Morgunblaðið - 03.02.1999, Blaðsíða 1
27. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Serbar ekki enn svarað urslitakostum tengslahópsms frá því í síðustu viku
KLA tekur
þátt í friðar-
viðræðum
Reuters
KOSOVO-Albanar efndu í gær til mótmælaaðgerða í borginni Haag í
Hollandi þar sem þeir fóru fram á að Kosovo yrði veitt sjálfstæði. Jafn-
framt livöttu þeir Atlantshafsbandalagið (NATO) til að láta til skarar
skríða gegn yfirvöldum í Júgóslavíu.
Pristina, New York, Washington, París. Reuters.
FRELSISHER Kosovo, KLA, til-
kynnti í gær að hann myndi taka
þátt í friðarviðræðum sem tengsla-
hópur vestui-velda og Rússa hefur
boðað til og hefjast eiga í Frakk-
landi á laugardag. Stjórnvöld í
Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu
og Svartfjallalands, hafa hins vegar
engu svarað um hvort fulltrúar
þeirra mæti til viðræðna eða láti á
það reyna hvort Atlantshafsbanda-
Iagið, NATO, geri loftárásir á Serb-
íu eins og það hefur hótað, verði
ekki látið af ofbeldisverkum í
Kosovo. Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna ákvað í gær að taka ekki
afstöðu til kröfu júgóslavneskra yf-
irvalda um fund í öryggisráðinu
vegna hótana NATO fyrr en seinna
í vikunni. Hafði Zivadin Jovanovic,
utanríkisráðherra Júgóslavíu, áður
sakað NATO um að brjóta ákvæði
stofnskrár SÞ með því að hóta árás-
um.
Talsmaður KLA, Jakup Krasniki,
sagði í gær að samtökin myndu „ör-
ugglega" senda fulltrúa sína til
Rambouillet, fyrir utan París, þar
sem viðræðumar eiga að fara fram.
Mikill ágreiningur er innan KLA
um hvort ganga eigi til viðræðna við
júgóslavnesk stjórnvöld og rúmri
klukkustund áður en Krasniki ræddi
við fréttamenn kvaðst pólitískur
talsmaður KLA, Adem Demaci, hafa
hvatt skæruliðasamtökin til að hafna
samningaviðræðum.
Krasniki sagði KLA myndu
leggja fram nokkur tilboð á fundin-
um í Rambouillet. Eitt þein-a væri
tillaga um að boðað yrði til þjóðar-
atkvæðis að loknum þriggja ára
reynslutíma tillögu tengslahópsins
en hún kveður á um að Kosovo fái
sjálfsstjórn en verði áfram hluti
Júgóslavíu. Serbar hafa vísað þeirri
tillögu á bug. Þá hefur Demaci sagt
tillögur tengslahópsins gagnslausar
því þær tryggi Albönum ekki sjálf-
stæði að reynslutímanum liðnum.
25.000-30.000
manna landher?
Aðildarríki NATO era nú farin að
ræða af alvöru hvort senda eigi
landher til friðargæslu í Kosovo.
William Cohen, varnannálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði á mánu-
dag að þátttaka Bandaríkjamanna í
slíku herliði yi-ði takmörkuð og
kvaðst telja að Evrópuríkjum bæri
að sinna friðargæslu í Kosovo.
Fyrstu viðbrögð í Evrópu voru í
gær jákvæð. Alain Richard, varnar-
málaráðherra Frakklands, sagði að
Frakkar myndu leggja fram stóran
hlut í hugsanlegum landher en
Richard hefur áður lýst því yfir að
verði herlið Evrópuríkja ekki fjöl-
mennara en bandarískt í Kosovo
verði það álfunni til skammar eins
og raunin sé í Bosníu.
í fyrirspurnartíma í franska þing-
inu í gær sagði Richard of snemmt
að segja til um hversu fjölmennt lið
yrði sent en franskir fjölmiðlar hafa
nefnt tölur á bilinu 25.000-30.000
manns. Þá sagði Le Monde frá því
að NATO byggi sig nú undir að
senda allt að 100.000 manna herlið
til að hertaka Kosovo og þvinga
deilendur að samningaborði færa
friðarviðræðurnar í Rambouillet út
um þúfur.
Brasilía
Enn skipt
um seðla-
banka-
stjóra
Brasih'u. Reutere.
STJÓRNVÖLD í Brasilíu tilkynntu
í gær, að Francisco Lopes hefði lát-
ið af starfi sem seðlabankastjóri að-
eins þremur vikum eftii' að hann
felldi gengi realsins, brasilíska
gjaldmiðilsins. Margir sparifjáreig-
endur hafa tekið út fé sitt af banka-
reikningum af ótta við, að þeir verði
fi'ystir.
I tilkynningu fjármálaráðuneytis-
ins sagði, að hagfræðingurinn Arm-
inio Fraga, sem starfaði nýlega fyr-
ir auðjöfurinn George Soros, myndi
taka við af Lopes þegar öldunga-
deild þingsins hefði staðfest skipun
hans. Kom þetta mjög á óvart og
féll gengi realsins nokkuð gagnvart
dollara. Hefur það þá fallið um 35%
síðan Lopes tók við sem seðla-
bankastjóri af Gustavo Franco 13.
janúar sl.
Rætt við IMF
um kreppuna
Orðrómur komst á kreik um það
sl. föstudag, að ríkisstjórnin ætlaði
að frysta inneignir á bankareikning-
um og í gær og í fyrradag urðu
margir til að taka út allt sitt sparifé
þótt stjórnvöld vísuðu þessu á bug.
Fulltrúar stjórnvalda eiga nú í við-
ræðum við fulltrúa IMF, Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, um kreppuna í
landinu.
Þingmenn skoða vitnisburð Lewinskys
Jordan spurður
spjörunum úr
Washington. Reuters.
VERNON Jordan,
einkavinur Bills Clint-
ons Bandaríkjaforseta,
var í gær yfirheyrður í
þrjár klukkustundir af
saksóknuram fulltrúa-
deildar Bandaríkja-
þings bak við luktar
dyr í þinghúsinu í Was-
hington. A sama tíma
vora öldungadeildar-
þingmenn að horfa á
upptökur af yfírheyrslu
saksóknaranna yfir
Monicu Lewinsky, sem
fram fór 1 íyrradag.
Viðurkenndi Henry
Hyde, sem fer fyrir
saksóknuranum, að
engar „sprengjur" hefðu fallið í yf-
irheyrslunni yfir Lewinsky.
Þetta var í fyrsta skipti sem Jor-
dan er yfirheyrður frá því Lewinsky
hóf að veita Kenneth Starr aðstoð í
rannsókn hans á málefnum Clint-
ons. Er Jordan annað af þremur
vitnum sem kallað er fyrir en mis-
munur á vitnisburði hans og Lew-
inskys er talinn geta skipt sköpum
fyrir málareksturinn á hendur
Clinton. Mun Jordan hafa ítrekað
fyrri vitnisburð um að
hann hefði alls ekki
haft í hyggju að standa
í vegi réttvísinnar er
hann reyndi að finna
starf handa Lewinsky.
Öldungadeildarþing-
menn sem horfðu á
upptökur af yfirheyrsl-
unni yfir Lewinsky í
gær fóra ekki leynt
með þá skoðun sína að
vitnisburður Lew-
inskys nú hefði verið
afar líkur þeim sem
hún gaf fyrir rannsókn-
arkviðdómi í íyrrasum-
ar. Nýttu lögmenn for-
setans ekki tækifæri
sitt til að yfirheyra Lewinsky heldur
munu þeir hafa lesið yfirlýsingu þar
sem Lewinsky er beðin afsökunai' á
þeim vandræðum sem málarekstur-
inn gegn Clinton hefur valdið henni.
Kvaðst repúblikaninn Orrin
Hateh telja að opinber sýning yfir-
heyrslunnar yfir Lewinsky myndi
auðvelda almenningi að móta sér
skoðun á því hvort svipta beri Clint-
on embætti. Hvíta húsið mun hins
vegar vera þessu mótfallið.
Vernon
Jordan
Sjórán
færast í
aukana
Kuala Lumpur. Reuters.
SJÓRÁN í heiminum voru
nokkuð færri á árinu 1998 en
árið á undan en AJþjóða sjó-
ferðastofnunin (IMB) hefur
hins vegar sérstakar áhyggjur
af því að ofbeldi tengt sjórán-
um hefur færst veralega í auk-
ana. Kemur fram í ársskýrslu
IMB að 198 sjórán áttu sér
stað á höfum úti en vora 247
árið áður.
Munu sextíu og sjö hafa
verið myrtir í sjóránum á síð-
asta ári en voru fimmtíu og
einn árið áður og hafa menn af
þessu miklar áhyggjur, ekki
síst af því að sjóræningjar
þykja sýna áður óþekkt mis-
kunnarleysi. Vfluðu sjóræn-
ingjar t.d. ekki fyrir sér ný-
lega að drepa 23 Kínverja sem
vora í áhöfn skips er þeir
hugðust ræna.
Langflest þeirra sjórána,
sem framin eru ár hvert, eiga
sér stað í Suðaustur-Asíu.
Flest vora sjóránin í höfunum
við Indónesíu, alls voru þar
framin fimmtíu og níu sjórán.
Fimmtán sjórán áttu sér stað í
nágrenni Filippseyja, tólf á
Indlandi og tíu í Malasíu.
Schröder-stjórnin 100 daga í embætti
Einkunnin lág
en fylgíð í lagi
Bonn. Reuters.
ÞÝZKIR fjölmiðlar
gefa ríkisstjórn Ger-
hards Schröders ekki
háa einkunn eftir
fyrstu 100 dagana í
embætti, en útlit er fyr-
ir að kjósendur í sam-
bandslandinu Hessen
veiti stjómarflokkun-
um nokkra uppreisn
æru á sunnudaginn.
Skoðanakannanir
benda allar til að Jafn-
aðarmannaflokkur
Schröders (SPD) njóti
mests fylgis fyrir kosn-
ingar til þings Hess-
ens, sem era fyrstu
kosningarnar sem fram
fara í Þýzkalandi frá því þjóðin kaus
nýtt sambandsþing í september.
CDU tekst ekki að hagnast á
mistökum stjórnarinnar
„Ef til vill hefur okkur yfirsézt,
að á 100 dögum er ekki hægt að
efna öll þau kosningaloforð, sem
eiginlega tekur heilt kjörtímabil að
hrinda í framkvæmd,“ hefur Die
Welt eftir Schröder. „Ef farið er í
hlutina með þeim mikla hraða sem
við höfum gert koma
upp tæknileg mistök af
og til.“
Að Schröder skuli
viðurkenna að stjóm-
inni hafi orðið á mistök
í viðleitni sinni til að
setja landinu nýja
stefnu eftir 16 ára
valdatíð Kristilegra
demókrata (CDU) und-
ir forystu Helmuts
Kohls hefur ekki valdið
fylgi við flokk hans í
Hessen neinum skaða.
Kosningabarátta CDU
í Hessen, sem að miklu
leyti hefur gengið út á
að reyna að vinna fylgi
út á andstöðu við þær breytingar á
lögum um ríkisborgararétt sem
stjórnin í Bonn hyggst keyra í gegn,
virðist hafa misst marks. Svo virðist
sem CDU sé enn í kreppu eftir hinn
sögulega ósigur í sambandsþing-
kosningunum.
í Hessen, sem nær m.a. yfir há-
borg fjármálaviðskipta í Þýzka-
landi, Frankfurt, hefur samsteypu-
stjórn SPD og græningja verið við
völd frá árinu 1991.
Gerhard
Schröder