Morgunblaðið - 07.02.1999, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
EKKIMÁ
ÓTTAST
EPyLENDA
EJAREE STA
Tíu ár voru liðin á föstudaginn frá því Vá-
/
tryggingafélag Islands var formlega stofnað.
Skapti Hallgrímsson ræddi við Axel Gísla-
son, forstjóra VÍS, af því tilefni.
■WÁTRYGGINGA-
J FÉLAG íslands var
J formlega stofnað 5.
J febrúar 1989. Axel
Gíslason segir að
Y haustið áður hafí fram-
kvæmdastjórar félaganna tveggja
sem stofnuðu VÍS, Hallgrímur Sig-
urðsson hjá Samvinnutryggingum og
Ingi R. Helgason hjá Bruna-
bótafélaginu, byrjað að ræða hug-
myndina. „Það var ákveðið þarna um
haustið að ég yrði ráðinn fram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygginga 1.
janúai' 1989 svo mér gafst kostur á
að fylgjast með við ræðunum um
haustið. Strax í byrjun janúai' hófust
formlegar viðræður sem leiddu til
þess að 19. janúar var undirrituð
viljayfii'lýsing um að ganga til stofn-
unar á nýju félagi; að tryggingastarf-
semi þessara tveggja félaga yrði
færð yfir í nýtt hlutafélag. Segja má
að þetta hafi gengið nokkuð hratt og
vel eftir að það fór í gang og fýrir-
tækið var formlega stofnað 5. febrú-
ar.“
Komu ekki upp nein sérstök
vandamál?
„Það er auðvitað svo að þegar tvö
tiltölulega stór lyrirtæki koma sam-
an er að mörgu að hyggja. Ekki þarf
eingöngu að meta eignir og skuldir
og rekstrarlegar stærðir. Hugsa þarf
um starfsfólkið, framtíðarskipulag
fyríi'tækisins og ekki. síst um við-
skiptavinina. Ná þurfti samkomulagi
um hvemig menn sáu fyrir sér ávinn-
inginn af samstarfinu og hvernig ætti
að skipta honum. Niðurstaðan varð
sú, þrátt fyrir að nokkur stærðar-
munur væri á félögunum, að stofna
nýtt félag í jafnri eigu beggja. Hug-
myndafræðin byggði á því að ávinn-
ingurinn yrði til við samstarf tveggja
í nýju félagi og það væri eðlilegt að
menn kæmu að því á jafnan hátt. VÍS
var því í upphafi 50% í eigu Sam-
vinnutrygginga og 50% í eigu Bruna-
bótafélagsins. Síðan hefur eignar-
haldið breyst mikið og í dag er
Landsbankinn stærsti hluthafinn en
auk þess öflug fyrirtæki og sjóðir
með mikinn fjölda eigenda á bak við
sig.“
Var tryggingamarkaðurinn þannig
á þessum tíma að óhjá kvæmilegt
þótti að stækka fyrir tækin?
„Kannski ekki óhjákvæmilegt en
mjög skynsamlegt. Rekstrarlega
voru kostimir augljósir og svo voru
miklar breytingar fyrirsjáanlegar í
starfsumhverfmu. Ljóst var að
afnám á öllum hömlum til viðskipta
milli Evrópulanda yi'ði raunin innan
tiltölulega fárra ára, þar á meðal á
fjármála- og vátryggingasviði. Það
var því ljóst að menn urðu að búa sig
undir breytt samkeppnisumhverfi,
urðu að styrkja samkeppnisstöðuna.
Þetta var leiðin sem þessi félög
fundu.“
Hafa væntingar um hagræðingu
skilað sér?
„Tvímælalaust. Það tók auðvitað
tíma og fyrstu eitt til tvö árin fóm í
að koma breytingunum á. Endur-
skipuleggja þurfti allan reksturinn,
dreifikerfið út um allt land og töfvu-
kerfi fyrir tvö félög þurfti að sam-
eina í eitt. A þessum tíma byrjaði
ávinningurinn að koma í ljós og eftir
það hefur hann verið mjög augljós.“
Myndirðu gera eitthvað öðru vísi
ef samskonar verkefni væri fram
undan nú og fyrir tíu árum ?
„Nei, ég er ekki viss um það. Ég
held að mestu máli skipti að gera sér
grein fyrir því hver tilgangurinn er,
hvaða árangri maður vill ná og í stór-
um dráttum hvemig maður ætlar að
ná honum. Þetta lá fyrir við stofnun
félagsins. Langerfiðasti þátturinn í
framkvæmdinni fannst mér að þessu
fylgdi óhjákvæmilega að fækka
starfsfólki. Við gerðum starfsfólki
grein fyrir því strax í upphafi að til
uppsagna þyrfti að koma en reynd-
um jafnframt að stytta þann
óvissutíma mjög. Þessi fækkun kom
svo fljótt til framkvæmda og sem
betur fer fengu flestir, sem ekki áttu
kost á því að starfa fyrir nýja félagið,
aðra vinnu.
Væntingar hafa að miklu leyti
gengið upp; kostnaðurinn lækkaði,
það var einfaldara að hafa yfirsýn yf-
ir reksturinn og við fengum þann
ávinning af hagkvæmni stærðarinn-
ar sem við voram að leita eftir. Það
þýddi líka að í vátryggingalegu
hliðinni gátum við haldið meiri við-
skiptum fyrir eigin reikning, þurft-
um ekki að endurtryggja eins mikið
frá okkur. Sameining tveggja dreifi-
kerfa í eitt skilaði fljótt miklum
árangri í lækkun kostnaðar.. Mögu-
leiki til tekjumyndunar jókst því um
leið og kostnaðarhlutfall lækkaði."
Gífurlegar breytingar hafa orðið á
fjármálamarkaði á þessum tíu árum.
Hvernig líst þér á þær?
„Ágætlega. Ég held að breyting in
sé góð fyrir neytandann, hún eykur
fjölbreytni og samkeppni. Menn hafa
um mun fleiri leiðir að velja. Fram-
boð fjármagns til lána og fjárfest-
inga hefur stóraukist og ávöxtunar-
valkostum hefur fjölgað. Það er ekki
endilega sjálfgefið lengur að ávaxta
peninga sína í banka, eða leita ein-
göngu til banka til að taka lán. Það
eru margir aðrir valkostir í dag og
umhverfið allt annað en var.
Við skiptum vátryggingum í tvo
flokka, skaða- og líftryggingar. Líf-
tryggingastarsfemi er tiltölulega lítil
á Islandi miðað við löndin í kringum
okkur. Víða erlendis snúast líftrygg-
ingai' aðallega um ýmiskonar fjár-
málatengdar tryggingar og lífeyris-
söfnun. Eðli málsins samkvæmt er
um að ræða mikla uppsöfnun
fjármuna í slíkum félögum. Þau era
þá virkari á fjármálamarkaði en líf-
tryggingafélög hafa verið hér.
Skaðatryggingafélögin íslensku hafa
í auknum mæli stundað lánastarf-
semi til viðskiptavina sinna, m.a. til
bílakaupa og er það orðin nokkuð
umfangsmikil starfsemi.
Það varð fljótt ljóst í mínum huga,
þegar ég kynntist þessu, að til að
eiga vaxtarmöguleika í framtíðinni
þyrfti að verða einhvers konar
grandvallarbreyting, þannig að
félögin gætu aukið starfsemi sína á
fjármálasviði meðal annars með auk-
inni áherslu á starfsemi á líftrygg-
ingasviði líkt og gerst hefur annars
staðar i Evrópu. Þetta getur gerst
með þátttöku í langtíma lífeyris-
spamaði og __ ýmis konar lífeyris-
tryggingum. íslenskum líftrygginga-
félögum er nú heimilt að starfa á
þessu sviði, samkvæmt nýju lögun-
um um lífeyrissparnað sem tóku
gildi á miðju síðasta ári, ásamt bönk-
um, verðbréfafyrirtækjum og lífeyr-
issjóðum. Nú þegar ríkisvaldið hefur
ákveðið að hvetja til aukins langtíma
lífeyrisspamaðar og auka skilning
landsmanna á þörfinni fyrir hann,
sem er afar mikilvægt, þá era þarna
tækifæri til lengri tíma fyrir líf-
tryggingafélög að koma inn á þenn-
an markað. Þessi breyting mun þó
gerast smám saman, það verða eng-
ai- stökkbreytingar á þessu sviði.
Það eru margir aðrir aðilar sem
keppa um þetta. Hér á landi era
mjög öflugir lífeyrissjóðir, sem fiest-
ir hafa starfað lengi, og bjóða ágæta
þjónustu. Við keppum einnig við
banka og verðbréfafyrirtæki og að
einhverju leyti eram við að
sjálfsögðu í samkeppni við erléndar
sparnaðarleiðir ýmis konar. Þetta
verður því öragglega hörð sam-
keppni en það ætti að geta komið
neytendum tfi góða.“
Þekking og reynsla
VIS keypti fyrir nokkrum árum
þrjú félög af sænska tryggingafélag-
inu Skandia. Skaðatrygginga- og líf-
tryggingafélag og Fjárvang, sem þá
hét Fjárfestingafélagið Skandia.
„Gagnstætt því sem margir töldu
voram við ekki fyrst og fremst að
leita eftir því að fá bílatryggingarnar
sem Skandia var með. Við keyptum
þessa starfsemi reyndar líka en vor-
um fyrst og fremst að leita eftir því
að kaupa Fjárvang. Þar er þekking
og reynsla af fjármálaumsvifum,
rekstri verðbréfasjóða, fjárvörslu
hvers konar, ávöxtun fyrir einstak-
linga og fyrirtæki, verðbréfamiðlun
og ýmsu öðra auk þess sém fyrir-
tækið sér um rekstur á Frjálsa líf-
eyrissjóðnum, stærsta séreignalíf-
eyrissjóðnum. Við hugsuðum þetta
einmitt sem skref inn á fjármála-
markaðinn og tengjum það þeirri
starfsemi sem, eins og þú réttilega
bendir á, hefur verið að aukast hjá
okkur, fjármálastarfsemi VIS. Aukin
umsvif á sviði líftrygginga og lang-
tímaspamaðar kalla líka á það að
hafa á okkar snærum eða í nánum
tengslum, fyrirtæki sem getur veitt
svona þjónustu. Fjárvangur gegnir
þess vegna þýðingarmiklu hlutverki
í þessu sambandi. Þar er harðsnúinn
hópur starfsmanna; sérfræðinga
með góða þekkingu og reynslu á
fjármálamarkaði og það hefur verið
mjög ánægjulegt að fá þennan hóp
til samstarfs. Við leggjum mikla
áherslu á starfsemi Fjárvangs, sam-
hliða því sem er að gerast bæði í líf-
tryggingum og innan VIS. Að hluta
til má segja að þetta sé ein samofin
heild, en verður eðli málsins og lög-
um samkvæmt að rekast í aðskildum
félögum.
Rétt er að minna á í þessu sam-
bandi, að þessi kaup áttu sér stað áð-
ur en Landsbankinn gerðist hluthafi
í VÍS og Líftryggingafélaginu, en frá
þeim tíma hefur samstarf við Lands-
bankann hafist á fjölmörgum nýjum
sviðum, sem bjóða upp á fjölda nýrra
tækifæra fyrir alla samstarfsaðila."
Hvemig verður hinn almenni við-
skiptavinur var við hagræðinguna
sem orðið hefur vegna stofnunar
VÍS?
„Við höfum getað, vegna hag-
ræðingarinnar, boðið betri kjör í
harðri samkeppni og má í því sam-
bandi benda á mikla lækkun
iðgjalda, sem nemur hundraðum
milljóna króna á ári, í mörgum
greinum trygginga undanfarin ár,
en jafnframt því höfum við leitast
við að auka þjónustustigið. Hag-
ræðingin hefur því gefið tækifæri til
að veita betri þjónustu fyrir lægra
verð. En ýmislegt annað sem snýr
að viðskiptavininum hefur breyst á
þessum tíma. Breyting í lagaum-
hverfmu hefur til dæmis opnað
gluggann til annarra landa. Trygg-
ingafélög frá öðrum löndum eða full-
trúar þeirra hafa komið hingað og
boðið þjónustu sína. Ef hagræðingin
hefði ekki átt sér stað hefðum við
ekki verið eins vel tilbúin að takast á
við þá samkeppni. Annað sem snýr
að neytendunum, tengist aukinni
neytendavernd. í dag geta neytend-
ur mjög auðveldlega fengið mál sín
skoðuð af öðram en tryggingafélag-
inu sem þeir eiga viðskipti við, ef
ágreiningur er uppi, til dæmis um
bótaskyldu. Auk þess geta þeir
leitað til úrskurðarnefndar í vá-
tryggingamálum, þar sem sitja full-
trúar frá neytendasamtökunum og
vátryggingaeftirlitinu auk fulltrúa
frá tryggingafélögunum. Þannig
hafa viðskiptavinirnir ýmis úrlaúsn-
arúrræði án þess að þurfa að leita til
dómstóla ef ágreiningur kemur upp.
Á þessu sviði hafa orðið heilmiklar
framfarir."
Hvernig heldurðu að þróunin
verði á næstu árum, á fólk enn eftir
að sjá miklar breytingar á trygg-
inga- og fjármálamarkaði?
„Já, ég tel það líklegt. Við eigum
eftir að sjá enn meiri áhrif af sam-
keppninni erlendis frá og hana
verða íslensku félögin á þessu sviði
stöðugt að takast á við. Samstarf
banka og tryggingafélaga - þvert á
gömul landamæri - á eftir að breyta
dreifi- og þjónustuleiðum; fólk getur
farið á fleiri staði en áður til að fá
þjónustu. I flestum löndum í kring-
um okkur er komin upp nokkuð
öflug miðlarastarfsemi 1 vátrygging-
um. Hún hefur farið hægt af stað
hér en gæti átt eftir að þróast áfram
á ákveðnum sviðum. Síðan er alveg
ljóst í mínum huga að tækniþróun á
eftir að veita nýja möguleika, meðal
annars opna leiðir fyrir nýja sam
keppnisaðila inn á markaðinn. Inter-
netið getur orðið mjög mikilvægur
liður í þjónustu og dreifingu ýmis
konar fyrir tryggingafélög og fjár-
málastofnanir."
Axel nefnir að talsverð breyting
hafi orðið á váti'yggingastarfseminni
vegna aukinnar áherslu á neyt-
endamál í löggjöfinni. „Nú bjóða vá-
tryggingafélög fjöldan allan af ýmis
konar starfsábyrgðartryggingum