Morgunblaðið - 07.02.1999, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 07.02.1999, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Ossur Skarphéðinsson: r Rödd fólksins hefur talað -hné valdamanna hljóta að skjálfa ÁFRAM veginn í vagninum ek ég. Andlát SIGURÐUR ÁSMUNDS SON SIGURÐUR Ás- mundsson, sendifull- trái í utanríkisráðu- neytinu, lést á heimili sínu föstudaginn 5. febráar. Sigurður var fæddur í Reykjavík 27. mars 1932. Hann var sonur hjónanná As- mundar Ásmundsson- ar bakarameistara og Gróu Ástu Jafetsdótt- ur. Hann var næstelst- ur fjögurra systkina en hin þrjú eru öll á lífí. Sigurður varð stúd- ent frá Verslunarskóla Islands árið 1953. Hann stundaði nám í læknis- fræði um stutt skeið og starfaði síðan sem sölumaður hjá innflutn- ingsfyiirtæki í Reykjavík. Árið 1958 var hann ráðinn til starfa hjá Sindrastáli og vann þar sem fulltrái og síð- ar skrifstofustjóri í 28 ár. Árið 1986 var Sig- urður ráðinn sem deildarstjóri á vamar- málaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins. Þar starfaði hann í fimm ár þar til hann var skipaður sendifulltrái árið 1991 hjá ráðu- neytinu, en því starfi gegndi hann til dauða- dags. Sigurður kvæntist árið 1957 eftirlifandi eiginkonu sinni, Karí Karolínu Ei- ríksdóttur, sjúkraliða (áður Kari Lund Hansen). Dætur þeirra eru fjórar; Edda Dagmar, Birna Katrín, Ellisif Astrid og Sunna Miriam. Stuðningur við stækkun virkjunar í Bjarnarflagi BÆJARSTJÓRN Húsavíkur sam- þykkti ályktun á fundi sínum ný- lega, þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við áform Landsvirkjunar um stækkun virkjunar í Bjarn- arflagi. Jafnframt skorar bæjar- stjórn á iðnaðarráðherra að beita sér fyrir því að Alþingi heimili um- ræddar virkjunarframkvæmdir. í greinargerð bæjarstjómar kemur fram að fyrir liggi að raf- magnsframleiðsla með gufuafli sé hagkvæm og umhverfísvæn. Stækk- un virkjunarinnar í Bjamarflagi sé talin með hagkvæmustu virkjunar- kostum í landinu í dag. Einnig er bent á að frekari virkj- un í Bjarnarflagi opnar ýmsa mögu- leika í tengslum við ferðaþjónustu, s.s. baðaðstöðu, lón og jarðböð. Þannig myndu framkvæmdír skjóta stoðum undir ferðaþjónustu á svæð- inu og styðja sókn hennar til leng- ingar ferðamannatímans. Aukin orkuþörf á svæðinu mun einnig styrkja stöðu héraðsins til þess að taka við orkufrekum iðnaði þannig að orkan sé nýtt sem næst framleiðslustað og þannig lágmark- aður sá kostnaður og flutningstap sem leiðir af flutningi á milli lands- hluta. ---------------- Suðurland Góð kjörsókn hjá sjálfstæðis- mönnum KJÖRSÓKN var góð í prófkjöri sjálfstæðismanna á Suðurlandi fymi hluta dags í gær, samkvæmt upplýs- ingum frá Jóni Erni Arnarsyni, yfír- manni kjörstjómar. Um klukkan tvö höfðu á áttunda hundrað manns kosið í Vestmanna- eyjum og á fímmta hundrað á Sel- fossi. Samtals höfðu rámlega sex hundruð manns kosið í utankjör- staðaatkvæðagreiðslu. Kvenréttindafélag hefur hlutverk Konur sækja í sig veðrið Sigríður Lillý Baldursdóttir Mikið hefur verið rætt að undan- fömu um konur og stjómmál. Kvenréttindafé- lag Islands var stofnað til þess að efla konur til áhrifa og starfa í þjóðfé- laginu, m.a. til þátttöku á vettvangi stjómmálanna. Félagið var stofnað 1907 og að sögn formannsins, Sigríðar LiOýjar Baldurs- dóttur, er verkefnið enn hið sama, 92 árum síðar. En hefur ekki mikið áunn- ist? „Það hefur ýmislegt áunnist en enn er langt í land með að litið sé á stjómmálaþátttöku kvenna sem eðlilegan hlut í samfélaginu. Undanfarin misseri og ár hafa vissu- lega ánægjulegir atburðir gerst. Konum hefur fjölg- að á þingi og í sveitarstjómum. Þær hafa tekið að sér ábyrgðar- störf hjá stjómmálaflokkunum og það er mikilvægt að konur verði fjölmennar á þingi, það er lýðræð- isleg réttlætiskrafa. Oft er talað um að hópur þurfi að ná a.m.k. 30% hlut til þess að hann hafi áhrif á framgang mála á tilteknu sviði. Það á ef til vill einnig við um störf Alþingis. Þar skiptir fjöldinn þó ekki öllu máli, heldur ekki síð- ur staða kvenna á Alþingi og inn- an flokkanna. Það má spyrja sig hvort þær séu þar eingöngu til þess að fylla kvennakvótann eða hafa þær raunveruleg áhrif? Þeg- ar valdakerfi Alþingis og flokk- anna er eins og það er skiptir staða kvennanna þar sköpum um hvort þær hafi áhrif.“ -Hvernig er staðan í þessum málum núna? „Mér sýnist sérstaklega ánægjulegt að sjá styrk kvenna í efstu sætum flestra þeirra lista sem þegar er búið að stilla upp. Hjá Sjálfstæðisflokknum er sá sögulegi atburður að gerast að kona, Arnbjörg Sveinsdóttir, er í forystu fyrir lista flokksins á Austfjörðum. Hjá Framsóknar- flokknum er Siv Friðleifsdóttir í fyrsta sæti á Reykjanesi, Valgerð- ur Sverrisdóttir í fyrsta sæti á Norðurlandi eystra og allar líkur eru á að Ingibjörg Pálmadóttir verái í forystusveit listans á Vest- urlandi. Hjá grænu vinstra fram- boði geri ég ráð fyrir að Kristín Halldórsdóttir verði í fyrsta sæti á Reykjanesi, þaðan er annars fátt að frétta af konum. Hjá Sam- fylkingunni er Mai-grét Frímannsdóttii- í fyrsta sæti á Suðurlandi, stórar líkur eru á að Svanfríður Jónasdóttir verði í fyrsta sæti á Norðurlandi eystra og Rannveig Guðmundsdóttii- á Reykjanesi - svo eru það konurn- ar í Reykjavík, þar sem Jóhanna Sigurðardóttir vann stóran sigur í prófkjöri á dögunum. Athyglis- vert er að í þessu próf- kjöri, þrátt fyrir mikinn sigur kvenna, voru ekki margai- konur sem gáfu kost á sér á lista Jafn- aðarmanna og Alþýðu- bandalags, og það vekur nokkurn ’ugg-“ - Eru stjórnmál árennileg fyrir konur? „Stjórnmálin eru reyndar ekki mjög árennilegur starfsvettvang- ur eins og þau eru í dag fyrir fólk sem vill jafnframt lifa fjölskyldu- lífi. Ég velti því fyrir mér hvort fjölgun kvenna ein sér muni nægja til þess að gera stjórnmálin áhugaverðan vettvang fyrir konur og karla sem gera kröfur til inni- ► Sigríður Lillý Baldursdóttir er fædd á Flateyri við Önundar- fjörð árið 1954. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina 1974 og sérmennt- aði sig í eðlisfræði og síðan í vís- indasögu. Hún kenndi um árabil á menntaskóla- og háskólastigi og var 7 ár lektor við Tækni- skóla íslands. Árið 1994 til ‘96 starfaði hún í utanríkisráðuneyt- inu en eftir það hefur hún verið skrifstofusljóri í félagsmálaráðu- neyti. Hún hefur einnig verið virk í félagsstörfum, starfaði lengi með Kvennalistanum, var m.a. formaður UNIFEM á íslandi og varð formaður Kvenréttinda- félags íslands árið 1997. Sigríð- ur er gift Skúla Bjamasyni lög- manni og eiga þau þijú böm. haldsríks lífs. Bríet Bjamhéðins- dóttur sagði um það leyti sem Kvenréttindafélagið var stofnað: „Hvar sem litið er á ættu þær (konurnar) að vera með. Bæði sem kjósendur og löggjafar, alls staðar þar sem ræða skal um unga og gamla, fátæka, bágstadda og sjúka, alls staðar þar sem menning og siðgæði þurfa tals- menn - þar eru konumar sjálf- sagðar.“ En andstæðingar stjóm- málaþátttöku kvenna sögðu á þessum tíma að pólitíkin væri ekki til þess fallin að auka finni og viðkvæmari kosti nokkurs manns. Ég vil taka undir hvort tveggja. Ég tek undii- orð Bríetar og ég er þeirrar skoðunar að stjórnmála- þátttaka sé ekki endilega mann- bætandi, hvorki fyrir konur né karla. Það er vandi lýðræðissam- félagsins, sem ég bind nokkrar vonh- við að aukin þátttaka kvenna í stjórnmálum reki menn til þess að leysa. Það er mjög brýnt að mætir einstaklingar, konur sem karlar, hafi áhuga á að taka þátt í stjórnmálum. Við upp- haf aldarinnar vom völd stjórn- máiamanna mikil en núna hljótum við að spyrja okkur hvort hér hafi orðið breyting á. I samfélaginu má sjá ýmis teikn þess efnis og má í því sambandi benda á at- hyglisverða doktorsritgerð Her- dísar Drafnar Baldvinsdóttur sem nýlega var fjallað um í fjölmiðlum. Oft hefur verið haft á orði að þeg- ar konurnar komi hverfi völdin. Það er sannfæring mín að það sé ekki einvörðungu spurning um réttlæti heldur sé það nauðsyn- legt til þess að samfélagið verði eins og best verður á kosið, að konur jafnt sem karlar séu þar sem ákvarðanir eru teknar.“ Hafa þær raunveruleg áhrif?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.