Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 13
 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 13 rnmr’" OCTAVIA heitír þessi glæsilegi bíll, sem SKODA framleiðir í samvinnu við VOLKSWAGEN i einni tæknivæddustu bílaverksmiðju Evrópu. OCTAVIA er nýtt andlit SKODA og stendur fyrir bestu gæði, hæstu öryggiskröfur og mikil þægindi. Stýrishjól er stillanlegt að og frá, upp og niður með einu handtaki. Bak við létt og nákvæmt aflstýrið á SKODA OCTAVIA liður ökumanni einstaklega \el og hann finnur til öryggis, þar sem öllum stjórntækjum er fyrir komið þar sem auðvelt er að grípa til þeirra. Allar nauðsynlegar uppýsingar varðandi aksturinn eru á mælum, gaumljósum og aksturstölvu beint fyrir framan ökumann. Hástætt hemlaljósker eykur öryggi gegn aftanákeyrslu, en laesivarðir hemlar (ABS ) gera ökumanni kleift að forðast það sem kann að verða óvænt á vegi hans, þar sem hjólin læsast ekki og því er hægt að stýra frá og stöðva. Hliðarspeglar eru stillanlegir með rofa í bílstjórahurð og hitunin sér um að halda hrými og snjó í skef|um, en rafeindastýrð spólvörn ( EDS ) gerir það létt að taka af stað I snjó og hálku. Fullkomið rafeindakerfi vakir yfir ökumanni og farþega í framsæti. Komi til árekstrar ræsir þessi hátæknibúnaður líknarbelgina, auk þess að strekkja á öryggisbeltum. Hjá SKODA er öryggið í fyrirrúmi. Sprækur og sparneytinn 1,6 lítra bensínhreyfill, með rafeindastýrðri fjölinnsprautun, 101 hestafl úr smiðju Volkswagen, gefur gott viðbragð og kemur ekki illa við pyngjuna. HEKLA -í forystu á nýrri öld J www.hekla.is Sími 569 5500 S28 lítra farangursrými. Ef aftursætisbak er fellt niður er 1328 lítra pláss til staðar Rými sem fæst aðeins í góðum langbak. Vegna þess hve nett og tæknileg útfærslan á afturfjöðrunarkerfinu er, fæst fúllur metri á milli hjólaskála. Afturhurð er stór og nær niður að stuðara svo mjög auðvelt er að hlaða fyrirferðarmildum farangri inn í bílinn. Atsinkhúðuð yfirbygging OCTAVIA er einstaklega sterk, enda framleidd eftir ströngustu kröfum með gæði og nákvæmni að leiðarljósi. Ábyrgð er veitt í 10 ár gagnvart gegnumryði. Aflögunarsvið með stigverkandi viðnámsstyrk að framan og aftan auk sérstakra bita i hurðum og öflugs styrktarbúrs um farþegarýmið gera OCTAVIA einn öruggasta kostinn í sínum stærðarflokki. EINSTAKT VERÐ! SKODA OCTAVIA GLX 1,6 kostar aðeins 1328.000 Alfelgur á mynd kosta 76.000.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.