Morgunblaðið - 03.02.1999, Page 56
Drögum næst
10. febrúar
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
www.vr.is
Verzlunarmannafélag Reykjavikur
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRUAR 1999
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Fjölgað um
tvo menn í
borgarráði
TILLAGA um að borgarráðsfulltrú-
um verði fjölgað um tvo og að þeir
verði sjö í stað fimm eins og nú er
verður lögð fram af meirihluta
Reykjavíkurlista á fundi borgar-
stjórnar nk. fimmtudag.
Tillagan gerir ráð fyrir nýju
ákvæði til bráðabirgða og að tveir
fulltrúar verði kosnir í borgarráð til
viðbótar þeim sem kjömir voru 18.
júní sl. Kjörtímabil þeirra verði til
júní n.k.
I greinargerð með tillögunni er
bent á að samkvæmt sveitarstjórn-
arlögum skuli byggðarráð skipað
fimm eða sjö aðalmönnum þar sem
ellefu eða fleiri fulltrúar era í sveit-
arstjórn. Varamenn skulu vera jafn-
margir. Gert er ráð fyrir að þegar
eftir staðfestingu og birtingu breyt-
ingarinnar verði kosnir í borgar-
stjórn tveir borgarfulltrúar í borg-
arráð, til viðbótar þeim sem þar sitja
fyrir, og tveir til vara.
--------------
Glæsibifreið
ekið viljandi í
Hvalfjörðinn
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar í Reykjavík hefur til meðferð-
ar kæru, sem umráðamaður glæsi-
bifreiðar af Jagúargerð, hefur lagt
fram vegna þjófnaðar á bifreiðinni.
Vitni sáu bifreiðinni ekið fram af
bryggju NATÓ á Miðsandi í Hval-
firði fyrir um viku síðan. Tveimur
bifreiðum var ekið að bryggjunni og
segja vitnin að annarri þeirra hafi
greinilega verið ekið viljandi fram af
bryggjunni og út í sjóinn. Bifreiðin
sökk ekki nema til hálfs og var dreg-
in á þurrt með krana.
Skráningarnúmer þeirrar bifreið-
ar sem ók með mennina af vettvangi
náðist. Boðum var komið til lögregl-
unnar í Borgarnesi, sem sendi málið
til lögreglunnar í Reykjavík. Er það
í rannsókn.
Islandsbanki
hagnaðist um
1.400 milljónir
HAGNAÐUR Islandsbanka á síðasta
ári nam 1.415 milljónum króna, sem
er 360 milljónum meira en árið á und-
an. Heildareignir bankans námu 108
milljörðum króna í árslok 1998 og
jukust um liðlega 18 milljarða á árinu
eða 20% að því er fram kemur í frétt
frá bankanum. Innlán jukust um 14%
á síðasta ái*i og útlán um 20%. Eigið
fé nam í árslok 7.453 milljónum
króna. Þar af er hlutafé 3.877 m.kr.
Arðsemi eiginfjár var 24% á síðasta
ári samanborið við 21% árið 1997.
Valur Valsson, bankastjóri, telur
að afkoman á síðasta ári hafi verið
viðunandi enda góð útkoma á öllum
sviðum rekstrarins. Hann segir nið-
urstöðuna vera í takt við væntingar
þótt endanlegur hagnaður bankans
hafi verið betri en búist var við.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri Kaupþings Norð-
urlands, segir afkomu bankans betri
en menn þorðu að vona. Hann bendir
sérstaklega á að kostnaður af tekjum
heldur áfram að lækka sem bendir til
þess að hagkvæmni í rekstrinum sé
stöðugt að aukast, samkeppnisaðilun-
um til eftirbreytni.
Hann telur arðsemi eiginfjár bank-
ans upp á 24% afar góðan árangur en
bendir jafnframt á að erfitt verði að
viðhalda þeim árangri ekki síst í ljósi
þess að bankinn mun greiða fullan
tekjuskatt í fyrsta sinn af rekstri
þessa árs.
■ 1.415 milljóna/18
Salan á 62% í Borgey
Morgunblaðið/Ásdís
Saga verður Radisson SAS
HÓTEL Saga hefur fengið
nýtt útlit í kjölfar þess að það
varð á dögunum eitt af hótel-
unum í Radisson SAS-hótel-
keðjunni. Ný skilti hafa verið
sett á hótelið og sömuleiðis á
Hótel ísland, sem einnig er
orðið hluti af hinni víðfemu
keðju hótela. Litlar breytingar
verða gerðar innandyra.
Kaupverð allt
að 700 milljónir
KAUPVERÐ 62% hlutar í
sjávarútvegsfyrirtækinu Borgey
hf. á Höfní Hornafirði hefur ekki
verið gefið upp, en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er það
á bilinu 500 til 700 milljónir króna.
Nafnverð hlutabréfanna er um 300
milljónir og samkvæmt heimildum
blaðsins var gengið nálægt tveim-
ur.
KASK átti ráðandi hlut í Borgey
eða 42,3% og hefur hann allur verið
seldur Skinney og Þinganesi.
Einnig hefur verið gengið frá
kaupum Skinneyjar og Þinganess á
öllum hlutabréfum sveitarfélagsins
Hornafjarðar og Lífeyrissjóðs
Austurlands. Hvor aðili átti um
10% þannig að nú eiga Skinney og
Þinganes um 62% hlutabréfa í
Borgey hf.
Um 250 einstaklingar og félög
eiga þau 38% hlutafjár sem ekki
skiptu um eigendur að þessu sinni
og eru Olíufélagið hf. og Vátrygg-
ingafélag Islands þar stærstu aðil-
arnir.
Með sölu hlutabréfa sinna í
Borgey hættir KASK afskiptum af
sjávarútvegi en Borgey var stofnuð
árið 1992 upp úr sjávarútvegs-
rekstri KASK og dótturfélaga þess.
■ Mikil samlegðaráhrif/C3
Bær frá landnámsöld
fundinn á Snæfellsnesi
ALDURSGREINING á sýni frá
Irskubúðum á Snæfellsnesi, norður
af Snæfellsjökli, sýnir að þar var
landnámsbýli. Bjarni F. Einarsson
fornleifafræðingur, sem rannsakað
hefur rústirnar, segir að fáir staðir
hér á landi, og jafnvel erlendis, séu
betur fallnir til heildarrannsóknar á
víkingaaldarbæjarstæði. Hann telur
að vegna staðsetningar rústanna í
fógru og óspilltu umhverfi en þó rétt
við þjóðveginn geti þær haft mikið
aðdráttarafl fyrir ferðamenn þegar
búið er að grafa þær allar upp.
Bjarni segir að býlið hafi verið
nokkuð yfir meðalstærð og rústir
meira en tíu bygginga hafa fundist.
Auk þess er í um hundrað metra
fjarlægð frá bæjarstæðinu brunnur
og jafnlagt frá er kuml í svonefndum
Hákonarhól þar sem líklegt er að
landnámsmaðurinn sé grafinn.
„Skálinn virðist vera um 16 metra
langur, sem er heldur stærra en
■miðlungsbýli. Þetta er meðal annars
miklu stærra býli en Eiríksstaðir
sem menn hafa verið að rannsaka."
Bjarni vill þó ekkert fullyrða um
hvort höfðingi hafi búið á býlinu.
„Ég er ekki í nokkrum vafa að
ferðamönnum þætti mjög spennandi
að skoða rústirnar. Þarna er mikil
náttúrufegurð, jökullinn gín yfir
þessu. Þetta er hluti af þjóðgarðin-
um sem þama verður og mikið er af
fornleifum og rústum á svæðinu,
meðal annars Berutóttir og Beru-
leiði, Fornisaxhóll og fleira. Það er
mjög auðvelt að komast að staðnum
og bílastæðin eru tiibúin því í um tíu
metra fjariægð frá rústunum er
gamall malarflugvöllur sem Bretar
lögðu.“
Margt styður aldursgreiningnna
C-14 aldursgreining sem fram fór
í Bandaríkjunum sýnir að byggð hafi
verið á staðnum einhvern tímann á
tímabilinu 850-950 og aðrar vísbend-
ingar eru um að býlið hafi verið kom-
ið í eyði fyrir árið 1000. Bjarai bíður
einnig eftir niðurstöðu úr annairi
mælingu á sýni sem greint er í
Svíþjóð. „Það eru margir fleiri þætt-
ir sem benda til sömu niðurstöðu.
Rétt hjá er kuml og það bendir
óneitanlega til þess að að rústirnar
séu frá heiðnum tíma. Veggirnir eru
hreinræktaðir torfveggir og það
þekkist ekki í mannabústöðum frá
síðari tímabilum en frá því um það
bil árið 1000. Byggingarlagið, lang-
eldurinn og gripirnir sem fundust
benda einnig til sömu niðurstöðu."
Bjarni er sjálfstætt starfandi forn-
leifafræðingur og rekur fyrirtækið
Fornleifafræðistofuna. Hann
kannaði rústirnar fyrst sumarið 1996
fyrir Snæfellsbæ og gróf í þeim sum-
arið eftir. Hann segir að mörg ár
muni taka að gera heildarrannsókn á
þeim.
Nöfnin Irskubúðir og Hákonarhóll
eru frá 18. eða 19. öld og að sögn
Bjarna eru þau í litlum tengslum við
raunverulega fortíð staðarins. Há-
kon var samkvæmt sögnum kristinn
maður og því harla ólíklegt að hann
hafi verið heygður í kumli. Irskubúð-
ir vísa sennilega til enskra manna
frá borginni Bristol sem margar sög-
ur eru af á þessum slóðum. Býlisins
er hvergi getið í rituðum heimildum
en minnst er á rústirnar í skrifum
frá byrjun 19. aldai’.
Morgunblaðið/Yann Kolbeinsson
Heiðlóur
hafa vet-
ursetu
ANNAN veturinn í röð hafa
heiðlóur sést á Suðvesturlandi.
Um mánaðamótin desember
1997 og janúar 1998 höfðu sést
tveir fuglar í Njarðvíkurfitjum
en nú eru þeir orðnir sex. Það
hafa einnig sést 1-2 fuglar í Inn-
nesjum og í síðustu jólatalningu
sást ein lóa á Vatnsleysuströnd.
Það er afar sjaldgæft að lóur
dveljist á íslandi að vetrarlagi
og sýnir myndin heiðlóu í vetrar-
búningi.