Morgunblaðið - 03.02.1999, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Hið bíræfna rán á eina Rembrandt-málverkinu sem varðveitt var í Danmörku
TILRAUN til fjárkúgunar eða
„pöntun“ er líklegasta skýringin á
ráni tveggja ómetanlegra málverka
úr Nivaagaards-safninu síðdegis
síðastliðinn föstudag.
Með ráninu hafa safnið og Dan-
mörk orðið fyrii- barðinu á dapur-
legri og vaxandi áráttu þjófa um
allan heim til að seilast eftir ómet-
anlegum listaverkum. Tíðni verka,
sem skila sér er ekki uppörvandi
því aðeins um tíundi hluti stolinna
listaverka ratar aftur á réttan stað.
Oryggi í kringum myndirnar ómet-
anlegu var ekki í neinu samræmi
við myndirnar og þó ýmsir bendi á
að tryggarí gæsla geti leitt af sér
harkalegri aðferðir glæpamanna þá
virðast þó aðstæður á Nivaagaard
hafa verið langt fyrir neðan það
sem ætlast má til í kringum aðra
eins fjársjóði.
Lítið safn með
mikil listaverk
Nivaagaard er lítið safn í Nivaa,
norðan Kaupmannahafnar, skammt
frá nútímalistasafninu Louisiana.
Safnið er til húsa í gömlu húsi og
nýrri viðbyggingu, stofnað af list-
unnandanum Johannes Hage, 1842-
1923. Hage lánaðist að kaupa merk
verk, eins og konumynd eftir
Rembrandt er glæsilegasta dæmið
um, en hann keypti einnig myndir
eftir endurreisnarmálara eins og
Giovanni Bellini, en málverki hans
af ungum manni var einnig stolið. I
alþjóðlegri úttekt á verkum
Rembrandt var konumyndin í Ni-
vaagaard úrskurðuð einasta
Rembrandtmálverkið í Danmörku.
Föstudagurinn í Nivaagaard var
rólegur, eins og oft er í þessu yfir-
lætislausa safni. Tveir frakka-
klæddir menn komu þar eftir há-
degi og borguðu orðalaust, sem síð-
an hefur verið túlkað sem vísbend-
ing um að þeir hafi verið útlending-
ar. Nokkrir eldri gestir fóiu um
þetta leyti og mennirnir þá einu
gestimir. Þegar vörðurinn, maður
um sjötugt, heyrði hljóð líkt og eitt-
hvað skrapaðist við vegginn hljóp
hann inn í salinn, en þá kom annar
maðurinn hlaupandi á móti honum
með Rembrandt-myndina undir
hendinni og stuggaði við honum.
Um leið kom hinn maðurinn hlaup-
andi með Bellini-myndina. Oldung-
urinn reyndi að koma í veg fyrir að
• •
Oryggi sagt
vera áfátt
Hvernig má það vera að tveimur af
dýrmætustu málverkum Dana sé bara
tyllt á krók á listasafni og þeirra gætt af
sjötugum manni? Að þessu spyrja Danir
sig eftir að Rembrandt-málverki var
stolið fyrir helgi. Sigrún Davíðsdóttir
hugar að viðbrögðunum.
þeir keyrðu af stað, en
hlaut pústra íýrir.
Seinna um daginn
fannst svo bíll bófanna
skammt frá, stolinn bíll
með sænsku númeri. Af
þeim hefur hvorki sést
tangur né tetur.
Verðmæt en
óseljanleg verk
Lögreglan einbeitir
sér nú að því að rann-
saka ránstaðinn og bíl-
inn í leit að vísbending-
um, en einnig að yfir-
heyra starfsfólkið, því
gengið er út frá því sem
vísu að ránið hafi verið
vandlega undirbúið og
þjófarnir og samstarfs-
menn þeirra hljóti því
að hafa heimsótt safnið
til að kynna sér aðstæð-
ur. Mikið af vísbending-
um berst frá almenn-
ingi og því í mörg horn
að líta hjá lögreglunni.
Einnig hefur verið haft
samband við Interpol.
Milljarður íslenskra króna er ein
þeh-ra upphæða sem nefndar eru
sem verðmæti verkanna, en í raun
er ekki hægt að slá tölu á þau, því
svona verk eru einfaldlega varla til
Reuters
REMBRANDT-málverkið sem stolið var,
„Svipmynd af hefðarkonu“.
sölu. Ebbe Simonsen yfirmaður
Nivaagaard vill ekki gefa upp nein-
ar tölur um verðmæti myndanna,
né heldur gefa upp fyrir hve mikið
verkin tvö séu vátryggð. Það er þó
ekki þar með sagt að þjófarnir geti
búist við að snara milljarði í vas-
ann, því verkin eru vendilega skráð
í alþjóðlegum skrám og munu því
vekja athygli.
Oft er því fleygt að þjófnaðir á
frægum verkum séu pantaðir af
listunnendum, sem vilji allt til vinna
að komast yfir verk. Þeir sem
þekkja til álíta þó að slíkar sögu-
sagnir séu orðum auknar, því
ánægja safnara felist oftar í því að
geta sýnt safn sitt en halda því fyrir
sig.
Mörg ævintýraleg dæmi eru um
snör handtök þjófa. Þannig tók það
þjófa aðeins hálfa mínútu 1994 að
hrífsa Opið, málverk Edvards
Munchs og komast undan en það
málverk náðist nokkmm mánuðum
síðar með klækjum. Fyrir fimm ár-
um var voldugum gullhálshring
stolið af Moesgaard safninu á Jót-
landi, en honum skilað eftir að
greiddar vom tæplega tvær millj-
ónir íslenskra króna til þjófanna,'
sem aldrei hafa fundist. Fyrir sjö
áram var handritinu að sögu H.C.
Andersen, Litlu hafmeyjunni, stolið
af H.C. Andersensafninu í Oðinsvé-
um. Handritið, sem metið var á
rúmar 40 milljónir íslenskra króna
hefur aldrei komið í leitirnar.
Athyglin beinist að
þjófavörnum
Forsvarsmenn Nivaagaard
safnsins hafa ekki viljað viðurkenna
að öryggi safnsins væri áfátt. Þeir
benda meðal annars á að mikil
gæsla geti leitt til harðari aðferða
og notkunar skotvopna. Og ef
myndirnar séu of fastar sé hætta á
að þær séu skornar úr rammanum.
Flestir eru þó sammála um að eðli-
legt sé að ætlast til að þjófavarnai--
kei’fi sé við safngripi, sem gefi til
kynna séu verkin hreyfð. Eina
varnarkerílð í Nivaasafninu var
viðvörunarkerfi í afgi’eiðslunni, en
það var ekki notað við ránið, heldur
hringdu starfsmennirnir í lögregl-
una. Dæmi úr öðrum safnránum
sýna þó að þjófum er oft leikur einn
að leika á varnarkerfi.
Atburðurinn hefur þó án efa ýtt
undir að eftirlit á dönskum söfnum
verði hert. Það hjálpar samt ekki
safninu í Nivaa, sem nú má vera án
helstu glæsiverka sinna og merk-
ustu listaverka Dana.
Tollfrjáls verzlun innan ESB
Þegar ákveðið að
fresta banni?
Brussel. Reuters.
„Vopnahlé“ í bananadeilunni
Spánverjar beðn-
ir um milligöngu
Bonn. Reuters.
TALSMAÐUR framkvæmda-
stjómar Evrópusambandsins
(ESB) greindi frá því í gær að
verið væri að kanna möguleik-
ann á því að veita frekari frest á
gildistöku banns við tollfrjálsri
verzlun innan sambandsins.
Talsmaðurinn, Elisabetta
Olivi, vísaði hins vegar á bug
frétt sem birtist í danska dag-
blaðinu Politiken um að það
væri nú þegar búið að taka
ákvörðun um að fresta banninu,
sem að óbreyttu tekur gildi 1.
júlí næstkomandi.
„Framkvæmdastjórnin er að
kanna vinnumarkaðsáhrif hinna
ýmsu valkosta sem eru uppi á
borðinu í sambandi við toll-
fijálsa verzlun," sagði OIivi.
Einn þessara valkosta væri „tak-
mörkuð framlenging" á frestin-
um. Hún tók fram að leiðtogar
aðildarríkjanna 15 hefðu á fundi
sínum í Vín í desember ákveðið
að fela framkvæmdastjórninni
þetta verkefni.
Politiken hafði í gær eftir Stig
Elling, forseta sambands
danskra ferðaskrifstofa sem sér-
hæfa sig í leiguflugi, að heim-
ildamenn innan framkvæmda-
stjórnarinnar hefðu upplýst
hann um að þegar hefði verið
ákveðið að fresta gildistöku
bannsins í á að gizka hálft, ár
fram yfir 1. júlí.
Ríkisstjórnir ESB-ríkjanna
urðu ásáttar um það árið 1991,
að afnema bæri tollfrjálsa verzl-
un í ferðum innan innri markað-
arins, sem þá hafði verið ákveð-
ið að fullgera, á þeirri forsendu
að eftir að innri markaðurinn
yrði að veruleika skekkti frí-
hafnai-verzlunin samkeppni inn-
an hans.
Ýmsir hagsmunaaðilar, þar á
meðal í ferðaþjónustu, hafa
þrýst mjög á um að hætt verði
við að afnema tollfrjálsa verzlun
í flughöfnum og á ferjum innan
sambandsins, þar sem atvinna
mikils fjölda fólks væri í húfi.
BANDARÍSK stjórnvöld binda
vonir við að Spánverjar geti gegnt
hlutverki sáttasemjara í deilunni
um bananainnflutningsreglur
ESB, sem að óbreyttu stefnir í að
leiða til viðskiptastríðs milli þess-
ara tveggja stærstu viðskiptarisa
heimsins, Bandaríkjanna og ESB.
Charlene Barshefsky, fulltrúi
Bandaríkjanna hjá Heimsvið-
skiptastofnuninni, WTO, sagðist
hafa æskt liðveizlu spænsku stjóm-
arinnar til að telja framkvæmda-
stjórn ESB á að semja um lausn á
deilunni.
Á mánudag sagðist Barshefsky
ekki ýkja vongóð um að takast
muni að finna lausn á deilunni í
þeirri sáttasamningalotu sem
ákveðin var í Genf á fóstudag.
„Við höfum farið fram á það við
erindreka spænsku ríkisstjómar-
innar að þrýsta á framkvæmda-
stjórnina að setjast að samninga-
borði með okkur á þessu 30 daga
sáttasamningatímabili og sjá hvort
okkur miði ekki í átt að samkomu-
lagi,“ sagði Barshefsky eftir fundi
með ráðuneytismönnum í Madríd.
Hún vísaði til þess að Evrópu-
sambandið hefði, að hennar mati,
enn ekki staðið við að hlíta fym úr-
skurði sáttanefndar WTO um að
ESB-reglumar samræmdust ekki
reglum WTO um frelsi í alþjóðavið-
skiptum.
Fulltrúar ESB og Bandaríkj-
anna náðu í lok síðustu viku sam-
komulagi um að bandarísk stjórn-
völd bíði með að setja á refsitolla á
ákveðnar vörur frá ESB unz WTO
hefur aftur farið yfir endurskoðað-
ar bananainnflutningsreglur ESB,
sem að mati fulltrúa ESB em nú í
fullu samræmi við reglur WTO.
Skuldbundnir til að leita
tvíhliða lausnar
Samkvæmt þessu „vopna-
hléssamkomulagi“ hafa deilendur
skuldbundið sig til að reyna sitt
ýtrasta næstu vikur til að finna tví-
hliða lausn á vandanum.
Bandarísk stjórnvöld telja ban-
anainnflutningsreglur mismuna
framleiðendum með óeðlilegum
hætti, þannig að bananaframleið-
endur í Mið-AmeiTkuríkjum, þar
sem bandarísk útflutningsfyrir-
tæki era stórtækust, verði af mikl-
um viðskiptum. ESB-reglurnar
veita banönum frá fyrrverandi ný-
lendum Evrópuríkja greiðari að-
gang að Evrópumarkaðnum.
Arásir á
Irak
BANDARÍSKAR herþotur
gerðu fimm árásir á skotmörk
í suður- og norðurhluta Iraks í
gær að sögn talsmanna banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins
í gær. Sögðu þeir árásirnar
hafa verið gerðar í varnar-
skyni. Itrekað^ hefur skorist í
odda eftir að Irakar tilkynntu
að þeir viðurkenndu ekki leng-
ur flugbannssvæði Sameinuðu
þjóðanna yfir írak í kjölfar
árása Breta og Bandaríkja-
manna á Irak í desember.
Snera allar herþotur Banda-
ríkjamanna heilu og höldnu
aftur til búða sinna í Suður-
Tyrklandi.
35 falla í
Guinea-Bissau
HJÁLPARSTARFSMENN í
Afríkuríkinu Guinea-Bissau
sögðu í gær að þrjátíu og fimm
manns hefðu fallið í hörðum
átökum milli stjórnarhersins í
landinu og uppreisnaiTnanna
sem sækja að höfuðborginni,
Bissau. Særðust einnig 220
manns en átökin áttu sér stað
á sunnudag og mánudag.
Munu flestir hinna látnu hafa
verið óbreyttir borgarar en
átökin þykja til marks um að
friðarsamkomulag, sem náðist
í nóvember og batt þar með
enda á fimm mánaða borgara-
stríð í þessari fyrrverandi ný-
lendu Portúgals, stæði tæpt.
Sex sleppt
í Jemen
FJÓRUM Hollendingum og
tveimur Bretum, sem haldið
hefur verið í gíslingu mann-
ræningja í Jemen í tvær vikur,
var í gær sleppt úr haldi.
Höfðu mannræningjarnir
haldið fólkinu í gíslingu í því
augnamiði að þvinga fram
lausn félaga síns úr fangelsi.
Barnfóstra
dæmd
ÁSTRÖLSK bamfóstra var í
gær dæmd í fimmtán mánaða
skilorðsbundna fangelsisvist
fyrir rétti í
Bretlandi í
gær. Var barn-
fóstrunni, Lou-
ise Sullivan,
jafnframt skip-
að að halda
heim á leið og
leita sér þar
ásjár geð-
lækna en Sulli-
van, sem er 27 ára, hefur viður-
kennt að hafa hrist kornabarn í
hennar umsjón, sem varð þess
valdandi að barnið dó. Sagði
dómarinn að Sullivan hefði
ekki verið fullkomlega heil á
geði sem þýddi að henni hefði
aldrei átt að treysta íyrir ör-
yggi mjög ungra barna.
34 myrtir
í Alsír
DAGBLAÐ í Alsír gi’eindi frá
því í gær að uppreisnarmenn í
landinu hefðu skorið 34 á háls í
þremur árásum á sunnudag.
Myrtu uppreisnarmennirnir
nítján í þorpinu el Merdja, níu
í Saharidji og sex í þorpinu
Telassa en þessi þorp eru öll
um 160 kílómetra vestur af
Algeirsborg. Hafa slíkar árásir
verið afar algengar á þessu
svæði undanfarna mánuði.
Louise
Sullivan