Morgunblaðið - 03.02.1999, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hús Byggðastofnunar til sölu
Heimamenn
sýna áhuga
ÞRJÚ formleg tilboð bánist í hús-
eign Byggðastofnunar við Strand-
götu á Akureyri. Guðmundur
Malmquist, forstjóri Byggðastofn-
unar, var að fara yfir tilboðin í
gær. Hann vildi ekki ræða tilboðin
að öðru leyti en því að þau væru
nokkuð álíka og öll frá heima-
mönnum.
Húsnæði Byggðastofnunar er
tvær hæðir og ris, samtals um 680
fermetrar að stærð. Byggðastofn-
un keypti húsnæðið árið 1993 og
þar hefur starfsemi stofnunarinn-
ar verið fram til þessa. Auk þessa
eru í húsinu átta aðrar stofnanir,
sem sagt hefur verið upp leigu-
samningi vegna sölunnar á húsinu.
Eins og fram hefur komið hefur
starfsemi Byggðastofnunar á
Akureyri verið lögð niður og fjór-
um starfsmönnum stofnunarinnar
sagt upp störfum. Guðmundur
sagði að starfseminni á Akureyri
yrði skipt upp, hluti hennar flyttist
til Sauðárkróks, hluti færi undir
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
en lánastarfsemi og fleira tengt
fjái-málum færi undir stofnunina í
Reykjavík.
Starfsemi Sjóklæðagerðarinnar hafín
Saumavélarnar
í gang að nýju
ÞAÐ VAR létt yfir saumakonun-
um sem mættu til vinnu hjá 66iN-
Sjóklæðagerðinni á Akureyri í
gær, en fyrirtækið hóf þá starf-
semi í húsnæði því sem Folda var í
áður á Gleráreyrum. Ullariðnaðar-
fyrirtækið Folda varð sem kunn-
ugt er gjaldþrota skömmu íyrir
síðustu jól. Prjónadeild þess hefur
verið seld til Hvammstanga og vef-
deildin verður flutt til Skaga-
strandar.
Sjóklæðagerðin keypti fyrii'
skömmu fataframleiðsluvélar
þrotabús Foldu á Akureyri og er
ætlunin, að sögn Tómasar Agnars-
sonar framleiðslustjóra, að fyrst í
stað verði starfsemin í húsnæðinu
á Gleráreyrum en á næstu mánuð-
um verður leitað að hentugra hús-
næði.
„Það eru hér að störfum nú til að
byrja með fimmtán manns, allt fólk
sem áður vann á saumadeild
Foldu. Fólk er auðvitað ánægt með
að fá störf aftur. Það er gott hljóðið
Morgunblaðið/Kristján
SAUMAVÉLARNAR á Gler-
áreyrum fóru í gang að nýju eftir
nokkurt hlé í gær, en Sjóklæða-
gerðin keypti fyrir nokkru fata-
framleiðsluvélar þrotabús Foldu.
í mönnum,“ sagði Tómas. Sauma-
konur voru í óða önn að loðfóðra
kuldagalla á fyrsta vinnudeginum,
en uppistaðan í verkefnum Sjó-
klæðagerðarinnar nyrðra verður
gerð kulda- og hlífðarfatnaðar.
Einnig verður framleiddur vinnu-
fatnaður og regnfatnaður undir
merkjum 66iN og Max og verður
sú framleiðsla ætluð til útflutnings.
Margir vilja í
slökkviliðið
TUTTUGU umsóknir bárust um
störf slökkviliðsmanna hjá Slökkvi-
liði Akureyi’ar. Fjórar fastar stöð-
ur slökkviliðsmanna voru auglýstar
lausar og einnig sumarafleysingar í
sumar.
Tómas Búi Böðvarsson slökkvi-
liðsstjóri sagði þetta svipaðan
fjölda umsókna og hann átti von á.
Stefnt er að því að ráða í stöðurnar
fljótlega en gert er ráð fyrir að
fjölga slökkviliðsmönnum í fjóra á
vakt þann 1. maí nk.
Samningur við heilbrigðisráðu-
neytið, sem undimtaður var fyrir
áramót um aukna þátttöku ráðu-
neytisins í rekstri stöðvarinnar
byggist á því að fjölga slökkviliðs-
mönnum á vakt en slökkviliðs-
menn sjá einnig um sjúkraflutn-
inga.
„Við eigum að veita þá þjónustu
sem þýðir að við verðum að fjölga á
hverri vakt og ríkið greiðir um
helming þess kostnaðar á móti
bænum,“ sagði Tómas Búi.
Hraölestrarnámskeiö á Akureyri.
Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
">■* Viltu margfalda afköst í námi um alla framtíð?
Ef svar þitt er jákvætt, skaltu skrá þig strax á námskeið
sem hefst á Akureyri 12. febrúar n.k.
Skráning er í síma 565 9500
HRAÐLESTRARSKÓLINN
www.ismennt.is/vefir/hradlestrarskolinn
Fjölmenni á skíðadegi í Böggvisstaðafjalli
Morgunblaðið/Kristján
MIKILL fjöldi fólks tók þátt í skíðadegi fjölskyldunnar í Böggvisstaðaljalli við Dalvík um helgina. Þeir sem
ekki voru nógu stórir til að fara sjálfir upp með lyftunni fengu bara far með mömmu og jafnvel báðar leiðir.
Skíðað var gegn
vímu í góðu veðri
Á ANNAÐ hundrað manns, á öll-
um aldri, tóku þátt í skíðadegi
fjölskyldunnar í Böggvisstaða-
fjalli í Dalvíkurbyggð sl. sunnu-
dag. Skíðafélag Dalvíkur og
Lionsklúbbarnir á Dalvík stóðu
fyrir fjölskyldudeginum, undir
slagorðinu; Skíðum gegn vímu.
Guðbjörg Jóhannesdóttir, vara-
formaður Lionsklúbbsins Sunnu,
sagði að fjölskyldudagurinn hefði
tekist mjög vel £ alla staði, enda
hafí veðrið verið yndislegt. „Til-
gangurinn með deginum var að
vekja athygli á vímuvörnum á
svæðinu og um leið að minna á
okkur og starf okkar.“
Guðbjörg sagði að ástandið í
vímuvarnamálum í bænum væri
hálfskuggalegt. Hún sagði
ástandið í vetur þó heldur skárra
en í fyrra og árið þar áður.
„Krakkamir hafa aðallega haft
áfengi og tóbak undir höndum en
í fyrra og hittifyrra vora fíkniefni
hér í umferð. Maður verður mun
meira var við þetta í svona litlu
bæjarfélagi og því er um að gera
að gera allt til að sporna við þeirri
þróun. Við getum fylgst betur
með og okkar markmið er að
vekja upp umræðu um þennan
vanda.“
Vímuefnum sagt
stríð á hendur
Á fjölskyldudeginum á sunnu-
dag var m.a. keppt í samhliðasvigi
á snjóbrettum, auk þess sem um
40 börn í 3. bekk og yngri reyndu
fyrir sér í þrautabraut. Frítt var í
skíðalyftur og þá vora sleða-,
þotu og gönguskíðabrautir opnar.
Lionsklúbbamir þrír í Dalvík-
urbyggð, Lkl. Sunna, Lkl.
Hrærekur og Lkl. Dalvíkur og
Skíðafélagið hafa komist að sam-
komulagi um að halda árlega
skíðamót sem ber nafnið Vímu-
varnamót Lions. Fyrsta mótið
verður haldið um næstu helgi,
dagana 6. og 7. febrúar. Með slag-
orðinu „Skíðum gegn vímu“ vilja
aðstandendur mótsins segja
vímuefnum stríð á hendur. Keppt
verður í svigi, stórsvigi og á snjó-
brettum og hefur Ólafsfirðingum
verið boðið að taka þátt í mótinu,
auk heimamanna. Félögin hvetja
UM 40 börn reyndu fyrir sér í þrautabrautinni og þótt þau hafi
ekki öll verið há í loftinu sýndu þau góð tilþrif.
ÞAÐ var hart barist í samhliðasvigi á snjóbrettum, þar sem krakk
arnir reyndu fyrir sér bæði innbyrðis og gegn foreldrum sínum.
alla íbúa við utanverðan Eyjafjörð
að koma í fjaliið og eiga saman
góðan vímulausan dag.
Stefnt að stofnun
vímuvarnasjóðs
Guðbjörg sagði að meiningin
væri að vera með kaffisölu um
næstu helgi og að ágóðinn rynni í
vímuvarnasjóð í Dalvíkurbyggð.
„Slíkur sjóður er ekki til hér en
málið er á framstigi og við eigum
eftir að ræða við bæjarstjóra um
málið. Markmiðið er að sjóðurinn
verði notaður til fræðslu og for-
varaa, enda þörfin mikil.“