Morgunblaðið - 07.02.1999, Síða 56
56 SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Sú minnsta
og léttasta
NÝLEGA kynnti japanska
fyrirtækið FujiFilm til sög-
unnar „minnstu og létt-
ustu“ digital-myndavélina á
markaðnum. Myndavélin
FinePix 2700 vegur aðeins
230 grömm en hún var
sýnd á sýningu í Tókýó 4.
febrúar sl. A myndinni sést
Kazumi Hiraiwa, starfs-
maður FujiFilm, horfa í
gegnum linsu vélarinnar.
Aætlað er að hefja sölu á
vélinni í mars.
LITILL svartur hundur sést hér
hlaupa um í lystigarðinum í
Sánkti Pétursborg í Rússlandi.
Mikil snjókoma var síðasta
föstudagsmorgun og kyngdi
snjónum niður, en mikill kuldi
hefur verið á þessum slóðum og
hefur kuldinn verið 25 gráðum
undir frostmarki undanfarna
daga.
r
Er förðun fyrir þig?
Förðunarskóli íslands býður sex vikna grunnnám
í förðun. Námið hefst 1. mars nk., kennt verður
á kvöldin frá kl. 18.30-22.30.
Frábært tækifæri fyrir fólk sem ætlar sér að
vinna við sölu, kynningu eða tískuna.
Takmarkaður sætafjöldi
Allar nánari upplýsingar í
símum 588 7575 og 5511080.
...gerðu kröfurtil námsins, það gerum við.
Grensásvegi 13,108 Reykjavík, s. 588 7575.
SiÍS#
LIÐIÐ Þijú á Palli sem sjá má hér að ofan keppir á mánudag við Tjarnartríói^rgunbladið/líri‘stinn
LIÐIN í LEIKHÚSSPORTI
Spunagen
Keppni um Fresca-bikarinn í leikhússporti
Eins og á spenn-
andi kappleik
• Halldóra Geirharðsdóttir
• Bergur Þór Ingólfsson
• Stefán Jónsson_____________
Vatnadansmeyjafélagið
Hrafnhildur
• Margrét Vilhjálmsdóttir
• Halla Margrét Jóhannesdóttir
• Sigrún Sól Ólafsdóttir
• Valur Freyr Einarsson
Hin fjögur fræknu
• Edda Björg Eyjólfsdóttir
• Friðrik Friðriksson
• Halldór Gylfason
• Vilhjálmur Goði Friðriksson
Bekkurinn
• Ingrid Jónsdóttir
• Hjálmar Hjálmarsson
• Árni Pétur Guðjónsson
Spunavélin
• Kolbrún Anna Björnsdóttir
• Þórey Sigþórsdóttir
• Dofri Hermannsson__________
Spunamótorinn
• Þórarinn Eyfjörð
• Björk Jakobsdóttir
« Skúli Gautason_____________
Þrjú á palli
• Hrefna Hallgrímsdóttir
• Gunnar Helgason
« Þrúður Vilhjálmsdóttir_____
Tjarnartríóið
• Linda Ásgeirsdóttir
• Sveinn Þórir Geirsson
• Gunnar Hansson
LEIKHÚSSPORT hefst annað
kvöld í Iðnó eftir nokkurt hlé og
verður með ferskasta móti. Það
stendur nefnilega til að keppa um
Fresca-bikarinn með útsláttarfyr-
irkomulagi og hafa átta lið sem
standa saman af 26 leikurum skráð
sig til þátttöku. Liðin glíma annan
hvern mánudag fram á vor og
verður úrslitaglíman 26. apríl.
„Á hverju kvöldi verður leyni-
gestur og byrja áhorfendur á að
finna út hver hann er,“ segir Mai--
grét Vilhjálmsdóttir, helsti hvata-
maður Leikhússportsins. „Það
verður hluti af upphituninni fyrir
þátttakendur bæði í salnum og á
sviðinu. Leynigesturinn sest svo
við dómaraborðið og gegnir stöðu
oddadómara."
Með Margréti í viðtalinu eru
tveir aðrir leikarar, Friðrik Frið-
riksson og Halldóra Geirharðsdótt-
ir, og vitaskuld leynigestur. Það er
góðleg og sjarmerandi miðaldra
kona sem býður hópnum að setjast
hjá sér. Hún lítur á blaðamann og
spyr: „Ert þú ekki sonur hennar
Kristrúnar?“ „Jú,“ svarar blaða-
maður. „Mikið ertu líkur henni,“
bætir hún við og brosir.
„Þetta var nú aldeilis óvænt,“
segir Margrét um athugasemd
leynigestsins. „En svona er nú leik-
hússportið. Jafnvel viðtölin eru
óútreiknanleg." Og það er Margrét
sem tekur að sér að útskýra leik-
hússportið. „Það er eins og allir
vita keppni í spuna þar sem ..."
Friðrik grípur fram í fyrir henni
og biður: „Má ég segja.“ Svo heldur
hann áfram: „Leikhússport er eins
og allir vita ...“ Hann klórar sér í
kollinum. Svo veltir hann vöngum.
Þá lítur hann áhyggjufullur til him-
ins. Loks hamrar hann borðið með
fingrunum og ranghvolfir augunum
áður en hann botnar: „ ... afkvæmi
leikhúss og íþrótta."
Hann segir svo frá því að upp-
hafsmaður leikhússportsins hafi
verið Keith Johnstone. „Hann tók
eftir því að allir fóru á kappleiki og
öski-uðu sig hása þótt þeir vissu
ekkert um úrslit leikjanna. Svo
spurði hann sig að því af hverju
það væri ekki líka hægt í leikhúsi.
Áhorfendur gætu tekið þátt með
framíköllum og leikarar sleppt
fram af sér beislinu í spuna.“
Eins og á alvörukappleik er
dómari á leikhússportinu og raun-
ar gott betur því þrír dómarar eru
á hveiri keppni. Þeir gefa stig fyrir
skemmtanagildi, tækni og þráð.
„Keppnin verður alvarlegri núna
en áður,“ segir Margrét. „Nú erum
við að keppa um Fresca-bikarinn
og það verða veglegir vinningar."
Hún er ábúðarfull þegar hún ryður
þessum upplýsingum frá sér og
greinilegt að mikið er í húfi. „Allar
keppnimar verða teknar upp og í
mótslok verður valinn besti
Fresca-spuninn og besti Fresca-
spunaleikarinn," segir hún.
Allt í einu rifjast það upp fyrir
blaðamanni að Halldóra Geirharðs-
dóttir situr líka við borðið og er
þátttakandi í viðtalinu. Hún hefur
hins vegar átt mjög annríkt í við-
talinu því hún hefur verið í hróka-
samræðum við gsm-síma. Margréti
verður líka litið á Halldóru og seg-
ir: „Segðu nú eitthvað skemmti-
legtj geeeeerðu það.“
„Ég hlakka rosalega til,“ segir
Halldóra. „Ég vona að það verði
réttlátt dæmt. Megi besta liðið
vinna!“
„Af hverju bullum við svona mik-
ið?“ kastar Friðrik fram og er hálf-
gáttaður á öllu saman.
því þetta er spuni,“ svarar
Margrét og brosir.
FJARFESTU I FRAMTIÐ ÞINNI - NÁM í USA
SkCacmui/ ^lbiioer&itif/
Alþjóðlegt yfirbragð:
8400 nemendur frá 91
• Akademísk námsskrá:
Val um yfir 40 aðal-
landi 1 \v \ námsgreinar.
• Möguleiki á launuðu l*f • HPU býður upp á 7
hlutastarfi: Starfsþjálf- |m« v p 1 °| prófgráður.
un í viðkomandi fagi VsY l/l/ • Öflug enskunámskeið,
• Einstaklingurinn í staðfest námsárangurs-
fyrirrúmi: Meðalfjöldi í bekk er 22. skírteini & „Nám eriendis' námskeið i boði.
KYNNINGARFUNDUR
Hótel Sögu í Skála
Mánudaginn 8. feb. kl. 19
VIÐTALSTIMI
(þarf að panta)
Þriðjudaginn 9. feb.
Nánari upplýsingar veitir Jeff Palm fra 7.-9. febrúar é
Hótel Sögu, v. Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími 552-9900.
AÐGANGUR ÓKEYPIS - FORELDRAR OG NÁMSMENN VELKOMNIR!
HAWAII PACIFIC UNIVF.RSITY
Oflíce of Interiiiitiomil Adniis.siiins
45 045 Kamehameha IIiylmav, Kaneohe. Ilavvaii 06744-5207, USA
Sími 001808 236 3502. Fax: 001808 236 3520.