Morgunblaðið - 03.02.1999, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Schola
cantorum
TOJVLIST
Hallgríinskirkja
KÓRSÖNGUR
Mótettukór Hallgrímskirkju flutti ís-
lenska og erlenda kórtónlist; org-
anisti Douglas Brotchie, einsöngvari
Marta Halldórsdóttir, einleikari á óbó
Daði Kolbeinsson; stjórnandi var
Hörður Áskelsson. Hallgrímskirkja,
sunnudag kl. 17.
KAMME RKÓRINN Schola
cantoi-um er afsprengi Mótettukórs
Hallgrímskirkju, skipaður úrvals
söngfólki úr móðurkómum. Hörður
Áskelsson er stjórnandi beggja kór-
anna. I sumar vakti kórinn mikla at-
hygli fyrir velgengni sína á erlendri
grund er hann hreppti fyrsta sætið í
alþjóðlegri kórakeppni í Frakk-
landi. Þennan frama þarf engan að
undra sem heyrði í kórnum á
sunnudag; tær og hreinn kórhljóm-
ur er aðalsmerki þessa ágæta kam-
merkórs, en einnig það sem máli
skiptir, músíkalskur söngur. Það
sem er einnig heillandi við söng
kórsins, er það hversu vel hann
þekkir heimili sitt, Hallgrímskirkju,
og kann að spila á hljómhvolf húss-
ins til að ná fram enn áhrifaríkari
blæbrigðum í söng sínum.
Þrjár mótettur eftir Thomas Tall-
is, Purge me, 0 Lord; Verily, verily,
I say unto you og O Lord, give thy
Holy Spirit, voru gríðarlega fallega
sungnar, og til þess fallnar að stilla
hug og sál á andlegar viddir. Þótt
kórinn syngi innst í kór kirkjunnar
hljómaði söngurinn fallega út og
fínlegustu blæbrigði í styrk og
dýnamík, eins og í upphafí annarrar
mótettunnar voru skýr og áhrifa-
mikil. Fimm radda mótetta um
bænina Faðir vor, The Lord’s Pra-
yer eftir samtímamann Tallis, John
Sheppard var einnig heillandi tón-
smíð og fallega sungin. Síst verk-
anna á fyrri hluta tónleikanna var
messan Missa dies sanctificatur eft-
ir meistara sextándu aldarinnar
Giovanni Pierluigi da Palestrina.
Palestrina samdi meira en hundrað
messur, og aðeins hluti þeirra, eins
og hin sígilda Missa Papae Marcelli
heyrist oft. Þessi messa er ekki þar
á meðal og eflaust er það vegna
þess að hún er ekki jafn rismikil
tónsmíð og þær sem oftar heyrast.
En auðvitað er Missa dies sanct-
ifícatur þess verð að hún sé flutt,
ekki síst þegar söngurinn er jafn
fagur og hjá Schola cantorum.
Hápunktur tónleikanna var
flutningur tveggja íslenskra verka;
- ekki einvörðungu vegna þess að
þau voru íslensk, - heldur fyi-st og
fremst vegna þess að þau voru
hvort um sig úrvals tónsmíð. Þor-
kell Sigurbjörnsson samdi Clarcit-
as 1992 að beiðni Norrænu tónlist-
arnefndarinnar NOMUS. Verkið
var frumflutt á Nordklang hátíðinni
sama ár, Textinn er úr Biblíunni,
fyrsta Kórintubréfí. Nú var kórinn
staðsettur framar og hljómurinn
sterkari og kraftmeiri. Einstaka
raddir kórsins fengu hér notið sín
meir en í endurreisnarverkunum,
og þá mátti heyra hvað hver og ein
þeirra er í raun góð og styrk. Ait-
arnir sungu sérstaklega fallega þar
sem þeir áttu sólóstrófur á undan
og með karlaröddum bæði í upphafí
á textanum nunc autem og síðar, á
textanum quis parabit. Karlaradd-
irnar eru báðar mjög góðar og
sópraninn hijómfagur og tær. I
textanum er sungið um hljóm hljóð-
færanna, og söng raddarinnar og
mikilvægi þess að það sem sagt sé
hljómi skilmerkilega; - þ.e. að
KVIKÍYIYJVIHK
Rcgnboginn, Sainbfóin
\ 1 fabakka
UMSÁTRIÐ
(„THE SIEGE") ★★
Leikstjóri Edward Zwick. Handrits-
höfundur Lawrence Wright, Zwick.
Kvikmyndatökustjóri Roger Deakins.
Tónskáld Graeme Revell. Aðalleik-
endur Denzel Washington, Annette
Bening, Bruce Willis, Tony Shaloub.
115 mín. Bandarísk. 20th Century
Fox, 1998.
HRYÐJUVERKASTARFSEMI
N í Austurlöndum nær, sem teygði
anga sína allt til Vesturheims með
sprengingunni í World Trade Cent-
er, er kveikjan að tryllinum The Si-
ege. Hún dugar því miður ekki til,
handritshöfundamir blanda banda-
ríska landhernum í atburðarásina í
hálfleik og skella herlögum á New
York-borg. The Siege hefði orðið
miklu betri ef þeir hefðu látið sér
nægja annað umfjöllunarefnið.
Hasarinn byrjar þegar arabískir
borgarskæruliðar sprengja strætis-
vagn í loft upp í Brooklyn. Alríkis-
lögreglan (FBI), undir stjórn Ant-
honys Hubbard (Denzel Was-
hington), ásamt Frank Haddad
(Tony Shaloub), stjórnar rannsókn-
inni. Hryðjuverkamennirnir láta
ekki þar við sitja, Broadway-leikhús
fer sömu leiðina og leyniþjónustan
hljóðin glati ekki merkingu sinni.
Falleg endurtekin söngmótíf brot-
inna hljóma hljómuðu eins
hvellandi bjölluhljómur rétt eins og
til að minna á merkingu þessara
orða.
Lokaverk tónleikanna, Sam’s
Mass eftir John Speight, samið 1997
í minningu tvítugs pilts, Samuels
Bakers, var mjög áhrifaríkt. Það er
byggt á hefðbundnum texta sálu-
messunnar, sungnum af kórnum, en
inn í þann vef er fléttað ljóðum eftir
William Blake, sem komu í hlut ein-
söngvarans, Mörtu Halldórsdóttur.
Ljóðin eru ennfremur umvafin mót-
rödd óbós, sem Daði Kolbeinsson
lék á. Fegurð þessa verks er fólgin í
tilfinningalegri dýpt þess. Kórpart-
urinn er unaðslega fallegur og sam-
spil kórs, einsöngvara og óbós mjög
fallega ofið saman af hendi tón-
skáldsins. Það var ótrúlega sterkt
og táknrænt að færa óbóið úr aug-
sýn í lok verksins, og leyfa tónum
þess að óma, án þess að sæist hvað-
an þeir komu. Kórinn var frábær,
og sömu sögu er að segja um
sólistana, Mörtu og Baða. Það er
óhætt að spá þessu verki mörgum
og löngum lífdögum, og að það eigi
eftir að skipa sér meðal fremstu
kórtónsmíða okkar. Hörður Askels-
son hefur unnið frábært starf með
sínu úrvals fólki. Það er vonandi að
kórstarfíð í Hallgrímskirkju haldi
áfram að fá þá athygli og viður-
kenningu sem því ber.
(CIA), kemur að málinu með til-
komu spæjarans Elise (Annette
Bening). Þegar aðalstöðvar FBI
verða næsta skotmark, með ægileg-
um afleiðingum, kallar Bandaríkja-
forseti landherinn til hjálpar. Með
Devereaux hershöfðingja (Bruce
Willis), sem yfírstjómanda aðgerða,
sem fljótlega er breytt í herlög. Eft-
ir það eiga Hubbard og alríkislögg-
umar ekki aðeins í höggi við
arabana heldur eigin stríðshauka.
Mynd sem skiptir um erkióvin
og áherslur í miðju kafí er í vanda
stödd, sá tvískinnungur er þó ekki
eini vandi The Siege. Persónusköp-
uninni er talsvert áfátt og fram-
vindan með slíkum götum að hún
líður fyrir - þrátt fyrir ágæta
keyrslu. Útkoman er brokkgeng,
vonbrigði fyrir aðdáendur leik-
stjórans, Edwards Zwick. Hann
vakti geysiathygli fyrir Glory, mik-
ilfenglegt þrælastríðsdrama, og
fylgdi því eftir með Legends of the
Fall, ekki jafnsterkri mynd en
góðri afþreyingu. Með Flóastríðs-
myndinni Courage Under Fire,
hallaði enn undan fæti, síðan kem-
ur þessi stórköflótta mynd og nú
hlýtur leiðin að liggja uppá við að
nýju. Zwick er hæfileikamaður,
sem er m.a. aðalbakhjarl
Shakespeare In Love, einnar bestu
myndar síðasta árs, og er spáð
fjölda Óskarstilnefninga í næsta
mánuði. Nú verður hann að snúa
sér að því að fá sjálfur úr betri
handritum að moða. Hann fer skín-
andi vel af stað og besti kafli The
Siege er yfirtaka herlaganna og of-
sóknaræðislegt framhaldið þegar
„stóri bróðir“ tekur völdin.
Denzei Washington og Tony
Shaloub Big Night, Quick Change,
fá skást unnu hlutverkin og leysa
þau vel, sem þeirra er von og vísa.
Annette Bening er vorkunn, fær
eitthvað versta og heimskulegasta
hlutverk síðari ára, reynir að gera
eitthvað úr því, en má sín lítils.
Zwick meðhöndlar átökin vel, kvik-
myndataka og tónlist í fyrsta gæða-
flokki, sama verður ekki sagt um út-
komuna. Handritið, með öllum sín-
um glompum, ólánlegu hliðarspor-
um og illa mótuðu persónum, sér til
þess.
Sæbjörn Valdimarsson
Grieg og
Sibelius á
Háskóla-
tónleikum
HÁSKÓLATÓNLEIKAR
verða í Norræna húsinu í dag,
miðvikudag kl. 12.30. Sigrún
Pálmadóttir syngur við undir-
leik Iwonu Jagla sönglög eftir
Edvard Grieg og Jean Sibeli-
us.
Sigrún Pálmadóttir er fædd
og uppalin í Bolungarvík þar
sem hún hóf tónlistarnám sitt.
Hún er stúdent frá Flensborg-
arskólanum í Hafnarfirði en
hóf söngnám sitt við Tónlist-
arskólann á Akureyri hjá
Hólmfríði Benediktsdóttur og
Daníel Þorsteinssyni. Frá ár-
inu 1996 hefur hún stundað
nám við Söngskólann í
Reykjavík þar sem kennarar
hennar eni Ólöf Kolbrún
Harðardóttir og Iwona Jagla.
Sigi’ún hefur komið fram sem
einsöngvari með kvennakórn-
um Vox Feminae og Kvenna-
kór Bolungarvíkur og tekið
þátt í uppfærslum Nemenda-
óperu Söngskólans á ýmsum
verkum.
Iwona Jagla er fædd í Pól-
landi og lauk masters- og ein-
leikaraprófí í píanóleik frá
Tónlistarakademíu Gdansk ár-
ið 1983. Þá hafði hún þegar
hafið störf við söng- og kamm-
ermúsíkdeild akademíunnar
og vann jafnframt sem æf-
ingastjóri við Baltik óperuna
árin 1983 til 1990. Hún kom til
Islands í september 1990 og
hefur starfað hjá Islensku óp-
erunni. Hún kennir einnig við
Söngskólann í Reykjavík.
Verð aðgöngumiða er 400
kr. Ókeypis fyrir handhafa
stúdentaskírteina.
Amis fær
slæma dóma
fyrir bók sína
NYTT smásagnasafn breska rit-
höfundarins Martins Amis fær
heldur hraklega útreið í nýlegum
bókadómi bandaríska dagblaðsins
The New York Times. Segir gagn-
rýnandinn Michiko Kakutani að
bókin Heavy Water and Other
Stories, sem inniheldur níu smá-
sögur eftir Amis, sé dæmi um það
þegar fær rithöfundur lætur leti
sína ná yfirhöndinni, í stað þess að
nota guðsgjöf sína með markviss-
um hætti. Smásagnasafnið sé, með
einungis tveimur eða þremur und-
antekningum, nánast sem hálf-
köruð ritæfing.
Amis þótti með bókum sínum
The Infoimation frá 1995 og
London Fields frá 1990 festa sig í
sessi sem einn af metnaðarfyllstu
og færustu rithöfundum okkar
tíma. Segir Kakutani hins vegar að
í Heavy Water nái Amis sér sjald-
an á skrið. Segir hann einungis
tvær lokasögur verksins, „State of
England" og „Wliat Happened to
Me on My Holiday", minna fólk á
hvers Amis sé megnugur. Þar tak-
ist höfundinum ekki einungis að
hrífa lesandann heldur noti hann
einnig tækifærið „til að segja eitt-
hvað“; skapi raunverulegar per-
sónur með raunveruleg vandamál í
stað þess að hljóma eins og hann
telji sig hátt yfír lesandann hafínn.
Aðrar smásögui’ í bókinni eru
ómerkilegar, að mati Kakutanis.
Er ein sagnanna, „Let Me Count
the Times“, sögð hljóma eins og
„léleg afsökun" höfundar til að
sinna eigin þörfum til að lýsa með
afbrigðilegum hætti starfsemi lík-
ama mannsins.
Metverð fyrir
gömlu meistarana
New York. Reuters.
MÁLVERK eft-
ir „gömlu meist-
arana“ seldust
fyrir 770 millj-
ónir ísl. króna á
uppboði hjá
Christies í New
York í liðinni
viku og fóru
Iistaverk
þriggja lista-
manna á met-
verði. Málverk
Federicos
Baroccis „Ma-
donna del
Popolo" seldist
á verði sem er
með því mesta
sem þekkist hjá
Christies en
söluverðið, 185
milljónir ísl. króna, var rétt
yfir efstu mörkum mats-
manna.
Næstdýrast var „Ævi og
störf Taddeusar Zuccaros"
eftir Federico Zuccaro sem J.
Paul Getty-safnið keypti fyrir
um 126 milljónir ísl. króna
sem var reyndar nokkuð und-
ir matsverði. Hins vegar seld-
ist verk franska meistarans
Jacques-Louis David „And-
litsmynd af Joseph-Nicolas
Barbeau Dubarran“ einnig á
metverði, eða rúmlega 26
milljónum ísl. króna, og
„Rýnt í veggtjöldin“, eftir
Lorenzo D’Andrea
D’Odorigo, fór á rúmlega 23
milljónir.
Á myndinni má sjá eftir-
prentun af andlitsmynd Spán-
verjans Diego de Silva y Vel-
azquez „Santa Rufina“ en
hana keypti ónefndur mál-
verkasafnari í London sím-
leiðis fyrir 623 milljónir ísl.
króna. Hér er um nýtt met að
ræða fyrir Velazquez og
spænsku meistarana en verk-
ið mun Velazquez hafa málað
á árunum 1632-1634.
Endurmenntunarstofnun og heimspekideild
Háskóla íslands
ÍTALSKA - Hraðnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna
Kennari: Roberto Tartaglione við Scuola Italiana í Róm
Roberto Tartaglione hefur komiö til íslands
árlega síðan 1988 og kennt ítölsku á vegum
Endurmenntunarstofnunar og heimspekideildar
HÍ. Yfir 500 manns hafa sótt námskeið hans,
með mjög góðum árangri. í mars verða haldin
tvö námskeið og er hámarksfjöldi á hvoru
námskeiði 20 manns.
Skráningarfrestur er til 12. febrúar.
Upplýsingar og skráning í síma 525 4923.
TTmi: 1 -20. mars. Kennt er í 3 klst. á dag,
5 daga í viku i 3 vikur, alls 45 kennslustundir.
Byrjendanámskeið:
Kennt er mánudaga til og með fimmtudaga
kl. 17.00-19.45 og laugardaga kl. 9.30-13.30.
Framhaldsnámskeið:
Kennt er mánudaga til og með fimmtudaga
kl. 20.00-22.45 og laugardaga kl. 13.00-16.00.
Bergþóra Jónsdóttir
Beirút í
Brooklyn