Morgunblaðið - 07.02.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999 15
ÍÞRÓTTIR
meistaralið Chicago Bulls, sem
fæstir spá að muni komast í úrslita-
keppnina.
Vesturdeildin
Meiri breidd er í Vesturdeildinni,
en flestir sérfræðingar spá að Los
Angeles Lakers og Houston
Rockets muni á endanum berjast
um meistaratitilinn í deildinni. San
Antonio Spurs, Utah Jazz og
Seattle SuperSoncis verða þó ef-
laust með í baráttunni líka.
Lakers kemur lítið breytt frá í
fyrra. Shaquille O’Neal mun sem
fyrr stjórna miðjunni og hann hefur
nægilega sterkt lið í kringum sig til
að vinna fyrsta meistaratitil liðsins
frá 1991. Lakers losaði sig við Nick
Van Exel til Denver, en hann var af
mörgum talinn hafa spillt liðsand-
anum með hegðun sinni. Derek Fis-
her tekur við leikstjórninni og ef
hann skilar hlutverki sínu vel (og
boltanum til O’Neal undir körfunni)
verður Lakers til alls líklegt. Kobe
Bi-yant mun einnig þurfa að spila
meira fyrir liðið en hann hefur gert
til þessa. Gamla kempan Derek
Harper kom frá Dallas og reynsla
hans gæti orðið mikilvæg hjá þessu
annars unga liði.
Houston Rockets náði í besta leik-
manninn nú fyrir keppnistímabilið
þegar Scottie Pippen ákvað að
ganga til liðs við félaga sína úr
fyrsta draumaliðinu þá Hakeem
Olajuwon og Charles Barkely. Ekki
amalegir leikmenn að hafa í barátt-
unni undir körfunni. Lykillinn að
velgengni Houston kann þó að verða
frammistaða leikstjómandans Matts
Malones og að stjörnurnar þrjár
fyrmefndu haldi sig frá alvarlegum
meiðslum. Ef allt fellur í réttan far-
veg gæti reynsla Rockets komið lið-
inu til góða í úrslitakeppninni.
En hvað um Utah Jazz? Hafa þeir
ekki leikið til lokaúrslita undanfarin
tvö ár? Jú, vissulega, en John
Stockton er 37 ára og þeir Karl Ma-
lone og John Hornacek báðir næst-
um 36. Vissulega mikil reynsla, en
eins og hjá Houston veltur mikið á
að þessir leikmenn verði ekki fyrir
meiðslum. Munurinn á liðunum
tveimur er að Houston hefur bætt
lið sitt en Utah kemur að mestu
óbreytt til leiks og þeir misstu vara-
miðherjann Antoine Carr.
San Antonio Spurs mun sem fyrr
reiða sig á þá David Robinson og
Tim Duncan undir körfunni. Dune-
an stóð sig frábærlega sem nýliði og
er af mörgum talinn besti leikmaður
Spurs. Lykillinn að velgengni San
Antonio verður hins vegar frammi-
staða skotframherjans Seans
Elliotts. Hann átti við mikil meiðsl
að stríða á síðasta keppnistímabili,
en hefur staðið sig frábærlega í æf-
ingaleikjum liðsins. Steve Kerr kom
frá Chicago og mun gera liðið enn
hættulegra í sókninni.
Seattle SuperSonics kemur mikið
breytt og með nýjan þjálfara. Paul
Westphal kom Phoenix í úrslit og
þeir Gary Payton, Vin Baker og
Detlef Schrempf munu sem fyrr
standa fyrir sínu. Hvort það verður
nóg er erfitt geta sér til um.
Af öðrum liðum er helst að nefna
Portland TrailBlazers og Phoenix
Suns sem lið sem gætu sett strik í
reikninginn. Bæði lið hafa gert
breytingar og ef þær virka vel gæti
allt gerst hjá þessum liðum í vetur.
Spáin
Flestir veðja á Indiana gegn ann-
aðhvort Houston eða Los Angeles
Lakers í lokaúrslitunum. Sú spá
virðist nokkuð raunhæf en ekki má
útiloka Utah enn.
ÚRSLIT
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Indiana - Washington 96: 81
Atlanta - Cleveland 100: 83
Charlotte - Philadelphia 66: 78
Miami - Detroit 81: 95
Boston - Toronto 92:103
Orlando - New York 93: 85
San Antonio - Sacramento 101: 83
Denver - Minnesota 92:110
Utah - Chicago 104: 96
'Seattle - Dallas 92: 86
• Eftir framlengingu.
LA Clippers - Phoenix 92:101
LA Lakers - Houston 99: 91
sætm
a mann
Vinsælasti sumarleyfisstaðurínn við Miðjarðarhafið
Heimsferðir kynna nú ferðir til Costa del Sol fjóröa árið í röð, en i fyrra fóru á fjóröa þúsund farþega til þessa
vinsælasta áfangastaðar viö Miðjarðarhafið. Costa del Sol státar af heiilandi menningu, frábæru veðurfari,
góðu úrvali gististaöa og fjölbreyttari möguleikum i fríinu en nokkur annar staður á Spáni.
Frábærir nýir gististaðír
Aldrei fyrr höfum við boðið jafn gott úrval gististaöa og í sumar, og nú bjóöum við 3 frábæra nýja valkosti sem
staðsettir eru við ströndina. Aquamarina, Flatotel og Principito Sol, allt frábærir valkostir fyrir fjölskyldur. Og að
sjálfsögðu bjóðum við hina vinsælu gististaðina, Santa Clara, Bajondillo, El Pinar, Timor Sol og Sunset Beach.
Vinsælasti gististaöur Heimsferöa.
Frábær staösetning og aöbúnaöur
fyrir fjölskylduna.
★ ★★
Viö ströndina og örskammt
í gamla bæinn. Glæsilegur
garöur og mikil sameigin-
leg þjónusta. Seldist strax
upp í fyrra.
Nýr glæsilegur valkostur fyrir
fjölskylduna. Viö ströndina,
fallegur garður og íþrótta- og
skemmtidagskrá allan daginn
og öll kvöld.
Austurstræti 17 • 101 Reykjavík • Sími 562 4600 • Fax 562 4601 • www.heimsferdir.is
Bajondillo
Principito Sol