Morgunblaðið - 07.02.1999, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Formaður Sjómannafélags ísfirðing-a
um sölu Guðbjargarinnar
Guðbjörgin var
farin frá ísafirði
SIGURÐUR R. Ólafsson, formaður
Sjómannafélags Isfirðinga, sagði að
sér hefði brugðið við að heyra frétt-
ir af því að búið væri að selja frysti-
togarann Guðbjörgu til Þýskalands.
Isfirðingar hefðu hins vegar verið
búnir að tapa skipinu íyrir nokkru
og tengsl þeirra við skipið hefðu
verið orðin lítil.
„Guðbjörgin var farin frá ísafirði
svo maður kippir sér svo sem ekki
mikið upp við þessar fréttir. Þetta
er hins vegar stórt og fallegt skip
og óneitanlega er eftirsjá að því,“
sagði Sigurður.
Sigurður sagði að ísfírðingar
væru enn í áhöfn Guðbjargarinnar
þó þeim hefði fækkað mikið frá því
skipið var í eigu Hrannar hf. Hann
sagðist treysta loforðum Samherja-
manna um að þeir myndu finna
vinnu fyrir áhöfnina á öðrum skip-
um Samherja.
Á skrapi hingað
og þangað
„Mér brá þegar ég sá aflatölur
fyrir Guðbjörgina á síðasta ári. Töl-
urnar voru eins og þama væri trilla
á ferðinni í samanburði við hina
frystitogarana. Þeir hafa notað
skipið á skrapi hingað og þangað.
Þetta var aflahæsta skip landsins
ár eftir ár. Við vorum sárir þegar
Guðbjörgin fór frá Isafirði á sínum
tíma, en þetta verða hins vegar að
teljast eðlilegir viðskiptahættir eins
og kaupin gerast á eyrinni," sagði
Sigurður.
Ekki komið til
Isaíjarðar í heilt ár
„Samherjamenn gáfu út það lof-
orð að þeir myndu halda þessu
skipi út héðan, en við það hefur
ekki verið staðið. Það hefur hins
vegar verið mannskapur héðan frá
ísafirði á skipinu og að því leyti
hefur verið staðið við gefin loforð.
Við gerum ráð íyrir að sá mann-
skapur verði áfram á skipum Sam-
herja,“ sagði Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri á Isafirði.
Halldór sagði að Guðbjörgin
hefði ekki landað á ísafirði undan-
farið. Það væri varla hægt að segja
að skipið hefði komið inn á ísafjörð
í heilt ár. Hafnarsjóður væri því
ekki að tapa tekjum við sölu skips-
ins til Þýskalands. Þær tekjur
hefðu tapast strax við söluna til
Samherja.
FRÉTTIR
Jóhann Alexandersson hefur verið á
þremur togurum með nafninu Guðbjörg
Enn hallar und-
an fæti á Isafírði
„ÞETTA er auðvitað áfall en maður
bjóst alltaf við þessu,“ segir Jóhann
Alexandersson á Isafirði. Hann er
háseti á Guðbjörgu IS og byrjaði á
fyrsta togaranum sem bar það nafn
fyrir um tuttugu árum. Hann segir
að staðan á Isafirði hafi versnað
mjög þegar Guðbjörgin fór þaðan á
sínum tíma og nú halli enn undan
fæti.
„Mesta áfallið var þegar Guð-
björgin fór frá ísafirði, maður
reiknaði alltaf með þessu eftir það.
Samt gerði ég frekar ráð fyrir að
vera í þessari vinnu áfram, þegar
maður er kominn á sextugsaldur er
náttúrlega ekki hlaupið í neitt ann-
að.“
Fólkið einskis virði
í fyrirtækjunum
Jóhann segist enga vissu hafa
fyrir því að vera áfram í vinnu hjá
Samherja, þau orð sem Þorsteinn
Már Baldvinsson, forstjóri fyrir-
tækisins, hefði látið hafa eftir sér
um þau mál væru loðin. Hann segir
að einn af félögum sínum úr áhöfn-
inni hafi þegar hringt í sig og sagst
vera að kanna með önnur störf.
„Það treystir enginn því, þótt tal-
að sé um að leita að vinnu handa
þeim innan fyrirtækisins. „I dag
eru menn í fyrirtækjum bara pen-
ingamenn, fólkið er einskis virði.
Þetta er kannski rétt fyrir fyrir-
tækið og þjóðfélagið í heild, ég veit
það ekki,“ segir Jóhann.
Hann segir að sér hafi líkað vel í
vinnu hjá Samherja engu að síður,
aðbúnaður á skipinu hafi verið mjög
góður, þó að afkoman hafi ekki ver-
ið eins og best verður á kosið að
undanfömu. Jóhann segist hafa
áhyggjur af afkomu sinni í kjölfar
uppsagnarinnar sem hann býst við
að fá í hendurnar eftir helgina.
„Það er meira en að segja það
þegar skip fer héðan, það lækkar til
dæmis fasteignaverðið. Eg sit uppi
með hús sem er gjörsamlega útilok-
að að selja.“ Jóhann segir að senni-
lega væri hann þegar farinn frá Isa-
fírði ef hann hefði getað selt húsið.
Hann segist enga trú hafa haft á
þeim orðum Samherjamanna á sín-
um tíma að Guðbjörgin myndi
áfram landa á ísafirði eftir að hún
fluttist yfir til þeirra. Hann segir að
eðlilegra hefði verið að hún hefði
verið hjá Básafelli eða einhverju
öðru fyrirtæki á Isafirði.
FRÁ brautskráningu kandídata frá Háskóla Islands í gær.
Háskólarektor gagnrýndi fjölmiðla við brautskráningu kandídata
Koma oft fram við fólk
eins og óvirka neytendur
Sjálfkjörið
í forystu
STEINGRÍMUR J. Sigfússon al-
þingismaður var einn í framboði til
formanns á stofnfundi Vinstri
hreyfingar - Græns framboðs í
gær og var því sjálfkjörinn.
Auk hans var á lista uppstilling-
amefndar Svanhildur Kaaber sem
varaformaður, Tryggvi Friðjónsson
gjaldkeri, Jóhanna Harðardóttir
ritari og meðstjómendur vom Anna
Guðrún Þórhallsdóttir, Birkir Frið-
bertsson, Drífa Snædal, Stefanía
Traustadóttir og Þórhallur Þor-
steinsson. Þau vom öll kjörin án
mótframboðs.
----------------
Prófkjör Samfylkingar
Yfír 2.000 höfðu
kosið á hádegi
SAMTALS höfðu rúmlega tvö þús-
und manns kosið í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar á Reykjanesi upp úr
hádegi í gær, samkvæmt upplýsing-
um frá Garðari Vilhjálmssyni, for-
manni yfirkjörstjómar.
Um sex hundrað manns höfðu
kosið í Reykjanesbæ, um sjö hund-
mð í Kópavogi, tæplega sjö hundmð
í Hafnarfirði, um hundrað og
fimmtíu í Garðabæ, um eitt hundrað
á Seltjarnarnesi, í Mosfellsbæ og í
Grindavík og um fimmtíu í Vogum.
PÁLL Skúlason háskólarektor gagn-
rýndi fjölmiðla í ræðu sem hann
flutti við brautskráningu kandídata
frá Háskóla íslands. Hann sagði þá
iðulega starfa á þeim forsendum að
fólk hefði engan áhuga á því að kom-
ið væri fram við það sem hugsandi
vemr.
Páll gerði að umfjöllunarefni í
ræðu sinni ábyrgð hverrar mann-
eskju á sjálfri sér, eigin hugsunum
og ákvörðunum. Hann sagði að hver
hugsandi manneskja hlyti að spyrja
sig hver þau öfl og kerfi væru sem
hefðu áhrif á líf hennar og hvemig
hún sjálf gæti haft áhrif á þau. Það
væm margir kraftar að verki sem
við hefðum lítinn skilning á og sömu-
leiðis væm til voldug félagsleg kerfi
sem setja lífi okkar skorður og stýra
okkur eftir brautum bæði leynt og
ljóst.
„Svo undarlegt sem það er, þá virð-
ast ýmis áhrifamikil fyrirtæki og
stofnanir ekki enn hafa gert sér grein
fyrir þeim ævafomu sannindum sem
hér hefur verið drepið á. Eða þá að
þau sjá sér ekki hag í því að halda
þeim á lofti, heldur þvert á móti
breiða yfir þau og hylja. Hér eiga fjöl-
miðlar með sjónvarpsstöðvar í broddi
fylkingar stóran hlut að máli. Þeir
virðast iðulega starfa á þeim forsend-
um að fólk hafi engan áhuga á því að
komið sé fram við það sem hugsandi
vemr sem vilja skiJja sjálfar sig og
aðstæður sínar, heldur einungis sem
óvirka neytendur sem gera engar
kröfur um að mál séu skýrð með skil-
merkilegum hætti. Bandaríska sjón-
varpsstöðin CNN er vafalaust eitt
gleggsta dæmið um slíkt. En evr-
ópskar sjónvarpsstöðvar virðast taka
sér vinnubrögð hennar til fyrirmynd-
ar. Fréttatímar fyllast smám saman
af sundurlausum samtíningi viðburða
sem áhorfendur hafa litla eða enga
möguleika á að meta hvaða þýðingu
hafa vegna þess að þeir em slitnir úr
öllu samhengi," sagði rektor.
Hann varpaði síðan fram þeirri
spumingu hver hefði hag af því að
fólk öðlaðist ekki skilning á því sem
væri að gerast í heiminum. „Hvaða
öfl em það sem vilja halda fólki í
ánauð ólæsis og skilningsskorts og
hindra um leið að það beri ábyrgð á
eigin lífi, öðlist sjálfsvirðingu og
metnað til að breyta heiminum til
hins betra?“
Varnarflutningarnir
► Guðmundur Kjærnested varð
frægur í þorskastríðunum. Nú
stendur sonarsonur hans og
alnafni í brúnni. /10
Bylting á krossgötum
►20 ár liðin frá valdatöku
hreintrúarmanna í Iran. /12
Uns sekt er sönnuð
► Er stefnubreyting hjá
dómstólum í
kynferðisbrotamálum? spyr Páll
Þórhallsson að gengnum tveimur
hæstaréttardómum í
nauðgunarmálum nú í vikunni. /26
Skemmtilegur
barningur
► í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Ásgerði
Jónu Flosadóttur og Jóhannes
Jón Gunnarsson í Sundanesti. /30
►l-20
Hið rauða hjarta
Frakklands
► Sælkerinn Steingrímur
Sigurgeirsson á flakki um
Rónardalinn með Þorra
Hringsson myndlistarmann sem
fömnaut. /1&10-13
Líknandi hvítir englar
► Hér á landi starfa og eiga
heimili 48 nunnur af sex
reglum. /4
Framhaldslíf bíla
►Þuirkublöðin eyðilögðust á bíl
Guðrúnar Guðlaugsdóttur og
fyrir bragðið kynntist hún
leyndardómum
bílapartasalanna. /6
FERÐALÖG
► l-4
Nautaat
► Einn á móti öllum. /2
Dagur elskendanna
►Ástarhreiður við allra hæfi. /4
D BÍLAR
► l-4
Tíu athyglisverðir
hugmyndabílar
► Framtíðarfarartæki á
bílasýningunni í Detroit. /2
Reynsluakstur
► Sama línan en allt önnur
Bjalla. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-20
Sjálfstætt starfandi
arkitektar
► Stofna með sér félag en verða
áfram innan Arkitektafélags
Islands.
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak
Leiðari 32
Helgispjall 32
Reykjavíkurbréf 32
Minningar 38
Myndasögur 48
Bréf til blaðsins 48
í dag 50
Brids 50
Stjömuspá 50
Skák 50
Fólk í fréttum 54
Útv/sjónv. 52,62
Dagbók/veður 63
Mannl.str. 17b
Dægurtónl. 18b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6