Morgunblaðið - 23.02.1999, Side 6

Morgunblaðið - 23.02.1999, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR — Morgunblaðið/RAX GÍSLI Kristjánsson og ísak Árnason liestamenn að moka frá hesthúsum sínum. GUNNAR Egill Sævarsson og Ragnar Heiðar Ólafsson 11 ára undu sér vel við leiki í fannferginu á Sauðárkróki í gær. Mikið fannfergi eftir stórhríðina Óvenju mikið snjóflóð féll úr Tindastóli við Reykjaströnd um helgina og fór rafmagn af nokkrum bæjum. Örlygur Steinn Signr- jónsson og Ragnar Axelsson ræddu við fólk í Skagafirði eftir óveðurshelgina. SKAGFIRÐINGAR hófu að ryðja burt snjó af götum og vegum í gær, þegar loks stytti upp eftir þriggja daga látlausa stórhríð og var bæjarbúum á Sauðárkróki sýnilega létt yfír því að geta at- hafnað sig við ýmis útiverk í friði fyrir hamaganginum í vetri kon- ungi. Blaðamenn Morgunblaðsins hittu fyrir starfsmenn Rafmagns- veitu ríkisins þar sem þeir voru að Ijúka viðgerð á rafmagnsbiiun sem varð síðdegis á laugardag þegar snjóflóð féll úr Tindastóli við Reykjaströnd. Fjórir raf- magnsstaurar létu undan þunga snjóflóðsins sem féll af miklum krafti ur Innstalandsskál í Tinda- stóli. Á 1,7 km kafla slitnaði raf- magnslína í flóðinu og var hafíst lianda strax í gærmorgun við að gera við og tengja nýja lfnu og koma rafmagni á að nýju á raf- magnslausa bæi. Urðu alls sex bæir á Reykjaströnd rafmagns- lausir í kjölfar snjófíóðsins en einungis er búið í tveim þeirra og komst rafmagn aftur á um kl. 15 í gær. Að sögn Jóhanns Svavars- sonar, rafveitustjóra RARIK í Skagafirði, var snjóflóðið um 400-500 in breitt og meðaldýpt um 70 cm. Flóðið féll um 800 m vegalengd, náði í sjó fram og ruddi burt girðingu við veginn á Reykjaströnd. Snjóflóð af þessum krafti eru afar fátíð í Tindastóli en ekki er óalgengt að smáspýjur falli úr ijallinu og valda þær vanalega ekki tjóni á borð við það sem varð á laugardag. Snjór safnast einkum fyrir í Innstalandsskál- inni í vestlægum og norðvestlæg- um áttum og getur þá skapast hætta á snjóflóði. íbúar á Reykjaströnd fluttir aftur inn í gær eftir rýmingu Bæirnir Skarð og gamla íbúð- arhúsið í Fagranesi á Reykjanesi voru yfírgefnir af öryggisástæð- um á laugardagskvöld vegna Mál og menning Síðumúla 7-9 Sími 510 2500 HESTAMENN á Sauðárkróki tóku klára sína út í gær eftír 3 daga hlé. snjóflóðahættu að tilmælum al- mannavarnanefndar Skagafjarð- ar, en hættuástandi var aflétt í gærmorgun og gátu íbúarnir þá flutt aftur inn. Ibúar í Fagranesi voru þegar farnir út áður en átti að rýma, en þeir fóru ekki langt þar sem þeir fluttu sig um set í nýja íbúðarhúsið í Fagranesi, sem er skammt frá. Þar býr Jón Eiríksson ásamt Jóni Kolbeini 12 ára syni sinum. Jón slapp við raf- magnsleysið af völdum snjóflóðs- ins sem kom úr Innstalandsskál- inni þar sem hann hefur heimarafstöð en varð hins vegar að sætta sig við 9 kiukkustunda rafmagnsleysi frá kl. 21 á föstu- dagskvöld til kl. 6 næsta morg- un, vegna annars snjóflóðs sem féll úr Tindastóli ofan í Fagra- nesárgilið fyrir ofan bæinn. Snjórinn stíflaði ána sem knýr rafstöð Jóns neðan við bæinn og olli rafmagnsleysinu, en allt komst þó í samt Iag þegar stíflan losnaði. Heimarafstöðina smíðaði Jón 1958 úr hlutum sem hann viðaði að sér úr ýmsum áttum og segir að hann hafi ekki átt rétt á láni til rafstöðvarsmíðarinnar nema að tveim þriðju lilutum. „Ég var á orkuveitusvæði og fékk því aðeins 60 þúsund króna Ián af 90 þúsund krónum, sem voru lánaðar til heimarafstöðva- smíða á bæjum utan orkuveitu- svæða,“ segir Jón. „Það var ráð- gert að Ieggja raflínu frá Tungu hingað úteftir og Fagranes var endabærinn og þess vegna fékk ég ekki nema 60 þúsund króna lán. Auk þess átti ég að borga lánið upp ef mér yrði gefinn kostur á að fá ríkisrafmagn. Svo kom ríkisrafmagn en þá voru lið- in 17 ár frá því ég byggði mína rafstöð og tvær afborganir voru eftir af láninu og það endaði með því að þessu ákvæði var aldrei beitt.“ JÓN Eiríksson í Fagranesi þurfti ekki að líða rafmagns- skort nema í 9 klukkustundir þar sem hann liefur verið með heimarafstöð frá árinu 1958. Jón segir að ekki þurfi að vaka stöðugt yfír heimarafstöð- inni en heldur þurfi þó að vera á verði í fyrstu frostum. „I fyrstu frostum er alltaf grunnstingull og þá myndast ís við botn uppi- stöðulónsins sem sest á ristarnar við inntaksþróna og stíflar allt.“ Við bj ö rgu n araðge rð i r hefur Jón því ósjaldan dottið í lónið og komið blautur heim eftir barátt- una við hinn hvimleiða grunn- stingul, en þegar líða fer á vet- urinn hverfur þetta vandamál og þá má reiða sig á stöðugleika rafstöðvarinnar. Hestamenn komnir aftur á kreik Hestamenn voru víða á ferð í nágrenni Sauðárkróks í gær og tóku klára sína til kostanna eftir þriggja daga hlé sem óhjákvæmi- lega þurfti að taka vegna veðurs. Mest reið þó á að moka frá hest- húsum og þeirra á meðal voru fé- lagarnir Gísli Kristjánsson og Isak Árnason. í húsi Gísla eru sjö hross og segir hann veðrið ekki hafa komið í veg fyrir að menn kæmust í gegningar þótt ekki væru menn að ríða út í hríðinni. Gísli segir að eftir að menn tóku að gefa hrossum hey úr rúllum hafí orðið erfíðara að gefa í slæmum veðrum þar sem hesta- menn ganga ekki að rúllunum í hlöðum sínum líkt og var með baggana gömlu. „Þegar fennir fyrir dyr þá lenda menn oft í basli,“ segir Gísli og bætir við að menn Ieggi þó allt á sig til að gefa hrossun- um þótt illa viðri, hann segir vet- urinn hafa verið slæman þar sem stöðugar umhleypingar hafi ein- kennt hann auk þess sem hann hafi lagst snemma að. „Það var mjög slæmt veður hér 21.-23. október þegar hér gerði áhlaup og allt fór á svarta kaf. Síðan hefur verið umhleypingatíð og náð nánast að hreinsa en alltaf eykst klaki á jörðu og þá verður erfiðara fyrir útigangandi hross að beija. Það er óskaplegt hey- magn sem er farið í vetur hjá bændum og hrossaeigendum al- mennt.“ Þeir ísak segja að veðrið um helgina hafi samanstaðið af . verstu vindáttum sem geta komið í Skagafirði. „Norðan- og norð- vestanátt eru verstu áttimar hér,“ segir hann og bætir við að veðrið á Króknum geti verið með ágætasta móti í austan- og suð- austanátt þótt veðrið sé arfavit- laust frammi í sveitum. Gísli segist hafa tekið hross sín snemrna á hús í vetur eða í byrj- un nóvember en þá hafi verið tekið fyrir alla jörð í haga. „Það var ekkert um annað að ræða, en að taka allt inn en að öllu jöfnu hefur maður tekið inn um ára- mótin. Hrossin vom samt ekki viðkvæm fyrir fóðurbreytingun- um því það var ekki það langt liðið á haustið og hrossin því ekki komin á mikla sinu og almennt voru hross vel haldin. Menn fóru síðan að gefa almennt mikið af heyi og ég held að menn átti sig ekki á því hversu mikið er búið að gefa af heyi í vetur.“ Þeir Gísli og ísak höfðu í gær ekki hreyft hross síðan á fimmtu- dag og kváðust helst vilja vera lausir við stórviðri, til að geta riðið út og tamið án allra tafa vegna veðursins. „Þetta er hund- leiðinlegur vetur í vetur og það eykur álagið á manni þegar mað- ur þarf að moka snjó og draga heyrúllur að hlöðudyrum og slíta úr þeim til að bera hey í hross- in,“ segir Gísli. Þeir ísak vörpuðu að lokum lofi á mokstursmenn bæjarins sem hafa verið iðnir við að moka göturnar í hesthúsahverfinu jafn- hliða því sem þeir hafa verið önn- um kafnir við götumoksturinn á Króknum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.