Morgunblaðið - 03.02.1999, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Félagsmálaráðherra í utandagskrárumræðu um fjárhagsstöðu sveitarfélaga
Nefnd endurskoðar tekju-
stofna sveitarfélaga
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra skýrði frá
því á Alþingi í gær að það hefði verið ákveðið í
félagsmálaráðuneytinu, að beiðni Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, að skipa nefnd til að at-
huga tekjustofna sveitarfélaganna í landinu og
að í þeirri nefnd yrðu fulltrúar ráðuneyta og
fulltrúar stjórnarþingflokkanna.
Kom þetta fram í máli ráðherra í utandag-
skrárumræðu í byrjun þingfundar í gær um
fjárhagsstöðu sveitarfélaganna. Svanfríður
Jónasdóttir, þingflokki jafnaðarmanna, var
málshefjandi umræðunnar, og taldi m.a. að
tekjuskiptingin milli ríkisins og sveitarfélaga
væri orðin röng.
„Það eru nokkur sveitarfélög í verulegum
vanda, en flest eru þau sem betur fer í góðum
málum,“ sagði félagsmálaráðherra. „Á þessu
ári hefur 71 sveitarfélag eða rúmlega helming-
ur sveitarfélaga ákveðið að nýta sér hámarks
útsvarprósentu. I þeim hópi eru til dæmis
Hafnarfjarðarkaupstaður, Akraneskaupstaður
og sveitarfélagið Árborg. í þremur sveitarfé-
lögum er útsvarið á bilinu 12% til 12,02%. í ell-
efu sveitarfélögum er útsvarið 11,9%,^ til dæm-
is í Reykjavík og í Kópavogsbæ. í sautján
sveitarfélögum er útsvarið á bilinu 11,79% til
11,86% og í fímm sveitarfélögum er lágmarks-
útsvar. Mörg sveitarfélög hafa því ákveðið
svigrúm til þess að hækka útsvarsprósentuna
innan gildandi laga, til þess að mæta auknum
útgjöldum, til dæmis í grunnskólamálum,"
sagði ráðherra.
Skólar á landsbyggðinni lengra
komnir í einsetningunni
Ráðherra ræddi einnig einsetningu grunn-
skólanna í sveitarfélögunum og benti á að sveit-
arfélög utan höfuðborgarsvæðisins, einkum
minni sveitarfélög, væru yfirleitt lengra komin í
einsetningunni en stóru sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu. „Menn hafa mikið rætt um að
grunnskólinn hafi reynst sveitarfélögunum dýr
og ég er hér með í höndum ____________________
nýlegt yfirlit frá Sambandi ís- I
lenskra sveitarfélaga um það
efni,“ sagði ráðherra og benti
á að í þeim niðurstöðum kæmi
fram að á fjögurra ára tíma-
bili ættu sveitarfélögin að |
hafa haft um einn milljarð í
afgang tO þessa verkefnis
fram yfir þær forsendur sem
gefnar voru í upphafi.
Fleiri þingmenn tóku til
máls í þessum umræðum og
töldu rétt að endurskoða bæri tekjustofna
sveitarfélaganna. „Ég hef sem fulltrúi í fjár-
JÓHANNA Sigurðardóttir ræðir við Sturlu Böðvarsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
laganefnd Alþingis átt við-
ræður við sveitarstjórnar-
menn úr flestum sveitarfé-
lögum landsins nú í haust og
í vetur,“ sagði Gísli S. Ein-
arsson, þingflokki jafnaðar-
manna, og benti á að niður-
staða þeirra viðræðna hefði í
nær öllum tilvikum verið sú
að sveitarfélögin gerðu
kröfu um aukna hlutdeild í
skattheimtu ríkisins til að
geta m.a. staðið undir einsetningu grunnskól-
anna. Steingrímur J. Sigfússon, þingflokki
ALÞINGI
óháðra, sagði það brýnt að við endurskoðun á
tekjustofnum sveitarfélaganna yrði það m.a.
haft að leiðarljósi að sveitarfélögin öðluðust
„tekjulegt sjálfstæði". Sagði hann til að
mynda að það þyrfti að athuga hvort sveitar-
félögin gætu til dæmis fengið tekjustofna
tengda atvinnulífinu, til dæmis umhverfisgjöld
af ýmsum toga.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokks, benti á að vandi sveitarfélaganna í
þessu sambandi tengdist ekki hvað síst búferla-
flutningum landans. Aðrir þingmenn sem til
máls tóku lögðu þó meiri áherslu á að endur-
skoða bæri tekjustofna sveitarfélaganna.
Alþingi
Stutt
Mælt fyrir lögum um skipulag miðhálendisins á Alþingi
Látins fyrrverandi
þingmanns minnst
ALÞINGI íslendinga kom saman
á ný í gær, eftir rúmlega tveggja
vikna hlé, og var Bjarna Guð-
björnssonar fyrrverandi banka-
stjóra og alþingismanns minnst í
upphafi þingfundar.
Bjarni andaðist sl. föstudag, 29.
janúar, 86 ára að aldri. „Bjarni
Guðbjörnsson ólst upp í Reykjavík
og tók á unglingsárunum og fram
eftir aldri þátt í félagsstörfum um
íþróttir og í kappleikjum," sagði
Olafur G. Einarsson forseti Al-
þingis meðal annars þegar hann
fór yfir starfsferil hans, en Bjarni
var alþingismaður Vestfírðinga
frá árinu 1967 til 1974. Áður hafði
hann verið varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins í kjördæminu.
„Hann kom ríkur að reynslu til Al-
þingis, sinnti þingstörfum af alúð,
var vandvirkur í öllum störfum
sínum, samstarfsfús, drenglyndur
og hófsamur," sagði forseti Al-
þingis að siðustu. Að þeim orðum
Ioknum risu alþingismenn úr sæt-
um sínum til að minnast Bjarna.
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl.
13.30 í dag og bera þá
alþingismenu fram undirbúnar
fyrirspurnir til ráðherra.
Stjórnarandstæðingar telja
grundvallaratriði oljos
GUÐMUNDUR Bjamason um-
hverfisráðherra mælti fyrir frum-
varpi til laga á Alþingi í gær um
breytingu á skipulags- og bygging-
arlögum.
í frumvarpinu er m.a. gert ráð
fyrir því að skipuð verði sérstök
nefnd til fjögurra ára í senn sem
vinna eigi að svæðisskipulagi miðhá-
lendisins. Frumvarp svipaðs efnis
var lagt fram á Álþingi sl. vor í
tengslum við afgreiðslu frumvarps
til sveitarstjórnarlaga, en ekki náð-
ist að mæla fyrir því þá. í því frum-
varpi var gert ráð íyrir að fyrr-
greind nefnd hefði á að skipa 18 full-
trúum en nú er lagt til að fulltrúar í
nefndinni verði 11, þar af einn til-
nefndur af félagasamtökum um úti-
vist.
Nefndin á samkvæmt frumvarp-
inu að vera skipuð af umhverfisráð-
herra að afloknum sveitarstjórnar-
kosningum og er hún í frumvarp-
inu nefnd: samvinnunefnd miðhá-
lendisins. „í nefndinni skulu sitja
11 fulltrúar og skal ráðherra velja
níu án tilnefninga, þar af formann
nefndarinnar. Átta skulu valdir úr
öllum kjördæmum landsins í sam-
ráði við Samband íslenskra sveitar-
félaga," segir í frumvarpinu. Þá
skal félagsmálaráðherra skipa einn
fulltrúa og félagasamtök um útivist
einn. Eins og fyrr segir skal nefnd-
in vinna að svæðisskipulagi miðhá-
lendisins og segir í frumvarpi að
miðhálendið mai'kist af línu sem
dregin er milli heimalanda og af-
rétta. Það svæði skal svæðisskipu-
lagt sem ein heild.
Flestir þeir stjórnarandstæðing-
ar sem til máls tóku í umræðunum
í gær, töldu mikilvægt að koma á
skipulagi á miðhálendið en sögðu
um leið að umrætt frumvarp væri
um margt óljóst. í máli Hjörleifs
Guttormssonar, þingmanns þing-
flokks óháðra, komu m.a. fram efa-
semdir um að sú lína sem marka
ætti miðhálendið væri trygg eða
eitthvað sem treysta mætti á að
stæði til frambúðar. Þá benti hann
á að samkvæmt frumvarpinu væri
samvinnunefnd miðhálendisins
með skipulagsforræði yfir miðhá-
lendinu en ekki sveitarfélögin.
Þeirri túlkun hafnaði ráðherra.
Auk þess gagnrýndi Hjörleifur,
sem og aðrir þingmenn stjórnar-
andstöðunnar, skipan fulltrúa í
nefndina. Sögðu þeir til dæmis að
skipan í nefndina væri ekki byggð
á lýðræðislegum grunni, þar sem
ráðherra ætti að velja níu fulltrúa
af ellefu, án tilnefningar.
Fulltrúar allra landsnianna
komi að ákvörðunum
„Þetta er svæði sem tilheyrir
okkur öllum,“ sagði Ki’istín Ást-
geirsdóttir, þingflokki óháðra, með-
al annars „því er mikilvægt að að
þessum málum komi fulltrúar allra
landshluta." Margir þingmenn
stjórnarandstöðu töldu þetta
einmitt ekki nógu tryggt, þ.e. að
fulltrúar allra landsmanna kæmu að
nefndinni.
Árni M. Mathiesen, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, var ekki á sama
máli og sagði að með umræddum
hætti ætti að vera tryggt að allir
hagsmunir ættu að geta komið að
því að skipuleggja miðhálendið, en
þó allt undir forræði umhverfísráð-
herra.
Austurlands-
kjördæmi
Listi Sjálf-
stæðis-
flokks
ákveðinn
GENGIÐ hefur verið frá fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
Austurlandskjördæmi fyrir
komandi alþingiskosningar.
Efstu sjö frambjóðendur raðast
eftir niðurstöðum nýafstaðins
prófkjörs. Listinn er þannig
skipaður:
1. Arnbjörg Sveinsdóttir, al-
þingismaður, Seyðisfirði.
2. Albert Eymundsson, skóla-
stjóri, Homafirði.
3. Ólafur Áki Ragnarsson,
sveitarstjóri, Djúpavogi.
4. Aðalsteinn Jónsson, bóndi,
Norður-Héraði.
5. Jens Garðar Helgason,
nemi, Fjarðabyggð.
6. Hilmai' Gunnlaugsson, hér-
aðsdómslögmaður, Austur-Hér-
aði.
7. Kári Ólason, verktaki,
Norður-Héraði.
8. Jóhanna Hallgrímsdóttir,
framkvæmdastjóri, Fjarða-
byggð.
9. Emma Tryggvadóttir,
hjúki-unai'fræðingur, Vopna-
firði.
10. Egill Jónsson, alþingis-
maður, Horna
Frumvarp
boðað
Ráðherra
ráði stað-
setningu rík-
isstofnana
FORSÆTISRÁÐHERRA mun
á næstunni leggja fram laga-
frumvaip á Alþingi þar sem
kveðið er á um heimild ráðherra
til að ákveða hvar þær ríkis-
stofnanir sem heyra undir hann
hafa aðsetur.
Að’ sögn Kristjáns Andra
Stefánssonar í forsætisráðu-
neytinu er frumvarpið lagt fram
í kjölfar dóms Hæstaréttai' frá
18. desember sem taldi að ríkis-
stofnanir skyldu hafa aðsetur í
Reykjavík nema lög mæltu fyi’-
ir um annað. Við þessu verði
brugðist með því að setja í lög
almennar heimildir ráðherra til
að ákveða hvar stofnanir skuli
staðsettar.
Margrét efst á
Suðurlandi
MARGRÉT Frímannsdóttir,
þingmaður Alþýðubandalags-
ins, verður í fyrsta sæti á lista
Samfylkingarinnar í Suður-
landskjördæmi og Lúðvík
Bergvinsson, þingmaður Al-
þýðuflokksins verður í öðru
sætinu, samkvæmt niðurstöðu
uppstillingarnefndar á vegum
Samfylkingarinnar í Suður-
landskjördæmi.
í næstu þremur sætum verða
Katrín Andrésdóttir, dýralækn-
ir, Reykjum á Skeiðum, Björg-
vin G. Sigurðsson, háskólanemi,
Skarði í Gnúpverjahreppi, og
Guðjón Ægir Sigfurjónsson,
lögmaður, Selfossi.
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins hefur þegai' staðfest
listann og gert er ráð fyrir að
kjördæmisráð Alþýðuflokksins
og Kvennalistans eða jafngildi
þein-a staðfesti hann í vikunni.-
firði.