Morgunblaðið - 03.02.1999, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
B-listi og D-listi slíta meirihluta-
samstarfí í Grindavík
Framsóknar-
menn mynda
meirihluta
með J-lista
FRAMSÓKNARMENN og fulltrú-
ar J-lista, jafnaðarmanna og félags-
hyggjufólks, náðu samkomulagi sl.
sunnudagskvöld um myndun nýs
meirihluta í bæjarstjórn Grindavík-
ur. Upp úr samstarfi Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðiflokks slitnaði sl.
fostudag vegna ágreinings um ráðn-
ingu í starf yförverkstjóra áhalda-
húss bæjarins. Framsóknarfiokkur
og Sjálfstæðisflokkur hafa verið í
meirihluta i Grindavík undanfarin 17
ár.
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur eru með 2 fulltrúa hvor í
bæjarstjórn en J-listinn með þrjá.
Að sögn Harðar Guðbrandssonar,
efsta manns á J-listanum, óskuðu
bæði sjálfstæðismenn og framsókn-
armenn eftir viðræðum við J-listann
eftir að upp úr hafði slitnað. Ræddu
fulltrúar J-iistans fyrst við sjálfstæð-
ismenn á sunnudag og í framhaldi af
því við framsóknarmenn. Var síðan
ákveðið á sunnudagskvöldið að halda
áfram viðræðum við framsóknar-
menn sem leiddi til þess að undirrit-
uð voru drög að samkomulagi og
viljayfirlýsing um samstarf B-lista
og J-lista aðfaranótt mánudags.
Talið er víst að samkomulagið verði
staðfest á félagsfundum framboðs-
listanna í dag.
Agreiningur um ráðningu
yfírverkstjóra
Aðspurður hvað hefði valdið því að
upp úr samstarfínu við sjálfstæðis-
menn slitnaði sagði Hallgrímur
Bogason, odditi B-listans og forseti
bæjarstjómar: „Þeir óskuðu eftii' því
að formaður sjálfstæðisfélagsins yrði
settur sem verkstjóri bæjarins. Ég
gat ekki unað við þá lausn og þeir
voru ekki tilbúnir til neinnar mála-
miðlunar um það mál. Þeir fóru því
að leita fyrir sér hvort þeir fengju
stuðning einhvers staðar annars
staðar. Við unnum síðan þann slag,“
svaraði hann. „Þetta er búið að vera
17 ára samfellt samstarf, sem ég
held að hafi yfírhöfuð gengið mjög
vel. Á þessu kjörtímabili höfðu ekki
verið átök um eitt eða neitt,“ sagði
hann.
Ólafur Guðbjai-tsson bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisfiokksins, segir að sam-
starfsslitin hafi átt sér nokkurn að-
draganda. Málefni áhaldahússins hafi
verið í ólestri. „Við vildum leysa það
og fengum bæjarstjóra það verkefni
að fara ofan í málið og gera tillögur.
Fram komu þrjár tillögur og sú til-
laga sem bæjarstjóri mælti með var
sú að yfirverkstjóri yrði færður til og
aðstoðarverkstjóri yrði settur sem
yfirverkstjóri. Annað yrði ekki gert
vegna þess að þarna er um að ræða
menn sem eru 67 og 68 ára gamlir og
var gert ráð fyrir að þeir fengju að
ljúka sínum starfsferli þama. Síðar
yrði svo auglýst starf yfirverkstjóra,“
sagði Ólafur. Hann sagði að báðir
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
og annar bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins hefðu samþykkt að fara
þessa leið og gera annan af tveimur
aðstoðarverkstjórum áhaldahússins
að yfirverkstjóra en Hallgrímur
Bogason hefði verið ófáanlegur til að
samþykkja þá tillögu og viljað aug-
lýsa starfið strax. „Við vorum að
reyna að fara mannlegu leiðina við
lausn á þessum vanda,“ sagði hann.
I samkomulagi nýja meirihlutans
er gengið út frá því að Einar Njáls-
son gegni áfram stöðu bæjarstjóra
Grindavíkur.
Morgunblaðið/ÓIafur Jens Sigurðsson
Framkvæmdum við
Búlandshöfða miðar vel
Hellissandi - Það hefur vakið at-
hygli hvað framkvæmdum miðar
hratt hjá Héraðsverki ehf. í
Búlandshöfðanum. Greina má
hvaða svip nýi vegurinn tekur á sig
og hvað hann kemur til með að
verða mikil samgöngubót. Hermt er
að Héraðsverk muni senn taka upp
tvöfaldar vaktir og mun þá verkið
vitaskuld ganga langtum hraðar.
Velinö
Fegurðin kemur innan frá
Laugavegi 4, sími 551 4473.
Heldur þú að
C-vítamm sé nóg ?
NATEN
- er nóg l
FRÁ afhendingu viðurkenningarinnar. Hólmfríður Sigurðardóttur tók við viðurkenningu fyrir hönd Róberts
Gunnarssonar, Guðmundur Mete, Jóhann R. Benediktsson og Gísli Stefánsson sem tók við viðurkenningunni
fyrir Val Fannar Gíslason og Stefán Gíslason.
Fjárhags-
áætlun
Húsavík-
urbæjar
samþykkt
Húsavík - Fjárhagsáætlun Húsa-
víkurbæjar sem lögð var fram í
desember var samþykkt með lítils-
háttar breytingum á bæjarstjórn-
arfundi hinn 28. janúar.
Heildartekjur bæjarsjóðs og
bæjarfyrirtækja eru áætlaðar 674
millj. kr. og er það um 58 millj. kr.
hækkun frá fyrra ári. Heildar-
rekstrargjöld eru aftur á móti
áætluð 575 millj. kr. Til verklegra
framkvæmda og fjárfestinga er
áætlað að verja 769 miUj. kr. á
móti 436 millj. kr. á fyrra ári og er
það hækkun um 332 millj. kr.
Útgjöld til eftirgreindra mála-
flokka eru þessi: Til fræðslumála
eru áætlaðar 155 millj. kr., til fé-
lagsmála 57 millj. kr., æskulýðs-
og íþróttamála 35 millj. kr., al-
menningsgarða og útivistar 28
millj. kr., skipulags- og byggðar-
mála 17 millj. kr., fjármagnsgjöld
eru áætluð 33 millj. kr. og yfir-
stjóm bæjarins 44 millj. kr.
Útsvör em áætluð 349 millj. kr. og
fasteignaskattar 51 millj. kr.
Heildarlántökur eru áætlaðar
763 millj. kr. en afborganir lána 70
millj. kr. þannig að ráð er gert fyr-
ir að skuldir hækki um 693 millj.
kr. og em þá langtímaskuldir bæj-
arsjóðs og bæjarfyrirtækja áætl-
aðar í árslok 1269 millj. ki'. en þar
af em 613 millj. kr. vegna orku-
veitu.
Álagningarhlutfall útsvars er
12,4% sem er hámarksútsvar.
„I ljósi sífellt erfiðari rekstrar-
stöðu sveitarfélaga á undanfórnum
áram er erfitt að sjá að þau geti
annað er nýtt sér þennan megin-
tekjustofn sinn, að öðram kosti
verða þau að draga úr þeirri þjón-
ustu sem veitt er,“ sagði bæjar-
stjórinn Reinhard Reynisson þá er
hann lagði fjáhagsáætlunina fram
til fyrri umræðu.
Atlavík sport
veitir viður-
kenningu
Eskifirði - Fyrir skömmu hélt Atla-
vík sport hóf þar sem þeir Eskfirð-
ingar sem hafa leikið með landslið-
um í knattspyrnu fengu viður-
kenningu.
Austri hefur lengi átt fulltrúa í
yngri landsliðum og eru þeir nú
orðnir fimm talsins og hafa leikið
104 leiki til samans. Valur Fannar
hefur spilað 58 leiki en hann hefur
Ieikið með öllum yngri landsliðum
og má geta þess að í einum leik í
haust átti Austri fjóra menn í byij-
unarliði á móti Hvíta-Rússlandi.
Þessir fræknu fótboltamenn eru
Valur Fannar Gíslason, Stefán
Gíslason, Guðmundur Mete, Jó-
hann R. Benediktsson og Róbert
Gunnarsson.
Seljum í nokkra daga lítið utlitsgölluð husgögn
með allt að 50% afslætti
Opið:
lau. 6/2 kl. 11-16
sun. 7/2 kl. 13-17
Mörkinni 3
sími 588 0640
fax 588 0641
casa@islandia.is