Morgunblaðið - 09.02.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999 25
ERLENT
Þýzkir jafnaðarmenn og Græningjar verða fyrir áfalli í kosningum í Hessen
Urslitin draga dilk á eftir
sér fyrir Schröder-stjórnina
Bonn. Reuters.
Reuters
HANS Eichel (t.v.), fráfarandi forsætisráöherra Hessens og héraðsleið-
togi SPD, hyggst ekki fara fyrir stjórnarandstöðunni eftir ósigurinn.
Anægjan skein hins vegar úr andlitum þeirra Wolfgangs Scháubles,
flokksleiðtoga CDU, og Rolands Kochs, sem taka mun við af Eichel.
Lehtikuva
Menningar-
verðlaun
afhent
MENNINGARVERÐLAUN Norð-
urlandaráðs árið 1999 voru af-
hent í tengslum við fund ráðsins í
Helsinki í gær. Finnska tónskáld-
ið Leif Segerstam hlaut tónlistar-
verðlaunin en bókmenntaverð-
launin féllu í skaut dönsku skáld-
konunnar Piu Tafdrup. Hér
brosa verðlaunahafarnir, sem
hvor um sig fær 350.000 danskar
krónur í verðlaunafé, á blaða-
mannafundi fyrir afhendingarat-
höfnina, sem fram fór í hinu ný-
byggða nýlistasafni fínnsku höf-
uðborgarinnar.
URSLIT kosninganna til þings
þýzka sambandslandsins Hessen á
sunnudag, þar sem kristilegir
demókratar (CDU) hrósuðu óvænt
sigri og jafnaðarmenn (SPD) og
Græningjar töpuðu stjórnarmeiri-
hluta sínum, munu tvímælalaust
draga dilk á eftir sér fyrir þýzku
sambandsstjórnina í Bonn, eftir því
sem talsmenn stjórnarflokkanna
sögðu í gær.
Miðju-vinstri-áherzlur stjórnar-
stefnu ríkisstjórnar Gerhards
Schröders virtust hafa beðið hnekki
með úrslitunum í Hessen, auk þess
sem meirihluti jafnaðarmanna og
Græningja í Sambandsráðinu, efri
deild þjóðþingsins, tapaðist.
„Við neyðumst til að láta þetta
okkur að kenningu verða,“ sagði
Oskar Lafontaine, formaður SPD
og fjármálaráðherra. Hann sagði að
nást yrði málamiðlun um áform
stjórnarinnar um endurskoðun laga
um ríkisborgararétt, „svo að það
verði ekki hægt að nota þau til að
ýfa upp andúð á útlendingum“. Ein
meginástæðan fyrir kosningasigri
CDU í Hessen er rakin til áberandi
baráttu flokksins gegn tvöföldum
ríkisborgararétti, sem er eitt
kjarnaatriðið í breytingaráformum
stjórnarinnar en skoðanakannanir
hafa sýnt að meirihluti kjósenda er
andvígur.
Aðrir talsmenn SPD og Græn-
ingja sökuðu CDU um að hafa á óá-
byrgan hátt afflutt inntak breyting-
aráforma stjórnarinnar í því skyni
að vinna atkvæði í kosningunum í
Hessen. „Við vanmátum hve langt
þeir [kristilegir demókratar í Hes-
sen] myndu ganga í að espa fólk
upp með áróðri," sagði Ottmar
Schreiner, framkvæmdastjóri SPD.
Stjórn SPD og Græningja í Hes-
sen, sem hafði verið við völd frá því
1991, missti óvænt þingmeirihlut-
ann með því að CDU fékk 43,4% at-
kvæða og náði með því dágóðu for-
skoti á SPD, sem þrátt fyrir allt
bætti lítillega við sig frá því í síð-
ustu kosningum. Það sem kostaði
stjómina meirihlutann var að fylgi
Græningja í héraðinu hrundi úr yfir
11% í 7,2% og Frjálsir demókratar
(FDP) - sem hafa langa reynslu af
stjórnarsamstarfi við CDU - náðu
tilskildu 5% lágmarkshlutfalli at-
kvæða til þess að fá úthlutað þing-
sætum.
Annars er ekki nóg með að kosn-
ingasigurinn gerði CDU kleift að
mynda stjórn í Hessen í samstai'fi
við FDP - með honum fá þeir líka í
sinn hlut þau fimm sæti í Sam-
bandsráðinu, efri deild þjóðþingsins
í Bonn, sem Hessen á tilkall til. Með
því missa jafnaðarmenn og Græn-
ingjar meirihlutann þar, sem þýðir
að CDU og FDP, sem nú eru í
minnihluta á Sambandsþinginu,
neðri deild þjóðþingsins, komast í
aðstöðu til að hindra samþykkt
frumvarpa sem Schröder-stjómin
vill koma í gegn.
„Nú verða þeir að tala við okkur
ef þeir vilja koma einhverri löggjöf í
gegn,“ sagði Angela Merkel, fram-
kvæmdastjóri CDU.
Áhrif Græningja
á stjórnarstefnuna minnka
Stjórnmálaskýrendur voru á
einu máli um það í gær, að ósigur-
inn í Hessen bakaði stjórn
Schröders margs konar vand-
kvæði. Hann myndi í fyrsta lagi
knýja stjórnarstefnuna meira til
hægri, einkum í málum sem hinir
róttæku umhverfisverndarsinnar í
röðum Græningja hafa viljað
leggja mesta áherzlu á eftir að
þeim gafst færi á að hafa áhrif á
landsstjórnina. Nú þegar er allá-
berandi togstreita í gangi milli
stjórnarflokkanna í Bonn.
„Þetta mun ljóslega styrkja stöðu
SPD innan stjórnarinnar," sagði
Wichard Woyke, stjómmálafræði-
prófessor við háskólann í Múnster.
„SPD mun leggja meiri áherzlu á
sín stefnumið - baráttuna gegn at-
vinnuleysi og spurninguna um fé-
lagslegt réttlæti - sem flokkurinn
vann sambandsþingskosningamar
út á,“ sagði hann.
Ottmar Schreiner sagði tímabært
að vægi þeirra mála sem stjórnin
legði mesta áherzlu á endurspeglaði
þann kjósendafjölda sem stæði að
baki hvors stjórnarflokkanna
tveggja, en þetta hlutfall er um sjö
á móti einum, SPD í hag.
Honda á Islandi ■ Vatnagörðum 24 • Sími 520 I 100
Opið virka daga kl.9-18 og kl. 12-16 á laugardögum
Nýtt ár opnar þér nýjar leiðir. Þá borgar sig að velja sér farartæki sem gerir allar leiðir færar.
Honda CR-V er vel búinn og sprækur sportjeppi á mjög hagstæðu verði sem gerir hann að
hinum ákjósanlegasta ferðafélaga. Á þessu ári skalt þú setja þér háleitari markmið en nokkru
sinni fyrr og ná þeim með nýjum Honda CR-V. Fró i nnn i/r
- hér eru gæði á ferðinni