneyti hafi ekki á fullnægjandi hátt brugðist við fyrri athugasemdum sem stofnunin gerði við endurskoðun á ráðuneyt- unum fyrir árin 1993 og 1994. Stofnunin bendir m.a. á að enn sé nokkuð um rangar bókanir, jafnvel á ranga fjárlagaliði hjá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og við endur- skoðun á félagsmálaráðuneytinu hafi komið í ljós að viðskiptareikningar vegna ferða starfsmanna hafi ekki verið gerðir upp með reglubundnum hætti. „Viðskiptareikningar vegna ofgreiddrar þóknunar sem voru óuppgerðir við síðustu endurskoðun voru enn óuppgerðir. Tilefni risnu og hverjir njóta hennar kemur ekki ætíð fram á risnureikningum en árit- un um samþykki risnureikninga var hins vegar í góðu horfi hjá ráðuneyt- inu,“ segir í athugasemdum um fé- lagsmálaráðuneytið. Ekki alltaf verið brugðist við fyrri athugasemdum Þá kemur fram í skýrslunni að komið hafí í ljós hjá forsætisráðu- neytinu að við sumum athugasemd- um hafi verið brugðist en öðrum ekki. Uppgjör ferðareikninga hafi ekki batnað sem skyldi en tekið er fram að ráðuneytið hafi nú gert átak í því að ganga frá uppgjöri ferðareikninga á árinu 1998. Ríkisendurskoðun telur að frá- gangur risnureikninga hjá sam- gönguráðuneyrinu mætti vera í betra horfi. Þá séu þess dæmi í sjávarútvegsráðuneytinu að áritun ráðuneytisstjóra vanti á reikninga fyrir gjöfum og risnu. Einnig hafi þar fundist dæmi um rangt bókaða reikninga. Vanda þarf betur millifærslu fjárheimilda Jafnframt segir í almennum at- hugasemdum um ráðuneytin öll að þau þurfi að vanda betur til milli- færslu fjárheimilda og gæta þess að þær færist á réttar kostnaðarteg- undir s.s. laun, önnur gjöld, eigna- kaup eða tilfærslur. Ríkisendurskoðun gagnrýnir þá ráðstöfun í dómsmálaráðuneytinu að flytja 6,2 milljónir kr. af fjárlaga- liðnum „ráðstöfunarfé" yfir á aðal- skrifstofu ráðuneytisins til að mæta þar halla. „Hjá menntamálaráðuneyti þarf að bæta öryggi við innheimtu á tekjum og skil á þeim til ríkisféhirð- is og jafnframt að tryggja að hægt sé að stemma þær af við bókhaldið. Tekið skal fram að ráðuneytið brást strax við ábendingu um þetta atriði og hefur unnið að úrbótum." Ríkisendurskoðun bendir einnig á að hjá fjármálaráðuneyti hafi þess ekki verið nægilega gætt að við- skiptareikningar vegna erlends ferðakostnaðar séu gerðir upp að lokinn ferð. Ennfremur hafi komið í ljós við endurskoðun í utanríkis- ráðuneyti að þar þurfi að bæta innra eftirlit með launagreiðslum. Húsa- leigubæt- ur hækka GRUNNSTOFN húsaleigubóta hækkaði um þúsund krónur 1. janúar sl. og viðbót vegna barna hækkaði um 500 krónur sam- kvæmt ákvörðun félagsmála- ráðherra í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Tekju- skerðing lækkaði úr 2% í 1% og frítekjumark hækkaði í 1,6 milljónir króna á ári. Sam- kvæmt nýju reglugerðinni hækkar greiðsluhlutfall Jöfnun- arsjóðs sveitarfélaga til sveitar- félaganna vegna húsaleigubóta úr 50% í 55%. Einstaklingar eða hjón með tvö böm sem greiða þrjátíu þús- und krónur á mánuði í húsaleigu og 1,8 milljónir króna í árstekjur fengju samkvæmt fyrri reglu- gerð 10.200 krónur í húsaleigu- bætur en samkvæmt nýju reglu- gerðinni 16.200 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.