Morgunblaðið - 09.02.1999, Síða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
*
/
\
Um ríkið
/
„Eg nefni það ríki, þar sem allir eitur-
svelgir búa, góðir og vondir. Eg nefni það
ríki, þar sem allir týna sjálfum sér, góðir
og vondir. Eg nefni það ríki, þar sem hið
seinvirka sjálfsmorð allra manna gengur
undir nafninu „líf‘. “
Friedrich Nietzsche
Asama tíma og áhrifa-
mestu ríki hins vest-
ræna heims á tuttug-
ustu öld voru að mót-
ast hélt þýski heim-
spekingurinn Friedrich Ni-
etzsche einn svakalegasta reiði-
lestur um ríkið sem um getur.
Orðin lagði hann í munn spá-
mannsins Zaraþústru í frægustu
bók sinni, Svo mælti Zaraþústra.
Bók fyrir alla og engan, sem kom
út í fjórum hlutum á árunum
1883 til 1885 (íslensk þýðing e.
Jón Ama Jónsson 1996). Ni-
etzsche er gífuryrtur í umfjöllun
sinni um ríkið eins og svo marga
aðra hluti - sennilega myndu fáir
láta hafa annað eins eftii’ sér nú
og kannski eru ekki margir al-
gerlega sammála því sem hann
segir en vafa-
VIÐHORF
Eftir Þröst
Helgason
laust er sumt af
því kunnuglegt.
,Á einhveij-
um stöðum eru
enn til þjóðir
og hjarðir, en ekki hjá okkur,
bræður mínir: við höfum ríki.“
Með þessum orðum hefur Ni-
etzsche kaflann um ríkið sem
nefnist raunar „Um nýja skurð-
goðið“. Hann kallar ríkið „köld-
ustu ófreskju í heirni". Hann seg-
ir hana ljúga blákalt: „Ég, nTdð,
er fólkið."
Nietzsche heldur því fram í
Zaraþústru að maðurinn verði
sjálfur að gefa lífinu gildi á skap-
andi hátt, hann verði að finna því
tilgang og merkingu óháð stærri
lausnum því að öll hugmynda-
kerfi hafi brugðist, það séu engar
altækar lausnir til lengur, nema
sú að maðurinn reyni að sigrast á
sjálfum sér, að hann reyni að yf-
irstíga takmörk sín og verða
meira en hann sjálfur - ofur-
menni. Hver einstaklingur verð-
ur því að losa sig úr viðjum
hjarðmennskunnar eða öllu held-
ur hefja sig upp yfir hana, hann
þarf að glíma við sjálfan sig og til
þess þarf hann rými og umfram
allt frelsi. I ríkinu er það af
skornum skammti.
Ríkið er að mati Nietzsches
kúgunartæki, það er tæki til þess
að halda skrílnum í skefjum:
,úUltof margir eru í heiminn
bomir: ríkið var fundið upp
handa þeim sem er ofaukið!" seg-
ir Nietzsche. Og enn fremur:
„Sjáið bai-a hvernig það laðar of
fjölmennan íjöldann til sín!
Hvernig það gleypir hann, tygg-
ur og jórtrar! // „Ékkert á jörð-
inni er mér æðra: ég er hinn
skipuleggjandi fingur guðs“ -
þannig öskrar ófreskjan. Og
fleiri en eymalangir og nærsýnir
falla á kné!“
Nietzsche segir að ríkið tæli
jafnvel hinar „miklu sálir“ sem
sigrast hafa á hinum gamla guði,
hetjumar sem hafa þor til að
standa frammi iyrir tóminu sem
dauði guðs skyldi eftir: „Þið
þreyttust í bardaganum og nú
þjónar þreyta ykkar hinu nýja
skurðgoði!" Ríkið vill nefnilega
safna að sér „hetjum og heiðvirð-
um mönnum": „Þessi kalda
ófreskja sækist eftir að baða sig í
sólskini góðrar samvisku!“ Og
það svífst einskis til að ná tak-
marki sínu:,,Allt vill nýja skurð-
goðið gefa ykkur, ef þið tilbiðjið
það: þannig kaupir það sér ljóma
dyggðar ykkar og blikið úr stolt-
um augum ykkar.“
Að ganga til liðs við ófreskjuna
kostar ekkert minna en lífið
sjálft, að mati Nietzsches, því
það rænir mann mennskunni, í
ríkinu týna menn sjálfum sér:
„Ég nefni það ríki, þar sem allir
eitursvelgir búa, góðir og vondir.
Ég nefni það ríki, þar sem allir
týna sjálfum sér, góðir og vondir.
Ég nefni það ríki, þar sem hið
seinvirka sjálfsmorð allra manna
gengur undir nafninu „líf
I ríkinu þrífst hins vegar aum-
ingjahátturinn með ágætum, að
mati Nietzsches, þar njóta þeir
sín best sem ekkert geta, ekkert
hafa unnið til gagns, aldrei hafa
hugsað nýja hugsun. Þetta eru
hinir einskis nýtu sem Nietzsche
hefur mestan ímugust á. Um þá
hefur hann mörg svívirðingarorð:
„Lítið bara á hina einskis nýtu!
Þeir hnupla sér verkum hugvits-
manna og gersemum spekinga:
og kalla svo ránsfenginn mennt-
un - og í höndum þeirra grotnar
allt niður í sjúkdómum og hörm-
ungum! // Lítið bara á hina
einskis nýtu! Alltaf eru þeir veik-
ir, þeir spýja galli og kalla það
dagblað. Þeir gleypa hver annan
og geta svo ekki melt. // Lítið
bara á hina einskis nýtu! Þeir
safna auði, og verða fátækari fyr-
ir vikið. Þeir vilja vald, þessar
mannleysur, en fyrst og fremst
vogarstöng valdsins: of fjár! //
Horfið á þá klifra, þessa liðugu
apa! Þeir klifra hver yfir annan
og dragast þannig niður í forina
og djúpið. // Alla langar þá upp í
hásætið: það er þeirra geðbilun -
eins og hamingjuna sé að finna í
hásætinu! Oft situr þar efja ein -
og oft stendur hásætið líka í efj-
unni. //1 mínum augum eru þeir
sturlaðir klifurapar og alltof
kappsfullir. Illan þef leggur til
mín frá skurðgoði þeirra,
ófreskjunni köldu: illa þefjast
þeii- mér allir, þessir skurðgoða-
dýi-kendur."
Það sem Nietzsche biður um
er að einstaklingar eigi kost á
frjálsu lífi. Hann vill að menn
verði ekki samdauna kerflnu og
tilbúnum hugmyndum þess um
sjálft sig, heiminn og tilveruna.
Hann segir mönnum að rífa sig
lausa úr viðjum ósjálfræðisins,
menn mega ekki láta berast með
straumnum, láta stjómast í ein-
hveiju meðvitundarleysi um
sjálfa sig: „Bræður mínir, ætiið
þið að kafna úr svækju ástríðn-
anna í gini þeirra? Bijótið heldur
glugga og stökkvið út.“
Það er ekkert sjálfsagt í þess-
ari heimssýn Nietzsches. Vald
ríkisins yfir múgnum er ekki
sjálfgefið. Mai'gir myndu frekar
vilja gefa sér að hver einstakling-
ur sé hugsandi maður sem taki
meðvitaða afstöðu tii umhverfis
síns. Þannig mætti segja að
ákveðin mannfyrirlitning sé falin
í hjarðmennishugmyndinni. En
jafnframt er hugmyndin um að
maðurinn geti sigrast á sjálfum
sér og aðstæðum sínum mjög
göfug og bjartsýn. Og það er á
þeim nótum sem Nietzsche lýkur
þessum kafla um nýja skurðgoð-
ið: „Þar sem ríkinu sleppir taka
við mennirnir sem ekki eru óþai-f-
ir: þar byrja ljóðmæli hins nauð-
synlega, hið einstaka og ómetan-
lega stef. // Þar sem ríkinu slepp-
ir, - ó, iítið á, bræður mínir! Sjáið
þið hann ekki, regnbogann, og
brýr ofurmennisins?
UMRÆÐAN
Látum Geysi gjósa
HINN 3. september
1997 skipaði umhverf-
isráðherra nefnd til að
gera tillögur um friðun
Geysis og Geysissvæð-
isins. Ég varð fyrir
vonbrigðum þegar ég
las skýrslu þessarar
nefndar. I fylgibréfi frá
formanni segir: „Mikið
hefur verið skinfað um
Geysi og sýnist sitt
hveijum um hvort rétt
sé að hjálpa hvernum
að gjósa að nýju.
Nefndin ákvað að taka
ekki afstöðu til þess
álitamáls.“ Ég hélt að
þetta væri meginverk-
efni nefndarinnar og vonaðist eftir
að sjá loksins raunhæfar tillögur,
en það verkefni bíður næstu nefnd-
ar! Meða! þeirra hugmynda sem
nefndin ákvað að taka ekki afstöðu
til er sú sem ég ætla að kynna hér
á eftir.
Niíverandi ástand
Geysis
Það er þrennt sem ræður því
hvort Geysir í Haukadal getur gos-
ið eins og honum var eðlilegt þegar
hann var frægasti goshver í heimi:
Vatnsmagnið sem rennur
inn í botn hversins.
Hitastig vatnsins sem rennur
inn í hverinn.
Kælingin frá yfirborði vatnsins
í skáhnni.
Innrennslið í Geysi hefur minnk-
að frá því sem var í byrjun aldar-
innar þegar hann gaus daglega og
stundum oftar. Hitastig vatnsins
gæti einnig hafa lækkað frá því
sem áður var. Með tímanum hefur
skálin hækkað svo að yfirborð
vatnsins í henni hefur stækkað og
við það eykst kæling frá yfirborð-
inu sem smám saman veldur lengri
tíma á milli gosa. Með því að lækka
vatnsborðið í skálinni þegar raufin
var gerð tókst að minnka kæling-
una nægilega til þess að Geysir fór
aftur að gjósa. Þetta nægði í nokk-
ur ár en með stöðugt minnkandi
innrennsli fækkaði gosunum aftur.
Til þess að Geysir gjósi af sjálfs-
dáðum eru nokkur ráð, sem grípa
má til.
Borun
Best væri að bora holu niður úr
botni Geysis til að auka innrennslið
í hverinn. Það þarf aðeins um 3-5
1/sek. í viðbót við núverandi inn-
rennsli til þess að hann gjósi á ný
án þess að neinar aðrar ráðstafanir
komi til. Gosskálin væri þá látin
vera full og upphleðsla hennar
héldi áfram á eðlilegan hátt. Nátt-
Fagna ber því að
þessi ökuglaða þjóð
skuli nú loks fá traustar gaddavírs-
rásir að ferðast í á sunnudögum.
Útlendir ferðalangar munu
úruspjöll vegna þess-
ara framkvæmda
væru engin. Holan
væri ósýnileg þar sem
hún byijar í klöppinni
á 18,2 m dýpi. Verká-
ætlun um framkvæmd
þessarar borunar þarf
að gera með það í
huga að skemma ekki
skálina og valda eng-
um náttúruspjöllum.
Þetta er vel fram-
kvæmanlegt á minna
en einum mánuði.
Lækkun
vatnsborðsins
Margar hugmyndir
hafa komið fram um lækkun vatns-
borðsins tii að minnka hitatapið.
Gallinn við allar slíkar hugmyndir
er sá að þær valda þvi að goshegð-
Hverir
í nýrri Geysisnefnd er
nauðsynlegt að séu
eðlisfræðingar, segir
ísleifur Jónsson. Þeir
hafa þá þekkingu sem
þarf til að skilja eðli
goshvera.
un Geysis breytist. Fyrsti hluti
gossins, þegar hverinn er að þeyta
burtu vatninu sem er í skálinni, er
tekinn burtu. Þetta hljóta að teljast
náttúruspjöll. Ef svo er ekki þá má
spyrja: Hvað eru náttúruspjöll?
Upphitun vatnsins
i skálinni
Ef ekki fæst samþykkt að bora í
Geysi mætti hugsa sér að nota
þessa aðferð. Ég veit ekki til þess
að komið hafi fram áður sú hug-
mynd sem ég ætla að lýsa hér: Að
hita upp vatnið í gosskálinni til að
vega upp hitatapið frá yfirborði
vatnsins. Tii þess myndi þurfa
kyndistöð. Hér hentar best að nota
raforku. Aðferðin gæti verið sem
hér segir:
Boraðar væru tvær holur úr
lægðinni norðan við Geysi. Önnur
yrði boruð inn í skálina til hliðar
við gospípuna. Hin yrði boruð inn í
gospípuna 1-2 m neðar. Vatnið yrði
leitt úr skálinni í gegnum efra rörið
niður í kyndistöð sem yrði reist í
gilinu norðan við Geysi. I kyndi-
stöðinni yrði komið fyrir rafmagns-
vatnshitara. Vatninu úr skálinni
yrði dælt í gegnum hitarann og síð-
sunnudögum.
væntanlega einnig fá að njóta hins
nýja útsýnis.
Höfundur er apótekari.
an aftur inn í gospípuna í Geysi.
Þetta er mjög einföld aðferð til að
vega upp á móti kælingunni frá yf-
irborði hversins.
Mælingar sem gerðar voru um
1960 sýndu að yfirborðshitastig
vatnsins í skálinni verður að vera
að minnsta kosti 93-94 °C svo að
Geysir gjósi án sápu. Þessi aðferð
hefur þann kost að engin breyting
er gerð á hvemum sjálfum. Rauf-
inni yi'ði lokað og skálin látin vera
full af vatni eins og eðlilegt væri ef
nægilegt vatn rynni inn í hverinn.
Uppbygging skálarinnar myndi
halda áfram með útfellingum á
steinefnum úr vatninu. Hitarinn
væri notaður þegar þess væri ósk-
að að hverinn gysi. Það mætti vel
hugsa sér að láta hann gjósa dag-
lega eða annan hvern dag.
Þessu má fjarstýra frá hótelinu.
Rafstraumurinn yrði rofinn með
stjórntækjum í kyndistöðinni þeg-
ar gos hefst í Geysi. Það mætti vel
hugsa sér að rjúfa strauminn að
Geysi yfir nóttina með klukkurofa
svo að hann gjósi aðeins að degi til
svo að ferðamenn eigi auðveldara
með að sjá gosið.
Það er augljóst að með þessari
aðferð er gosum í Geysi stýrt, en
ég tel þó að það sé til mikilla bóta
að nota þessa aðferð til að láta
hann gjósa frekar en að láta hann
hætta alveg með því að gera ekki
neitt eins og mörg undanfarin ár
og áratugi. Það er alltaf hægt að
hætta að nota rafhitunina og gera
Geysi virkan á ný með því að auka
vatnsrennslið með borun í botn
hversins eins og ég hef lagt til að
gert verði.
Lokaorð
Upphaflega var þessi hugmynd
sett fram meira í gamni en alvöru.
Við nánari athugun virðist mér að
þetta gæti verið ágæt aðferð til að
gera Geysi virkan á ný. Fólk myndi
venjast því að Geysir væri farinn
að gjósa aftur svo að það vekti
enga sérstaka eftirtekt þótt borað
væri til að gera hann varanlega
virkan á eðlilegan hátt. Rafhitunar-
aðferðin gæti einnig verið leið til að
leysa fjárhagsvanda væntanlegrar
Geysisnefndar. Það væri vel hægt
að selja gosin. Ferðaskrifstofurnar
sem flytja fólk austur að Geysi
gætu þá pantað gos fyrirfram á
ákveðnum tíma, þó aðeins eitt gos
á dag, gegn hæfilegri greiðslu. Ég
tel rétt að koma þessu í gang sem
allra fyrst. Hitarinn þarf að vera
250-300 kw. Þá þarf ekki að bíða
lengi eftir gosi, líklega um 1 klst.
eftir að rafstraumi er hleypt á.
Ég vona að umhverfísráðherra
skipi fljótlega nýja „Geysisnefnd"
sem fær það verkefni að taka af-
stöðu til þeirra hugmynda sem
fram hafa komið til að lífga Geysi
við svo að hann gjósi aftur án sápu.
I þeirri nefnd er nauðsynlegt að
séu eðlisfræðingar sem hafa þá
þekkingu sem þarf til að skilja eðli
goshvera. Ég leyfi mér að benda á
að hjá Orkustofnun starfa nú sumir
okkar bestu vísindamanna á því
sviði t.d. fyiTverandi rektor Há-
skóla Islands.
Varðandi hagnýtingu jai'ðhitans
vil ég benda á þann möguleika að
bora til hliðar við friðaða svæðið og
fóðra af efstu 500-600 metrana svo
að vatnið sem notað er komi í raun
undan friðaða svæðinu. Það ætti
ekki að lækka þrýstinginn á Geys-
issvæðinu og ekki að hafa áhrif á
goshverina en það eru þeir sem
gera svæðið svo sérstakt að það er
talið ein mesta náttúruperla Is-
lands.
Höfundur er vcrkfræðingur.
Heldur þú að 5
Hvítlaukur sé uóg ? -
NATEN 1
________-ernógl_____5
ísleifur
Jónsson
Um girðingar með-
fram þjóðvegum
„HVER landstjórn
sé framsýn og fáist við
athafnir góðar,“ segir í
kvæðinu.
Sem betur fer virð-
ist ein af vorum ágætu
pólitísku nefndum hafa
tekið hvatningu
skáldsins bókstaflega.
Og hefur fundið út að
lausagöngu Islendinga
um ættjörð sína verði
að linna. Og því beri að
girða þá af með gadda-
vír hið snarasta til
þess að þeir valdi síður
uppnámi hjá búsmal-
anum.
Veggirðingar
Fagna ber því
að þessi
Stefán
Sigurkarlsson
ökuglaða þjóð,
segir Stefán
Sigurkarlsson,
skuli nú loks fá
traustar
gaddavírsrásir
að ferðast í á